Fleiri fréttir

Allt um veiðihnúta

Stangaveiðimenn þurfa nauðsynlega að kunna nokkra veiðihnúta. Í raun er fásinna að halda til veiði án þess að búa yfir grunnþekkingu á því hvernig festa eigi taum og línu og flugu eða spún á taum eða girni. Ómögulegt er að þurfa að treysta á veiðifélagana ef fluga slitnar af taum nú eða taumur af línu.

20 punda urriði á Þingvöllum

Mikal Wajitas, sem kom til landsins gagngert til að veiða urriða í Þingvallavatni, landaði einum 20 punda um helgina. Sagt er frá þessu á vef Veiðikortsins.

Kristinn skoraði en Davíð Þór fagnaði sigri | Flott innkoma hjá Heiðari Geir

Kristinn Steindórsson opnaði markareikninginn sinn í sænsku b-deildinni í fótbolta í kvöld en það dugði þó ekki Halmstad-liðinu sem tapaði 1-2 á útivelli fyrir Östers IF í Íslendingaslag. Davíð Þór Viðarsson lék allan leikinn fyrir Öster. Heiðar Geir Júlíusson var hetja Ängelholms FF í jafnteflisleik á útivelli á móti Jönköpings Södra.

Eyjólfur fór illa með tvö dauðafæri í jafntefli SönderjyskE

SönderjyskE og FC Midtjylland gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en íslensku leikmennirnir Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson léku allan leikinn og fengu báðir tækifæri til að skora fyrir SönderjyskE í leiknum.

Kaká ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Real Madrid

Það er nánast orðinn árleg umræða um það hvort Brasilíumaðurinn Kaká fari ekki örugglega frá Real Madrid. Þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma hefur þó ekki orðið af því og ekkert fararsnið er á leikmanninum sjálfum.

Mourinho um Guardiola: Það er enginn fullkominn

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er ekki í miklu uppáhaldi hjá José Mourinho, þjálfara Real Madrid. Mourinho finnst að Guardiola sé sífellt að reyna selja þá ímynd að hann sé fullkominn.

Valur hársbreidd frá sæti í Evrópudeildinni

Ísland hafnaði í fjórða sæti á háttvísislista Evrópska knattspyrnusambandsins tímabilið 2011-2012 sem birtur var í dag. Þrjár efstu þjóðirnar hlutu að launum sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Roma hefur misst trúna á Krkic

Bojan Krkic hefur ekki náð að slá í gegn hjá Roma og ítalska liðið vill að Barcelona taki við honum á nýjan leik. Það hefur engan áhuga á að halda leikmanninum.

Aron Einar og félagar úr leik - West Ham í úrslitaleikinn

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City eru úr leik í umspilinu um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-0 tap fyrir West Ham á Upton Park í seinni leik undanúrslitanna í dag. West Ham vann 5-0 samanlagt og mætir annaðhvort Birmingham City eða Blackpool á Wembley í hreinum úrslitleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Elías Már og Jón Þorbjörn í Hauka

Deildar- og bikarmeistarar Hauka fengu góðan liðsstyrk í dag þegar Elías Már Halldórsson og Jón Þorbjörn Jóhannsson gengu til liðs við félagið.

Mourinho hafnaði enska landsliðinu árið 2007

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að hann hafi hafnað að taka við enska landsliðinu árið 2007. Þá hafði Englandi mistekist að komast á EM 2008 undir stjórn Steve McClaren.

Terry og leikmenn Chelsea vilja halda Di Matteo

John Terry, fyrirliði Chelsea, er greinilega mjög hrifinn af nýja stjóranum, Roberto di Matteo sem ráðinn var til bráðabirgða í kjölfar þess að Andre Villas-Boas var rekinn.

Skúli Jón frá keppni í 2-3 mánuði

Skúli Jón Friðgeirsson, leikmaður Elfsborg í Svíþjóð, verður frá keppni í 2-3 mánuði. Skúli Jón fékk þau skilaboð í gær að hann þyrfti að gangast undir aðgerð á mjöðm.

Verður sett met í kvöld? | Þétt setinn bekkurinn í gærkvöldi

Frábær aðsókn var á knattspyrnuvelli landsins í gærkvöldi þegar fyrsta umferð Pepsi-deildar karla fór fram. 1690 áhorfendur mættu á leikina fimm að meðaltali. Umferðinni lýkur í kvöld með Reykjavíkurslag Fram og Vals en allt stefnir í að aðsóknarmet fyrstu umferðar verði slegið.

Myndasyrpa af fögnuði HK-inga

HK varð í gær Íslandsmeistari karla í handbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið sópaði meistaraliði síðasta árs, FH, 3-0 í lokaúrslitunum.

Leikur Íslands og Þýskalands í beinni á Eurosport

U-17 lið Ísland mætir jafnöldrum sínum frá Þýskalandi í úrslitakeppni EM sem nú fer fram í Slóveníu. Leikurinn hefst klukkan 16.30 og verður í beinni útsendingu á Eurosport sem er á Fjölvarpi Stöðvar 2.

Magnús: Ekkert agabann hjá ÍBV

Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, neitaði því í viðtali við Vísi eftir 2-1 tap sinna manna gegn Selfossi í kvöld að nokkur af leikmanna liðsins hafi verið í agabanni í dag vegna áfengisdrykkju.

Bjarni: Stoke-bolti í Stjörnunni

Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, var ósáttur með tvö töpuð stig þótt Stjörnuliðið væri vissulega gott. Það var þó ekki fallegur fótbolti sem skilaði Stjörnunni stigi í Vesturbænum í kvöld að hans mati.

Kennie: Holdt kjeft hvor jeg er glad

Kennie Chopart, annar Dananna í liði Stjörnumanna, átti fínan leik með Garðbæingum gegn KR í kvöld. Kennie lék ýmist á hægri eða vinstri kanti, lét finna fyrir sér og óx ásmegin eftir því sem á leikinn leið.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Grindavík 1-1

Grindavík gerði góða ferð í Kaplakrika þar sem liðið sótti 1-1 jafntefli gegn FH. FH sótti meira í leiknum og var meira með boltann en Grindavík skoraði fyrsta markið á 73. mínútu. FH jafnaði metin úr vítaspyrnu sex mínútum fyrir leikslok og þar við sat.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Keflavík 1-1

Fylkir og Keflavík skildu jöfn, 1-1, í fyrstu umferð Pepsi deildarinnar í kvöld. Keflvíkingar voru mun sterkari í fyrri hálfleiknum en Fylkismenn komu til baka í þeim síðari og voru óheppnir að fara ekki heim með stigin þrjú í leikslok.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 0-1

Skagamenn byrja tímabilið frábærlega en liðið bara sigur úr býtum, 1-0, gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld. Það var varamaðurinn Jón Vilhelm Ákason sem skoraði eina mark leiksins eftir frábæran undirbúning frá Gary Martin.

Matthías með fimm mörk í fimm leikjum

Matthías Vilhjálmsson var enn og aftur á skotskónum með norska liðinu Start í næstefstu deild þar í landi. Start hafði þá betur gegn Strömmen, 3-1.

Liverpool var einum degi frá greiðslustöðvun

Chrstian Purslow, fyrrverandi framvkvæmdarstjóri Liverpool, segir að félagið hafi verið einum degi frá því að fara í greiðslustöðvun áður en nýjir eigendur komu félaginu til bjargar.

Einar Daði bætti sinn besta árangur á Ítalíu

Einar Daði Lárusson úr ÍR náði þriðja sæti á alþjóðlegu tugþrautarmóti á Ítalíu sem lauk nú síðdegis. Hann hlaut alls 7590 stig sem er hans besti árangur í keppni hingað til.

Guif komst ekki í úrslitaleikinn

Kristján Andrésson og lærisveinar hans í sænska liðinu Guif eru úr leik í úrslitakeppninni þar í landi eftir naumt tap fyrir Kristianstad í undanúrslitum, 34-33.

Treyja Steingríms lögð til hliðar í sumar

Karlalið ÍBV hefur ákveðið að leggja til hliðar treyju númer ellefu í Pepsi-deildinni í sumar. Það verður gert til þess að heiðra minningu Steingríms Jóhannessonar, en hann er markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi í efstu deild.

Toure: Mancini bað mig um að stíga upp

Yaya Toure, leikmaður Manchester City skoraði bæði mörk liðsins í frábærum 2-0 útisigri á Newcastle í dag. Toure sagði þó titillinn væri ekki í höfn og að liðið væri bara að hugsa um einn leik í einu.

Mancini: Þetta er í okkar höndum

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að titillinn sé ekki í höfn þrátt fyrir sigur liðsins á Newcastle nú fyrr í dag. City á eftir einn heimaleik gegn Queens Park Rangers um næstu helgi og getur liðið tryggt sér Englandsmeistaratitillinn með sigri í honum.

Sjá næstu 50 fréttir