Fleiri
Vændiskonur hjá Ronaldo 3.9.2007 00:01 Valsmenn skutu Víkinga á bólakaf í Víkinni Valsmenn hanga ennþá í skottinu á Íslandsmeisturum FH. Líkurnar á að innbyrðis viðureign liðanna í 17. umferð deildarinnar muni ráða úrslitum hafa því aukist enn frekar og fari svo að Valsmenn vinni þann leik er allt eins líklegt að markatalan muni hafa allt að segja. Þar standa þeir rauðklæddu betur eftir stórsigurinn í gær, með 18 mörk í plús gegn 17 mörkum FH. 3.9.2007 00:01 Valsmenn gefa FH-ingum ekki þumlung eftir Valsmenn unnu í kvöld 5-1 sigur á slökum Víkingum í Landsbankadeild karla. Þeir eru því komnir með betri markatölu en FH-ingar og aðeins þrem stigum á eftir Íslandsmeisturunum úr Hafnarfirði. Að sama skapi eru Víkingar í miklum vandræðum í botnbaráttunni því aðeins munar tveim stigum á þeim og KR-ingum sem eru í neðsta sætinu. 2.9.2007 18:59 Kristán Örn skoraði í naumum sigri Brann Varnarmaðurinn sterki Kristján Örn Sigurðsson skoraði í dag fyrir Brann í naumum sigri liðsins á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Mark Kristjáns kom á 29. mínútu leiksins og það dugði Brann til sigurs og liðið því enn í efsta sæti norsku deildarinnar með 39 stig. 2.9.2007 18:16 FH í úrslit eftir sigur í framlengingu FH-ingar eru komnir í úrslit bikarkeppni karla eftir 3-1 sigur á Breiðablik á Laugardalsvelli í dag. Leikurinn þurfti að fara í framlengingu því staðan var 1-1 eftir 90 mínútur. Í framlengingunni tóku FH-ingar öll völd og skoruðu Tryggvi Guðmundsson og Atli Guðnason sitt markið hvor í sitt hvorum hálfleik framlengingarinnar. Áður höfðu Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skorað fyrir FH og Prince Rajcomar fyrir Breiðablik. 2.9.2007 17:48 Sjá næstu 50 fréttir
Öruggir sigrar Breiðabliks og KR Tveir leikir voru í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR komst í efsta sæti deildarinnar með því að vinna Stjörnuna 4-0 og Breiðablik styrkti stöðu sína í þriðja sætinu með því að vinna Keflavík 4-1. 3.9.2007 20:31
Jaaskeilainen til Arsenal? Talið er að Arsenal hyggist kaupa finnska landsliðsmarkvörðinn Jussi Jaaskeilainen þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný í janúar. Jaaskeilainen hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Bolton. 3.9.2007 20:04
Enn talsvert í Ballack Þýski miðjumaðurinn Michael Ballack er ekki í leikmannahópi Chelsea fyrir riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þessi 31. árs leikmaður er enn að jafna sig eftir aðgerð og er reiknað með því að hann snúi ekki aftur fyrr en í október. 3.9.2007 19:41
Rússar lögðu Serba Evrópumót landsliða í körfuknattleik er farið af stað en leikið er á Spáni. Í A-riðli mættust gömlu risarnir Rússland og Serbía en þar unnu Rússarnir 73-65. Andrei Kirilenko var stigahæstur í rússneska liðinu með 24 stig. 3.9.2007 19:23
Nær Fjölnir að brjóta blað? Í kvöld mun það ráðast hvort Fylkismenn eða Fjölnismenn verða mótherjar FH-inga í úrslitaleik VISA-bikars karla. FH komst í úrslitaleikinn með því að leggja Breiðablik að velli í gær en hinn undanúrslitaleikurinn verður í kvöld á Laugardalsvelli og hefst hann klukkan 20:00. 3.9.2007 18:59
Viðtal við Boris Diaw Heimasíða FIBA tók viðtal við franska körfuboltamanninn Boris Diaw sem leikur með Phoenix Suns í NBA-deildinni. Í viðtalinu má segja að Diaw hafi sýnt á sér aðra hlið. 3.9.2007 18:45
Adriano á ekki sjö dagana sæla Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano er úti í kuldanum hjá Ítalíumeisturum Inter. Þessi stóri og stæðilegi leikmaður var ekki valinn í leikmannahóp Inter fyrir Meistaradeild Evrópu og mun að öllum líkindum skipta um lið í janúar. 3.9.2007 18:24
Jafnt hjá Milan og Fiorentina AC Milan og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli í ítölsku Serie-A deildinni í dag. Brasilímaðurinn Kaka kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu en Adrian Mutu jafnaði metin í seinni hálfleik og þar við sat. 3.9.2007 18:08
Halifax bjargað af vefsíðu? Fótboltafélagið Halifax Town er á barmi þess að verða gjaldþrota. Svo gæti þó farið að félaginu verði bjargað af vefsíðunni myfootballclub.co.uk. Vefsíðan er að fara að brjóta blað í fótboltaheiminum en í gegnum hana hefur almenningi verið gefinn kostur á að kaupa hlut í fótboltaliði. 3.9.2007 17:33
Bent: Curbishley var ekki ástæðan Darren Bent, sóknarmaður Tottenham, hefur kveðið niður þær kjaftasögur að ástæða þess að hann neitaði tilboði West Ham í sumar hafi verið Alan Curbishley. Charlton tók tilboði frá West Ham í leikmanninn en sjálfur ákvað Bent að fara til Tottenham. 3.9.2007 17:16
Myndaveisla: Svipmyndir frá leikjum helgarinnar Það var nóg um að vera í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Vísir tók saman nokkrar af skemmtilegustu ljósmyndunum frá leikjunum og þú getur skoðað þær með því að smella á myndaalbúmið hér fyrir neðan. 3.9.2007 17:04
Vanmetum ekki Fjölni "Þessi leikur leggst vel í mig eins og allir leikir. Við gerum þá kröfu á sjálfa okkur að klára þennan leik eins og alla leiki sem við förum í og við berum mikla virðingu fyrir liði Fjölnis," sagði Leifur Garðarsson í samtali við Vísi í kvöld, en hans menn í Fylki mæta þá Fjölni í undanúrslitaleik Visa-bikarsins. Sigurvegarinn í kvöld mætir FH í úrslitum. 3.9.2007 16:43
Schuster kannast vel við takta Sneijder Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, var að vonum ánægður með frábæran leik Hollendingsins Wesley Sneijder um helgina þegar Real Madrid burstaði Villarreal 5-0 á útivelli. Sneijder skoraði tvö mörk og lagði upp eitt og sagði Schuster hann hafa minnt sig á annan glókoll sem lék með Real á árum áður. 3.9.2007 15:45
Dýr skilnaður í vændum hjá Thierry Henry Franski framherjinn Thierry Henry skildi í dag við konu sína til fjögurra ára, fyrirsætuna Claire Merry. Gengið var frá skilnaðinum í réttarsal í Lundúnum í morgun en hvorugt þeirra hjóna var viðstatt. Talið er að skilnaðurinn gæti átt eftir að kosta markaskorara Barcelona vænar fúlgur. 3.9.2007 14:58
Leikmenn keyptir fyrir 65 milljarða Knattspyrnufélögin í ensku úrvalsdeildinni hafa aldrei verið eins dugleg að kaupa leikmenn og í ár. Nýtt met var sett í sumar og hafa félögin á Englandi þegar eytt yfir 500 milljónum punda til leikmannakaupa eða um 65 milljörðum króna. Gamla metið frá í fyrra var 300 milljónir punda. 3.9.2007 13:34
Bandaríkjamenn sigruðu í Ameríkukeppninni Landslið Bandaríkjanna tryggði sér í nótt auðveldan sigur í Ameríkukeppninni í körfubolta með því að kjöldraga Argentínumenn 118-81 í úrslitaleik mótsins. Úrslitaleikurinn hafði í sjálfu sér litla þýðingu þar sem bæði lið höfðu þegar tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. 3.9.2007 12:36
Lescott kallaður í enska landsliðið Miðvörðurinn öflugi Joleon Lescott hjá Everton hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn sem mætir Israelum á Wembley í undankeppni EM á laugardaginn. Lescott hefur farið mikinn með Everton í upphafi leiktíðar, en hann tekur stöðu Sol Campbell hjá Portsmouth í landsliðinu eftir að sá síðarnefndi meiddist. 3.9.2007 12:19
Leikmaður 5. umferðar: Xabi Alonso Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso er leikmaður fimmtu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Alonso tók upp hanskann fyrir Steven Gerrard um helgina þegar Liverpool valtaði yfir nýliða Derby County 6-0 og skoraði tvö mörk í leiknum. 3.9.2007 11:57
Áhorfendametið slegið Áhorfendametið í Landsbankadeild karla í knattspyrnu féll í gær þegar 1018 áhorfendur sáu Valsmenn vinna öruggan 5-1 sigur á Víkingi. Alls hafa 98.412 manns mætt á leikina í Landsbankadeildinni í sumar, en eldra metið var 98.026 manns og var það sett í fyrra. Því er nokkuð ljóst að farið verður yfir 100.000 manna múrinn í næstu umferð deildarinnar sem hefst þann 16. september. 3.9.2007 11:53
Carroll ekki með gegn Íslendingum Markvörðurinn Roy Carroll hjá Glasgow Rangers hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í landslið Norður-Íra fyrir leikina gegn Lettum og Íslendingum í undankeppni EM. Carroll tók þessa ákvörðun eftir fund sinn með Nigel Worthington þjálfara Rangers og ætlar þess í stað að einbeita sér að æfingum með félagsliði sínu. Michael McGovern hefur verið kallaður inn í lið Norður-Íra í stað Carroll. 3.9.2007 11:32
Ecclestone ætlar að kaupa QPR Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone segist ætla að kaupa enska knattspyrnufélagið Queens Park Rangers og stefnir á að koma því í úrvalsdeildina á ný á fjórum árum. QPR hefur ekki leikið í efstu deild síðan árið 1996. 3.9.2007 10:45
Önnur handtökuskipun gefin út á Shinawatra Thaksin Shinawatra, fyrrum forsætisráðherra Tælands og eigandi Manchester City, hefur nú fengið gefna út aðra handtökuskipunina á sig á stuttum tíma í heimalandi sínu. 3.9.2007 10:40
Heskey hissa á að vera valinn í landsliðið Framherjinn Emile Heskey hjá Wigan hefur verið valinn í enska landsliðshópinn fyrir leikina gegn Israel og Rússum í undankeppni EM. Fjögur ár eru síðan hann var síðast valinn í landsliðið og því var hann skiljanlega hissa þegar kallið kom. 3.9.2007 10:26
Mourinho: Deildin verður opnari í vetur Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að baráttan um enska meistaratitilinn verði opnari í ár en verið hefur eftir að hans menn þurftu að þola 2-0 tap gegn Aston Villa í gær. 3.9.2007 10:16
Nálægt því að fá Eið Smára Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, sagði við breska fjölmiðla í dag að hann hefði verið nálægt því að fá Eið Smára Guðjohnsen til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokaðist á miðnætti síðasta föstudag. 3.9.2007 10:00
Vorum betri Tryggvi Guðmundsson átti enn einn stórleikinn fyrir FH í gær, skoraði mark og lagði upp annað. „Við áttum að klára þetta fyrr og ég var orðinn pirraður að fá aldrei boltann. Við gáfumst samt ekki upp, vorum töluvert betri og áttum sigurinn svo sannarlega skilinn," sagði Tryggvi brosmildur. 3.9.2007 10:00
Með leiðinlegar æfingar Franski framherjinn Fredi Kanoute er ekki mikill aðdáandi Martins Jol, stjóra Spurs, en Kanoute segir leiðinlegar æfingar stjórans hafa verið mikið vandamál þegar hann lék með Tottenham. 3.9.2007 09:45
Kristján með sigurmark Akureyringurinn Kristján Örn Sigurðsson tryggði Brann mikilvægan sigur á Sandefjord í gær. Kristján skoraði eina mark leiksins og Brann heldur því efsta sætinu í deildinni. 3.9.2007 09:30
Man. Utd er ekki til sölu segja Glazer-feðgar Glazer-fjölskyldan, sem á Manchester United, segir ekkert hæft í þeim orðrómi að til standi að selja félagið fjárfestum í Dubai og Kína.„Manchester United er ekki til sölu. Glazer-fjölskyldan á ekki í neinum viðræðum um sölu á félaginu og er heldur ekki að leita eftir viðræðum,“ sagði talsmaður Glazer-fjölskyldunnar. 3.9.2007 09:30
Kallað á Emile Heskey Steve McClaren, lands-liðsþjálfari Englands, hefur kallað á Emile Heskey í hópinn á nýjan leik enda margir fram-herjar enska landsliðsins meiddir. Má þar nefna Wayne Rooney og Peter Crouch. 3.9.2007 09:00
Var of vinalegur við José Mourinho Það hefur vakið talsverða athygli að Pako Ayesteran hefur yfirgefið herbúðir Liverpool en hann hefur verið hægri hönd stjórans, Rafa Benitez, síðustu ellefu ár. 3.9.2007 09:00
Gio er leynivopn Franks Rijkaard Átján ára mexíkóskur strákur sló í gegn á undirbúningstímabilinu hjá Barcelona og eykur enn við sóknarþunga snillinganna og samkeppnina hjá Eiði Smára Guðjohnsen í framlínu liðsins. 3.9.2007 08:30
Flautukarfa Pálmars var mun mikilvægari Einar Bollason var í Höllinni í síðustu viku þegar Jakob Örn Sigurðarson tryggði íslenska landsliðinu 76-75 sigur á Georgíu með þriggja stiga körfu á síðustu sekúndunni. 3.9.2007 08:00
Bandaríska körfuboltaliðið á leið til Peking Bandarísku NBA-stjörnurnar voru ekki í neinum vandræðum með að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Peking sem fram fara næsta sumar. Bandaríkjamenn rúlluðu yfir Púertó Ríkó, 135-91, og tryggðu sér með því farseðilinn til Peking en þess má geta að Púertó Ríkó lagði Bandaríkin á Ólympíuleikunum í Aþenu í eftirminnilegum leik. 3.9.2007 07:00
Helgi ekki meira með? Óvíst er hvort Helgi Sigurðsson geti tekið þátt í lokaspretti Landsbankadeildarinnar en hann varð fyrir meiðslum í leik Víkings og Vals í gær. Helgi tognaði á læri og varð að fara af velli á 20. mínútu og er alls óvíst hversu lengi hann verður að jafna sig. 3.9.2007 06:30
Stjarnan kvaddi Ásgarð með sigri Bikarmeistarar Stjörnunnar sigruðu Val, 25-26, í hörkuleik í Meistarakeppni HSÍ í gærkvöldi. Þetta var síðasti opinberi handboltaleikur sem Stjarnan leikur í Ásgarði og kvaddi Stjarnan heimavöll sinn til margra ára með stæl. 3.9.2007 06:30
Reynsluboltarnir í liði Hauka of stór biti fyrir Stjörnuna Bikarmeistarar Hauka unnu verðskuldaðan 26-32 sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Meistarakeppni kvenna í Ásgarði í gær. Leikurinn var ágætlega spilaður og gaf góð fyrirheit fyrir veturinn þó að Íslandsmeistararnir hafi verið nokkuð frá sínu besta. 3.9.2007 06:15
Beierholm farinn frá Fylki Knattspyrnudeild Fylkis og Daninn Mads Beierholm komust að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins áður en leikmannaglugginn lokaði. Var samningi rift að ósk leikmannsins að því er fram kemur á heimasíðu Fylkis. 3.9.2007 06:00
Sigur í Lúxemborg Karlalandsliðið gerði góða ferð til Lúxemborgar um helgina þar sem heimamenn voru lagðir með 89 stigum gegn 73. Góður sigur hjá íslenska liðinu sem var undir í leikhléi, 49-36. 3.9.2007 04:30
Tvennan er í augsýn hjá FH-ingum Íslandsmeistarar FH tryggðu sér sæti í úrslitum VISA-bikarsins með frábærum sigri á Blikum, 3-1. FH fékk fjöldamörg tækifæri til að klára leikinn en það tókst ekki fyrr en í framlengingu. Þá var aðeins eitt lið á vellinum. Leikurinn var frábær skemmtum og 3.9.2007 00:01
Valsmenn skutu Víkinga á bólakaf í Víkinni Valsmenn hanga ennþá í skottinu á Íslandsmeisturum FH. Líkurnar á að innbyrðis viðureign liðanna í 17. umferð deildarinnar muni ráða úrslitum hafa því aukist enn frekar og fari svo að Valsmenn vinni þann leik er allt eins líklegt að markatalan muni hafa allt að segja. Þar standa þeir rauðklæddu betur eftir stórsigurinn í gær, með 18 mörk í plús gegn 17 mörkum FH. 3.9.2007 00:01
Valsmenn gefa FH-ingum ekki þumlung eftir Valsmenn unnu í kvöld 5-1 sigur á slökum Víkingum í Landsbankadeild karla. Þeir eru því komnir með betri markatölu en FH-ingar og aðeins þrem stigum á eftir Íslandsmeisturunum úr Hafnarfirði. Að sama skapi eru Víkingar í miklum vandræðum í botnbaráttunni því aðeins munar tveim stigum á þeim og KR-ingum sem eru í neðsta sætinu. 2.9.2007 18:59
Kristán Örn skoraði í naumum sigri Brann Varnarmaðurinn sterki Kristján Örn Sigurðsson skoraði í dag fyrir Brann í naumum sigri liðsins á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Mark Kristjáns kom á 29. mínútu leiksins og það dugði Brann til sigurs og liðið því enn í efsta sæti norsku deildarinnar með 39 stig. 2.9.2007 18:16
FH í úrslit eftir sigur í framlengingu FH-ingar eru komnir í úrslit bikarkeppni karla eftir 3-1 sigur á Breiðablik á Laugardalsvelli í dag. Leikurinn þurfti að fara í framlengingu því staðan var 1-1 eftir 90 mínútur. Í framlengingunni tóku FH-ingar öll völd og skoruðu Tryggvi Guðmundsson og Atli Guðnason sitt markið hvor í sitt hvorum hálfleik framlengingarinnar. Áður höfðu Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skorað fyrir FH og Prince Rajcomar fyrir Breiðablik. 2.9.2007 17:48