Fleiri fréttir

Pique: Ronaldo er tilkomumikill en Messi er betri

Varnarmaðurinn Gerard Pique hjá Barcelona telur að Cristiano Ronaldo, góðvinur sinn og fyrrum liðsfélagi hjá Manchester United, eigi eftir að verða enn betri hjá Real Madrdid þegar hann hefur aðlagast liðinu og spænska boltanum betur.

Lippi: Geri ráð fyrir að Cannavaro sé klár gegn Kýpur

Landsliðsþjálfarinn Marcello Lippi hjá Ítalíu hefur engar áhyggjur af því að varnarmaðurinn og landsliðsfyrirliðinn Fabio Cannavaro verði ekki klár í næstu verkefni með landsliðinu þrátt fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Leiweke: Beckham ekki til sölu bara til láns

Tim Leiweke, stjórnarformaður LA Galaxy, hefur ítrekað að stórstjarnan David Beckham sé aðeins á förum á láni frá félaginu en ekki komi til greina að Beckham verði seldur.

Tommy Nielsen búinn að framlengja

Tommy Nielsen hefur framlengt samning sinn við FH í eitt ár til viðbótar en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2003.

Zenden vongóður um að ganga í raðir Sunderland

Hinn 33 ára gamli Boudewijn Zenden hefur æft með Sunderland undanfarna viku og vonast til þess að verða boðinn samningur hjá félaginu en þessi fyrrum landsliðsmaður Hollands er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Marseille rann út í sumar.

Lombardo: Margt líkt með Sampdoria nú og árið 1991

Attilio Lombardo, fyrrum leikmaður Sampdoria og ítalska landsliðsins, hrósar knattspyrnustjóranum Luigi Del Neri og lærisveinum hans í Sampdoria í nýlegu viðtali við Primocanale en Sampdoria er sem stendur á toppi ítölsku serie A-deildarinnar ásamt Inter.

Styttist í endurkomu Arteta með Everton

Miðjumaðurinn Mikel Arteta hjá Everton er óðum að ná sér eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum í leik gegn Newcastle 22. febrúar. Spánverjinn er búinn að vera í strangri endurhæfingu síðan þá en varð fyrir áfalli í síðasta mánuði þegar hann þurfti að fara í aðra aðgerð á hnénu.

Benitez: Danir fara vonandi varlega með Agger

Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool hefur viðurkennt að hann sé á nálum yfir því að varnarmaðurinn Daniel Agger hafi verið kallaður inn í danska landsliðið eftir að vera nýbúinn að ná sér af erfiðum bakmeiðslum.

Bandaríkjamenn leiða eftir fyrsta dag Forsetabikarsins

Nú stendur yfir keppnin um hinn svokallaða Forsetabikar á Harding Park golfvellinum í San Francisco í Kaliforníu þar sem kylfingar frá Bandaríkjunum etja kappi við alþjóðlegt lið kylfinga utan Bandaríkjanna og Evrópu.

Massa í læknisskoðun hjá FIA á morgun

Formúlu 1 ökunaðurinn Felipe Massa fer í læknisskoðun hjá FIA á morgun til að ákvarða hvort hann fær leyfi til að keppa í lokamótinu í Abu Dhabi eftir þrjár vikur.

Grant í viðræðum við Red Bulls en valdi Portsmouth

Umboðsmaður Avram Grant, fyrrverandi stjóra Chelsea og nýráðins yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, hefur viðurkennt að Ísraelinn hafi átt í viðræðum við bandaríska MLS-deildarfélagið New York Red Bulls áður en hann ákvað að snúa aftur til Englands.

Gunnar Magnússon: Við áttum stigið skilið

„Ég er virkilega ánægður með að ná stigi hér í fyrstu umferð gegn mjög sterku liði FH. Ég er ánægður með strákana," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK, eftir 28-28 jafntefli liðsins gegn FH í kvöld.

Ólafur Guðmunds.: Svekkjandi því við stefnum hátt

„Það var smá jákvætt í þessu en líka neikvæðir punktar. Við vorum ekki að spila eins vel og við getum og því fór sem fór," sagði niðurlút skytta FH-inga, Ólafur Guðmundsson, eftir jafnteflisleikinn gegn HK í Digranesi í kvöld.

Cannavaro féll á lyfjaprófi

Fabio Cannavaro, fyrirliði Juventus, hefur fallið á lyfjaprófi en í ljós kom að hann hafði innbyrt kortisón en efnið er á bannlista.

RH Löwen missti niður unninn leik í jafntefli

Pólska liðinu KS Kielce tókst að tryggja sér jafntefli gegn Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi í kvöld með því að skora jöfnunarmarkið þegar þrjár sekúndur voru eftir af leiknum.

Rúnar: Bubbi vann okkur

Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, segir að frammistaða Hlyns Morthens í marki Vals hafi skilið á milli liðanna í kvöld. Valur vann fjögurra marka sigur, 23-19.

Hlynur: Varla hægt að byrja betur

Hlynur Morthens var án nokkurs vafa maður leiksins er Valur vann góðan sigur á Akureyri, 23-19, í N1-deild karla í kvöld.

Dýrast að kaupa upp samning Hulk

Í nýjustu útgáfu Futebolfinance birtist listi yfir þá leikmenn efstu deildar í Portúgal sem eru með hæstu klásúluna í samningi sínum sem segir til um hvað lið þurfi að borga til þess að borga upp samning þeirra.

Sol Campbell orðaður við West Brom

Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar er varnarmaðurinn Sol Campbell, sem fékk sig lausann frá fimm ára samningi við Notts County, í viðræðum við enska b-deildarfélagið West Brom.

KR hefur ekki áhuga á Bjarna Ólafi

Orðrómur þess efnis að landsliðsbakvörðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson væri á leið frá Val yfir í KR á sér enga stoð í raunveruleikanum. Það staðfesti Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, við Vísi í dag.

Andri: Þurfum að fá tvo mjög sterka leikmenn í viðbót

Haukar tilkynntu á blaðamannafundi í dag að þjálfarinn Andri Marteinsson hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið en Andri hefur verið þjálfari hjá Haukum síðustu átta ár í yngri flokkum til að byrja með og svo meistaraflokki.

Toyota að skoða framhaldið í Formúlu 1

Svo virðist sem Toyota sé að skoða gaumgæfilega hvort liðið verður í Formúlu 1 til frambúðar eður ei. Toyota vill ekki staðfesta þátttöku í mótaröðinni á næsta ári fyrr en eftir stjórnarfund þann 15. nóvember.

AC Milan neitar því að vera á eftir Adriano

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að AC Milan sé að skipuleggja óvænt boð í brasilíska framherjann Adriano sem hætti hjá erkifjendunum í Inter fyrr á þessu ári.

Haukar spila á Hlíðarenda - Mete til Hauka

Úrvalsdeildarlið Hauka mun leika hluta heimaleikja sinna í Pepsi-deildinni næsta sumar á Vodafonevellinum að Hlíðarenda. Þessi tíðindi koma nokkuð á óvart enda áttu margir von á því að þeir myndu spila sína heimaleiki í Kaplakrika.

Gillett tilbúinn að selja sinn hlut í Liverpool

Samkvæmt heimildum dagblaðsins Daily Mirror mun George Gillett, annar aðaleigandi Liverpool, vera á leiðinni til Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag til viðræðna við Prinsinn Faisal bin Fahd um sölu á sínum hlut í enska úvalsdeildarfélaginu.

Puyol skyndilega orðaður við Arsenal

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Arsenal hafi mikinn áhuga á að krækja í varnarmanninn og fyrirliðann Carles Puyol hjá Barcelona.

Eggert Magnússon orðaður við yfirtöku á West Ham

Breska slúðurblaðið The Sun slær því upp í dag að Eggert Magnússon hafi í hyggju að eignast hlut í West Ham að nýju en hann átti sem kunnugt er lítinn hlut í félaginu þegar Björgólfur Guðmundsson var aðaleigandi þess ásamt því sem Eggert gengdi starfi stjórnarformanns.

Owen dreymir enn um enska landsliðið

Landsliðsþjálfarinn Fabio Capello horfði enn framhjá framherjanum Michael Owen hjá Manchester United þegar hann valdi 24-manna landsliðhóp Englands fyrir leikina gegn Úkraínu og Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2010.

Sjá næstu 50 fréttir