Fleiri fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir : ÍA - Fram 0-1 Leikmenn Fram fögnuðu gríðarlega þegar Þóroddur Hjaltalín dómari flautaði til leiksloka á Akranesvelli í dag þar sem liðin áttust við í næst síðustu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. 1-0 sigur Fram var síst of stór en Skagamenn sóttu hart að marki Fram á lokakaflanum þar sem að Ögmundur Kristinsson markvörður Fram bjargaði hvað eftir annað með stórkostlegri markvörslu. 23.9.2012 15:30 Malmö heldur sínu striki LdB Malmö, lið Þóru Helgadóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, náði fimm stiga forystu á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 3-2 sigri á Vittsjö þar sem sigurmarkið kom á síðustu mínútu leiksins. Alls voru þrír leikir í deildinni í dag og komu íslenskar knattspyrnukonur við sögu í þeim öllum. 23.9.2012 15:28 Brendan Rodgers: Af hverju fékk Jonny Evans þá ekki líka rautt spjald? Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hrósaði sínum mönnum þrátt fyrir 1-2 tap á móti Manchester United á Anfield í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool lék manni færri frá 39. mínútu og komst yfir í byrjun seinni hálfleiks en United jafnaði og skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 15:25 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - FH 2-2 | ÍBV náði Evrópusætinu Eyjamönnum tókst að tryggja sér Evrópusætið þrátt fyrir að missa niður 2-0 forystu á síðustu þrettán mínútunum á móti Íslandsmeisturum FH á Hásteinsvellinum í dag. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði fyrra mark Eyjamanna en það seinna var sjálfsmark FH-inga. FH-ingar gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn með tveimur mörkum á lokamínútunum. Stigið nægir ÍBV þar sem að helstu keppinautar þeirra, Stjarnan og Breiðablik, mætast í lokaumferðinni. 23.9.2012 15:15 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Selfoss 4-2 Stjarnan lyfti sér upp í þriðja sæti Pepsí deildarinnar með 4-2 sigri á Selfossi. Stjarnan mætir því Breiðabliki í hreinum úrslitaleik um Evrópusæti í loka umferðinni en Selfoss þarf á kraftaverki að halda í síðustu umferðinni þar sem liðið er þremur stigum á eftir Fram og með mun lakari markatölu. 23.9.2012 15:15 Sir Alex Ferguson: Pottþétt rautt spjald á Jonjo Shelvey Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, stýrði sínum mönnum til fyrsta sigursins á Anfield í fimm ár í dag. United-liðið, sem átti í vök að verjast stóran hluta leiksins, lék manni fleiri í rúmar 50 mínútur og vann leikinn á vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 15:08 Ryan Giggs: Höfum spilað betur hérna síðustu ár án þess að fá neitt Ryan Giggs og félagar í Manchester United lönduðu 2-1 sigri á erkifjendum sínum í Liverpool á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool lék manni færri í rúmar 50 mínútur og sigurmark United kom úr umdeildri vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 14:56 Gylfi útaf í hálfleik og Tottenham snéri tapi í sigur Tottenham fagnaði sínum öðrum sigri í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 2-1 heimasigur á nágrönnum sínum í Queens Park Rangers. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham en var tekinn útaf í hálfleik í stöðunni 0-1 fyrir QPR. Jermain Defoe skoraði sigurmarkið og hefur þar með skorað fjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni. 23.9.2012 14:30 Miðverðirnir með mörkin í jafntefli Manchester City og Arsenal Manchester City og Arsenal gerði 1-1 jafntefli í toppslag í ensku úrvalsdeildinni í dag en bæði liðin voru taplaus fyrir leikinn. Leikurinn var rólegur í fyrri hálfleik en fjörið var mun meira á lokakaflanum. 23.9.2012 14:30 Vettel sigurvegari í Singapúr en Hamilton í vandræðum Þýski heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull-bíl vann Formúlu 1 kappaksturinn í Singapúr í dag. Kappaksturinn var gríðarleg vonbrigði fyrir Lewis Hamilton á McLaren-bíl en lenti í vandræðum með gírkassann og þurfti að draga sig í hlé. 23.9.2012 14:23 Demba Ba tryggði Newcastle þrjú stig Newcastle komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-0 heimasigur á Norwich í dag. Newcastle hafði ekki unnið síðan í fyrstu umferð en var búið að gera jafntefli í undanförnum tveimur leikjum sínum. 23.9.2012 13:30 Halsey dómari stal senunni í sigri Man. Utd. á Liverpool Manchester United sigraði Liverpool 2-1 á útivelli í hádegisleik enska boltans í dag. Liverpool var mun sterkari aðilinn í leiknum þrátt fyrir að leika einum færri í rúmar 50 mínútur en Mark Halsey dómari stal senunni með stórum dómum sem réðu úrslitum í leiknum. 23.9.2012 12:00 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - KR 3-2 Fylkismenn unnu góðan 3-2 sigur á KR í dag og tryggðu endanlega veru sína í Pepsi deildinni á næsta ári. Þeir komust í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks en gestirnir klóruðu í bakkann í þegar dróg á seinni hálfleik en náðu ekki að bjarga stigi. 23.9.2012 00:01 Guardiola mun halda sig í New York næsta árið Pep Guardiola, fyrrum þjálfari Barcelona, nýtur nú lífsins í Bandaríkjunum en hann flutti með alla fjölskylduna frá Barcelona til New York eftir að hann hætti að þjálfa Barcelona-liðið síðasta vor enda harður á því að taka sér eitt ár í frí frá boltanum. 23.9.2012 13:00 Stangveiði í Skotlandi með besta móti Eins sýnir tölfræðin að veiða/sleppa fyrirkomulagið í Skotlandi er að ná sífellt betri fótfestu en 73% af öllum laxi var sleppt árið 2011; 91% af vorveiddum laxi og 70% af öllum sjóbirtingi var sleppt. 23.9.2012 13:00 Mourinho: Ég lofa því að ég kem aftur í enska boltann José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur þurft að synda í gegnum ólgusjó spænskra fjölmiðla á þessu tímabili enda hefur gengi Real Madrid í spænsku deildinni verið dapurt og liðið aðeins búið að vinna 1 af fyrstu 4 leikjum sínum. 23.9.2012 12:30 Enginn Nemanja Vidic hjá Manchester United Nemanja Vidic, fyrirliði Manchester United, verður ekki með liðinu á móti Liverpool á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Jonny Evans og Rio Ferdinand byrja því í miðvarðarstöðunum hjá Sir Alex Ferguson. 23.9.2012 11:50 Tony Pulis skilur ekki hvernig David Luiz slapp við rautt spjald Tony Pulis, stjóri Stoke, var allt annað en sáttur með tæklingu Chelsea-mannsins David Luiz í lok leiks liðanna á Brúnni í ensku úrvalsdeildinni í gær. David Luiz fékk bara gult spjald fyrir sem flestum fannst vel sloppið. 23.9.2012 11:30 Gerrard pressar á Suarez að taka í höndina á Evra Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, vill að Luis Suarez taki í höndina á Patrice Evra fyrir stórleik Liverpool og Manchester United í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Sport 2 HD en á undan leiknum er hálftíma upphitunarþáttur með Guðmundi Benediktssyni. 23.9.2012 11:00 Liverpool hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum á móti Manchester United á Anfield Liverpool tekur á móti Manchester United á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur enn ekki unnið deildarleik á tímabilinu en því verða stuðningsmenn félagsins fljótir að fyrirgefa ef liðinu tekst að vinna erkifjendurna í dag. 23.9.2012 10:00 Van Persie hefur verið Liverpool erfiður síðustu ár Hollendingurinn Robin van Persie tekur í dag þátt í fyrsta sinn í slag erkifjendanna Manchester United og Liverpool en hann var öflugur með Arsenal í síðustu leikjum sínum á móti Liverpool. 23.9.2012 09:00 Hjörtur náði hundraðasta marki sínu í 1. deild í síðustu umferðinni Hjörtur Júlíus Hjartarson skoraði fyrir Víking Reykjavík í 3-3 jafntefli á móti Vikingi Ólafsvík í lokaumferð 1. deildar karla í gær. Hjörtur var að skora þarna sannkallað tímamótamark því þetta var hundraðasta mark hans í næstefstu deild. 23.9.2012 08:00 Ný veiðibók komin út: Ágóðinn rennur til NASF 23.9.2012 07:00 Brendan Rodgers: Liverpool óttast ekki Manchester United Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir sína menn óttast ekki Manchester United fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Sport 2 HD. 23.9.2012 07:00 Zlatan kominn með sjö mörk í fyrstu fimm leikjunum með PSG Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja þegar Paris Saint-Germain vann 4-0 útisigur á Bastia í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Zlatan hefur þar með skorað sjö mörk í fyrstu fimm deildarleikjum sínum með PGS. 23.9.2012 06:30 Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir í Pepsi-deildinni á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. 23.9.2012 15:45 Magnað jöfnunarmark markvarðar í frönsku úrvalsdeildinni Ali Ahamada, 21 árs gamall markvörður Toulouse, var hetja sinna manna í frönsku úrvalsdeildinni í dag en ekki á þeim enda vallarins sem flestir myndu búast við. Ahamada tryggði sínu liði nefnilega 2-2 jafntefli á móti Rennes með marki í uppbótartíma. 22.9.2012 23:30 Bessi Víðisson: Skoraði fimm mörk í lokaleiknum og tryggði sér markakóngstitilinn Bessi Víðisson, 22 ára framherji í sameiginlegu liði Dalvíkur og Reynis, er markakóngur í 2. deild karla í fótbolta en það þurfti fimm marka leik hjá kappanum til að hann næði markakóngstitlinum af Þórði Birgissyni hjá KF. 22.9.2012 23:00 Ólíklegt að Derek Fisher verði áfram hjá Oklahoma City Thunder Derek Fisher, fimmfaldur meistari með Los Angeles Lakers, fór alla leið í lokaúrslit NBA-deildarinnar með Oklahoma City Thunder liðinu á síðustu leiktíð en það eru ekki miklar líkur á því að hann spili áfram með Thunder-liðinu á komandi tímabili. 22.9.2012 22:30 Zlatan og félagar í PSG fá risabónus fyrir að vinna Meistaradeildina Franska liðið Paris Saint-Germain sýndi styrk í vikunni með því að vinna 4-1 sigur á Dynamo Kiev í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni. Blaðamenn L'Equipe hafa nú komist að því að risabónusar eru í boði fyrir Zlatan Ibrahimovic og félagar takist þeim að vinna Meistaradeildina næsta vor. 22.9.2012 21:15 Jón Margeir tólfti Íslendingurinn sem vinnur gull á Ólympíumóti Íþróttasamband fatlaðra hefur tekið saman á heimasíðu sinni hvaða íslensku íþróttamenn hafa náð því að vinna gull á Ólympíumóti fatlaðra frá upphafi en Ísland eignaðist gulldreng á nýloknum Ólympíumóti London. 22.9.2012 20:45 David Luiz búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Chelsea Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Evrópumeistara Chelsea en hann var orðaður við Barcelona í síðasta félagsglugga. David Luiz eyddi hinsvegar öllum vafa um framtíð sína með því að gera langtímasamning við Lundúnaliðið. 22.9.2012 20:15 Selfossstelpur unnu fyrsta heimaleikinn í 20 ár | Markaskorarar í N1 deild kvenna í dag Nýliðar Selfoss í N1 deild kvenna í handbolta byrja tímabilið vel því þær unnu tíu marka sigur á Aftureldingu, 26-16, í nýliðaslag á Selfossi í dag. ÍBV skoraði sjö af síðustu níu mörkum leiksins á móti Gróttu í Eyjum og tryggði sér 22-22 jafntefli en Grótta náði mest sjö marka forskoti í hálfleik. 22.9.2012 19:40 Tvö mörk Börsunga á síðustu mínútunum - með 11 stiga forskot á Real Það tók Barcelona-menn 86 mínútur að finna leiðina framhjá Tono, markverði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Xavi skoraði markið á 87. mínútu og Granada-liðið skoraði síðan sjálfsmark í uppbótartíma. Barcalona vann því leikinn 2-0 og er með fullt hús á toppnum eftir fyrstu fimm umferðirnar. 22.9.2012 19:30 Atli Ævar með fimm mörk í sigri SönderjyskE SönderjyskE er að byrja ágætlega í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta og hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. SönderjyskE vann 31-29 heimasigur á TMS Ringsted í dag. 22.9.2012 19:11 Arna Sif með flottan leik í sigri á SönderjyskE Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk fyrir Aalborg DH í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á SönderjyskE, 31-27. Þetta var langþráður sigur hjá Álaborgarliðinu því liðið var stigalaust fyrir leikinn. 22.9.2012 19:02 Van der Vaart lagði upp tvö þegar HSV vann meistara Dortmund Hollendingurinn Rafael van der Vaart lagði upp tvö mörk fyrir Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-2 heimasigur á meisturum Borussia Dortmund. Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-Min skoraði tvö mörk fyrir HSV í leiknum. Bayern München komst aftur í toppsætið eftir 2-0 útisigur á Schalke 04. 22.9.2012 18:45 Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. 22.9.2012 18:15 Langþráður úrslitaleikur hjá Wozniacki Danska tenniskonan Caroline Wozniacki hefur hrunið niður heimslistann á þessu ári enda hefur ekkert gengið hjá þessum fyrrum bestu tenniskonu heims. Hún byrjaði árið 2012 í efsta sæti en er nú komin niður í ellefta sæti eftir skelfilegt gengi undanfarna mánuði. 22.9.2012 17:45 Maldonado ætlar sækja stig í fyrsta sinn síðan á Spáni 22.9.2012 17:41 Verður Grafarholtsvelli lokað í tvö ár? Grafarholtsvöllur er einn allra vinsælasti golfvöllur landsins og það er ekki auðvelt að tryggja sér rástíma á vellinum enda margir kylfingar í Golfklúbbi Reykjavíkur. Svo gæti farið að enginn fái að spila á vellinum í allt að 24 mánuði. Kylfingur segir frá því að ein af tillögum frá Framtíðarnefnd Grafarholts sé að loka vellinum í tvö ár á meðan fara fram endurbætur á vellinum. 22.9.2012 17:00 Keflavík fær til sína eina bestu þriggja stiga skyttuna í sögu bandaríska háskólaboltans Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska bakvörðinn Jessica Jenkins um að leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili. Jessica er 22 ára bakvörður sem er nýútskrifuð úr St. Bonaventure háskólanum og lék við góðan orðstýr í NCAA háskólaboltanum. 22.9.2012 16:30 Leiknismenn björguðu sér með þriðja sigrinum í röð | Völsungur og KF koma upp Lokaumferðin í 1. deild karla í fótbolta fór fram í dag og þar réðst hvaða lið féll út 1. deildinni með ÍR. Leiknismenn björguðu sæti sínu á kostnað Hattarmanna. Þá var einnig spiluð síðasta umferðin í 2. deild karla og eftir mikla dramatík er það ljóst að það verða Völsungur og KF sem taka sæti ÍR og Hattar. 22.9.2012 16:00 Aron Einar og Björn Bergmann skoruðu báðir Cardiff tókst ekki að að að landa þremur stigum á móti Crystal Palace í ensku b-deildinni í dag þrátt fyrir að komast í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Cardiff átti með sigri möguleika að komast upp að hlið Brighton & Hove Albion á toppi ensku b-deildarinnar en tapaði leiknum 2-3. Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Wolves. 22.9.2012 15:45 HK vann sannfærandi sigur á Stjörnunni HK-konur komu á óvart í fyrstu umferð N1 deildar kvenna í handbolta með því að vinna sexmarka sigur á Stjörnunni, 25-19, í Digarnesi í dag en Stjörnuliðinu var spáð mun betra gengi en HK í vetur. 22.9.2012 15:20 Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir : ÍA - Fram 0-1 Leikmenn Fram fögnuðu gríðarlega þegar Þóroddur Hjaltalín dómari flautaði til leiksloka á Akranesvelli í dag þar sem liðin áttust við í næst síðustu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. 1-0 sigur Fram var síst of stór en Skagamenn sóttu hart að marki Fram á lokakaflanum þar sem að Ögmundur Kristinsson markvörður Fram bjargaði hvað eftir annað með stórkostlegri markvörslu. 23.9.2012 15:30
Malmö heldur sínu striki LdB Malmö, lið Þóru Helgadóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, náði fimm stiga forystu á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 3-2 sigri á Vittsjö þar sem sigurmarkið kom á síðustu mínútu leiksins. Alls voru þrír leikir í deildinni í dag og komu íslenskar knattspyrnukonur við sögu í þeim öllum. 23.9.2012 15:28
Brendan Rodgers: Af hverju fékk Jonny Evans þá ekki líka rautt spjald? Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hrósaði sínum mönnum þrátt fyrir 1-2 tap á móti Manchester United á Anfield í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool lék manni færri frá 39. mínútu og komst yfir í byrjun seinni hálfleiks en United jafnaði og skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 15:25
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - FH 2-2 | ÍBV náði Evrópusætinu Eyjamönnum tókst að tryggja sér Evrópusætið þrátt fyrir að missa niður 2-0 forystu á síðustu þrettán mínútunum á móti Íslandsmeisturum FH á Hásteinsvellinum í dag. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði fyrra mark Eyjamanna en það seinna var sjálfsmark FH-inga. FH-ingar gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn með tveimur mörkum á lokamínútunum. Stigið nægir ÍBV þar sem að helstu keppinautar þeirra, Stjarnan og Breiðablik, mætast í lokaumferðinni. 23.9.2012 15:15
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Selfoss 4-2 Stjarnan lyfti sér upp í þriðja sæti Pepsí deildarinnar með 4-2 sigri á Selfossi. Stjarnan mætir því Breiðabliki í hreinum úrslitaleik um Evrópusæti í loka umferðinni en Selfoss þarf á kraftaverki að halda í síðustu umferðinni þar sem liðið er þremur stigum á eftir Fram og með mun lakari markatölu. 23.9.2012 15:15
Sir Alex Ferguson: Pottþétt rautt spjald á Jonjo Shelvey Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, stýrði sínum mönnum til fyrsta sigursins á Anfield í fimm ár í dag. United-liðið, sem átti í vök að verjast stóran hluta leiksins, lék manni fleiri í rúmar 50 mínútur og vann leikinn á vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 15:08
Ryan Giggs: Höfum spilað betur hérna síðustu ár án þess að fá neitt Ryan Giggs og félagar í Manchester United lönduðu 2-1 sigri á erkifjendum sínum í Liverpool á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool lék manni færri í rúmar 50 mínútur og sigurmark United kom úr umdeildri vítaspyrnu níu mínútum fyrir leikslok. 23.9.2012 14:56
Gylfi útaf í hálfleik og Tottenham snéri tapi í sigur Tottenham fagnaði sínum öðrum sigri í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 2-1 heimasigur á nágrönnum sínum í Queens Park Rangers. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham en var tekinn útaf í hálfleik í stöðunni 0-1 fyrir QPR. Jermain Defoe skoraði sigurmarkið og hefur þar með skorað fjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni. 23.9.2012 14:30
Miðverðirnir með mörkin í jafntefli Manchester City og Arsenal Manchester City og Arsenal gerði 1-1 jafntefli í toppslag í ensku úrvalsdeildinni í dag en bæði liðin voru taplaus fyrir leikinn. Leikurinn var rólegur í fyrri hálfleik en fjörið var mun meira á lokakaflanum. 23.9.2012 14:30
Vettel sigurvegari í Singapúr en Hamilton í vandræðum Þýski heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull-bíl vann Formúlu 1 kappaksturinn í Singapúr í dag. Kappaksturinn var gríðarleg vonbrigði fyrir Lewis Hamilton á McLaren-bíl en lenti í vandræðum með gírkassann og þurfti að draga sig í hlé. 23.9.2012 14:23
Demba Ba tryggði Newcastle þrjú stig Newcastle komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-0 heimasigur á Norwich í dag. Newcastle hafði ekki unnið síðan í fyrstu umferð en var búið að gera jafntefli í undanförnum tveimur leikjum sínum. 23.9.2012 13:30
Halsey dómari stal senunni í sigri Man. Utd. á Liverpool Manchester United sigraði Liverpool 2-1 á útivelli í hádegisleik enska boltans í dag. Liverpool var mun sterkari aðilinn í leiknum þrátt fyrir að leika einum færri í rúmar 50 mínútur en Mark Halsey dómari stal senunni með stórum dómum sem réðu úrslitum í leiknum. 23.9.2012 12:00
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - KR 3-2 Fylkismenn unnu góðan 3-2 sigur á KR í dag og tryggðu endanlega veru sína í Pepsi deildinni á næsta ári. Þeir komust í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks en gestirnir klóruðu í bakkann í þegar dróg á seinni hálfleik en náðu ekki að bjarga stigi. 23.9.2012 00:01
Guardiola mun halda sig í New York næsta árið Pep Guardiola, fyrrum þjálfari Barcelona, nýtur nú lífsins í Bandaríkjunum en hann flutti með alla fjölskylduna frá Barcelona til New York eftir að hann hætti að þjálfa Barcelona-liðið síðasta vor enda harður á því að taka sér eitt ár í frí frá boltanum. 23.9.2012 13:00
Stangveiði í Skotlandi með besta móti Eins sýnir tölfræðin að veiða/sleppa fyrirkomulagið í Skotlandi er að ná sífellt betri fótfestu en 73% af öllum laxi var sleppt árið 2011; 91% af vorveiddum laxi og 70% af öllum sjóbirtingi var sleppt. 23.9.2012 13:00
Mourinho: Ég lofa því að ég kem aftur í enska boltann José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur þurft að synda í gegnum ólgusjó spænskra fjölmiðla á þessu tímabili enda hefur gengi Real Madrid í spænsku deildinni verið dapurt og liðið aðeins búið að vinna 1 af fyrstu 4 leikjum sínum. 23.9.2012 12:30
Enginn Nemanja Vidic hjá Manchester United Nemanja Vidic, fyrirliði Manchester United, verður ekki með liðinu á móti Liverpool á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Jonny Evans og Rio Ferdinand byrja því í miðvarðarstöðunum hjá Sir Alex Ferguson. 23.9.2012 11:50
Tony Pulis skilur ekki hvernig David Luiz slapp við rautt spjald Tony Pulis, stjóri Stoke, var allt annað en sáttur með tæklingu Chelsea-mannsins David Luiz í lok leiks liðanna á Brúnni í ensku úrvalsdeildinni í gær. David Luiz fékk bara gult spjald fyrir sem flestum fannst vel sloppið. 23.9.2012 11:30
Gerrard pressar á Suarez að taka í höndina á Evra Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, vill að Luis Suarez taki í höndina á Patrice Evra fyrir stórleik Liverpool og Manchester United í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Sport 2 HD en á undan leiknum er hálftíma upphitunarþáttur með Guðmundi Benediktssyni. 23.9.2012 11:00
Liverpool hefur ekki tapað í síðustu fimm leikjum á móti Manchester United á Anfield Liverpool tekur á móti Manchester United á Anfield í dag í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur enn ekki unnið deildarleik á tímabilinu en því verða stuðningsmenn félagsins fljótir að fyrirgefa ef liðinu tekst að vinna erkifjendurna í dag. 23.9.2012 10:00
Van Persie hefur verið Liverpool erfiður síðustu ár Hollendingurinn Robin van Persie tekur í dag þátt í fyrsta sinn í slag erkifjendanna Manchester United og Liverpool en hann var öflugur með Arsenal í síðustu leikjum sínum á móti Liverpool. 23.9.2012 09:00
Hjörtur náði hundraðasta marki sínu í 1. deild í síðustu umferðinni Hjörtur Júlíus Hjartarson skoraði fyrir Víking Reykjavík í 3-3 jafntefli á móti Vikingi Ólafsvík í lokaumferð 1. deildar karla í gær. Hjörtur var að skora þarna sannkallað tímamótamark því þetta var hundraðasta mark hans í næstefstu deild. 23.9.2012 08:00
Brendan Rodgers: Liverpool óttast ekki Manchester United Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir sína menn óttast ekki Manchester United fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Sport 2 HD. 23.9.2012 07:00
Zlatan kominn með sjö mörk í fyrstu fimm leikjunum með PSG Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja þegar Paris Saint-Germain vann 4-0 útisigur á Bastia í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Zlatan hefur þar með skorað sjö mörk í fyrstu fimm deildarleikjum sínum með PGS. 23.9.2012 06:30
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir í Pepsi-deildinni á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. 23.9.2012 15:45
Magnað jöfnunarmark markvarðar í frönsku úrvalsdeildinni Ali Ahamada, 21 árs gamall markvörður Toulouse, var hetja sinna manna í frönsku úrvalsdeildinni í dag en ekki á þeim enda vallarins sem flestir myndu búast við. Ahamada tryggði sínu liði nefnilega 2-2 jafntefli á móti Rennes með marki í uppbótartíma. 22.9.2012 23:30
Bessi Víðisson: Skoraði fimm mörk í lokaleiknum og tryggði sér markakóngstitilinn Bessi Víðisson, 22 ára framherji í sameiginlegu liði Dalvíkur og Reynis, er markakóngur í 2. deild karla í fótbolta en það þurfti fimm marka leik hjá kappanum til að hann næði markakóngstitlinum af Þórði Birgissyni hjá KF. 22.9.2012 23:00
Ólíklegt að Derek Fisher verði áfram hjá Oklahoma City Thunder Derek Fisher, fimmfaldur meistari með Los Angeles Lakers, fór alla leið í lokaúrslit NBA-deildarinnar með Oklahoma City Thunder liðinu á síðustu leiktíð en það eru ekki miklar líkur á því að hann spili áfram með Thunder-liðinu á komandi tímabili. 22.9.2012 22:30
Zlatan og félagar í PSG fá risabónus fyrir að vinna Meistaradeildina Franska liðið Paris Saint-Germain sýndi styrk í vikunni með því að vinna 4-1 sigur á Dynamo Kiev í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni. Blaðamenn L'Equipe hafa nú komist að því að risabónusar eru í boði fyrir Zlatan Ibrahimovic og félagar takist þeim að vinna Meistaradeildina næsta vor. 22.9.2012 21:15
Jón Margeir tólfti Íslendingurinn sem vinnur gull á Ólympíumóti Íþróttasamband fatlaðra hefur tekið saman á heimasíðu sinni hvaða íslensku íþróttamenn hafa náð því að vinna gull á Ólympíumóti fatlaðra frá upphafi en Ísland eignaðist gulldreng á nýloknum Ólympíumóti London. 22.9.2012 20:45
David Luiz búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Chelsea Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Evrópumeistara Chelsea en hann var orðaður við Barcelona í síðasta félagsglugga. David Luiz eyddi hinsvegar öllum vafa um framtíð sína með því að gera langtímasamning við Lundúnaliðið. 22.9.2012 20:15
Selfossstelpur unnu fyrsta heimaleikinn í 20 ár | Markaskorarar í N1 deild kvenna í dag Nýliðar Selfoss í N1 deild kvenna í handbolta byrja tímabilið vel því þær unnu tíu marka sigur á Aftureldingu, 26-16, í nýliðaslag á Selfossi í dag. ÍBV skoraði sjö af síðustu níu mörkum leiksins á móti Gróttu í Eyjum og tryggði sér 22-22 jafntefli en Grótta náði mest sjö marka forskoti í hálfleik. 22.9.2012 19:40
Tvö mörk Börsunga á síðustu mínútunum - með 11 stiga forskot á Real Það tók Barcelona-menn 86 mínútur að finna leiðina framhjá Tono, markverði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Xavi skoraði markið á 87. mínútu og Granada-liðið skoraði síðan sjálfsmark í uppbótartíma. Barcalona vann því leikinn 2-0 og er með fullt hús á toppnum eftir fyrstu fimm umferðirnar. 22.9.2012 19:30
Atli Ævar með fimm mörk í sigri SönderjyskE SönderjyskE er að byrja ágætlega í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta og hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. SönderjyskE vann 31-29 heimasigur á TMS Ringsted í dag. 22.9.2012 19:11
Arna Sif með flottan leik í sigri á SönderjyskE Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk fyrir Aalborg DH í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á SönderjyskE, 31-27. Þetta var langþráður sigur hjá Álaborgarliðinu því liðið var stigalaust fyrir leikinn. 22.9.2012 19:02
Van der Vaart lagði upp tvö þegar HSV vann meistara Dortmund Hollendingurinn Rafael van der Vaart lagði upp tvö mörk fyrir Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-2 heimasigur á meisturum Borussia Dortmund. Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-Min skoraði tvö mörk fyrir HSV í leiknum. Bayern München komst aftur í toppsætið eftir 2-0 útisigur á Schalke 04. 22.9.2012 18:45
Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. 22.9.2012 18:15
Langþráður úrslitaleikur hjá Wozniacki Danska tenniskonan Caroline Wozniacki hefur hrunið niður heimslistann á þessu ári enda hefur ekkert gengið hjá þessum fyrrum bestu tenniskonu heims. Hún byrjaði árið 2012 í efsta sæti en er nú komin niður í ellefta sæti eftir skelfilegt gengi undanfarna mánuði. 22.9.2012 17:45
Verður Grafarholtsvelli lokað í tvö ár? Grafarholtsvöllur er einn allra vinsælasti golfvöllur landsins og það er ekki auðvelt að tryggja sér rástíma á vellinum enda margir kylfingar í Golfklúbbi Reykjavíkur. Svo gæti farið að enginn fái að spila á vellinum í allt að 24 mánuði. Kylfingur segir frá því að ein af tillögum frá Framtíðarnefnd Grafarholts sé að loka vellinum í tvö ár á meðan fara fram endurbætur á vellinum. 22.9.2012 17:00
Keflavík fær til sína eina bestu þriggja stiga skyttuna í sögu bandaríska háskólaboltans Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska bakvörðinn Jessica Jenkins um að leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili. Jessica er 22 ára bakvörður sem er nýútskrifuð úr St. Bonaventure háskólanum og lék við góðan orðstýr í NCAA háskólaboltanum. 22.9.2012 16:30
Leiknismenn björguðu sér með þriðja sigrinum í röð | Völsungur og KF koma upp Lokaumferðin í 1. deild karla í fótbolta fór fram í dag og þar réðst hvaða lið féll út 1. deildinni með ÍR. Leiknismenn björguðu sæti sínu á kostnað Hattarmanna. Þá var einnig spiluð síðasta umferðin í 2. deild karla og eftir mikla dramatík er það ljóst að það verða Völsungur og KF sem taka sæti ÍR og Hattar. 22.9.2012 16:00
Aron Einar og Björn Bergmann skoruðu báðir Cardiff tókst ekki að að að landa þremur stigum á móti Crystal Palace í ensku b-deildinni í dag þrátt fyrir að komast í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Cardiff átti með sigri möguleika að komast upp að hlið Brighton & Hove Albion á toppi ensku b-deildarinnar en tapaði leiknum 2-3. Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Wolves. 22.9.2012 15:45
HK vann sannfærandi sigur á Stjörnunni HK-konur komu á óvart í fyrstu umferð N1 deildar kvenna í handbolta með því að vinna sexmarka sigur á Stjörnunni, 25-19, í Digarnesi í dag en Stjörnuliðinu var spáð mun betra gengi en HK í vetur. 22.9.2012 15:20