Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Stjarnan 2-2

Benedikt Grétarsson á KR-velli skrifar
Íslandsmeistarar KR hófu titilvörn sína í kvöld með 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni. Heimamenn komust yfir snemma leiks með marki Emils Atlasonar og Kjartan Henry Finnbogason kom KR í 2-0 með glæsimarki um miðjan seinni hálfleik.

Gestirnir neituðu að gefast upp og jöfnuðu leikinn. Fyrst skoraði Hörður Árnason draumamark með skoti af löngu færi og fimm mínútum fyrir leikslok jafnaði Atli Jóhannsson af stuttu færi. Ótrúleg endurkoma Stjörnumanna en KR-ingar gráta tvö töpuð stig.

Leikurinn fór rólega af stað og lítið markvert gerðist þar til á 12. mínútu þegar hinn efnilegi Emil Atlason skallaði fyrirgjöf Óskars Arnar Hauksonar óverjandi í netið framhjá Ingvari Jónssyni í marki Stjörnunnar. KR var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og þjarmaði nokkrum sinnum að gestunum úr Garðabænum án þess þó að bæta við fleiri mörkum.

Stjarnan náði aldrei að ógna marki KR að nokkru viti og frægir sóknartilburðir þeirra voru ekki sjáanlegir í fyrri hálfleik. Kjartan Henry Finnbogason var sprækur í liði KR og varnarmenn Stjörnunnar virkuðu taugaveiklaðir þegar hann tók góða spretti. Heimamenn fóru því með sanngjarna 1-0 forystu til leikhlés.

Seinni hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri en KR-ingar voru áfram betri aðilinn. Fyrrnefndur Kjartan Henry hélt áfram að gera varnarmönnum Stjörnunnar lífið leitt og það kom ekki á óvart á 68. mínútu leiksins þegar hann kom heimamönnum í 2-0 með frábæru marki. Kjartan fékk sendingu frá Óskari Erni inn í vítateig og vippaði boltanum snyrtilega í fjærhornið.

Þarna héldu flestir að KR myndi landa þægilegum sigri en átján mínútum fyrir leikslok skipti Bjarni Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, Halldóri Orra Björnssyni inn á og við það gjörbreyttist allur leikur gestana til hins betra. Halldór hafði ekki verið inni á vellinum nema í eina mínútu þegar hann var búinn að leggja upp mark fyrir Hörð Árnason og það var af dýrari gerðinni. Halldór renndi boltanum á Hörð sem kom á ferðinni og negldi hann í þverslána og inn.

KR-ingar virkuðu þreyttir og Stjörnumenn gengu á lagið. Sóknir þeirra þyngdust og ein slík bar árangur fimm mínútum fyrir leikslok. Atli Jóhannsson skoraði jöfunarmarkið þegar hann stýrði langskoti Darra Steins Konráðssonar í netið. Bæði lið fengu ágæt færi til að bæta við mörkum eftir þetta. Kjartan Henry skallaði yfir mark Stjörnumanna og Baldur Sigurðsson mokaði boltanum yfir markið af stuttu færi. Á hinum endanum fékk Halldór Orri dauðafæri eftir undirbúning Kennie Chopart en hitti ekki boltann. Jafntefli niðurstaðan og líklega eru Stjörnumenn sáttari við þau úrslit en KR-ingar.

KR-ingar spiluðu vel í 70 mínútur en misstu dampinn undir lokinn og þurftu að sjá á eftir sigrinum. Kjartan Henry Finnbogason var mjög sprækur og þá vakti nýr liðsmaður KR, Haukur Heiðar Hauksson, athygli fyrir góða spretti upp hægri kantinn. Annar nýr liðsmaður KR, Rhys Weston, spilaði ágætlega og á eflaust eftir að styrkja liðið í sumar. Óskar Örn gaf tvær stoðsendingar og var sprækur. Þá var Hannes Þór öruggur í sínum aðgerðum í markinu.

Stjarnan getur vel við unað. Liðið var alls ekki að spila vel lengstum í leiknum en náðu með góðum endaspretti að næla sér í eitt stig á erfiðum útivelli. Atli Jóhannsson átti fínan leik og skoraði mikilvægt mark. Halldór Orri Björnsson átti mjög góða innkomu og virkaði sem vítamínsprauta á lið sitt. Daníel Laxdal átti einnig skínandi leik líkt og Kennie Chopart.

Kennie Chopart: Holdt kjeft hvor jeg er gladKennie Chopart, annar Dananna í liði Stjörnumanna, átti fínan leik með Garðbæingum. Kennie lék ýmist á hægri eða vinstir kanti, lét finna fyrir sér og óx ásmegin eftir því sem á leikinn leið.

Hann var úrvinda þegar blaðamaður náði af honum tali en bað um að viðtalið færi fram á dönsku. Eftir að blaðamaður skildi aðeins „Holdt kjeft hvor jeg er glad" í svari hans við fyrstu spurningu var ákveðið að láta reyna á enskuna.

„Við sköpuðum okkur ekkert í fyrri hálfleik og fyrstu tuttugu í seinni. Ég veit ekki hvað gerðist. Það kom upp í okkur eitthvað dýrseðli," sagði Kennie um viðsnúning Garðbæinga sem hafa verið þekktir fyrir sókndirfsku undanfarin ár. Ekkert gerðist fyrr en Hörður Árnason slengdi honum í slána og inn fyrir utan teig.

„Það var fyrsta færið okkar en skotið var samt af löngu færi. Ég veit ekki hvað gerðist við markið en við komum tilbaka. Ég er ánægður," sagði Kennie sem sagði fótboltann í Danmörku taktískari en hér á landi.

„Boltinn hérna er meira eins og borðtennis. Fram og tilbaka. Þeir geta samt spilað góðan fótbolta hérna," sagði Kennie sem er yfir sig hrifinn af andrúmsloftinu í klefanum hjá Stjörnunni.

„Þetta er frábært lið og andrúmsloftið, hvernig við náum saman, er einstakt. Mér hefur liðið eins og heima hjá mér alveg síðan ég kom í tveggja vikna prufu í vetur," sagði Kennie sem lagði upp dauðafæri fyrir Halldór Orra Björnsson skömmu fyrir leikslok. Halldór hitti hins vegar ekki boltann á markteig og ætlaði Kennie að láta hana heyra það, allt í gamni, inni í klefa.

Rúnar Kristinsson: Við buðum þeim upp á þetta
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sagði erfitt að líta öðruvísi á úrslitin en tvö stig töpuð.

„Mér fannst við bjóða þeim upp á þetta með því að bakka fullmikið í síðari hálfleik. Þeir þrýstu okkur náttúrulega aftar, sendu langa bolta fram á Garðar og voru duglegir að vinna seinni bolta. Settu okkur undir smápressu," sagði Rúnar sem fannst hans menn farnir að verja forskotið strax í stöðunni 2-0.

„Fyrra markið var frábært, það síðara kannski ekki eins frábært en inn fór hann. Við vorum búnir að troða fullmörgum mönnum inn í teiginn til að verjast í stað þess að hafa nokkra fyrir utan teiginn til að loka á skot þeirra.," sagði Rúnar sem taldi KR-liðið hafa getað nýtt sér góðar stöður í sókninni í síðari hálfleik.

„Vörnin þeirra var líka galopinn í síðari hálfleik en við náðum ekki að stinga boltanum inn fyrir hana. Við nýttum það ekki nógu vel því við áttum að refsa þeim oftar í hálfleiknum," sagði Rúnar.

Daníel Laxdal: Við getum alveg unnið hérna
Stjarnan hefur enn ekki náð að sigra KR-inga í Vesturbænum í tíu tilraunum sínum í deildinni. Daníel Laxdal, fyrirliði þeirra, var ánægður með að ná stigi úr því sem komið var.

„Jú, það var fínt. Við getum reyndar alveg unnið hérna en eftir að lenda 2-0 var frábært að koma tilbaka á móti sterku liði KR. Það er alltaf brjáluð stemmningn hérna og gott að ná stigi," sagði Daníel sem tók undir með blaðamanni að lítið hefði farið fyrir sóknarsinnuðum Stjörnumönnum langt fram eftir leik.

„Þetta var ekki að ganga hjá okkur. Ég veit ekki hvort það hafi verið eitthvað stress svona í byrjun móts en þetta gekk betur í síðari hálfleik. Þá vorum við búnir að stilla okkur af og náðum að setja tvö á þá," sagði Daníel sem er ánægður með Danina tvo, Alexander Scholtz og Kennie Chopart.

„Við erum mjög heppnir með Dani. Þeir voru mjög góðir í fyrra og þessir eru líka frábærir. Þetta styrkir hópinn," sagði Daníel og staðfesti að Stjörnumenn legðu sig eftir því að láta nýju mönnunum líða vel í Garðabænum frá fyrsta degi.

„Það hjálpar alltaf manni sem kemur í skoðun að honum líði vel. Við byrjuðum bara strax að skjóta á hann og sýna honum að hann væri velkominn," sagði Daníel um Chopart.

Bjarni Guðjónsson: Þeir fóru að spila leiðindafótbolta, Stoke-fótbolta
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, var ósáttur með tvö töpuð stig þótt Stjörnuliðið væri vissulega gott. Það var þó ekki fallegur fótbolti sem skilaði Stjörnunni stigi í Vesturbænum í kvöld að hans mati.

„Þeir fjölguðu í sókninni og fóru í „power-play" eða Stoke-play. Sendu stóru strákana fram, hentu öllum boltum inn eða spörkuðu langt fram. Svona leiðinda fótbolti," sagði Bjarni og sagði lélegt hjá sínum mönnum að hafa ekki staðið vaktina betur í föstum leikatriðum í aðdraganda markanna.

Eftir jöfnunarmark Stjörnumanna hefðu KR-ingar svo sannarlega getað skorað sigurmark en tókst ekki.

„Við fengum færin í restina og mér fannst við eiga að fá víti. Við vorum óheppnir tvisvar eða þrisvar en við eigum ekki að missa leik úr stöðunni 2-0 í 2-2. Við eigum að vera betri en það," sagði Bjarni sem sagði gott að stutt væri í næsta leik svo hægt væri að leiðrétta fyrir töpuðu stigin í kvöld.

Rhys Weston spilaði sinn fyrsta leik fyrir KR í kvöld og stóð fyrir sínu.

„Hann kemur vel inn í þetta. Hefur auðvitað bara verið hérna í örfáa daga og á eftir að styrkja sig og nýtast okkur mjög vel. Hann talar og talar, stjórnar vörninni og talar við strákana í kringum sig. Það er mjög gott og alltaf gott að fá svoleiðis menn í liðið," sagði Bjarni.

Mynd/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×