Fleiri fréttir

Heimir Guðjóns: Styttist í toppinn

„Ég er mjög ánægður með að hafa náð að klára þennan leik eftir ágæta spilamennsku hjá mínu liði,“ sagði Heimir Guðjónsson ,þjálfari FH, sáttur eftir sigurinn gegn Selfyssingum í 19.umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með 2-1 sigri FH-inga, en þeir færast æ nær efsta sætinu.

Matthías: Stigin þrjú það sem máli skiptir

„Við erum fyrst og fremst ánægðir með þessi þrjú stig, en það er það eina sem skiptir máli,“ sagði Matthías Vilhjálmsson ,leikmaður FH-inga, eftir sigurinn gegn Selfyssingum í kvöld.

Gummi Ben: Áttum meira skilið úr þessum leik

„Ég er sár og svekktur með þessa niðurstöðu en það er alveg á hreinu að við áttum meira skilið út úr þessum leik en raun bar vitni,“ sagði Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfyssinga, eftir tapið gegn FH í kvöld.

Ólafur: Fylkismenn voru okkur erfiðir

„Þetta sem Fylkismenn sýndu í dag var feykilega massífur leikur og þeir voru okkur erfiðir. En þegar maður lítur til baka hlýtur það að sitja eftir að við unnum 1-0," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks.

Bandaríkjamenn í sérflokki í úrslitaleiknum

Bandaríkjamenn urðu í kvöld heimsmeistarar í körfubolta í fyrsta sinn síðan 1994 eftir örugga 17 stiga sigur, 81-64, á Tyrkjum í úrslitaleiknum á HM í Tyrklandi. Sigur Bandaríkjanna var öruggur og þeir komust mest 22 stigum yfir en bæði liðin komu taplaus inn í þennan leik.

Þórir: Okkar besti leikur í langan tíma

„Okkur fannst við eiga eitthvað skilið úr þessum leik," sagði Þórir Hannesson eftir tap Fylkis gegn Breiðabliki í kvöld. Þórir bar fyrirliðabandið hjá Fylki í leiknum.

Hamilton: Mistök mín gætu kostað mig titilinn

Bretinn Lewis Hamilton gerði afdrifarík mistök í hita leiksíns á Monza brautinni í dag þegar hann ók óvart á Felipe Massa. Hann var efstur að stigum fyrir mótið, en er nú í öðru sæti á eftir Mark Webber þegar fimm mót eru eftir.

Ferrari komið í alvöru titilslag á ný

Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari telur að lið sitt sé nú komið fyrir alvöru í baráttu um meistaratitlanna í Formúlu 1 eftir að liðið náði fyrsta og þriðja sæti á heimavelli liðsins á Monza brautinni á Ítalíu.

Coca-Cola að rifta samningi við Rooney?

Wayne Rooney gæti misst einn stærsta auglýsingasamning sinn. Mail on Sunday greinir frá því að í höfuðstöðvum Coca-Cola gosdrykkjafyrirtækisins séu menn allskostar ekki sáttir við neikvæðar fréttir af kappanum.

Alonso: Sérstök tilfinning að vinna á Monza

Fernando Alonso var hylltur af heimamönnum á Monza brautinni á Ítalíu í dag þegar Ferrrari vann 18 sigurinn á brautinni, sem er met hjá bílasmið á einni og sömu brautinni. Alonso líkti sigrinum við sigur sem hann vann í heimalandi sínu árið 2006 á Barcelona brautinni.

Aron með tvö mörk í öruggum sigri Kiel á Lemgo

Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel í níu marka sigri á Lemgo, 35-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Sigur Kiel var öruggur en liðið var með fimm marka forskot í hálfleik, 18-13.

Umfjöllun: FH-ingar enn með í baráttunni

FH-ingar unnu góðan 2-1 sigur á Selfyssingum í 19.umferð Pepsi-deildar karla í gær en leikið var á Kaplakrikavelli. Björn Daníel Sverrisson og Matthías Vilhjálmsson skoruðu mörk FH-inga en Viðar Kjartansson skoraði eina mark gestanna.

Umfjöllun: Haukar eygja enn von eftir jafntefli í Grindavík

Leik Grindavíkur og Hauka lauk með 1-1 jafntefli í Grindavík. Með þessu halda Grindvíkingar ágætis forskoti á fallsætin tvö en Haukamenn hinsvegar lyftu sér upp fyrir Selfyssinga á markatölu eftir 2-1 tap þeirra fyrir FH.

Umfjöllun: Frjáls og flæðandi sóknarleikur Valsmanna

Valsmenn tóku á móti Stjörnumönnum í 19. umferð Pepsí deildar karla í kvöld. Lokatölur leiksins 5-1 sigur Valsmanna sem ef til vill kom mörgum í opna skjöldu. Stórsigur Valsmanna og líklegast besti leikur þeirra undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar.

KR-ingar unnu 4-2 sigur í Eyjum

KR-ingar skutu Eyjamenn af toppnum og bættu stöðu sína í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn með 4-2 sigri í Eyjum í kvöld. Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir KR en Eyjamenn fóru illa með mörg góð færi í leiknum þar á meðal vítaspyrnu í stöðunni 2-1 fyrir KR.

Umfjöllun: Erfiður vinnudagur Blika borgaði sig

Blikar eru komnir í efsta sætið í Pepsi-deild karla eftir 1-0 sigur á Fylki á Kópavogsvellinum í kvöld. Kristinn Steindórsson skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks.

Liverpool slapp með markalaust jafntefli frá Birmingham

Liverpool gat þakkað markverði sínum og bitleysi sóknarmanna Birmingham fyrir að fá stig út úr leik sínum á móti Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Birmingham skapaði miklu fleiri færi en gestirnir en undir lokin voru Liverpool-menn þó nálægt því að stela sigrinum.

FH-ingar unnu opna norðlenska mótið í handbolta

FH-ingar tryggðu sér sigur á opna norðlenska mótinu í handbolta sem fram fór í Höllinni á Akureyri um helgina. FH-ingar unnu þriggja marka sigur á heimamönnum í úrslitaleiknum.

Modric frá í langan tíma?

Harry Redknapp óttast að Luka Modric verði frá í langan tíma eftir að hafa farið meiddur af velli í 1-1 jafntefli Tottenham gegn WBA.

Fernando Alonso vann ítalska kappaksturinn

Ferrari-menn fögnuðu góðum árangri í ítalska kappakstrinum í formúlu eitt á Monza-brautinn á Ítalíu í dag. Fernando Alonso vann fyrsta sigur Ferrari á brautinni í fjögur ár og Felipe Massa náði þriðja sætinu á eftir Jenson Button hjá McLaren.

Beckham mættur aftur út á völl

David Beckham kom inn sem varamaður þegar LA Galaxy vann Columbus Crew 3-1. Beckham lék síðustu 20 mínúturnar og var þetta fyrsti leikur hans í sex mánuði.

Hólmfríður og félagar þurfa að fara lengri leiðina í úrslitaleikinn

Hólmfríður Magnúsdóttir gat ekki leikið vegna meiðsla þegar Philadelphia Independence tapaði 4-1 fyrir deildarmeisturum FC Gold Pride í lokaumferð deildarkeppni bandaríska kvennafótboltans í nótt. Framundan er úrsltiakeppnin um meistaratitilinn en fyrsti leikur Philadelphia-liðins fer fram 19. september.

Titilslagur á Monza í dag

Formúlu 1 mótið á Monza fer fram í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 11.30.

Kenwyne Jones: Ætlar að reyna að læra af Eiði Smára

Kenwyne Jones er spenntur fyrir tækifærinu á að fá að spila með Eiði Smára Guðjohnsen hjá Stoke en báðir munu þeir væntanlega spila lykilhlutverk í sóknarleik Stoke-liðsins í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Ballack meiddist í jafntefli Leverkusen

Michael Ballack haltraði útaf í 2-2 jafntefli Bayer Leverkusen á móti Hanover í þýsku úrvalsdeildinni í gær og það ætlar að ganga illa hjá fyrirliða þýska landsliðsins að ná aftur sínum full styrk eftir meiðslin sem héldu honum frá HM í Suður-Afríku í sumar.

Stuð í klefanum hjá Víkingum eftir að sætið var í höfn - myndband

Helgi Sigurðsson og félagar í Víkingi komust í dag upp í Pepsi-deild karla næsta sumar eftir 2-0 sigur á KA fyrir norðan í næstsíðustu umferð 1. deildar karla. Það var mikil gleði í leikslok enda Víkingar komnir í úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan sumarið 2007.

Samuel Eto'o tryggði Inter sigur en AC Milan lá fyrir Cesena

Internazionale vann sinn fyrsta leik undir stjórn Rafael Benitez þegar liðið lagði Udinese að velli, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Samuel Eto'o skoraði sigurmarkið í leiknum á 67. mínútu en nágrannarnir í AC Milan töpuðu hinsvegar 2-0 fyrir Cesena.

Tyrkir mæta Bandaríkjamönnum í úrslitaleiknum

Tyrkir komust í úrslitaleikinn á HM í fyrsta sinn í sögunni eftir æsispennandi og dramatískan undanúrslitaleik við Serba í kvöld á HM í körfubolta í Tyrklandi. Tyrkir skoruðu sigurkörfuna hálfri sekúndu fyrir leiklok og unnu 83-82.

Ricardo Carvalho tryggði Real Madrid sigur

Ricardo Carvalho sá til þess að Real Madrid vann sinn fyrsta heimaleik undir stjórn landa hans Jose Mourinho. Portúgalski miðvörðurinn skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Osasuna í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Bobby Zamora ökklabrotnaði í sigri Fulham á Wolves

Fulham varð fyrir miklu áfall í dag þegar aðalmarkaskorari liðsins, Bobby Zamora, ökklabrotnaði í 2-1 sigurleik liðsins á móti Wolves. Zamora var nýbúinn að skrifa undir nýjan samning við félagið en verður nú ekkert með næstu mánuðina.

Alonso: Þolgæði mikilvægri en sigur

Spánverjinn Fernando á Ferrari náði besta tíma í tímatökum í dag, en Ferrari hafði ekki náð besta tíma í tímatökum síðan í Brasilíu árið 2008. Ekið var á Monza brautinni á Ítalíu sem er heimavöllur Ferrari.

Bandaríkjamenn komnir í úrslitaleikinn á HM í körfu

Kevin Durant átti enn einn stórleikinn með bandaríska landsliðinu á HM í körfubolta í Tyrklandi þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Bandaríska liðið vann þá fimmtán stiga sigur á Litháen, 89-74, og mætir annaðhvort Tyrkjum eða Serbum í úrslitaleiknum. Bæði liðin voru búin að vinna fyrstu sjö leiki sína í keppninni fyrir leikinn.

Mark Hughes hvetur Giggs að taka við landsliði Wales

Mark Hughes segir að Ryan Giggs ætti að taka tilboðinu um að gerast landsliðsþjálfari Wales ef að honum verður boðið starfið. Wales leitar nú að nýjum þjálfara eftir að John Toshack hætti með liðið í vikunni.

Sjá næstu 50 fréttir