Bjarni með horn í síðu mótherjanna í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2011 09:00 Bjarni Guðjónsson ræðir hér við sína menn í leiknum í Keflavík. fréttablaðið/Valli
Hornspyrna Bjarna Guðjónssonar skilaði KR-ingum sigri á móti Keflavík í fyrrakvöld og þar með þriggja stiga forystu á toppnum. Bjarni var þarna að leggja upp sjöunda markið sitt í sumar úr hornspyrnu og KR-liðið hefur alls skorað 10 af 41 marki sínu eftir horn. „Við erum með rosalega öfluga skallamenn,“ sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR og hornspyrnusérfræðingur liðsins. „Við unnum dálítið í þessu í vetur og annað slagið í sumar höfum við farið yfir hornin okkar og hvað við getum gert betur og svo framvegis,“ sagði Bjarni. „Markið í gær var alveg frábært. Það er gömul klisja að ef þú ert duglegur að skora úr hornum og aukaspyrnum getur það unnið fyrir þig leiki. Að sama skapi tapar þú leikjum ef þú ert ekki nógu góður að verjast þeim,“ segir Bjarni. Hornin hafa skilað fleiri sigrum í sumar en í Keflavík því þetta var þriðja sigurmark KR-inga sem kemur eftir horn. Að auki fengu þeir víti eftir horn á móti Fram sem skilaði dýrmætu marki í lokin. Undirbúningur þess marks var keimlíkur sigurmarkinu í Keflavík. „Það var eiginlega nákvæmlega eins. Boltinn var þá mjög svipaður og Aron kom á fleygiferð á nærstöng, skallaði og varnarmaður Fram varði hann með hendinni,“ rifjar Bjarni upp. „Aukaspyrnurnar hafa ekki alveg gengið jafn vel og hornin en ég hefði samt viljað sjá okkur skora fleiri mörk úr hornum og aukaspyrnum,“ segir Bjarni. Bjarni hefur alls átt níu stoðsendingar í sumar og hefur komið að undirbúningi tólf marka. „Ég ætlaði reyndar að skora tíu mörk í sumar en markmiðinu er þarna næstum því náð,“ segir Bjarni að lokum í léttum tón.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Fram - Stjarnan | Geta jafnað KR að stigum Íslenski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Fleiri fréttir Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fram - Stjarnan | Geta jafnað KR að stigum Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Fastir í þriðja gír og bitlausir Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ „Ísland breytti lífi mínu“ Sjá meira