Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heiðar og félagar á toppnum Heiðar Helguson var í byrjunarliði QPR og lék í 73 mínútur er QPR skellti Leicester á útivelli, 0-2. Heiðar náði ekki að skora að þessu sinni. 18.9.2010 16:10
Enski boltinn: Úrslit dagsins Tottenham komst í hann krappann gegn Úlfunum í dag en náði að vinna sterkan 3-1 sigur í leik þar sem Wolves var lengi líklegri aðilinn. 18.9.2010 15:55
Ótrúleg byrjun hjá Gylfa með Hoffenheim Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Hoffenheim í dag er hann kom af bekknum og fór beint í það að skora jöfnunarmark leiksins gegn Kaiserslautern. 18.9.2010 15:28
Hodgson: Mun reyna á vinskap minn við Ferguson Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir að það muni virkilega reyna á vinskap hans og Sir Alex Ferguson fyrst hann sé tekinn við liði Liverpool. 18.9.2010 15:15
McLeish framlengir við Birmingham Alex McLeish, stjóri Birmingham, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem mun halda honum þar til ársins 2013. 18.9.2010 14:30
Eiður spilaði sinn fyrsta leik er Stoke gerði jafntefli Eiður Smári Guðjohnsen lék sinn fyrsta leik í búningi Stoke City í dag er liðið gerði jafntefli gegn West Ham, 1-1. 18.9.2010 13:37
Góður sigur hjá Eggerti og félögum Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í skoska liðinu Hearts unnu góðan útisigur,1-3, á Inverness Caledonian Thistle í dag. 18.9.2010 13:15
Æsispennandi lokaumferð í 1. deildinni Klukkan 14.00 fer fram lokaumferðin í 1. deild karla í knattspyrnu. Lokaumferðin verður æsispennandi en Leiknir og Þór berjast um að fylgja Víkingi upp í Pepsi-deildina. 18.9.2010 12:30
Eiður Smári á bekknum hjá Stoke Fyrsti leikur dagsins í enska boltanum er viðureign Stoke City og West Ham United á Britannia-vellinum í Stoke. Leikurinn hefst klukkan 11.45. 18.9.2010 11:32
Leikmenn skilja ákvörðun mína Avram Grant, stjóri West Ham, verður ekki á hliðarlínunni í dag þegar West Ham mætir Stoke í ensku úrvalsdeildinni. 18.9.2010 11:30
Ferguson vildi ekki fá Joe Cole Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segist hafa afþakkað boð um að ræða við Joe Cole í sumar eftir að hann ákvað að fara frá Chelsea. 18.9.2010 11:01
Vidic verður fyrirliði United á sunnudaginn Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Nemanja Vidic verður fyriliði liðsins gegn Liverpool á sunnudaginn og það sem eftir lifir tímabilsins. 17.9.2010 23:30
Khan átti vingott við Rooney-vændiskonuna Wayne Rooney er ekki eini þekkti íþróttamaðurinn á Bretlandi sem hefur verið í slagtogi með vændiskonunni Jenny Thompson. 17.9.2010 22:30
James McFadden með slitið krossband James McFadden verður lengi frá keppni með Birmingham eftir að í ljós kom að hann sleit krossband í hné á æfingu á mánudaginn var. 17.9.2010 21:45
Bolt íhugar að skipta yfir í langstökkið Spretthlauparinn Usain Bolt er mikið ólíkindatól og hann íhugar nú að hætta í spretthlaupum eftir Ólympíuleikana í London árið 2012 og skipta yfir í langstökk í staðinn. 17.9.2010 21:00
Bendtner segir ekkert til í sögusögnunum um að ferillinn sé búinn Nicklas Bendtner framherji Arsenal og danska landsliðsins, segir ekkert til í þeim orðrómi sem hefur verið að ganga um að hann verði að leggja skónna á hilluna vegna langvinna meiðsla. 17.9.2010 20:15
Birgir Leifur komst áfram í Austurríki Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn á opna austurríska meistaramótinu í golfi. 17.9.2010 19:30
Henry slasaði markvörð er hann fagnaði marki Frakkinn Thierry Henry tókst að slasa markvörð Dallas FC á afar sérstakan hátt er hann lék með NY Red Bulls gegn Dallas. 17.9.2010 18:45
Eiður á bekknum á morgun Eiður Smári Guðjohnsen verður á bekknum þegar að Stoke City tekur á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni á morgun. 17.9.2010 18:00
Leikmenn Mexíkó skemmtu sér með vændiskonum Strákarnir í mexíkóska landsliðinu í knattspyrnu skemmtu sér konunglega í hópi fjórtán vændiskvenna og eins klæðskiptings eftir landsleik gegn Kólumbíu á dögunum. 17.9.2010 17:15
Munið þið eftir þessum leikjum Manchester United og Liverpool? Netmiðilinn Goal.com birti í dag tvær yfirlitsgreinar um fimm flottustu sigra Manchester United á Liverpool og fimm flottustu sigra Liverpool á Manchester United. Liðin mætast á sunnudaginn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar og hefst leikurinn klukkan 12.30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. 17.9.2010 16:30
Bíblíulesturinn kveikti heldur betur í Ara Ari Gylfason átti frábæra frumraun með KFÍ í Lengjubikarnum í gær en hann skoraði þá 25 stig á 29 mínútum í sínum fyrsta opinbera leik með Ísafjarðarliðinu og hjálpaði KFÍ-liðinu að vinna óvæntan tólf stiga sigur á Stjörnunni í Garðabæ, 108-96. 17.9.2010 15:45
Vítið var löglegt hjá Halldóri Orra - myndband Dómaranefnd KSÍ hefur gefið það formlega út að víti Stjörnumannsins Halldórs Orra Björnsson á móti FH í gær hafi verið fullkomlega löglegt. Halldór hljóp að boltanum en stoppaði rétt áður en hann tók vítið. Dómari leiksins, Þóroddur Hjaltalín dæmdi mark og það var var hárréttur dómur. 17.9.2010 15:15
Lippi orðaður við þjálfarastarfið hjá Roma Hlutirnir eru fljótir að breytast í boltanum. Fyrir aðeins nokkrum mánuðum var Claudio Ranieri hetjan hjá AS Roma og félagið virtist helst vilja semja við hann út öldina. 17.9.2010 14:15
Dómararnir klæðast bleiku á sunnudaginn Dómarar í leik Vals og Grindavíkur í 17. og næstsíðustu umferð Pepsi-deildar kvenna á sunnudaginn mun ekki vera í sínum vanalega svarta dómarabúningi. Dómararnir munu hinsvegar klæðast bleiku til stuðnings brjóstakrabbameinsátaki. 17.9.2010 13:45
Rio: Gott fyrir móralinn að vinna Liverpool Spennan er farin að magnast fyrir leik Man. Utd og Liverpool um helgina. United hefur ekki enn tapað leik í deildinni en kastaði frá sér sigri í leikjunum gegn Fulham og Everton. 17.9.2010 13:45
Mourinho: Real Madrid ræður því hvort ég taki við Portúgal eða ekki Jose Mourinho er tilbúinn að stjórna portúgalska landsliðinu á móti Danmörku og Íslandi ef að Real Madrid gefur grænt ljóst á það. Þetta er niðurstaðan af fundi Mourinho með Gilberto Madail, forseta portúgalska sambandsins. 17.9.2010 13:15
Bruno Senna vill sanna sig Bruno Senna er frændi Ayrtons heitins Senna, sem er einn allra dáðasti Formúlu 1 ökumaður allra tíma, en hann lést í slysi á Imola brautinni árið 1994. Þegar Bruno vildi í Formúlu 1 áttu margir von á því að erfitt yrði fyrir hann að standa undir Senna nafninu. 17.9.2010 12:48
Fabregas ekki að missa sig yfir góðu gengi Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, segist vera með báða fætur á jörðinni þó svo Arsenal hafi byrjað leiktíðina með miklum stæl. 17.9.2010 12:30
Júlíus velur kvennalandsliðið Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið 16 leikmenn til að taka þátt í æfingamóti sem fram fer í Rotterdam, Hollandi dagana 24.-26. september n.k. 17.9.2010 12:00
Sacchi: Zlatan sýndi mér vanvirðingu Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, er í smá sjokki yfir því hvernig Zlatan Ibrahimovic réðst harkalega að sér í sjónvarpsþætti í vikunni. 17.9.2010 11:30
Hamilton: Mun berjast af meiri hörku Lewis Hamilton féll úr leik í síðustu Formúlu 1 keppni og tapaði af dýrmætum stigum í titilslagnum, þar sem fjórir aðrir ökumenn keppa við hann um titilinn. Mark Webber náði forystunni af Hamilton í stigamótinu, en Fernando Alonso er þriðji, Sebastian Vettel og Jenson Button koma þar á eftir. 17.9.2010 11:26
Fínn hringur hjá Birgi Leif Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á Opna austurríska mótinu í golfi í morgun en mótið er liður í Evrópumótaröðinni. 17.9.2010 10:45
Wenger mætti stundum líta í eigin barm Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er ekkert sérstaklega vinsæll hjá öðrum knattspyrnustjórum í ensku úrvalsdeildinni. 17.9.2010 10:15
Lokeren og Lilleström skoðuðu Alfreð í gær Blikinn Alfreð Finnbogason er eftirsóttur sem fyrr og skal engan undra miðað við hvernig strákurinn hefur spilað í sumar. 17.9.2010 09:47
Valencia gæti snúið aftur í febrúar Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, greindi frá því í gær að vængmaðurinn Antonio Valencia gæti snúið aftur í lok febrúar. 17.9.2010 09:43
Blikar unnu toppslaginn - myndir Breiðablik er enn á toppi Pepsi-deildar karla eftir góðan 3-1 sigur á KR-ingum í Frostaskjólinu í gær. 17.9.2010 07:00
England og Svíþjóð á HM Nú er ljóst hvaða fimm Evrópuþjóðir keppa á HM í knattspyrnu kvenna sem fer fram í Þýskalandi næsta sumar. 17.9.2010 06:00
Sjáðu öll mörk kvöldsins í Pepsi-deildinni á Vísi Nú má sjá hér á íþróttavef Vísis samantektir úr öllum leikjum 20. umferðar Pepsi-deildar karla sem fór fram í kvöld. 16.9.2010 23:00
Lengjubikarinn: KFÍ vann Stjörnuna í Garðabæ Nú liggur ljóst fyrir hvaða lið mætast í fjórðungsúrslitum Lengjubikarkeppni karla í körfubolta en þrír leikir fóru fram í kvöld. 16.9.2010 22:26
Evrópudeildin: Liverpool vann og Jóhann Berg skoraði Fjölmargir leikir fóru fram í Evrópudeild UEFA í kvöld. Helst bar til tíðinda að ensku liðin Liverpool og Manchester City unnu sína leiki og að landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson skoraði í 2-1 sigri AZ Alkmaar á Sheriff Tiraspol. 16.9.2010 21:01
Tryggvi: Hann er nógu klikkaður til að fara á punktinn Tryggvi Guðmundsson og félagar í ÍBV unnu 2-0 sigur á Selfossi í kvöld og fylgja Blikum eins og skugginn í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. 16.9.2010 20:57
Hörður: Ætlum að klára tímabilið með stæl „Við spiluðum virkilega vel í kvöld og áttum sigurinn skilið,“ sagði Hörður Sveinsson, leikmaður Keflvíkinga, eftir sigurinn á Valsmönnum í kvöld. 16.9.2010 20:57
Albert: Bara ákveðið í dag að ég myndi taka vítin Albert Sævarsson, markvörður Eyjamanna, hélt ekki bara marki sínu hreinu á móti Selfossi í kvöld heldur skoraði hann einnig seinna markið undir lokin sem gulltryggði sigur liðsins. 16.9.2010 20:53
Þórarinn Ingi: Erum ekkert hættir að berjast um titilinn Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson haltraði um eftir 2-0 sigur ÍBV á Selfossi í kvöld en hann gat verið sáttur við uppskeruna þrátt fyrir meiðslin. Þórarinn meiddist eftir aðeins 20 mínútur og þurfti aðfara útaf eftir hálftíma en hafði engu síður náð því að koma sínum mönnum yfir eftir aðeins sjö mínútna leik. 16.9.2010 20:47