Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tevez hefur lofað Ferguson að fara til United Argentínumaðurinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur lofað Sir Alex Ferguson að hann muni ganga í raðir Manchester United og ætlar að gera allt sem í valdi hans stendur til að af félagaskiptunum verði. Hann segist vilja fara frá West Ham því félagið hafi ekki vilja hafa hann áfram. 8.7.2007 12:50
Real staðfestir áhuga sinn á Fabregas Daginn eftir að umboðsmaður spænska miðjumannsins Cesc Fabregas hjá Arsenal sagði að hann færi ekki frá félaginu, hafa forráðamenn Real Madrid á Spáni nú lýst því yfir að þeir hafi mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir. 8.7.2007 12:45
Chelsea ræður nýjan yfirmann knattspyrnumála Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea tilkynnti í dag að það hefði ráðið Avram Grant sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Grant var áður tæknistjóri Portsmouth en sest nú á skrifstofu Chelsea þar sem hann mun starfa náið með mönnum eins og Peter Kenyon, Jose Mourinho, Frank Arnesen og eigandanum Roman Abramovich. 8.7.2007 12:41
Brasilíumenn burstuðu Chile Fyrstu tveir leikirnir í 8-liða úrslitum Copa America fóru fram í gærkvöldi. Brasilíumenn burstuðu Chile 6-1 þar sem Robinho skoraði tvö mörk og er nú langmarkahæstur í keppninni með 6 mörk. Diego Forlan skoraði tvívegis fyrir Úrúgvæ sem tryggði sér einnig sæti í undanúrslitum með 4-1 sigri á heimamönnum í Venesúela. 8.7.2007 12:34
Appelby efstur á PGA mótinu - Tiger vinnur enn á Ástralinn Stuart Appleby er í forystu á AT&T PGA mótinu sem fram fer í Marylandfylki í Bandaríkjunum eftir þrjá hringi. Hann er með tveggja högga forskot á Kóreumanninn KJ Choi eftir að hann lék á 68 höggum í gær, Choi var á 70 höggum. 8.7.2007 12:28
Klitschko náði fram hefndum Úkraínumaðurinn Wladimir Klitschko náði í gærkvöld fram hefndum gegn Bandaríkjamanninum Lamon Brewster þegar þeir áttust við öðru sinni á þremur árum. Klitschko varði þarna IBF titil sinn í þungavigt og hefndi fyrir óvænt tap fyrir Bandaríkjamanninum árið 2004. Dómarinn stöðvaði bardagann í upphafi sjöundu lotu eftir að frábær flétta frá Klitschko vankaði Brewster. 8.7.2007 12:22
Federer vinnur fyrsta settið gegn Nadal Úrslitaleikurinn í karlaflokki á Wimbledon mótinu er nú í fullum gangi og er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Roger Federer vann fyrsta settið gegn Rafael Nadal 7-6 eftir æsilega og spennuþrungna lotu þar sem Svisslendingurinn vann 9-7 í upphækkuninni. 8.7.2007 14:11
Collina ráðinn yfirdómari á Ítalíu Ítalska knattspyrnusambandið hefur ráðið fyrrum knattspyrnudómarann Pierluigi Collina í sérstakt embætti þar sem honum verður falið að hafa umsjón með öllum dómurum í landinu. Er þetta tilraun Ítala til að fegra ímynd sambandsins eftir skandalinn ljóta þar í landi í fyrra. 7.7.2007 22:15
Wilkens hættur hjá Seattle Fyrrum körfuboltaþjálfarinn Lenny Wilkens hefur sagt af sér varastjórnarformennsku hjá Seattle Supersonics í NBA deildinni, daginn eftir að P.J. Carlesimo var ráðinn sem þjálfari liðsins. Wilkens á að baki fleiri sigra en nokkur annar þjálfari í sögu NBA deildarinnar, en hefur verið á skrifstofunni undanfarin ár. Gríðarleg uppstokkun hefur verið í gangi í Seattle á síðustu vikum, en almennt er álitið að liðið fari frá borginni eftir komandi leiktíð í NBA. 7.7.2007 20:45
Van der Meyde lofar að bæta sig Hollenski miðjumaðurinn Andy ven dre Meyde hjá Everton segist taka fulla ábyrgð á því hve miklum vonbrigðum hann hefur valdið fyrstu tvö árin sín hjá félaginu og lofar að standa sig betur á næstu leiktíð. 7.7.2007 20:30
Derby kaupir Andy Todd Nýliðar Derby County í ensku úrvalsdeildinni halda nú áfram að styrkja sig fyrir átökin á komandi vetri og í dag gekk félagið frá kaupum á miðverðinum Andy Todd frá Blackburn. Todd átti tvö ár eftir af samningi sínum við Blackburn en félagið tilkynnti hinum 32 ára leikmanni að það hefði ekki lengur þörf fyrir hann. 7.7.2007 19:45
Carroll semur við Rangers Markvörðurinn Roy Carroll sem áður lék með West Ham og Manchester United, hefur skrifað undir eins árs samning við Glasgow Rangers í Skotlandi. Carroll var hjá Manchester United í fjögur ár en hafði verið í herbúðum West Ham frá árinu 2005. Hann er 29 ára gamall og hóf ferilinn hjá Hull árið 1995. 7.7.2007 19:30
Giuly hættur við að fara frá Barcelona Franski miðjumaðurinn Ludovic Giuly hjá Barcelona hefur tilkynnt að hann ætli ekki fara frá félaginu og ætli að berjast þar fyrir sæti sínu á næstu leiktíð. Giuly hafði ætlað að fara aftur til síns gamla félags Mónakó í Frakklandi en hafði auk þess verið orðaður við mörg lið á Englandi. 7.7.2007 19:15
Góður sigur Þróttara í Eyjum Þróttarar gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í dag þegar liðið vann 4-1 sigur á heimamönnum í ÍBV í 1. deildinni. Hjörtur Hjartarson skoraði þrennu fyrir gestina í fyrri hálfleik og Rafn Haraldsson bætti við fjórða markinu, en Atli Heimisson minnkaði muninn fyrir heimamenn. Þróttur er í þriðja sæti deildarinnar en ÍBV er í 5. sætinu. 7.7.2007 18:12
Piltalandsliðið endaði í sjötta sæti Íslenska piltalandsliðið í handbolta hefur lokið keppni á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð. Liðið tapaði í dag 24-23 fyrir Rússum í leiknum um fimmta sætið á mótinu eftir að hafa verið undir í hálfleik 13-9. Anton Rúnarsson skoraði 6 mörk fyrir Ísland í dag og Orri Freyr Gíslason 5. 7.7.2007 18:07
Craig Bellamy fær 10 milljónir á viku hjá West Ham Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gengið frá kaupum á velska framherjanum Craig Bellamy frá Liverpool. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, staðfesti þessi tíðindi nú síðdegis. Breska sjónvarpið segir að West Ham hafi greitt 8 milljónir punda fyrir Bellamy og að hann hafi skrifað undir fjögurra ára samning sem færi honum 10 milljónir króna í vikulaun. 7.7.2007 17:23
Heiðar á höggi yfir pari Þeir Sigurpáll Geir Sveinsson og Heiðar Davíð Bragason hefja leik á opna Skánarmótinu ekki sem best, en Sigurpáll er 2 höggum yfir pari eftir fyrsta hring á Landskrona vellinum. Heiðar Davíð hefur leikið 12 holur og er á einu yfir pari. Heiðar er í 45.-65. sæti, en Sigurpáll er í 66.-91. sæti af 155 keppendum. 7.7.2007 16:55
Djurgården á toppinn Djurgården komst í dag á toppinn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að liðið lagði Malmö 1-0 í miklum baráttuleik. Lærisveinar Sigurðar Jónssonar hafa hlotið 23 stig eftir 13 leiki, en Kalmar og Halmstad sem eru í öðru og fjórða sæti geta komist upp fyrir Djurgården með sigri í leikjunum sem þau eiga til góða. 7.7.2007 16:45
Bent skoraði í sínum fyrsta leik Framherjinn Darren Bent var í sviðsljósinu með Tottenham í dag þegar liðið lagði Stevenage í æfingaleik 3-1. Bent skoraði mark og fiskaði víti í leiknum, en Robbie Keane og Adel Taarabt skoruðu hin mörkin. Þá vann Liverpool 3-2 sigur á Wrexham þar sem Austurríkismaðurinn Besian Idrizaj skoraði þrennu. 7.7.2007 16:35
Fabregas: Ég verð áfram ef Wenger verður áfram Umboðsmaður spænska miðjumannsins Cesc Fabregas hjá Arsenal segir að hann verði ánægður í herbúðum liðsins svo lengi sem Arsene Wenger verði áfram knattspyrnustjóri. Arsenal hefur enn á ný þurft að blása á fregnir af því að Fabregas sé á leið frá félaginu. 7.7.2007 15:45
8-liða úrslitin í Copa America hefjast í kvöld Í kvöld fara fram tveir fyrstu leikirnir í Suður-Ameríkukeppni landsliða í knattspyrnu og verða þeir báðir sýndir beint á Sýn. Heimamenn í Venesúela taka á móti Úrúgvæ klukkan 21:55 og klukkan 0:40 eftir miðnættið mætast Brasilía og Chile. 7.7.2007 15:40
Venus Williams sigraði á Wimbledon Bandaríska tenniskonan Venus Williams sigraði í dag á sínu fjórða Wimbledon-móti þegar hún lagði hina frönsku Marion Bartoli 6-4 og 6-1 í úrslitaleik. Williams vann mótið árin 2000, 2001 og 2005 og var sigur hennar í dag aldrei í hættu þó hún ætti við smá meiðsli að stríða á læri. Einvígið var sýnt beint á Sýn. 7.7.2007 14:54
Federer og Nadal mætast í úrslitum á Wimbledon Það verða tveir bestu tennisleikarar heims sem leika til úrslita á Wimbledon mótinu í tennis. Roger Federer sigraði 12. mann heimslistans Richard Gasquet 7-5, 6-3 og 6-4 nokkuð sannfærandi og Rafael Nadal komst í úrslitin annað árið í röð eftir sigur á Novak Djokovic, sem hætti vegna meiðsla. Federer getur komist í úrvalshóp með sigri í úrslitum þar sem hann stefnir á fimmta sigurinn í röð á mótinu. 7.7.2007 13:58
Hamilton á ráspól á heimavelli Breska ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren heldur áfram að stimpla sig inn í metabækurnar í Formúlu 1 og í dag náði hann besta tíma í tímatökunum fyrir breska kappaksturinn á Silverstone-brautinni á morgun. 7.7.2007 13:50
Frábær sigur hjá íslensku nördunum Íslensku nördarnir í KF Nörd héldu uppi heiðri Íslands í uppgjöri norrænu lúðanna í gærkvöld þegar þeir gjörsigruðu þá sænsku 7-0 á Kópavogsvelli. Á fimmta þúsund manns mættu til að fylgjast með þessum óhefðbundnu íþróttamönnum leiða saman hesta sína. 7.7.2007 13:45
Nýliðarnir ryðgaðir í byrjun Nýliðarnir Greg Oden hjá Portland og Kevin Durant hjá Seattle voru boðnir velkomnir í NBA deildina á dögunum þegar þeir spiluðu sína fyrstu leiki í sumardeildinni. Oden og Durant voru valdir númer 1 og 2 í nýliðavalinu um daginn og eru miklar vonir bundnar við þá á næstu árum. 7.7.2007 13:30
Nocioni gerir fimm ára samning við Bulls Argentínumaðurinn Andres Nocioni hjá Chicago Bulls hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið upp á um 38 milljónir dollara, en samningurinn verður ekki tilkynntur formlega fyrr en 11. júlí. Nocioni skoraði 14 stig og hirti 5,7 fráköst fyrir Chicago í vetur. Hann er 27 ára gamall framherji og spilar með landsliði Argentínu. 7.7.2007 13:18
Billups nær samningum við Detroit ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í nótt að leikstjórnandinn Chauncey Billups hafi náð samkomulagi við Detroit Pistons um að framlengja samning sinn við félagið um 5-6 ár og fái fyrir það 60 milljónir dollara. Umboðsmaður Billups hafði áður vísað svipuðum fréttum á bug. 7.7.2007 13:13
Kobe Bryant baðst afsökunar Stórstjarnan Kobe Bryant hjá LA Lakers segist hafa beðið framkvæmdastjóra félagsins afsökunar á ummælum sínum fyrir fimm vikum þegar hann heimtaði að fara frá félaginu. Bryant hefur ekki dregið ósk sína til baka, en segist hafa hlaupið aðeins á sig vegna óþolinmæði í garð forráðamanna félagsins. 7.7.2007 12:57
Tevez spenntur fyrir að vinna með Ferguson Argentínumaðurinn Carlos Tevez segist mjög spenntur fyrir þeim möguleika að vinna með Sir Alex Ferguson og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, en félagið er nú að leggja lokahönd á að ganga í raðir þeirra rauðu. Málið er þó gríðarlega flókið og hefur enska úrvalsdeildin skorist í leikinn. 7.7.2007 12:50
Cisse á leið til Marseille Forseti franska félagsins Marseille segist mjög ánægður með að vera við það að landa framherjanum Djibril Cisse varanlega til félagsins eftir að hafa verið með hann á lánssamningi í eitt ár. Cisse er 25 ára gamall og er við það að ganga frá skiptum frá Liverpool til heimalandsins eftir meiðslum hrjáð tímabil undanfarin ár. 7.7.2007 12:41
Eriksson leið illa í fríinu Sven-Göran Eriksson, nýráðinn knattspyrnustjóri Manchester City, segir að árið sem hann var ekki að þjálfa hafi verið mesti álagstími sinn á ferlinum. Eriksson er 59 ára gamall og hefur skrifað undir þriggja ára samning við City. 7.7.2007 12:36
Gilberto svarar Drogba fullum hálsi Miðjumaðurinn Gilberto hjá Arsenal hefur nú svarað ummælum Didier Drogba hjá Chelsea fullum hálsi, en framherjinn lét hafa eftir sér í gær að Arsenal gæti ekki lengur talist eitt af þeim liðum sem myndu berjast um enska meistaratitilinn. 7.7.2007 12:33
Beckham skilaði Real 37 milljörðum Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham skilaði knattspyrnufélaginu Real Madrid tæplega 37 milljörðum króna í tekjur á þeim fjórum árum sem hann spilaði á Spáni segir markaðsfulltrúi félagsins. 7.7.2007 12:10
Stórleikur í fyrstu umferð Í gær var dregið í töfluröð fyrir Íslandsmótið í handknattleik sem hefst um miðjan september. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki taka á móti Haukum í stórleik fyrstu umferðar í nýju og glæsilegu íþróttahúsi sínu að Hlíðarenda. Þá mætast HK og Stjarnan, Fram fer til Vestmannaeyja og Afturelding tekur á móti Akureyri. Átta lið eru í deildinni og verður leikin fjórföld umferð. 7.7.2007 12:00
Óskar eftir greinargerðum Knattspyrnusamband Íslands hefur óskað eftir greinargerðum frá ÍA og Keflavík vegna uppákomunnar eftir leik liðanna á miðvikudaginn. Handalögmál munu hafa átt sér stað eftir leikinn en Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Fréttablaðið í gær að hann ætlaði að fara rækilega yfir málið þegar greinargerðirnar væru komnar í hús, að hans sögn strax eftir helgi. 7.7.2007 11:30
Munum leita réttar okkar ef Guðjón biðst ekki afsökunar Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, fullyrti það í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld að Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, hafi sent varamann inn á til þess eins að reyna að limlesta Bjarna Guðjónsson, leikmann ÍA. 7.7.2007 11:00
Keflavík og ÍA hafa slíðrað sverðin í bili Forráðamenn og leikmenn ÍA og Keflavíkur hafa tekið þá ákvörðun að tjá sig ekki frekar um leikinn skrautlega á miðvikudaginn í bili. Þrátt fyrir þá staðreynd er enn mikill hiti í mönnum og miðað við viðbrögð viðmælenda Fréttablaðsins í gær stendur ekki til að kveikja í friðarpípu á næstunni. 7.7.2007 10:00
Höskuldur meiddur á þremur stöðum í einu Víkingurinn Höskuldur Eiríksson hefur ekkert getað leikið með norska úrvalsdeildarliðinu Viking frá Stafangri en þangað fór hann á láni frá Víking, Reykjavík, í vetur. 7.7.2007 10:00
Hafnaði WBA endanlega Heiðar Helguson ætlar sér ekki að fara til 1. deildarliðs West Bromvich Albion. Fulham hefur komist að samkomulagi við WBA um kaup á Diomansy Kamara þar sem Heiðar var hluti af kaupverðinu. Samningur WBA og Heiðars var það eina sem gat komið í veg fyrir skiptin en svo virðist vera sem ekkert verði úr þeim. 7.7.2007 09:00
Fær falleinkunn hjá Aftenposten Norska dagblaðið Aftenposten valdi í gær þá ellefu leikmenn sem það telur hafa „floppað“ í norsku úrvalsdeildinni sem nú er hálfnuð. Í miðverðinum er Ármann Smári Björnsson, leikmaður Brann. 7.7.2007 08:00
Fer fram á Parken Það varð ljóst í gær að landsleikur Danmerkur og Íslands fer fram á Parken eftir allt saman. Áfrýjunardómstóll UEFA hefur mildað dóm sinn í kjölfar leiks Dana og Svía. 7.7.2007 07:00
Óvissa með Jónas Guðna Hinn sterki miðjumaður Keflvíkinga, Jónas Guðni Sævarsson, er meiddur í nára og gat ekki leikið með Keflvíkingum í leiknum skrautlega gegn ÍA. Jónas Guðni hefur ekkert æft í viku og það fæst ekki botn í hversu lengi hann verður frá fyrr en eftir helgi. Þá fer Jónas Guðni í myndatöku. 7.7.2007 06:00
Toppliðin töpuðu sínum fyrstu stigum Topplið Landsbankadeildar kvenna, Valur og KR, mættust á Valbjarnarvelli í gær. KR komst yfir í fyrri hálfleik en Valur jafnaði metin í þeim síðari. Bæði lið fengu sín færi til að tryggja sér stigin þrjú. 7.7.2007 00:01
Íslendingar taka þátt í danska opna meistaramótinu í sundi Íslenska landsliðið í sundi keppir á danska opna meistaramótinu sem haldið er í sundhöll Árósa 7. – 12. júlí 2007. Þetta mót er liður í að undirbúa bestu sundmenn landsins fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008. Tíma sem nást á þessu móti má nota sem skráningartíma á Ólympíuleikana. 6.7.2007 22:45