Fleiri fréttir

Vettel fljótastur í Singapúr í dag

Sebastian Vettel á Red Bull náði besta aksturstímanum á seinni æfingu Formúlu 1 liða á götubrautinni í Singapúr í dag. Lewis Hamilton á McLaren hafði fyrr um daginn náð besta tíma á fyrri æfingu dagsins. Tími Vettel á seinni æfingunni var sá besti sem náðist í dag.

Brjálaður kylfingur fékk tveggja ára dóm

Ástralinn Daniel Patrick Betts var dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir grófa líkamsárás. Betts missti stjórn á skapi sínu við það að leika golf með félögum sínum árið 2009.

Rodman talaði aldrei við Jordan og Pippen

Dennis Rodman gaf það upp í nýlegu viðtali að hann hefði aldrei talað við hinar stórstjörnur Chicago Bulls, Michael Jordan og Scottie Pippen, öll þau þrjú tímabil sem Rodman var með Chicago. Hannsagði ekki orð við þá tvo.

Hamilton fljótastur á fyrstu æfingu

Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á götubrautinni í Singapúr í dag. Hann varð 0.406 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bul varð þriðji, 1.467 sekúndu á eftir Hamilton.

Dalglish hefur líka klúðrað eins og Torres

Hver getur gleymt klúðri Fernando Torres gegn Manchester United? Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn sem leikmaður brennir af opnu marki gegn meisturunum. Í apríl 1980 gerði nefnilega sjálfur King Kenny, Kenny Dalglish, slíkt hið sama á Old Trafford.

Ólafur Már í góðri stöðu á lokahringnum

Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er í góðri stöðu á fjórða hring úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í Fleesensee í Þýskalandi. Ólafur hefur leikið fyrstu tíu holurnar í dag á tveimur höggum undir pari og er á fjórum höggum undir samanlagt.

Breiðdalsá að slá metið um tæpa 200 laxa

Breiðdalsá er komin í um 1350 laxa sem er vel yfir fyrra met sem er 1178 laxar frá því í fyrra og ekkert lát á veiðinni þar. Til dæmis veiddust 30 laxar í gær í Breiðdalsá og hann er ennþá að ganga, líkt og einnig á Jöklusvæðinu sem er komið í 525 laxa með Fögruhlíðará. Þar komu 12 laxar á land í gær þrátt fyrir yfirfall enda er veiðin nú að mestu í hliðarám sem renna í Jöklu ásamt Föruhlíðará sem rennur beint til sjávar og er ekki tengd heldur jökulvatninu.

Misskipt veðurguða gæðum

Á sama tíma og einn okkar úr VoV-liðinu var við veiðiskap í Straumfjarðará eftir stóru lægðina um helgina, var annar okkar VoV-verja að læðast á tánum við Álftá á Mýrum, þar sem ekki var að sjá að rignignardropi hefði fallið.

Ólíku saman að jafna í Dölunum

Fáskrúð í Dölum hafði á hádegi í gær gefið 211 laxa, og samkvæmt veiðimönnum er nokkuð af laxi í ánni. Það sama verður ekki sagt um nágrannaána Laxá í Dölum.

Eggert greiddi umboðsmanni Lucas Neill 165 milljónir króna

Knattspyrnuheimurinn nötrar í dag eftir að Peter Harrison, fyrrum umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen og fleiri leikmanna, gaf það út að hann ætli sér að opinbera allan skítinn sem á sér stað í knattspyrnuheiminum. Hann er þegar byrjaður að kjafta frá.

Birgir Leifur: Þetta var frábært fyrir sjálfstraustið

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG byrjaði mjög vel á Opna austurríska mótinu í golfi, sem tilheyrir Evrópumótaröðinni og hófst í Atzenbrugg í gær. Birgir lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur höggum undir pari, sem skilar honum upp í 6. sætið.

Bikarinn að nálgast vesturbæinn

Tuttugasti og fimmti Íslandsmeistaratitill KR er handan við hornið eftir dramatískan 3-2 sigur liðsins á Keflavík í gær. Varamaðurinn Aron Bjarki Jósepsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.

Barcelona ræður stjörnukokk fyrir krakkana sína

Unglingastarf Barcelona hefur skilað mörgum frábærum leikmönnum á síðustu árum eða heimsklassafótboltamönnum eins og Lionel Messi, Cesc Fabregas, Andrés Iniesta og Xavi Hernández svo einhverjir séu nefndir.

Xavi: Fabregas gerir mig að betri fótboltamanni

Spánverjinn Xavi, einn allra besti miðjumaður í heimi, telur að koma Cesc Fabregas til Barcelona muni hjálpa honum til að verða enn betri leikmaður en Xavi er nú handhafi allra stærstu titlanna sem fótboltamaður getur unnið.

Platini þarf að koma sjálfur fyrir dómara í Sion-málinu

Michel Platini, forseti UEFA, þarf að mæta í réttarsal í máli svissneska félagsins Sion gegn evrópska knattspyrnusambandinu en Svisslendingarnir eru afar ósáttir með að UEFA kastaði þeim út úr Evrópudeildinni á dögunum og höfðuðu mál.

Fyrsti sigurinn í höfn hjá Maradona

Diego Maradona fagnaði í dag fyrsta sigri sínum sem þjálfari Al Wasl liðsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Al Wasl vann þá 3-0 sigur á Emirates í Etisalat-bikarnum en öll mörk liðsins komu eftir hálfleiksræðu Argentínumannsins.

Sunna María samdi við Gróttu til þriggja ára

Fylkisstelpan Sunna María Einarsdóttir hefur gert þriggja ára samning við Gróttu og mun styrkja Seltjarnarnesliðið fyrir átök vetrarins í N1 deild kvenna. Fylkir dró sig úr keppni í N1 deildinni fyrr í dag.

Pato frá í fjórar vikur

Brasilíumaðurinn Pato hjá AC Milan verður frá næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Udinese í gær.

Baldur: Eins og bikarúrslitaleikur

Baldur Sigurðsson skoraði tvö mörk í 3-2 sigri KR á Keflavíkur og átti heilt yfir mjög góðan leik. Hann hrósaði þó varamanninum Aroni Bjarka Jósepssyni sem skoraði sigurmark KR í uppbótartíma leiksins.

Frans: Leiðinlegt að sjá eftir punktinum

Frans Elvarsson, hinn ungi miðjumaður Keflvíkinga, skoraði sitt fyrsta mark í Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík tapaði þó fyrir KR á heimavelli, 3-2.

Stelpurnar kláruðu Wales og unnu riðilinn sinn

Íslenska 19 ára landslið kvenna tryggði sér sigur í sínum riðli í undankeppni Evrópumótsins með því að vinna 2-0 sigur á Wales í lokaleik sínum á Fylkisvellinum í dag. Bæði lið höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína og voru því þegar búin að tryggja sér sæti í milliriðlum.

Sjálfsmark Haraldar banabiti Start í undanúrslitum norska bikarsins

Haraldi Frey Guðmundssyni og félögum hans í Start mistókst að tryggja félaginu sæti í bikarúrslitaleiknum í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið tapaði 0-1 á móti Aalesund í kvöld í seinni undanúrslitaleik norsku bikarkeppninnar. Aalesund, sem var á heimavelli í þessum leik, mætir Birki Má Sævarssyni og félögum í Brann í bikarúrslitaleiknum.

Kjartan Henry: Hinn rauðhærði Nesta kom til bjargar

Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, lét ekki meiðsli í öxl og veikindi stöðva sig og spilaði í 90 mínútur gegn Keflavík í kvöld. Hann lagði upp eitt mark í dramatískum 3-2 sigri sinna manna.

Sörensen hefur aldrei tapað vítakeppni

Danski markvörðurinn Thomas Sörensen heldur því fram að hann hafi aldrei tapað í vítaspyrnukeppni á ferlinum. Lið hans, Stoke, vann einmitt 7-6 sigur á Tottenham í vítaspyrnukeppni í enska deildabikarnum í gær.

Anna Úrsúla kemur til Póllands í kvöld

Valskonan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir ætlar ekki að láta veikindi stoppa sig frá því að spila með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á æfingamóti í Chorzow í Póllandi.

Bayern stokkið í slaginn um Götze

Einn eftirsóttasti leikmaðurinn í þýska boltanum er Mario Götze, leikmaður Dortmund. Fjölmörg félög vilja kaupa strákinn og þar á meðal er Bayern Munchen.

Umfjöllun: Varamaðurinn tryggði KR dramatískan sigur

Varamaðurinn Aron Bjarki Jóesepsson var hetja KR er hann tryggði sínum mönnum sigur gegn Keflavík með marki í uppbótartíma. Lokatölur voru 3-2 fyrir KR sem er nú með þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar karla þegar tvær umferðir eru óleiknar.

Vettel er ekkert kappsmál að landa meistaratitlinum um helgina

Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu segir enga auka pressu á sér að reyna vinna meistaratitil ökumanna í Formúlu 1 í Singapúr um helgina. Hann á möguleika á því ef hann nær 125 stiga forskoti á næsta ökumann í stigamótinu, jafnvel þó fimm mót verði enn eftir, þegar mótinu í Singapúr er lokið. Vettel er núna með 112 stiga forskot á Fernando Alonso hjá Ferrari í stigamóti ökumanna. Vettel ræddi stöðuna í meistarakeppninni á fréttamannafundi í Singapúr í dag.

Dunká komin til SVFR

Í gær var undirritaður samningur á milli Stangaveiðifélags Reykjavikur og Veiðifélags Dunkár um leigu á veiðirétti næstu þrjú árin.

Fylkir ekki með í N1-deild kvenna

Fylkir hefur ákveðið að draga lið sitt til baka úr keppni í N1-deild kvenna sem hefst eftir rúma viku. Samkvæmt heimildum Vísis verður þetta tilkynnt síðar í dag.

Mourinho hefur áhyggjur af útivallarforminu

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, viðurkenndi í gær að hann hefði miklar áhyggjur af spilamennsku liðsins á útivelli. Real hefur þegar tapað fimm stigum á útivelli í vetur.

Tevez skildi ekki sektina frá lögreglunni

Carlos Tevez, framherji Man. City, hefur verið sektaður um rúmar 20 þúsund krónur fyrir brot á umferðarreglum. Tevez keyrði of hratt í nóvember síðastliðnum en var fyrst sektaður núna.

Sjá næstu 50 fréttir