Fleiri fréttir

Arnór Atlason líklega ekki með í kvöld

Arnór Atlason verður líklega ekki með í seinni æfingaleik Íslands og Austurríkis sem fer fram í kvöld en Arnór meiddist á hné í fyrri leiknum í gær sem Ísland vann 29-28. Ísland og Austurríki mætast aftur í Linz klukkan 19.15.

Rosaleg vika framundan hjá Arsenal-liðinu

Arsenal fær Liverpool í heimsókn klukkan 17.30 í kvöld í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en það er nóg af risaleikjum framundan á næstu dögum hjá lærisveinum Arsene Wenger.

Newcastle endaði sigurgöngu Chelsea

Newcastle endaði sex leikja sigurgöngu Chelsea í öllum keppnum og varð fyrsta liðið til að vinna lærisveina Jose Mourinho síðan 18. september.

Enginn Einar eftir í KV - Bjarni Guðjóns búinn að taka tvo

Einar Már Þórisson skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við Fram og er enn einn ungi og reynslulitli leikmaðurinn sem Bjarni Guðjónsson, nýráðinn þjálfari Fram, fær til liðs við Safamýrarliðið fyrir átökin í Pepsi-deildinni 2014.

Kobe Bryant fékk feitan tékka í gær

Kobe Bryant er ekki enn farinn að spila með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta enda að ná sér eftir hásinarslit. Þessi snjalli leikmaður hafði þó ástæðu til að brosa í gær þegar hann fékk risastóra upphæð inn á bankareikning sinn.

Mourinho: Ég gerði ekkert sérstakt fyrir Torres

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, ætlar ekki að taka heiðurinn af því að spænski framherjinn Fernando Torres er farinn að líkjast þeim leikmanni sem Chelsea borgaði 50 milljón punda fyrir á sínum tíma.

Roy Keane verður aðstoðarmaður Martin O'Neill

Martin O'Neill ætlar að fá Roy Keane til að vera aðstoðarmann sinn hjá írska landsliðinu samkvæmt enskum miðlum en fátt kemur nú veg fyrir að O'Neill verði landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu.

NBA í nótt: Tvö töp í röð hjá Miami Heat

Miami Heat tapaði sínum öðrum leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lá á móti Brooklyn Nets en þetta var í fyrsta sinn í tíu mánuði sem NBA-meistararnir tapa tveimur leikjum í röð.

Hefði viljað vita af síðasta landsleiknum

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir leggur skóna á hilluna í vor eftir handboltaiðkun í aldarfjórðung. Fékk ekki að kveðja landsliðið eftir sautján ára landsliðsferil.

Stórskrýtin stjóraskipti sem gengu upp

Southampton situr í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir níu umferðir og hefur fengið á sig fæst mörk allra liða. Evrópusæti er ekki svo fjarlægur draumur.

Heimsfriður tók lestina

Metta World Peace, leikmaður New York Knicks í NBA-deildinni, ferðaðist með neðanjarðarlest á sinn fyrsta heimaleik í deildinni með Knicks en leikmaðurinn gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið.

Dortmund rústaði Stuttgart

Borussia Dortmund rústaði Stuttgart, 6-1, í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld á heimavelli.

Halldór Hermann í Val

Halldór Hermann Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Þrír mótmæltu fyrir utan KSÍ

Aðeins þrír mættu til að mótmæla miðasölunni á leik Íslands og Króatíu fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Boðað hafði verið til mótmælanna í gær á Facebook.

Pistill Robbie Savage: United nær ekki Meistaradeildarsæti

Robbie Savage, fyrrum leikmaður unglingaliðs Manchester United og atvinnumaður með Leicester, Birmingham og Blackburn, er nú pistlahöfundur hjá Daily Mirror og hann tjáir sig um gengi Manchester United í nýjasta pistli sínum.

Arteta hrósar Luis Suarez

Mikel Arteta, fyrirliði Arsenal, hrósar Luis Suarez, framherja Liverpool, fyrir það hversu Úrúgvæmaðurinn hefur komið sterkur til baka eftir að hafa tekið út tíu leikja bann. Arsenal tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Mark Hughes er fimmtugur í dag

Mark Hughes heldur upp á fimmtugs afmæli sitt í dag en þessi fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi knattspyrnustjóri Stoke City, fæddist í Wales 1. nóvember 1963.

Joe Hart búinn að missa sætið sitt í City-liðinu

Joe Hart, markvörður enska landsliðsins, verður ekki í byrjunarliði Manchester City sem mætir Norwich City í ensku úrvalsdeildinni á morgun en þetta hefur enska blaðið Daily Telegraph eftir heimildarmönnum sínum.

Martin O'Neill að taka við írska landsliðinu

Breskir miðlar greina frá því að Martin O'Neill muni taka við írska landsliðinu í fótbolta í síðasta lagi í næstu viku. Írar eru að leita að landsliðsþjálfara eftir að Ítalinn Giovanni Trapattoni hætti með liðið í haust.

Bjarni Hólm og Viktor Bjarki verða áfram með Fram

Varnarmaðurinn Bjarni Hólm Aðalsteinsson og miðjumaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson verða áfram með Fram í Pepsi-deild karla í fótbolta næsta sumar en Framara sendu frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem kemur fram að þessir reynslumiklu menn hafi framlengt samninga sína.

Að velja réttar þrengingar

Það getur skipt sköpum að vera með réttar þrengingar þegar farið er til veiða enda eru færin oft misjöfn eftir veðri og aðstæðum.

Áskorun Patrice Evra: Vinnum tíu í röð

Patrice Evra hefur sett stefnuna á tíu sigurleiki í röð og segir að einungis slík sigurganga segi honum að Manchester United liðið sé komið aftur í gang.

Dæma í asísku Meistaradeildinni

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson handknattleiksdómarar hafa fengið það verkefni að dæma í Asian Club League Championship.

Þrjár viðstöðulausar troðslur á 32 sekúndum

Chris Paul og Blake Griffin voru í miklum ham í 126-115 sigri Los Angeles Clippers á Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en það var einkum ótrúlegur 32 sekúndna kafli sem stóð upp úr í leiknum.

NBA: Rose með sigurkörfu Chicago Bulls

Derrick Rose var hetja Chicago Bulls í NBA-deildinni í körfubolta í nótt í fyrsta heimaleik sínum eftir að hann snéri til baka eftir eins og hálfs árs fjarveru vegna krossbandsslita. Chris Paul átti stórkostlegan leik þegar Los Angeles Clippers vann sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Stutt á milli stórleikjanna

Njarðvík og KR mætast í Ljónagryfjunni kl. 18.00 í kvöld í 32 liða úrslitum Powerade-bikars karla í körfubolta.

Við hlökkum til næsta árs

Íslenska kvennalandsliðið vann 2-1 útisigur á Serbíu í gær í lokaleiknum á eftirminnilegu ári. Þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Freys Alexanderssonar og fyrsti leikur Margrétar Láru Viðarsdóttur sem fyrirliða.

Sjá næstu 50 fréttir