Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Miðvikudagsslúðrið á Englandi Bayern Munchen hefur tilkynnt forráðamönnum Manchester United að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sé falur á 18 milljónir punda í sumar. Daily Mail segir Rafa Benitez vera að undirbúa tilboð í vængmanninn Simao Sabrosa hjá Benfica. 18.4.2007 14:34
Logi Gunnarsson til Spánar Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson sem leikið hefur með finnska körfuboltaliðinu ToPo í Helsinki í vetur, hefur skrifað undir samning við spænska liðið Gijon sem leikur í 1. deildinni þar í landi. Logi mætir á æfingu hjá liðinu annað kvöld og meiningin er að hann verði með liðinu í úrslitakeppninni strax á föstudag. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í kvöld, en þar er einnig stutt viðtal við kappann. 18.4.2007 22:06
Klinsmann orðaður við Chelsea Jurgen Klinsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja, er nýjasta nafnið sem orðað hefur verið við knattspyrnustjórastöðuna hjá Chelsea ef Jose Mourinho hættir hjá félaginu. Franz Beckenbauer segir að Klinsmann gæti gert góða hluti á Englandi. 18.4.2007 19:45
Real neitar að hafa rætt við Benitez Forráðamenn Real Madrid vísa því á bug í dag að hafa boðið Rafa Benitez hjá Liverpool að taka við liðinu í sumar. Benitez greindi frá því í gær að hann hefði neitað risatilboði frá stórliðinu í heimaborg sinni. 18.4.2007 18:45
Veisluhöldum aflýst í Mílanó Inter Milan náði ekki að tryggja sér ítalska meistaratitilinn í dag eins og til stóð þegar liðið steinlá 3-1 á heimavelli fyrir Roma. Þetta var fyrsta tap Inter á leiktíðinni en liðið hefur þó enn mjög örugga forystu á toppnum. Roma fór langt með að tryggja sér annað sætið í deildinni með sigrinum. AC Milan burstaði Ascoli 5-2 á útivelli og tryggði stöðu sína í fjórða sætinu, sem gefur sæti í Meistaradeildinni. 18.4.2007 18:15
Raikkönen: Hefði átt að vinna allar keppnirnar Finninn Kimi Raikkönen hjá Ferrari segir að slakur árangur sinn í tímatökum hafi einn komið í veg fyrir að hann sigraði í öllum þeim þremur keppnum sem afstaðnar eru á árinu í Formúlu 1. Finninn er í efsta sæti ökuþóra ásamt heimsmeistaranum Fernando Alonso og nýliðanum Lewis Hamilton. 18.4.2007 18:15
David Dein hættur hjá Arsenal David Dein, varastjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins Arsenal, hætti störfum hjá félaginu í dag. Félagið hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem fram kemur að þessi ráðstöfun tengist ekki fyrirhuguðu yfirtökutilboði ameríska auðjöfursins Stan Kroenke í félagið. 18.4.2007 17:26
Lewis Hamilton getur orðið sá besti Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, segir að Bretinn ungi Lewis Hamilton geti vel orðið besti ökuþór í sögunni. Hamilton hefur vakið heimsathygli fyrir að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur mótum sínum sem aðalökumaður. 18.4.2007 17:15
Coleman: Áfall að vera rekinn frá Fulham Chris Coleman segir að það hafi verið sér mikið áfall þegar hann var rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Fulham á dögunum. Hann hafði verið hjá félaginu í áratug, fyrst sem leikmaður, þá þjálfari og loks knattspyrnustjóri. Hann segist ekki vera gramur út í sína fyrrum félaga og vonar að þeir sleppi við fall. 18.4.2007 17:00
Mickelson gefur 17 milljónir þriðja árið í röð Phil Mickelson verður ekki á meðal keppenda á Zurich Classic of New Orleans mótinu um helgina en hann verður sannarlega með í huganum. Phil og Amy Mickelson góðgerðarsjóðurinn mun gefa þriðja árið í röð peningaupphæð til uppbyggingarstarfsemi á svæðinu eftir hörmulegar afleiðingar fellibyljarins Katrina, alls 250.000 Bandaríkjadali, um 17 milljónir íslenskra króna. 18.4.2007 16:00
Heiðar á fimm yfir pari í Danmörku Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr Kili, lauk leik á fimm höggum yfir pari(+5) í Vejle í Danmörku í dag á móti sem er hluti af Scanplan mótaröðinni.Heiðar Davíð byrjaði illa í dag en svaraði svo með þremur fuglum í röð. 18.4.2007 14:05
EM 2012: Niðurstaðan kom Ítölum ekki á óvart Talsmenn ítalska knattspyrnusambandsins sögðu það ekki koma sér á óvart í dag þegar Ítalir gripu í tómt þegar tilkynnt var hver hreppti Evrópumót landsliða í knattspyrnu árið 2012. Það kom í hlut Pólverja og Úkraínumanna að halda mótið, en áföll sem riðið hafa yfir ítalska knattspyrnu á síðasta ári gerðu það að verkum að þar í landi voru menn ekki sérlega bjartsýnir á að fá að halda mótið. 18.4.2007 13:52
FIFA: Íslenska landsliðið í frjálsu falli Nýr styrkleikalisti FIFA var gefinn út í morgun og þar kemur ekki á óvart að íslenska landsliðið hefur fallið um 11 sæti síðan listinn var gefinn út síðast. Liðið er nú í 97. sæti listans, sem er sama sæti og það vermdi fyrir ári síðan. Heimsmeistarar Ítala eru í toppsætinu, Argentína í öðru, Brasilía í þriðja og Frakkar í fjórða. Nokkrir áhugaverðir hástökkvarar eru á listanum að þessu sinni. 18.4.2007 13:41
Berlusconi: Við eigum 100 milljónir fyrir Ronaldinho Silvio Berlusconi, forseti AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hafi þegar lagt til hliðar 100 milljónir evra til að kaupa brasilíska snillinginn Ronaldinho frá Barcelona. Forsetinn lætur í það skína að félagið sé ekki langt frá því að ganga frá kaupum á leikmanninum og umboðsmaður Ronaldinho gerir ekkert til að draga úr þessum orðrómi - þó ekki væri til annars en að bæta stöðu hans í samningaviðræðum við Barcelona. Hann hefur enn ekki framlengt samning sinn við Katalóníurisann. 18.4.2007 13:36
NBA: Mikil spenna í Vesturdeildinni Nú er aðeins ein umferð eftir af deildarkeppninni í NBA og fer hún fram í kvöld. Gríðarleg spenna er í keppninni um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina í Vesturdeildinni, þar sem Golden State stendur vel að vígi eftir sigur á Dallas í nótt. 18.4.2007 13:12
EM í knattspyrnu í Póllandi og Úkraínu árið 2012 Pólland og Úkraína munu í sameiningu halda Evrópumótið í knattspyrnu árið 2012. Frá þessu greindi Knattspyrnusamband Evrópu í morgun. Ítalir höfðu einnig sóst eftir að halda mótið og sömuleiðis Króatía og Ungverjaland. Næsta mót, sem fram fer á næsta ári, fer hins vegar fram í Sviss og Austurríki. 18.4.2007 09:57
Chelsea yfir gegn West Ham í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum þremur sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea hefur yfir 2-1 gegn West Ham á Upton Park þar sem Shaun Wright-Phillips skoraði mörk gestanna en Carlos Tevez mark West Ham. Blackburn hefur yfir 3-1 gegn Watford og markalaust er hjá Liverpool og Middlesbrough. 18.4.2007 19:56
Sýning hjá Messi á Nou Camp Argentínumaðurinn ungi Leo Messi hjá Barcelona hefur farið hamförum í fyrri hálfleik gegn Getafe í spænska konungsbikarnum. Staðan er 3-0 í hálfleik í fyrri leik liðanna og er Messi búinn að skora tvö þeirra. Bæði mörkin voru stórglæsileg, en það fyrra minnti óneitanlega á markið sem landi hans Maradona skoraði fyrir Argentínu gegn Englendingum á HM í Mexíkó árið 1986. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 18.4.2007 19:51
Barcelona komið í 2-0 - Eiður byrjar Barcelona er komið í 2-0 gegn Getafe í fyrri leik liðanna í spænska konungsbikarnum en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliðinu. Xavi kom Barcelona yfir eftir 18 mínútur og Messi kom liðinu í 2-0 með stórkostlegu marki á 28. mínútu. 18.4.2007 19:34
Barcelona - Getafe í beinni í kvöld Það verður nóg um að vera í fótboltanum í Evrópu í kvöld. Barcelona tekur á móti Getafe í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Konungsbikarsins á Spáni og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:25. Þrír leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni og ber þar hæst Lundúnaslagur West Ham og Chelsea. Liverpool fær Middlesbrough í heimsókn og Blackburn tekur á móti Watford. Þá getur Inter tryggt sér meistaratitilinn á Ítalíu með sigri á Roma í stórleik kvöldsins þar í landi. 18.4.2007 14:10
Jerry West hættir hjá Memphis Körfuboltagoðsögnin Jerry West tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Memphis Grizzlies í NBA deildinni í sumar. West er einn besti leikmaður í sögu NBA og gerði það gott hjá LA Lakers bæði sem leikmaður og síðar framkvæmdastjóri þar sem hann vann samtals 8 meistaratitla. Hann er 69 ára gamall og sagðist í yfirlýsingu vera orðinn of gamall til að snúast í hringiðu deildarinnar. 17.4.2007 22:30
Forysta United komin í sex stig á ný Manchester United náði sex stiga forystu á Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Sheffield United á heimavelli. Michael Carrick kom heimamönnum yfir eftir þrjár mínútur þegar hann afgreiddi sendingu Cristiano Ronaldo í netið og Wayne Rooney gerði út um leikinn með laglegu marki í upphafi síðari hálfleiks. 17.4.2007 21:03
Arsenal í þriðja sætið eftir sigur á City Arsenal skaust í kvöld í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knatspyrnu eftir sigur á frökku liði Manchester City 3-1 á Emirates vellinum í London. 17.4.2007 20:59
Hver fær EM 2012? Michel Platini, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, mun á morgun tilkynna hvaða land hreppir Evrópumót landsliða í knattspyrnu árið 2012. Það verður tilkynnt við hátíðlegt tækifæri í Cardiff í Wales. Þrjú lönd koma til greina sem mótshaldarar en tvö tilboðanna eru frá löndum sem bjóða saman í verkefnið. Þetta eru Króatía/Ungverjaland, Ítalía og svo Pólland/Úkraína. 17.4.2007 20:45
Sheringham spilar varla meira fyrir West Ham Framerjinn Teddy Sheringham hjá West Ham segist reikna með því að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Hann hefur ekki spilað mínútu síðan í janúar og segir stjórann Alan Curbishley hafa tilkynnt sér að hann sé ekki í plönum hans í framtíðinni. 17.4.2007 20:00
Jafnt á Emirates í hálfleik Staðan í leik Arsenal og Manchester City er 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Tomas Rosicky kom Arsenal yfir eftir 12 mínútur en DaMarcus Beasley jafnaði fyrir gestina skömmu fyrir hlé. Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Sheffield United þar sem Michael Carrick skoraði á fjórðu mínútu. Patrice Evra fór af velli meiddur í fyrri hálfleik og er Kieran Richardson kominn í stöðu vinstri bakvarðar í hans stað. 17.4.2007 19:48
Shevchenko vill frekar mæta Milan Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea segist heldur vilja mæta AC Milan en Manchester United ef Chelsea nær að vinna sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu. Svo gæti farið að Manchester United og Chelsea spiluðu þrjá úrslitaleiki á hálfum mánuði í vor. 17.4.2007 19:45
Kuszczak stendur í marki United Pólski markvörðurinn Tomasz Kuszczak stendur í marki Manchester United í kvöld þegar liðið tekur á móti Sheffield United. Darren Fletcher er enn í stöðu hægri bakvarðar vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Arsenal tekur á móti Manchester City á Emirates leikvellinum þar sem liðið hefur aðeins tapað einu sinni í 24 leikjum. 17.4.2007 19:02
NBA: Joey Crawford dómara vikið úr starfi Joey Crawford, einni reyndasti dómarinn í NBA deildinni í körfubolta, var í dag leystur frá störfum um óákveðinn tíma vegna umdeilds atviks sem átti sér stað í leik Dallas og San Antonio á sunnudagskvöldið. David Stern, forseti deildarinnar, gaf út yfirlýsingu vegna málsins nú síðdegis. 17.4.2007 18:26
Wenger: Við höfðum áhuga á Drogba Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félagið hafi haft áhuga á að fá Didier Drogba í sínar raðir þegar hann lék með neðrideildarliðum í Frakklandi á sínum tíma, en ekkert hafi orðið úr því. Hann segir Drogba búa yfir nokkuð sérstakri reynslu sem nýtist honum vel í keppni meðal þeirra bestu. 17.4.2007 18:15
Benitez neitaði risatilboði frá Real Madrid Rafa Benitez, stjóri Liverpool, er sagður hafa neitað risatilboði Real Madrid í heimalandi hans um að flytja heim og gerast þjálfari liðsins. Benitez heldur því fram að hann og fjölskylda hans séu ánægði í Liverpool og það hafi úrslitaþýðingu - ekki háar peningaupphæðir. 17.4.2007 16:44
Angel semur við Red Bulls Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Angel hefur gengið frá samningi við MLS liðið New York Red Bull í Bandaríkjunum. Angel kom til Aston Villa árið 2001 en hefur ekki átt fast sæti í liðinu að undanförnu. Talið er að Angel muni halda svipuðum launum hjá Red Bulls - um 40.000 pundum í vikulaun. 17.4.2007 16:40
Frings í viðræðum við Juventus Þýski miðjumaðurinn Torsten Frings hjá Werder Bremen er nú kominn langt á veg með að semja við ítalska félagið Juventus. Hann er sem stendur á Ítalíu að semja um kaup og kjör og fer væntanlega til Juve í sumar þegar það mun væntanlega vera búið að tryggja sér sæti í A-deildinni á ný. Juve er í toppsæti B-deildarinnar þrátt fyrir að níu stig hafi verið dregin af því í skandalnum fræga í fyrra. Frings er 28 ára gamall landsliðsmaður. 17.4.2007 16:28
Neuville ætlar að berjast til síðasta manns með Gladbach Þýski landsliðsmaðurinn Oliver Neuville hjá úrvalsdeildarfélaginu Gladbach gagnrýnir nokkra af félögum sínum í liðinu harðlega og segir þá kæra sig kollótta um það hvort liðið haldi sæti sínu í deildinni í vetur eða ekki. Fátt annað en fall blasir við þessu fornfræga liði sem hefur verið á tómu basli síðasta áratug. 17.4.2007 16:11
Wenger sektaður Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fékk í dag enn eina áminninguna frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins og var þar að auki sektaður um rúmlega 300 þúsund krónur fyrir framkomu sína í garð dómara á leik Arsenal og Portsmouth í desember. Í sama mánuði var hann sektaður um rúma milljón króna vegna rifrildis síns við Alan Pardew, þáverandi stjóra West Ham. 17.4.2007 16:05
Dómara bárust morðhótanir Spænski dómarinn Javier Turienzo Alvarez sem dæmdi tvær umdeildar vítaspyrnur á Real Madrid í 2-1 tapi liðsins gegn Racing Santander um helgina hefur upplýst að sér hafi borist yfir 50 morðhótanir í kjölfarið. Dómarinn vísaði tveimur leikmönnum Real af velli í þessum sama leik, sem kann að hafa kostað stórveldið möguleika á titlinum. 17.4.2007 14:59
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Daily Mirror segir að Manchester United muni reyna að fá norska landsliðsmanninn Morten Gamst Pedersen hjá Blackburn í sínar raðir í sumar. Blaðið segir að Pedersen sé með ákvæði í samningi sínum sem losar hann frá félaginu ef 8 milljón punda tilboð berst í hann. 17.4.2007 14:19
Angel frjálst að fara til Bandaríkjanna Martin O´Neill, knattspyrnustjóri Aston VIlla, segir að framherjanum Juan Pablo Angel sé frjálst að semja við lið New York Red Bulls í MLS deildinni. Framherjinn kólumbíski er 31 árs gamall og talið er að hann sé að ganga frá tveggja ára samningi við Red Bulls. Hann á eitt ár eftir af samningnum við Villa en honum verður væntanlega rift ef af þessu verður. 17.4.2007 14:09
Endurkomu Owen seinkar Michael Owen hjá Newcastle mun ekki snúa aftur með liði sínu í leiknum gegn Chelsea á sunnudaginn eins og til stóð eftir að í ljós kom að hann var ekki valinn í varaliðshóp félagsins sem mætir Middlesbrough í kvöld. Owen er að ná sér af erfiðum hnémeiðslum sem hann varð fyrir í fyrra. 17.4.2007 14:04
Dida tæpur fyrir leikinn á Old Trafford Brasilíski markvörðurinn Dida hjá AC Milan gæti misst af fyrri leik liðsins gegn Manchester United á Old Trafford þann 24. apríl vegna meiðsla á öxl. Hann meiddist í leik gegn Messina á dögunum þegar hann skall ár markstönginni. 17.4.2007 13:59
Houston tryggði sér heimavöllinn Houston Rockets tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Pheonix Suns 120-117 á heimavelli. Miami tapaði fyrir Boston og missti James Posey í meiðsli. Alls voru átta leikir á dagskrá deildarinnar í nótt. 17.4.2007 13:38
KR-ingar Íslandsmeistarar KR tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir dramatískan 83-81 sigur á Njarðvík í framlengdum fjórða leik liðanna í vesturbænum . KR hafði aldrei forystu í venjulegum leiktíma, en hafði betur frá fyrstu mínútu í framlengingunni og vann því einvígið 3-1. Tyson Patterson hjá KR var kosinn verðmætasti leikmaðurinn í úrslitaeinvíginu. 16.4.2007 21:58
Ummæli leikmanna KR eftir sigurinn á Njarðvík Leikmenn KR voru að vonum hátt stefndir eftir að þeir höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Flestir töluðu þeir um að áhorfendur og karakterinn í liðinu hefði skilað því sigrinum. KR-ingur númer eitt, Einar Bollason, skrifaði sigurinn að mestu á Benedikt Guðmundsson þjálfara og sagði hann þann besta á landinu. 16.4.2007 23:31
Benedikt þakkaði stuðningsmönnunum "Þetta var auðvitað magnaður leikur og sama uppskrift og í síðustu leikjum þar sem við erum að elta allan tímann en komum svo sterkir inn í lokin. Það gildir að vera yfir þegar flautað er af," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR eftir að hans menn lönduðu Íslandsmeistaratitlinum í kvöld. 16.4.2007 22:55
Skuggahliðar fótboltans (myndband) Knattspyrnan er gjarnan nefnd hinn fallegi leikur en hann á sér sínar skuggahliðar eins og sést í myndbandinu sem fylgir þessari frétt. Bestu knattspyrnumenn heims sýna okkur frábær tilþrif á degi hverjum, en eiga það svo til að verða sér til skammar inn á milli eins og Zinedine Zidane þegar hann stimplaði sig út á HM í sumar. 16.4.2007 19:08