Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Þú lyftir engum titli fyrr en að mótið er búið“ „Ég geri ráð fyrir að fyrri hálfleikurinn hafi ekki verið mikil skemmtun. Það var hægt tempó en svo vorum við mjög sterkir í seinni hálfleik og ég er ánægður með liði að hafa klárað þennan leik. ÍBV-liðið er gott lið. Þannig þetta var bara flott,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á ÍBV í dag. 17.9.2022 16:44
Jóhann Berg lagði upp sigurmark Burnley Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Bristol City í ensku B-deildinni í kanttspyrnu í dag. Jóhann Berg kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og lagði upp sigurmark heimamanna. 17.9.2022 16:43
Eiður Smári: „Það er bara gaman að fara til Vestmannaeyja einu sinni á ári“ FH-ingar enda 22 leikja deildarkeppni í 11. og næst neðsta sæti eftir tap gegn Stjörnunni í Garðabænum í lokaumferðinni í dag. FH-ingar fara því í neðri hluta úrslitakeppninnar og þurfa að leika einum útileik meira en flest önnur lið. Eiður Smári Guðjonhsen, þjálfari FH, sér eftir þessum auka heimaleik en FH-ingar þurfa að heimsækja ÍBV til Eyja í fyrsta leik úrslitakeppninnar. 17.9.2022 16:43
Auðveldur sigur hjá Barcelona sem er komið á toppinn Barcelona mætti Elche í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í dag eftir tap gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í miðri viku. Lokatölur í dag 3-0 þar sem Robert Lewandowski skoraði tvívegis. 17.9.2022 16:30
Jakob Snær: Við erum alls ekki hættir „Það er alltaf sætt að skora og sérstaklega þegar mörkin telja mikið fyrir liðin. Mér fannst við vinna fyrir þessu í dag,“ sagði Jakob Snær Árnason, hetja KA-manna, en hann skoraði sigurmarkið gegn Val í Bestu deildinni í dag. 17.9.2022 16:20
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-ÍBV 3-0 | Blikar í kjörstöðu fyrir úrslitakeppnina Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, vann 3-0 sigur á móti ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Liðið er í kjörstöðu fyrir skiptingu deildarinnar en Víkingur og KA eru átta stigum á eftir Blikum í dag. 17.9.2022 16:15
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 2-1 FH | Stjarnan endar í efri helming og FH í fallsæti Stjarnan endar fyrsta leiktímabil Bestu-deildarinnar í 6. sæti og leikur því í efri hluta úrslitakeppninnar eftir 2-1 sigur á FH í lokaumferð deildarkeppninnar. Á sama tíma enda FH-ingar deildarkeppninna í fallsæti. Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði bæði mörk Garðbæinga í dag. 17.9.2022 15:55
Karlarnir ekki langt frá að lenda á verðlaunapalli Íslenska karlalandsliðið í hópfimleikum endaði í fjórða sæti á Evrópumótinu í Lúxemborg þar sem úrslit mótsins fóru fram í dag. 17.9.2022 15:45
Svava Rós og Selma Sól skoruðu báðar í jafntefli Svava Rós Guðmundsdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir skoruðu báðar þegar Brann og Rosenborg gerðu 1-1 jafntefli. Sveindís Jane Jónsdóttir hóf tímabilið á bekknum hjá Wolfsburg, Berglind Björg Þorvaldsdóttir spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir París Saint-Germain og Anna Björk Kristjánsdóttir var í liði Inter sem vann stórsigur. 17.9.2022 15:41
ÍBV vann KA/Þór með minnsta mun KA/Þór var í heimsókn í Vestmannaeyjum og mætti ÍBV í Olís-deild kvenna. Fór það svo að heimaliðið vann með minnsta mun, lokatölur 28-27. 17.9.2022 15:20
Sjáðu markið: Andri Lucas skoraði sitt fyrsta mark í Íslendingaslag Íslendingalið Norrköping gerði 2-2 jafntefli við Kalmar í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið. Alls voru fimm Íslendingar í eldlínunni í leikjunum tveimur í Svíþjóð. 17.9.2022 15:00
Heimir um að fara úr Persaflóa til Jamaíka: „Það sem er bannað þar er leyfilegt hér“ Heimir Hallgrímsson var tilkynntur sem nýr landsliðsþjálfari Jamaíka í gærkvöld, föstudag. Þetta hafði legið lengi í loftinu en í gær var tilkynnt að Heimir myndi þjálfa liðið næstu fjögur árin. 17.9.2022 14:31
Ísland nældi í silfur á EM Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum endaði í öðru sæti á Evrópumótinu sem fór fram í Lúxemborg. 17.9.2022 13:50
Úlfarnir engin fyrirstaða og meistararnir komnir á toppinn Manchester City vann einkar þægilegan 3-0 sigur á Wolves í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn lyftir Englandsmeisturunum upp á topp deildarinnar. 17.9.2022 13:30
Man United gekk frá Reading í fyrri hálfleik Manchester United vann einkar þægilegan 4-0 sigur á Reading í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í dag. 17.9.2022 13:15
1. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri meistaranna í Dusty á nýliðum Breiðabliks. Þór, NÚ, SAGA og Ármann unnu einnig sína leiki. 17.9.2022 13:01
Škriniar næsti varnarmaðurinn sem Real vill á frjálsri sölu Real Madríd heldur áfram að eltast við varnarmenn á frjálsri sölu. Eftir að sækja David Alaba sumarið 2021 og Antonio Rüdiger síðasta sumar þá stefnir allt í að Milan Škriniar, miðvörður Inter Milan, komi á frjálsri sölu sumarið 2023. 17.9.2022 12:36
Schröder til Lakers á ný og Westbrook gæti sest á bekkinn Leikstjórnandinn Dennis Schröder hefur samið við Los Angeles Lakers um að leika með liðinu á næstu leiktíð í NBA deildinni í körfubolta. Lakers staðfesti skiptin skömmu eftir að Schröder skoraði 30 stig í tapi Þýskalands gegn Spáni í undanúrslitum EuroBasket, Evrópumóts karla í körfubolta. 17.9.2022 12:01
Vinícius mun ekki hætta að dansa Brasilíumaðurinn Vinícius Junior, einn albesti fótboltamaður heims í dag, hefur sagt að hann muni ekki hætta að fagna mörkum sínum að hætti hússins. Vinícius segir að „gleði svarta Brasilíumanna í Evrópu“ sé á bakvið gagnrýnina á fögnum hans. 17.9.2022 11:30
Mbappé þénar mest allra árið 2022 Kylian Mbappé er tekjuhæsti knattspyrnumaður í heimi árið 2022. Hann fær 105 milljónir Bandaríkjadala [14,6 milljarðar íslenskra króna] í laun hjá París Saint-Germain ásamt því að þéna 20 milljónir Bandaríkjadala [2,8 milljarðar] í gegnum auglýsingar og því um líkt. 17.9.2022 10:46
Tekst Fram eða Keflavík að komast upp í efri hlutann? Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni í Bestu deild karla í fótbolta fer fram í dag. Eftir umferð dagsins verður deildinni skipt upp og leikið um Íslandsmeistaratitilinn annars vegar og hvaða lið falla hins vegar. Töluverð spenna er fyrir umferðinni sem verður flautuð á klukkan 14.00. 17.9.2022 10:01
Gagnrýna valið á Aroni Einari: „Þetta staðfestir að nauðgunarmenning þrífst innan KSÍ og að þolendum er ekki trúað“ Aron Einar Gunnarsson var íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem valinn var í gær, föstudag. Landsliðsfyrirliðinn hefur ekki spilað síðan í júní á síðasta ári þar sem mál hans og Eggert Gunnþórs Jónssonar var enn á borði ríkissaksóknara en kona ásakaði þá um að nauðga sér í Kaupmannahöfn árið 2010. Aðgerðarhópurinn Öfgar hefur tjáð sig um málið og þá hefur mikil umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum eftir valið. 17.9.2022 09:30
„Gefur þeim ákveðið forskot á leikmenn á sama aldri í öðrum löndum“ „Ég held að fyrsta tímabilið hafi verið þegar ég var nýorðinn sextán ára,“ sagði Arnór Atlason aðspurður hvenær hann hefði byrjað að spila með meistaraflokki í handbolta. Arnór, sem er í dag aðstoðarþjálfari danska stórliðsins Álaborgar sem og danska U-20 ára landsliðið ræddi við þá Stefán Árna Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. 17.9.2022 09:01
„Þeir verða alls ekkert fallbyssufóður í vetur“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var skiljanlega sáttur með fyrri hálfleikinn gegn Herði enda unnu meistararnir hann, 22-9. 17.9.2022 08:31
Óttast ekki neikvæða umræðu: „Vinnum bara eftir reglum sem okkur eru gefnar“ Arnar Þór Viðarsson óttast ekki að valið á Aroni Einari Gunnarssyni í íslenska fótboltalandsliðið eigi eftir að draga óþægilegan dilk á eftir sér. 17.9.2022 08:00
Ekvador heldur HM sætinu en Síle gefst ekki upp Knattspyrnusamband Síle neitar að leggja árar í bát og ætlar að áfrýja aftur þó svo að það hafi nú þegar tapað áfrýjun og búið sé að staðfesta að Ekvador haldi sæti sínu á HM sem fram fer í Katar eftir nokkra mánuði. 17.9.2022 07:00
Dagskráin í dag: Sextán beinar útsendingar Það má með sanni segja að það sé nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á Bestu deild karla og kvenna í fótbolta, Olís deild karla og kvenna í handbolta, Serie A og golf á þessum fallega laugardegi. 17.9.2022 06:00
Evrópuævintýri Alfons og félaga hófst gegn Val Alfons Sampsted og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt hafa nú unnið 14 Evrópuleiki í röð í annað hvort Evrópu- eða Sambandsdeild Evrópu. Sigurgangan hófst þann 29. júlí 2021 er liðið lagði þáverandi Íslandsmeistara Vals 3-0. 16.9.2022 23:31
Jamaíka kynnir Heimi sem nýjan landsliðsþjálfara Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, var í kvöld kynntur sem nýr landsliðsþjálfari karlaliðs Jamaíka. Fyrr í vikunni var svo gott sem búið að staðfesta að Heimir væri að taka við og nú hefur opinberlega verið kynntur sem næsti þjálfari liðsins. 16.9.2022 23:01
„Vandamálið var að við spiluðum í þrjátíu mínútur en ekki sextíu“ Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, sagði að fyrri og seinni hálfleikurinn gegn Val hefði verið eins og svart og hvítt. 16.9.2022 22:48
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Hörður 38-28 | Köstuðu ekki inn hvíta handklæðinu Valur vann stórsigur á Herði, 38-28 í Olís-deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Ísfirðinga í efstu deild frá upphafi. 16.9.2022 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 25-25 | Bæði lið enn í leit að sínum fyrsta sigri Afturelding og FH gerðu jafntefli í Olís deild karla í kvöld. Lokatölur 25-25 sem þýðir að liðin eru enn í leit að sínum fyrsta sigri. 16.9.2022 22:15
FH taplaust í gegnum Lengjudeildina Tindastóll og FH, topplið Lengjudeildar kvenna í fótbolta gerðu 2-2 jafntefli i kvöld en bæði lið höfðu þegar tryggt sér sæti í Bestu deildinni að ári. 16.9.2022 22:01
„Ólíkt síðasta tímabili ætlum við að breyta jafnteflum í sigra í vetur“ Afturelding gerði jafntefli við FH í 2. umferð Olís deildar karla. Leikurinn var jafn og spennandi þar sem FH fékk lokasóknina en allt kom fyrir ekki og leikurinn endaði 25-25. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var svekktur með aðeins eitt stig. 16.9.2022 21:50
Fulham vann þó Mitrović hafi ekki skorað Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Nýliðar Fulham lögðu nýliða Nottingham Forest á útivelli á meðan Aston Villa vann Southampton á Villa Park. 16.9.2022 21:32
Skytturnar byrja á stórsigri Arsenal og Brighton & Hove Albion mættust í fyrsta leik ensku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í kvöld. Skytturnar unnu 4-0 stórsigur og byrja tímabilið af krafti. 16.9.2022 20:46
Heimsmeistararnir mæta Frökkum í úrslitum Spánn og Frakkland mætast í úrslitum EuroBasket, Evrópumóts karla í körfubolta. Frakkland vann stórsigur á Póllandi fyrr í dag en nú í kvöld vann heimsmeistarar Spánar fimm stiga sigur á Þjóðverjum, lokatölur 96-91 og Spánverjar komnir í úrslit. 16.9.2022 20:30
Valskonur ekki í vandræðum með Hauka Valur gjörsamlega pakkaði Haukum saman að Hlíðarenda þegar liðin mættust í Olís deild kvenna í kvöld, lokatölur 37-22 Valskonum í vil. 16.9.2022 19:46
Sara Björk á toppinn á Ítalíu | Bayern byrjar ekki vel Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn á miðri miðju meistaraliðs Juventus er liðið vann 1-0 sigur á Roma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í liði Bayern München sem tókst ekki að landa sigri gegn Eintracht Frankfurt. 16.9.2022 19:31
Stúlknalandslið Íslands fékk brons á EM Íslenska stúlknalandsliðið í hópfimleikum vann brons á Evrópumótinu sem fram fer í Lúxemborg. Kvenna- og karlalandsliðið keppa svo til úrslita um helgina. 16.9.2022 18:31
Amanda og Emelía á skotskónum | Rosengård á toppinn Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengård unnu bæði sína leiki í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og eru því áfram í efstu tveimur sætum deildarinnar. Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir voru á skotskónum hjá Kristianstad. 16.9.2022 18:00
Beckham beið í þrettán klukkustundir til að geta vottað virðingu sína David Beckham, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englands, beið röð í þrettán klukkustundir til að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. 16.9.2022 17:31
Frakkar flugu í úrslit með risasigri Frakkar tryggðu sér farseðilinn í úrslit Evrópumótsins í körfubolta með afar öruggum 41 stigs sigri gegn Pólverjum í dag, 95-54. 16.9.2022 17:02
Treyja Jordans orðin verðmætasti íþróttaminjagripur sögunnar Chicago Bulls keppnistreyja sem Michael Jordan klæddist í úrslitum NBA árið 1998 varð í nótt dýrasti íþróttaminjagripur sögunnar þegar hún seldist á uppboði fyrir 10,1 milljón dollara. 16.9.2022 16:02
Lið Bónda uppskar eins og það sáði Sigurlið Dusty mætti með nýjan hóp til leiks gegn nýliðum Breiðabliks. StebbiC0C0 er aftur mættur til Dusty og er liðinu spáð efsta sætinu í deildinni á þessu tímabili. 16.9.2022 16:02