Fleiri fréttir

Pastore skoraði tvö og PSG á toppinn - Joe Cole með glæsimark

Argentínumaðurinn Javier Pastore skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Paris Saint-Germain á Montpellier í frönsku deildinni í gær. Parísarliðið, sem var fremst í flokki Evrópufélaga á leikmannamarkaðinum í sumar, komst á topp deildarinnar með sigrinum.

Birgir Leifur á einu yfir pari eftir tíu holur

Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið tíu holum á lokahringnum á opna austurríska mótinu í golfi. Hann er á einu höggi yfir pari og á einu höggi undir pari samanlagt.

Ísland tapaði með tveimur mörkum gegn Tékkum

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði 30-28 gegn Tékkum í lokaleik sínum á æfingamótinu í Póllandi í morgun. Íslenska liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á þessu sterka móti. Þetta kemur fram á mbl.is.

Vettel getur orðið meistari í dag, en Hamilton í vandræðum

Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu getur orðið heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 mótinu í Singapúr í dag, ef úrslitin í mótinu verða honum hagstæð. Vettel er fremstur á ráslínu, en fjórir keppinautar hans um titilinn eru í næstu sætum á eftir.

Umfjöllun: Hlynur Atli kom Fram úr fallsæti

Fram vann í dag nauman 2-1 sigur á Grindavík í hörðum fallbaráttuslag suður með sjó. Grindvíkingar eru fyrir vikið dottnir niður í ellefta sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina um næstu helgi.

Yordan Letchkov í þriggja ára fangelsi

Yordan Letchkov, varaforseti búlgarska knattspyrnusambandsins, var í vikunni tilkynnt að hann ætti að hefja afplánun þriggja ára fangelsisdóms.

Vettel getur slegið met

Sebastian Vettel var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Singapúr í dag. Hann náði besta tíma og hefur ellefu sinnum verið fremstur á ráslínu í Formúlu 1 á þessu ári. Vettel getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn annað árið í röð ef úrslitin í kappakstrinum á sunnudag verða honum hagstæð.

Dómari varð uppvís að leikaraskap

Hann var svo sannarlega ekki til fyrirmyndar dómarinn í viðureign Operario og Mirassol í neðri deildum brasilíska boltans á dögunum. Hann sýndi fáséð leikræn tilþrif af dómara að vera og óhætt að segja að leikmennirnir hafi brugðist illa við.

Messi skoraði þrjú og Barcelona vann stórsigur

Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði þrennu fyrir Barcelona sem rúllaði yfir Atletico Madrid 5-0 á Nývangi í kvöld. Heimamenn skutust með sigrinum upp fyrir Real Madrid í þriðja sæti deildarinnar.

Byggja 7 þúsund manna völl á flugmóðurskipi

Fyrsti körfuboltaleikurinn á flugmóðurskipi verður leikinn 11. nóvember í San Diego í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn bandaríska háskólakörfuboltans hafa, með leyfi bandaríska sjóhersins, ákveðið að byggja sjö þúsund manna völl á dekki flugmóðurskipsins USS Carl Vinson.

Ancelotti klár í slaginn á nýjan leik

Carlo Ancelotti, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segist klár í slaginn á nýjan leik bjóðist gott tækifæri. Hann segist aldrei hafa sagst ætla að taka sér eins árs frí frá störfum sem knattspyrnustjóri.

Íslensku stelpurnar töpuðu með fjórum gegn Póllandi

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði með fjórum mörkum gegn Pólverjum á æfingamóti í Póllandi í kvöld. Lokatölurnar urðu 26-22 heimakonum í vil sem voru vel studdar af 1.500 áhorfendum. Þetta kemur fram á mbl.is í kvöld.

Sigur hjá Inter í fyrsta leik undir stjórn Ranieri

Inter vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Bologna á útivelli 3-1 í Serie A. Leikurinn var sá fyrsti undir stjórn knattspyrnustjórans Claudio Ranieri sem tók við liðinu í vikunni.

Tungufljót að taka við sér

Tungufljót í Skaftafellssýslu er að taka við sér. Hollið sem var við veiðar fram á hádegi í gær fékk 17 fiska, og var einn lax í aflanum.

Vettel fremstur á ráslínu í ellefta skipti í ár

Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Hann ók á tímanum 1:44.381 og Mark Webber á Red Bull náði næst besta tíma og var 0.351 úr sekúndu á eftir Vettel. Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.428 sekúndum á eftir Vettel. Vettel verður fremstur á rásllínu í ellefta skipti á árinu í kappakstrinum á morgun.

Ragnar og Sölvi Geir í sigurliði FCK gegn Bröndby

FC Kaupmannahöfn vann dramatískan 2-1 útisigur á Bröndby í dönsku knattspyrnunni í dag. Meistaraliðið átti undir högg að sækja lengst af leik, kom tilbaka og tryggði sér sigur í blálokin.

Hlynur tekinn við kvennaliði Breiðabliks

Breiðablik gekk í gær frá ráðningu Hlyns Eiríkssonar sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hlynur þjálfaði lið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna á síðasta tímabili.

Dómarinn sem rak Totti af velli dæmdur í fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl

Ítalir muna vel eftir dómaranum Byron Moreno frá Ekvador. Hann dæmdi viðureign Ítala og Suður-Kóreu í átta-liða úrslitum HM 2002 og þótti dómgæsla hans í meira lagi vafasöm. Hann hefur nú verið dæmdur í tveggja og hálfs ára fangelsi fyrir að smygla heróíni.

Webber sneggstur á lokæfingunni fyrir tímatökuna

Mark Webber á Red Bull var fljótastur allra ökumanna á síðustu æfingu Formúlu 1 ökumanna í Singapúr í dag. Hann var 0.027 úr sekúndu fljótari en Jenson Button á McLaren, en Sebastian Vettel á Red Bull var með þriðja besta tíma. Vettel var 0.264 á eftir Webber.

Wilshere frá í langan tíma - þarf að fara í uppskurð

Jack Wilshere leikmaður Arsenal þarf að fara í uppskurð á hægri ökkla að sögn forráðamanna Arsenal. Talið var að meiðsli Wilshere myndu aðeins halda honum frá keppni í nokkrar vikur. Fréttirnar eru enn eitt áhyggjuefnið fyrir Arsene Wenger, knattspyrnustjóra félagsins.

Birgir Leifur í banastuði í Austurríki

Birgir Leifur Hafþórsson fór á kostum á þriðja hring opna austurríska golfmótsins í morgun. Birgir Leifur lék hringinn á 68 höggum eða fjórum undir pari vallarins. Hann er því á tveimur höggum undir pari samanlagt eftir þrjá hringi.

Aron Bjarki: Þurfti allt í einu að vera maðurinn

"Maður hugsar alltaf um að boltinn sé að koma fyrir og maður verði að negla sér á þetta,“ sagði Aron Bjarki Jósepsson, hetja KR-inga í 3-2 sigurleiknum gegn Keflavík á fimmtudagskvöld.

Víkingarnir losuðu sig við metið

Víkingar burstuðu ekki bara Blikana 6-2 í Kópavoginum á mánudaginn því þeir losuðu sig um leið við óvinsælt met sem hefur verið í þeirra eigu í 19 ár. Víkingar höfðu átt metið í lélegum varnarleik í titilvörn síðan þeir voru að verja titil sinn frá sumarinu 1991 og glímdu við falldrauginn alveg fram í síðasta leik.

Bjarni með horn í síðu mótherjanna í sumar

Hornspyrna Bjarna Guðjónssonar skilaði KR-ingum sigri á móti Keflavík í fyrrakvöld og þar með þriggja stiga forystu á toppnum. Bjarni var þarna að leggja upp sjöunda markið sitt í sumar úr hornspyrnu og KR-liðið hefur alls skorað 10 af 41 marki sínu eftir horn.

Hættur öllu sukki í mataræðinu

Ísland á flotta fulltrúa í stórleik dagsins í þýska handboltanum þegar lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar, Rhein-Neckar Löwen, taka á móti strákunum hans Alfreðs Gíslasonar í Kiel. Róbert Gunnarsson og Aron Pálmarsson munu takast á inni á vellinum en Róbert hefur mætt eins og nýr maður til leiks á þessu tímabili eftir að hafa tekið mataræðið sitt algjörlega í gegn.

Stoke stöðvaði sigurgöngu Manchester United

Manchester United gerði 1-1 jafntefli gegn Stoke í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Stigið dugar liðinu til að komast í toppsætið með betri markatölu en grannarnir í City. Liðið var án Wayne Rooney auk þess sem Chicharito meiddist snemma leiks og var skipt af velli.

Man City á toppinn eftir sigur á Everton

Manchester City skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Everton í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni. City var mun sterkari aðilinn í leiknum og tókst að knýja fram sigur með mörkum frá Mario Balotelli og James Milner í síðari hálfleik.

Pepe ekki alltaf sá eðlilegasti

Þeir sem fylgjast með spænska boltanum vita að Pepe gefur sig allan í verkefnið. Hann er stundum eins skapstyggt og mannýgt naut. Gæti hreinlega dregið lítinn vatnsdropa yfir eyðimörk á reiðinni einni saman. Gríðarlega oft fer hann yfir strikið þannig eftir er tekið.

Artest slær í gegn í dansþætti

Einhver vinsælasti þáttur vestanhafs er Dancing with the stars. Þar fara frægir í dansskóna og einn af þeim sem taka þátt er enginn annar en vandræðagemsinn Ron Artest sem breytti nafninu sínu nýlega í Metta World Peace.

LeBron gerir grín að sjálfum sér í auglýsingu

Lebron James vann ekki NBA meistaratitilinn með Miami Heat í fyrra. Það er lítið að gera fyrir NBA-leikmenn þessa dagana og James notar tímann til þess að lappa upp á laskaða ímynd sína.

Ólafur Már komst ekki áfram á annað stig úrtökumótanna

Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur úr GR, er úr leik á úrtökumótum Evrópumótaraðarinnar í golfi. Ólafur lauk leik í Þýskalandi í dag á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann var þremur höggum frá því að komast áfram.

Arnór Smárason skoraði sigurmark Esbjerg

Arnór Smárason skoraði sigurmark Esbjerg í dönsku b-deildinni í kvöld. Esbjerg vann þá 2-1 sigur á Vejle Boldklub í toppslag deildarinnar en leikurinn fór fram á heimavelli Esbjerg.

Sjá næstu 50 fréttir