Fleiri fréttir

Chamakh býst við því að vera áfram hjá Bordeaux

Framherjinn eftirsótti Marouane Chamakh á síður von á því að yfirgefa herbúðir Frakklandsmeistara Bordeaux áður en félagsskiptaglugginn lokar 1. september næstkomandi en ensku úrvalsdeildarfélögin Arsenal, Sunderland og West Ham voru öll orðuð við kappann.

Leik Fram og Grindavíkur frestað

Mótanefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur orðið við beiðni knattspyrnudeildar Grindavíkur og frestað leik liðsins gegn Fram sem átti að fara fram annað kvöld.

Michel Salgado genginn í raðir Blackburn

Reynsluboltinn Michel Salgado hefur ákveðið að skrifa undir tveggja ára samning við Blackburn en leikmaðurinn fékk sig lausan undan samningi við Real Madrid fyrr í sumar eftir tíu farsæl ár með félaginu.

Everton reynir að fá argentískan landsliðsmann

Forráðamenn Everton vinna nú hörðum höndum á leikmannamarkaðnum en samkvæmt breskum fjölmiðlum hefur félagið áhuga á að fá argentínska vængmanninn Ever Banega á láni út yfirstandandi keppnistímabil frá Valencia ásamt möguleikanum á því að kaupa leikmanninn að lánstímanum loknum.

Fulham enn á höttunum eftir Greening

Knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo hjá West Brom hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Fulham vegna áhuga Lundúnafélagsins á miðjumanninum Jonathan Greening.

Kyrgiakos að ganga í raðir Liverpool

Flest virðist nú benda til þess að gríski landsliðsvarnarmaðurinn Sotiris Kyrgiakos verði kynntur sem nýr leikmaður Liverpool en leikmaðurinn tilkynnti sjálfur á heimasíðu sinni í mánudagskvöld að hann væri með samningstilboð í höndunum frá Liverpool sem hann væri búinn að samþykkja.

Staðgengill Massa nýtur stuðnings Schumachers

Luca Badoer frá Ítalíu ekur í staðinn fyrir Felipe Massa í kappakstrinum í Valencia um helgina. Hann var valinn eftir að ljóst varð að Michael Schumacher getur ekki keppt vegna hálsmeiðsla.

Babel sagður vera frábær rappari

Hollenski vængmaðurinn hjá Liverpool, Ryan Babel, mun sýna á sér nýjar hliðar á næstunni þegar nýjasta plata breska rapparans Sway kemur í plötubúðir.

Guðjón: Sigurinn skipti öllu máli

Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe, var afar ánægður með strákana sína eftir að Crewe vann sinn annan leik á fjórum dögum í kvöld.

Wenger: Áttum sigurinn skilinn

„Við réðum algjörlega ferðinni í þessum leik en Celtic neitaði að gefast upp. Þó svo við hefðum ráðið ferðinni var vissulega heppnisstimpill á mörkunum okkar," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir 0-2 sigur Arsenal á Celtic í Meistaradeildinni.

1. deildin: Haukar nálgast Selfoss

Baráttan á toppi 1. deild harðnaði til muna eftir leiki kvöldsins en þá missteig topplið Selfoss sig gegn Þór á Akureyri.

Góður útisigur hjá Guðjóni og félögum

Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í Crewe Alexandra eru heldur betur að taka við sér í ensku D-deildinni en liðið lagði Darlington, 0-1, á útivelli í kvöld.

Chelsea og Úlfarnir unnu í kvöld

Chelsea og Úlfarnir unnu góða sigra í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en þetta voru einu leikir kvöldsins í deildinni.

Arsenal í góðri stöðu í Meistaradeildinni

Það virðist fátt geta komið í veg fyrir að Arsenal komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið skellti Celtic á útivelli í kvöld, 0-2, í fyrri leik liðanna.

Forseti Atletico Madrid neitar að Aguero sé á förum

Forsetinn Enrique Cerezo hjá Atletico Madrid hefur vísað á bug sögusögnum þess efnis að Chelsea sé nálægt því að krækja í framherjann Sergio Aguero og ítrekar að leikmaðurinn sé einfaldlega ekki til sölu.

Shaquille O'Neal mætir Oscar de la Hoya í hringnum

NBA-tröllið og skemmtikrafturinn Shaquille O'Neal hefur náð samkomulagi við fyrrum hnefaleikamanninn Oscar de la Hoya um að mæta sér í hringnum í nýjum raunveruleikaþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar sem ber hetið „Shaq VS.“.

Hertha Berlín á höttunum eftir Voronin

Forráðamenn þýska félagsins Hertha Berlín viðurkenna að framherjinn Andriy Voronin hjá Liverpool sé undir smásjánni hjá þeim en leikmaðurinn þótti standa sig afar vel á lánstíma sínum hjá felaginu á síðustu leiktíð.

Negredo mætir til viðræðna við Hull

Knattspyrnustjórinn Phil Brown hefur staðfest að framherjinn Alvaro Negredo mæti til viðræðna við Hull í vikunni út af fyrirhuguðum félagsskiptum hans frá Real Madrid.

Skrtel líklega frá í tvær vikur vegna kjálkameiðsla

Varnarmaðurinn Martin Skrtel hjá Liverpool getur ekki leikið með enska félaginu í næstu leikjum vegna meiðsla sem hann hlaut í 2-1 tapinu gegn Tottenham um síðustu helgi þegar hann lenti í samstuði við liðsfélaga sinn Jamie Carragher.

Riise kærir hinn norska Einar Bárðarson

Það er ekki bara á Íslandi sem finna má umboðsmann að nafni Einar Bárðarson. Norski fótboltakappinn John Arne Riise, fyrrverandi leikmaður Liverpool kærði umboðsmann sinn á dögunum fyrir fjárdrátt en sá heitir Einar Baardsen.

Forseti Bilbao segir Amorebieta ekki vera til sölu

Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool hefur ekki farið leynt með að hann sé á höttunum eftir varnarmanni og samkvæmt enskum og spænskum fjölmiðlum í gær er Fernando Amorebieta, varnarmaður Atletico Bilbao, sagður ofarlega á óskalistanum.

Werder Bremen búið að kaupa Pizarro

Martraðartími Perúmannsins Claudio Pizarro hjá Chelsea er nú loks á enda en hann er genginn til liðs við þýska félagið Werder Bremen.

Grindvíkingar sækja um frestun á leiknum gegn Fram

Grindvíkingar ætla að sækja um enn eina frestunina í Pepsí deild karla vegna veikinda í liðinu. Leikmenn Grindavíkur eiga enn talsvert í land með að ná sér eftir flensuna sem herjaði á liðið í síðustu viku.

Duff genginn í raðir Fulham

„Ég er gríðarlega ánægður með að félagsskipti mín til Fulham eru gengin í gegn og get ekki beðið eftir því að komast af stað og byrja að leika með liðinu,“ segir Duff í viðtali á opinberri heimasíðu Fulham.

Berlusconi: Ronaldinho er okkar Usain Bolt

Forsetinn skrautlegi Silvio Berlusconi hjá AC Milan hefur fulla trú á því að Brasilíumaðurinn Ronaldinho eigi eftir að springa út með ítalska félaginu á komandi leiktíð í Serie A-deildinni sem hefst á laugardaginn.

Anelka afskrifar Arsenal og Liverpool úr titilbaráttunni

Framherjinn Nicolas Anelka hjá Chelsea telur Lundúnafélagið vera líklegast til þess að landa meistaratitlinum í ensku úrvalsdeildinni á nýhafinni leiktíð og að Englandsmeistarar Manchester United séu helsta ógnin þrátt fyrir að þeir hafi misst sinn besta leikmann í Cristiano Ronaldo.

Davies framlengir samning sinn við Bolton

Framherjinn og fyrirliðinn Kevin Davies hjá Bolton hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2012 og bundið þar með enda á sögusagnir þess efnis að hann kynni að yfirgefa Reebok-leikvanginn í sumar.

Groesjan staðfestur sem ökumaður Renault

Frakkinn Romain Goresjan var í dag staðfestur sem ökumaður Renault í stað Nelson Piquet, sem var sagt upp störfum fyrir nokkrum vikum. Groesjan keppir fyrir Renault á Valencia brautinni á Spáni um næstu helgi.

Chelsea að kaupa serbneskan landsliðsmann

Félagið MFK Kosice frá Slóvakíu hefur staðfest að miðjumaðurinn Nemanja Matic sé á förum til Chelsea eftir að kaupverð upp á 1,75 milljónir punda var samþykkt.

Atli kampakátur eftir að hafa loks landað sigri

„Þetta er heldur betur léttir, þetta var rosalega erfið fæðing, við áttum að vera löngu búnir að gera tvö, þrjú mörk í fyrri hálfleik. Þegar hlutirnir ganga ekki eins og lagt er upp með byrjar taugaveiklunin. Við vorum sterkari og sérstaklega eftir að við skorum markið,“ sagði kampakátur þjálfari Vals, Atli Eðvaldsson. Hann segir miðjumanninn reynda, Sigurbjörn Hreiðarsson vera herra Val.

Við eigum enn von segir Þorsteinn Halldórsson

„Við verðum bara að vinna næsta leik gegn Eyjamönnum, það er úrslitaleikur. Þetta lýtur ekki vel út, það er alveg klárt. Þetta snýst um að vinna leiki og safna stigum,“ segir Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Þróttar.

Gummi Ben: Varnarleikurinn til skammar

Guðmundur Benediktsson, sóknarmaður KR, segir að Fylkir hafi átt stigin þrjú skilin í kvöld. Árbæingar unnu 4-2 sigur í Vesturbænum eftir markalausan fyrri hálfleik.

Sjá næstu 50 fréttir