Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórða tapið í röð hjá Helga Má og félögum Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala Basket töpuðu stórt á útivelli fyrir Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Norrköping vann leikinn 111-88 eftir að hafa verið 16 stigum yfir í hálfleik, 60-44. 25.2.2011 19:47
Rakel Logadóttir inn í Algarve-hópinn - Guðný meidd Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum sem tekur þátt á Algarve-bikarnum í byrjun mars. 25.2.2011 19:30
Terek Grozny býður Ronaldo 964 milljónir fyrir 18 mánuði Tsjetsjenska liðið Terek Grozny ætlar að reyna að plata brasilíska knattspyrnumanninn Ronaldo til þess að taka skóna af hillunni og spila með liðinu í rússnesku deildinni. Það er mikill hugur í félaginu sem réði nýverið Ruud Gullit sem knattspyrnustjóra. 25.2.2011 19:15
Steve Bruce búinn að skrifa undir nýjan samning Steve Bruce, stjóri Sunderland, er búinn að framlengja samning sinn við félagið til ársins 2014. Bruce hefur setið í stjórastólnum á Stadium of Light síðan 2009 en hann kom þangað frá Wigan Athletic. 25.2.2011 18:45
Ferguson: Annaðhvort Manchester United eða Arsenal verður meistari Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að baráttan um Englandsmeistaratitilinn standi núna bara á milli United og Arsenal. Hann sagði þetta á blaðamannafundi í dag fjórum dögum áður en United heimsækir Englandsmeistara Chelsea á Stamford Bridge. 25.2.2011 18:15
Jósef búinn að skrifa undir þriggja ára samning Jósef Kristinn Jósefsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði. Þetat kemur fram á heimasíðu Grindavíkur. 25.2.2011 17:45
Van der Meyde hættur Hollendingurinn Andy van der Meyde hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna þó svo að hann sé ekki nema 31 árs gamall. 25.2.2011 17:30
Kuyt: Getum enn náð Meistaradeildarsæti Dirk Kuyt segir að þrátt fyrir slæmt gengi Liverpool í haust eigi liðið enn möguleika á einu af efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar. 25.2.2011 16:45
Kubica: Tel mig mjög heppinn og löng og erfið endurhæfing framundan Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica telur sig heppinn að hafa sloppið jafnvel frá óhappi í rallkeppni á Ítalíu á dögunum og raun ber vitni. Um tíma var óttast um líf hans, eftir að vegrið gekk í gegnum miðjan rallbíl hans og Jakup Gerber. 25.2.2011 16:38
Rio verður ekki með á móti Chelsea á þriðjudaginn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest það að miðvörðurinn Rio Ferdinand verði ekki með í stórleiknum á móti Chelsea á þriðjudaginn. Ferdinand mun hinsvegar getað spilað með United á móti Liverpool um þar næstu helgi. 25.2.2011 16:15
Van Persie verður í fyrirliði Arsenal um helgina Hollendingurinn Robin Van Persie mun leiða Arsenal til leiks í úrslitum deildarbikarsins á sunnudag í fjarveru Cesc Fabregas. Arsene Wenger, stjóri liðsins, hefur staðfest það. 25.2.2011 15:45
Man. Utd er ekki til sölu Stuðningsmenn Man. Utd stukku ekki hæð sína í fullum herklæðum í dag þegar Glazer-fjölskyldan undirstrikaði að félagið væri ekki til sölu. 25.2.2011 15:15
Stórafmæli hjá Sundsambandinu Sundsamband Íslands fagnar 60 ára afmæli sínu í dag og er vel við hæfi að sundþing sé sett á þessum merka afmælisdegi sambandsins. 25.2.2011 14:30
Hamburg á eftir Bendtner Það spá því margir að Nicklas Bendtner sé á förum frá Arsenal í sumar og nú berast fréttir af því að þýska félagið Hamburg sé á eftir honum. 25.2.2011 14:00
Barcelona og Juventus vilja fá Pirlo Svo gæti farið að AC Milan missi miðjumanninn Andrea Pirlo í sumar. Þá rennur samningur hans við félagið út og hann er ekki búinn að skrifa undir nýjan samning. 25.2.2011 13:15
Hutton á förum eftir rifrildi við Redknapp Alan Hutton, bakvörður Tottenham, er á förum frá félaginu í sumar. Hann lenti í heiftarlegu rifrildi við Harry Redknapp knattspyrnustjóra og þarf að borga fyrir það. 25.2.2011 12:45
Mourinho: Benzema getur betur Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, vill fá mun meira frá franska framherjanum Karim Benzema sem hefur ekki staðið undir væntingum hjá Real Madrid. 25.2.2011 12:00
Tiote gerir langan samning við Newcastle Cheik Tiote, miðjumaður Newcastle, er augljóslega ekki á förum frá félaginu því hann er búinn að skrifa undir nýjan samning. Nýi samningurinn hljóðar upp á sex og hálft ár. 25.2.2011 11:30
Ótrúlegir yfirburðir hjá Fowler gegn Mickelson Rickie Fowler sýndi ótrúleg tilþrif á öðrum keppnisdegi á heimsmótinu í holukeppni í golfi í gær þar sem hann "rúllaði“ upp Phil Mickelson í 2. umferð í 32-manna úrslitum. Hinn 22 ára gamli Fowler sýndi enga miskun og vann hinn þaulreynda Mickelson 6 / 5 – sem er stærsti ósigur Mickelson í holukeppni frá upphafi. Ungir kylfingar stálu senunni í gær á þessu sterka móti en Fowler var á 8 höggum undir pari þegar leiknum lauk á 13. holu. 25.2.2011 11:22
Beckham ánægður með vistina hjá Spurs David Beckham hefur trú á því að vistin hjá Tottenham eigi eftir að skila sér í betri leik hjá sér og þar af leiðandi græði félag hans, LA Galaxy, á því að hann hafi verið í London að æfa. 25.2.2011 10:45
Rooney kallar eftir einbeitingu Wayne Rooney, framherji Man. Utd, varar við því að leikmenn liðsins fari fram úr sjálfum sér. Hann segir að menn verði að halda einbeitingu ef þeir ætli sér að vinna til verðlauna í lok tímabilsins. 25.2.2011 10:15
Fabregas fær ekki að leiða Arsenal til leiks á Wembley Spánverjinn Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, þarf að bíta í það súra epli að fylgjast með úrslitum deildarbikarsins úr stúkunni þar sem hann er meiddur. 25.2.2011 09:30
NBA: Tap hjá Miami og Boston Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt eftir hraustlegan lokadag á félagaskiptamarkaðnum. Bæði Miami og Boston máttu sætta sig við tap að þessu sinni. 25.2.2011 08:53
Eric Cantona líkir Sir Alex Ferguson við Gandhi Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, býst við því að félagið eigi eftir að vera í vandræðum þegar Sir Alex Ferguson hættir sem knattspyrnustjóri félagsins. Cantona mærði fyrrum stjóra sinn mikið í viðtali við Daily Mail. 24.2.2011 23:45
Hver einasta snerting landsliðsmanna Íslands verður skoðuð Knattspyrnusamband Íslands hefur gert samning við Prozone um leikgreiningu á landsleikjum Íslands næstu tvö árin en landsliðsþjálfarar Íslands hafa þá aðgang að mjög ítarlegum upplýsingum um frammistöðu leikmanna í landsleikjum. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 24.2.2011 23:15
Boston Celtics sendir Perkins til Oklahoma City NBA-liðin Boston Celtics og Oklahoma City Thunder skiptu á leikmönnum í kvöld rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaði í NBA-deildinni. 24.2.2011 22:49
Zlatan enn ósáttur við Guardiola Zlatan Ibrahimovic er greinilega enn ósáttur við Pep Guardiola, stjóra Barcelona, og segir að það hafi verið stjóranum að kenna að hann fór frá félaginu í sumar. 24.2.2011 22:45
Guðjón : Grófum okkar eigin holu "Við klúðruðum þessum leik alveg sjálfir,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflvíkinga, eftir tapið í kvöld. Keflvíkingar töpuðu fyrir erkifjendunum í Njarðvík 104-102 eftir framlengdan leik. 24.2.2011 22:03
Dzeko með tvö í öruggum sigri Manchester City Edin Dzeko skoraði tvö mörk á fyrstu 11 mínútunum þegar Manchester City vann 3-0 sigur á Aris Saloniki í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar en með sigrinum tryggði City-liðið sér leiki á móti Dynamo Kiev í 16 liða úrslitunum. 24.2.2011 22:03
Einar Árni: Getum endað tímabilið með stæl ,,Þetta var kærkomin sigur og gríðarlega mikilvægur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, annar þjálfari Njarðvíkinga, eftir sigurinn í kvöld. Njarðvík vann magnaði sigur gegn Keflvíkingum 104-102 eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni í Njarðvík. 24.2.2011 22:01
Fjölnir vann á Ísafirði og sendi Hamar niður í fallsæti Fjölnismenn unnu dýrmætan 101-94 sigur á KFÍ á Ísafirði í Iceland Express deild karla í kvöld en tapið þýðir að Ísfirðingar þurfa nú kraftaverk til þess að bjarga sér frá falli úr deildinni. Fjölnir er hinsvegar i betri málum því liðið komst upp fyrir Hamar og upp úr fallsæti með þessum sigri. 24.2.2011 21:29
Níu þristar Magnúsar ekki nóg - Njarðvík vann Keflavík í framlengingu Njarðvík vann 104-102 sigur á nágrönnum sínum í Keflavík eftir framlengdan leik í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Magnús Þór Gunnarsson hjá Keflavík skoraði níu þriggja stiga körfur í leiknum á móti sínum gömlu félögum en það dugði ekki til og heimamenn unnu seiglusigur eftir að hafa verið undir stóran hluta leiksins. 24.2.2011 21:07
Wenger: Fabregas verður ekki með á sunnudaginn Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðgest það að Cesc Fabregas, fyrirliði liðsins, verði ekki með á móti Birmingham í úrslitaleik enska deildarbikarsins á Wembley á sunnudaginn. Fabregas meiddist snemma í 1-0 sigri Arsenal á Stoke í gærkvöldi. 24.2.2011 20:59
Snæfellingar rúlluðu Haukum upp og náðu 4 stiga forskoti á toppnum Snæfell náði fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express deildar karla eftir 42 stiga stórsigur á Haukum, 119-77, í Stykkishólmi í kvöld. Snæfell hefur unnið alla tíu heimaleiki sína í deildinni í vetur og sigurinn í kvöld var aldrei í hættu. Snæfell hefur fjögurra stiga forskot á KR sem á leik inni á móti Tindastól á Sauðárkróki á morgun. 24.2.2011 20:35
Markvörður Inter labbaði heim eftir Bayern-leikinn í gær Julio Cesar, markvörður ítalska liðsins Inter Milan, var mjög svekktur út í sjálfan sig eftir 0-1 tap á móti Bayern Munchen í Meistaradeildinni í gær. Bayern skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir að brasilíski markvörðurinn hafði misst frá sér skot frá Hollendingnum Arjen Robben. 24.2.2011 20:30
Dirk Kuyt tryggði Liverpool sæti í 16 liða úrslitunum Hollendingurinn Dirk Kuyt var hetja Liverpool í seinni leik liðsins á móti tékkneska liðinu Spörtu Prag á Anfield í kvöld en Kuyt skoraði eina mark leiksins fjórum mínútum fyrir leikslok. Liverpool mætir Lech Poznań eða Braga í 16 liða úrslitum en seinni leikur þeirra fer fram seinna í kvöld. 24.2.2011 19:50
Logi með 22 stig á 21 mínútu í stórsigri Solna Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings unnu auðveldan 37 stiga útisigur á 08 Stockholm HR, 101-64, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Logi skoraði 22 stig á 21 mínútu í leiknum en hann var hvíldur allan lokaleikhlutann þegar úrslitin voru ráðin. 24.2.2011 19:39
Haukar nýttu sér uppsagnarákvæði í samningi við Halldór Halldór Ingólfsson var í dag sagt upp störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Haukum og mun Gunnar Berg Viktorsson taka við liðinu með Birkir Ívar Guðmundsson, markvörð liðsins, sér til aðstoðar. 24.2.2011 19:29
Dortmund á ekki séns gegn okkur Uli Höness, forseti Bayern München, hefur gefið tóninn fyrir stórslag liðsins gegn Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. 24.2.2011 19:15
UEFA rannsakar stuðningsmenn Marseille og United Knattspyrnusamband Evrópu hefur sett af stað rannsóknir vegna hegðunar stuðningsmanna Marseille og Manchester United á leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gær. 24.2.2011 18:45
Halldór rekinn frá Haukum - Gunnar Berg og Birkir Ívar taka við Halldór Ingólfsson var í dag rekinn sem þjálfari karlaliðs Hauka í N1 deild karla í handbolta. Halldór tók við liði Hauka síðasta sumar af Aroni Kristjánssyni sem hafði gert Hauka að Íslandsmeisturum tvö í röð. Gunnar Berg Viktorsson og Birkir Ívar Guðmundsson taka við liðinu samkvæmt heimildum ruv.is. 24.2.2011 18:14
Bjargar 140 gráðu frost West Ham frá falli? Robbie Keane framherji West Ham vonast til þess að hann verði fljótari að jafna sig á meiðslum sem hrjáð hann í kálfa með því að fara í "ískalda“ meðferð sem felst í því að vera í nokkrar mínútur í klefa þar sem er 140 stiga frost. Framhaldið er spennandi því meðferðin gæti bjargað liðinu frá falli ef Keane kemst í lag á ný og fer að skora mörk. 24.2.2011 18:00
Baron Davis á leið til Cleveland Cleveland og LA Clippers hafa ákveðið að skipta á leikmönnum þar sem mesta athygli vekur að Baron Davis færir sig yfir til Cleveland. 24.2.2011 17:15
Rooney slakur á kantinum Vinnuþjarkurinn Wayne Rooney segir að sér sé alveg sama þó svo hann sé að spila út úr stöðu hjá Man. Utd þessa dagana. Hann geri það sem þarf til að hjálpa liðinu. 24.2.2011 16:30
Nýi Kani Fjölnismanna er nafni þess gamla Fjölnismenn hafa gert enn eina breytinguna á bandarískum leikmanni liðsins. Grafarvogsliðið lét Brandon Springer fara og fékk í staðinn nafna hans Brandon Brown. Brandon Brown spilar sinn fyrsta leik með Fjölni þegar liðið sækir KFÍ heim á Ísafjörð í kvöld. 24.2.2011 15:45