Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vægast sagt lélegur með hægri Guðmundur Reynir Gunnarsson, bakvörður KR-inga, hefur farið á kostum með liðinu í sumar. Hann segir sig langa í atvinnumennsku hvenær sem af því verður. Guðmundur Reynir átti frábæran leik í 4-0 sigrinum á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar og er besti 27.7.2011 08:00
Bikarúrslitaleikurinn í húfi fyrir norðan Þórsarar taka á móti ÍBV í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í kvöld. Þórsarar geta komist í úrslit keppninnar í fyrsta skipti en Eyjamenn hafa unnið bikarinn fjórum sinnum, síðast árið 1998. 27.7.2011 07:30
Logi yfir þúsund stiga múrinn Logi Gunnarsson er nú kominn í fámennan en góðan hóp þeirra sem hafa skorað þúsund stig fyrir landslið. Hann fór á kostum gegn Dönum og náði tímamótunum í fyrsta sigri liðsins undir stjórn Peters Öqvist. Logi fagnar nýju hlutverki í landsliðinu og stefnir 27.7.2011 07:00
Ingimundur Níels skorar bara á móti Víkingunum í deildinni Fylkismaðurinn Ingimundur Níels Óskarsson er meðal markahæstu leikmanna Pepsi-deildar karla í sumar en hann hefur skorað sex mörk í tólf leikjum. 27.7.2011 06:30
Valsmenn eina liðið sem hefur ekki skorað mark manni fleiri Valsmenn fóru illa með góða stöðu þegar þeir urðu manni fleiri á móti FH-ingum í Pepsi-deildinni í fyrrakvöld og töpuðuþar með dýrmætum stigum í toppbaráttunni. 27.7.2011 06:15
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru verstir allra liða á útivelli Íslandsmeistarar Breiðabliks sitja aðeins í 8. sæti eftir fyrstu 12 umferðir Pepsi-deildar karla og þar spilar stórt hlutverk slök frammistaða liðsins á útivelli enda hafa 87 prósent stiga Blika komið í hús í Kópavogi. 27.7.2011 06:00
Forlan birti óvart mynd af liðsfélaga sínum nöktum Diego Forlan hefur mikla ánægju af því að veita stuðningsmönnum sínum innsýn í líf hans sem knattspyrnumanns. Hann tók mörg hressandi myndbönd í Suður-Afríku síðasta sumar með landsliði Úrúgvæja. Líklegt er að Martin Caceres hugsi Forlan þegjandi þörfina eftir nýjasta myndband hans. 26.7.2011 23:30
Doninger: Alveg sama þótt Gary öskri á mig "Ég hafði það á tilfinningunni að ég myndi hitta boltann vel og skora. Þess vegna tók ég þessa aukaspyrnu. Ég var alveg viss um að hitta á markið og það er frábært að skora sigurmark með þessum hætti. Mér var alveg sama þótt Gary (Martin) væri að öskra á mig en hann vildi að sjálfsögðu taka þetta sjálfur,“ sagði Englendingurinn Mark Doninger leikmaður ÍA eftir að hann tryggði liðinu 2-1 sigur með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 90. mínútu gegn liði Selfoss í kvöld á Akranesvelli. 26.7.2011 22:49
Þórður Þórðarson: Ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út „Við erum ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út,“ sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 2-1 sigur liðsins gegn liði Selfoss í toppslagnum í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Skagamenn voru einum færri í 80 mínútur þar sem fyrirliðinn Heimir Einarsson fékk rautt spjald á 13. mínútu. 26.7.2011 22:36
Valskonur minnkuðu forskot Stjörnunnar í tvö stig - Kristín Ýr með þrennu Valskonur unnu 4-0 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld og minnkuðu með því forskot Stjörnunnar á toppnum í tvö stig. Toppliðin mætast síðan í sannkölluðum stórleik í næstu umferð. Breiðablik tók fimmta sætið af Fylki með 3-2 sigri á KR í Kópavogi. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði í sínum fyrsta leik með Val eftir að hafa komið inn á sem varamaður. 26.7.2011 21:11
KA vann fallslaginn á móti HK KA-menn unnu mikilvægan 2-1 sigur á botnliði HK í 1. deild karla í fótbolta í kvöld en með þessum sigri náðu KA-menn fjögurra stiga forskot á Leikni í síðasta örugga sæti deildarinnar. 26.7.2011 20:53
Bayern mætir Barcelona í úrslitaleik Audi-bikarsins Það verður Bayern München sem mætir Barcelona í úrslitaleik Audi-bikarsins á morgun en líkt og í fyrri undanúrslitaleiknum fyrr í dag þá þurfti vítaspyrnukeppni til þess að fá úrslit. 26.7.2011 20:48
Afturelding vann óvæntan sigur á Eyjakonum Afturelding fjarlægðist fallbaráttuna í Pepsi-deild kvenna í fótbolta með öðrum deildarsigri sínum í röð þegar liðið vann 2-1 sigur á spútnikliði ÍBV í Mosfellsbænum í kvöld. 26.7.2011 20:13
Dalglish að fá tvo kornunga framherja til Liverpool Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er samkvæmt frétt Guardian langt kominn með að fá tvo unga framherja til liðsins. Þetta eru þeir Marco Bueno, framherji 17 ára landsliðs Mexíkó og Nacho, ungur framherji spænska liðsins Albacete. 26.7.2011 19:45
Þrumufleygur Doninger tryggði Skagamönnum sigur Skagamenn eru enn taplausir eftir 14 leiki í næst efstu deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn liði Selfoss á Akransvelli í kvöld. Mark Doninger tryggði ÍA sigur með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu á 89. mínútu en Skagamenn léku einum færri í um 80 mínútur þar sem að Heimir Einarsson fyrirliði var rekinn af velli eftir um 13 mínútur. 26.7.2011 19:18
Torres: Ég er ekki búinn að gleyma því hvernig maður skorar mörk Fernando Torres, spænski framherjinn hjá Chelsea, hefur ekki fundið netmöskvanna á undirbúningstímabilinu þar sem Chelsea-liðið ferðast um Asíu. Torres skoraði aðeins 1 mark í 18 leikjum á síðustu leiktíð og gagnrýnisraddirnar eru farnar að heyrast á ný enda keypti Roman Abramovich hann á 50 milljónir punda í janúar til þess að skora mörk fyrir liðið. 26.7.2011 19:00
Barcelona í úrslit Audi-bikarsins - vann í vítakeppni Evrópumeistarar Barcelona tryggðu sér sæti í úrslitaleik Audi-bikarsins eftir sigur á Internacional í vítakeppni í Munchen í dag. Barcelona mætir annaðhvort Bayern Munchen eða AC Milan sem mætast í seinni undanúrslitaleiknum á eftir. 26.7.2011 18:20
Hamilton vill halda slagkraftinum eftir sigur Lewis Hamilton getur vart beðið eftir því að keppa í Ungverjalandi um næstu helgi, eftir frækinn sigur í Þýskalandi á sunnudaginn í spennandi keppni á milli hans, Fernando Alonso og Mark Webber. 26.7.2011 17:43
Emmanuel og Emmanuel á leið frá Arsenal Emmanuel Eboue er á leið til tyrkneska knattspyrnuliðsins Galatasaray fyrir fjórar milljónir punda ef marka má breska fjölmiðla. Auk Eboue er nafni hans Emmanuel-Thomas orðaður við sölu til Ipswich. 26.7.2011 17:30
Ferrari í sóknarhug í næstu mótum Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari Formúlu 1 liðsins þarf að finna leið til að Fernando Alonso geti sótt á stigaforskot Sebastian Vettel í stigakeppni ökumanna. Alonso hefur í þremur síðustu mótum náði í annað sætið í tvígang og unnið eitt mót. Alonso er 86 stigum á eftri Vettel, þegar 9 mótum er ólikið á keppnistímabilinu. 26.7.2011 17:09
Wenger vill styðjast við marklínutækni Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur bæst í hóp þeirra sem vilja styðjast við marklínutækni í knattspyrnu. Forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa lýst því yfir að mögulega verði marklínutækni tekin í notkun tímabilið 2012-2013. 26.7.2011 16:45
Björgvin Páll í fótbolta með Magdeburg - myndband Landsliðsmarkvörðurinn Björgin Páll Gústavsson undirbýr sig nú af kappi fyrir sitt fyrsta tímabil með Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Björgvin Páll tók fram takkaskóna í knattspyrnuleik nýverið og skoraði. 26.7.2011 16:00
Arnór Guðjohnsen við Aftonbladet: Veigar Páll vill fara til Rosenborg Veigar Páll Gunnarsson vill fara til Rosenborg samkvæmt frétt á vef Aftonbladet en blaðið hefur það eftir umboðsmanni Veigars Páls, Arnóri Guðjohnsen. 26.7.2011 15:39
Leikmaður Leicester kemur sér í klandur hjá eiginkonunni Það er óhætt að segja að skoski framherjinn Paul Gallagher hafi komið eins og stormsveipur inn í Twitter-samfélagið. Eiginkona Gallagher hvatti hann til þess að stofna aðgang að síðunni en líklegt er að hún sjái eftir því í dag. 26.7.2011 14:45
144 laxar komnir úr Svalbarðsá Á hádegi í gær 24. Júlí höfðu veiðst 144 laxar í Svalbarðsá, sem er mjög svipað og í fyrra. Fiskurinn dreifir sér vel um alla á og eru að veiðast mjög vel haldnir lúsugir fiskar jafnvel á efstu svæðum. 26.7.2011 14:37
Blanda komin í 1100 laxa Blanda er ein af fáum ám landsins sem hefur verið á nokkuð góðu róli í sumar, hún hefur ekki náð sömu hæðum og undanfarin tvö sumur en er nú komin í 1100 laxa og er hlutfall stórlaxa hátt eins og vanalega. 26.7.2011 14:35
Fram til Ungverjalands - HK mætir frönsku liði Kvennalið Fram mætir ungverska liðinu Alcoa FCK í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik og HK mætir franska liðinu Fleury Loiret Handball í Áskorandakeppni Evrópu. Dregið var í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í Vín í morgun. 26.7.2011 14:15
Liverpool og Fiorentina komast að samkomulagi um Aquilani Umboðsmaður ítalska knattspyrnumannsins Alberto Aquilani leggur áherslu á að ekki sé frágengið að Aquilani gangi til liðs við Fiorentina. Að hans sögn hafa félögin komist að samkomulagi en Aquilani eigi þó enn eftir að semja við ítalska félagið. 26.7.2011 13:30
Boateng bræður mætast í beinni í München í dag Heimamenn í Bayern München taka á móti ítölsku meisturunum AC Milan á Allianz-vellinum á Audi Cup síðdegis í dag. Í hinum leik keppninnar mætast Evrópumeistarar Barcelona og Suður-Ameríkumeistarar árið 2010 Internacional. 26.7.2011 12:45
Hólmfríður komin með leikheimild hjá Val - getur spilað í kvöld Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir er komin með leikheimild og getur því spilað sinn fyrsta leik með Val í kvöld þegar Fylkir kemur í heimsókn á Vodafonevöllinn á Hlíðarenda í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna. 26.7.2011 12:15
Veiðin í Grímsá og Kjós gengur vel Góður viðsnúningur hefur orðið í Borgarfjarðaránum á seinustu dögum. Grímsa er búin að taka vel við sér og eru veiðimenn að landa um 25-30 löxum á dag og eru alsælir. Von er á rigningu á næstu dögum á svæðinu, þannig að gaman verður fylgjast með hvað gerist ef vatn fer vaxandi en mikið er gengið af laxi og það gæti orðið ansi fjörugt á svæðinu í kjölfarið. Svipað hefur verið að gerast í Laxá í Kjós. 26.7.2011 11:56
Páll Magnússon biður golfáhugamenn afsökunar Páll Magnússon útvarpsstjóri og Haukur Örn Birgisson varaforseti Golfsambands Íslands voru í spjalli hjá Heimi og Kollu Í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Útvarpsstjóri útskýrði hvers vegna útsending frá Íslandsmótinu í höggleik hefði verið rofin á sunnudag og bað golfáhugamenn afsökunar. 26.7.2011 11:30
Kasami gengur til liðs við Fulham Svissneski miðjumaðurinn Pajtim Kasami hefur gengið til liðs við Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Kasami kemur frá ítalska liðinu Palermo en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. 26.7.2011 10:45
Mokveiðin heldur áfram í Elliðaánum Það er mikið líf við Elliðaárnar og það fengum við hjá Veiðivísi að sjá í gær. Ég ásamt Jóa félaga mínum og sonum okkar áttum eina stöng eftir hádegi. Það verður að segjast að miðað við hvað ég hef oft veitt árnar man ég ekki eftir öðrum eins fjölda af laxi í ánni og það var eiginlega alveg sama við hvaða hyl þú stoppaðir. Það var alls staðar lax! 26.7.2011 10:17
Blanda komin í góðann gír Blanda var í miklu fjöri um helgina. Veiðimenn á svæði 1 voru að taka dagskvótann sem eru 12 laxar á allar 4 stangir í gær sunnudag og svipuð veiði var á laugardag. Voru veiðimenn byrjaðir að sleppa laxi á sunnudeginum. 26.7.2011 10:15
Batista segir af sér sem þjálfari Argentínu Sergio Batista hefur sagt af sér sem þjálfari argentínska landsliðsins í knattspyrnu í kjölfar dapurs árangurs á heimavelli í Suður-Ameríkukeppninni. Batista hafði áður líst því yfir að hann ætlaði að halda áfram með liðið. 26.7.2011 10:15
Mikið líf í Eystri Rangá Það var mikið fjör á laugardaginn í Eystri Rangá en alls komu um 70 laxar á land. Laxinn var að taka um alla á en þó báru svæði eitt og sex uppúr. Svæði sjö og tvö voru einnig að hrökkva í gang. Það gerðist svo sunnudagsmorgun að það hellirigndi á svæðinu og áinn varð lituð og óveiðanleg mest allan sunnudag. Það bitnaði heldur betur á veiðinni en um 12 fiskar komu á land yfir daginn. 26.7.2011 10:12
Knattspyrnutímabilinu í Tyrklandi frestað um rúman mánuð Knattspyrnusamband Tyrklands ákvað á fundi sínum í gær að fresta tímabilinu þar í landi. Tyrknesk knattspyrna man fífil sinn fegurri en nokkrir tugir manna hafa verið handteknir undanfarnar vikur vegna ásakanna um hagræðingu úrslita. 26.7.2011 09:45
ÍBV fær miðjumann með reynslu úr Meistaradeildinni Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur fengið til liðs við sig miðjumanninn Melissu Cary. Á heimasíðu ÍBV vonast Eyjamenn eftir því að Cary hjálpi ÍBV í þeim miklu hremmningum sem liðið hefur orðið fyrir undanfarið. 26.7.2011 09:29
Einar Árni lauk prófi hjá FIBA Europe Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur og unglingalandsliðs Íslands í körfuknattleik karla, lauk um síðustu helgi þjálfaraverkefni á vegum evrópska körfuknattleikssambandsins, FIBA Europe. 26.7.2011 09:15
FH-ingar komu til baka manni færri - myndir FH-ingar unnu karaktersigur á Valsmönnum í Kaplakrikanum í gær og sáu til þess að KR-ingar verða með fjögurra stiga forskot á toppnum yfir Verslunarmannahelgina. 26.7.2011 08:30
Forlan fetar í fótspor föður og afa Diego Forlan hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar. Síðan hann yfirgaf herbúðir Manchester United hefur hann raðað inn mörkunum hjá félagsliðum sínum og landsliði. Hann er landsleikjahæsti Úrúgvæinn, vantar eitt mark til að verða markahæstur og hefur nú unnið Copa America líkt og faðir hans og afi. 26.7.2011 08:00
Erum töluvert stærri og þyngri en þær Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri hélt í gærkvöldi til Sviss. Fram undan er undanúrslitaleikur við Spán á fimmtudag en Spánverjar eru ríkjandi Evrópumeistarar í þessum aldursflokki. 26.7.2011 07:00
Hlynur Bæringsson: Það var gott að fá einn sigur Íslenska körfuboltalandsliðið steig skref í átt að því að tryggja sér bronsið á Norðurlandamótinu í Sundsvall með því að vinna níu stiga sigur á Dönum, 85-76, í gærkvöldi. Íslenska liðið hafði frumkvæðið nær allan leikinn en sigurinn var þó ekki í höfn fyrr en í blálokin. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins undir stjórn sænska þjálfarans Peters Öqvist. 26.7.2011 06:00
Evra segir að Nasri verði að koma til United til að vinna eitthvað Patrice Evra hefur sagt landa sínum Samir Nasri að koma til Manchester United ætli að hann sér að vinna einhverja titla á ferlinum. Nasri á eftir eitt ár af samningi sínum hjá Arsenal sem ætlar ekki að selja hann þótt að það gæti þýtt að hann færi frítt næsta sumar. 25.7.2011 23:30