Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ég er opinn fyrir öllu Landsliðsfyrirliðinn og fyrirliði Keflavíkur, Magnús Þór Gunnarsson, segir ekki víst að hann verði áfram í herbúðum Keflvíkinga næsta vetur en Magnús er samningslaus. 5.5.2007 10:45
Í viðræðum um nýjan samning Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, hefur hafið viðræður um nýjan samning við félagið. Búist er við því að hann skrifi undir nýjan fjögurra ára samning sem tryggi honum 120 þúsund pund í vikulaun. 5.5.2007 09:30
Liverpool er eins og ítalskt lið fyrir tíu árum Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan, segir að Manchester United sé hæfileikara lið en Liverpool, sem mætir Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Aþenu. 5.5.2007 08:45
Velur 19 manna landsliðshóp Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti í gær 19 manna leikmannahóp sem verður til æfinga frá 7. maí til 16. júní en þessar æfingabúðir Júlíusar eru nokkuð umdeildar að því er greint hefur verið frá áður. 5.5.2007 08:30
ÍA: Hvað gerir Guðjón upp á Skaga? Fréttablaðið heldur áfram að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu en næstu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Við spáum Skagamönnum sjötta sætinu. 5.5.2007 07:30
Brynjar þríbrotnaði á vinstri úlnlið Brynjar Valsteinsson, leikmaður HK, verður ekki meira með í úrslitum deildarbikarkeppninnar og gæti misst af upphafi næsta tímabils. Hann þríbrotnaði á úlnlið í vinstri hendi í leik gegn Stjörnunni í fyrrakvöld er hann lenti illa eftir að hafa keyrt upp völlinn í hraðaupphlaupi. 5.5.2007 06:00
Alltof stórt tap hjá strákunum í gær Íslenska 17 ára landsliðið er enn stigalaust og markalaust eftir fyrstu tvo leikina í úrslitakeppni stórmóts. Íslensku strákarnir töpuðu 0-3 fyrir Hollandi í gær eftir 0-2 tap fyrir Englendingum í fyrsta leiknum. Íslensku strákarnir léku betur en gegn Englandi og því var sárt að tapa leiknum svona stórt. 5.5.2007 06:00
Leeds er fallið Leeds óskaði eftir greiðslustöðvun í gær og þá var enn fremur ljóst að félagið fellur úr ensku 1. deildinni og spilar í C-deildinni 2007-08. Félag missir tíu stig við það að fara í greiðslustöðvun en með því að gera þetta núna þegar liðið átti aðeins litla möguleika á að bjarga sér í lokaumferðinni um helgina koma Leedsarar í veg fyrir að liðið byrji með tíu stig í mínus á næsta tímabili. 5.5.2007 05:00
New Jersey mætir Cleveland Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. 5.5.2007 03:55
Björgvin og Arnar á leið í Hauka Það er mikill hugur í Haukamönnum fyrir komandi tímabil í handboltanum en Aron Kristjánsson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá félaginu í stað Páls Ólafssonar. Haukar hafa þegar gengið frá samningi við skyttuna Gunnar Berg Viktorsson og markvörðinn Gísla Guðmundsson og eftir helgi verður væntanlega gengið frá samningum við skytturnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Jón Agnarsson. 5.5.2007 03:15
Kláraði bara fimm holur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í GKG, náði bara að klára fimm holur á öðrum hring á opna Ítalíumótinu í golfi í Mílanó í gær. 5.5.2007 00:01
Valur vann KR Valur er deildameistari kvenna í fótbolta í þriðja sinn eftir 2-1 sigur á KR í úrslitaleik í Egilshöllinni í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Val yfir eftir 25. mínútu og Nína Ósk Kristinsdóttir bætti síðan við öðru marki tólf mínútum eftir hálfleik. 5.5.2007 00:01
Óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppni NBA Öskubuskulið Golden State Warriors er komið í aðra umferð úrslitakepninnar í NBA deildinni eftir stórsigur á Dallas Maverics í stórkostlegum sjötta leik liðanna í nótt 111-86. Þetta eru almennt talin óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppninnar, en Golden State vann einvígið 4-2. 4.5.2007 05:48
Houston og Utah mætast í oddaleik Einvígi Houston Rockets og Utah Jazz í úrslitakeppni NBA hefur verið æsispennandi og í nótt knúði Utah fram oddaleik í Houston á laugardagskvöldið með 94-82 sigri í Salt Lake City. Staðan er því jöfn 3-3 í einvíginu og hafa allir leikir í seríunni til þessa unnist á heimavelli. 4.5.2007 04:36
HK lagði Stjörnuna HK-menn báru sigurorð af Stjörnunni í kvöld í fyrsta úrslitaleik liðanna í deildarbikar karla í handbolta. Stjarnan var yfir 11-9 í hálfleik. Augustas Stradzdas skoraði 9 mörk fyrir HK og Tomas Eitutis 8, en David Kekelia skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna og Patrekur Jóhannesson 7. HK getur tryggt sér deildarbikarinn með sigri í öðrum leik liðanna í Garðabæ á laugardaginn. 3.5.2007 21:34
Spænskur úrslitaleikur Það verða spænsku liðin Sevilla og Espanyol sem leika til úrslita í Evrópukeppni félagsliða þetta árið, en þau unnu bæði góða sigra í síðari leikjunum í undanúrslitunum í kvöld. Sevilla lagði Osasuna 2-0 og samtals 2-1 og Espanyol lagði Werder Bremen 2-1 á útivelli og samanlagt 5-1. 3.5.2007 20:46
Tímabilið undir hjá Dallas í nótt Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. Houston getur slegið Utah Jazz úr keppni með sigri í Salt Lake City og í sjónvarpsleiknum á NBA TV getur Golden State sent Dallas í sumarfrí með sigri í sjötta leik liðanna í Oakland. Leikurinn verður sýndur beint klukkan hálf þrjú í nótt, en þeir sem treysta sér ekki til að vaka geta séð leikinn á Sýn á föstudagskvöldið. 3.5.2007 20:02
Lippi ætlar að vera lengur í fríi Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Marcello Lippi sem gerði Ítali að heimsmeisturum síðasta sumar, ætlar ekkert að flýta sér aftur út á vinnumarkaðinn þó hann sé búinn að vera í fríi allar götur síðan hann sagði af sér eftir HM. "Ég ætla að skella mér á sjóinn," sagði Lippi og bætti vð hann hefði fengið mörg atvinnutilboð í fríinu, en ekkert þeirra væri frá Ítalíu. 3.5.2007 19:30
Frábær fyrsti hringur hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjar einstaklega vel opna Telecom mótinu í golfi sem fram fer á Ítalíu. Birgir lauk hringnum á 67 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er í 14. sæti í mótinu en sænski kylfingurinn Joakim Backström er í efsta sæti mótsins á tíu höggum undir pari. 3.5.2007 19:05
Fegnir að fá ekki enskan úrslitaleik Forráðamenn Knattspyrnusambands Evrópu segja það gott að ekki verði enskur úrslitaleikur í Meistaradeildinni í Aþenu þann 23. maí. Um tíma leit út fyrir að liðin í úrslitum yrðu bæði frá Englandi, en AC Milan setti þar stórt strik í reikninginn með stórsigri á Manchester United í gær. 3.5.2007 19:00
Shevchenko þarf í aðgerð Framherjinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea þarf að gangast undir aðgerð á nára strax og leiktíðinni á Englandi lýkur. Nárameiðsli hans eru ástæða þess að hann missti af leiknum gegn Liverpool í Meistaradeildinni, en forráðamenn Chelsea vonast til að geta notað hann eitthvað í síðustu leikjunum í deildinni. 3.5.2007 18:58
Inter heldur tryggð við Adriano Forseti Ítalíumeistara Inter Milan segir félagið ekki ætla að selja framherjann Adriano þó hann hafi átt í miklum vandræðum á leiktíðinni. Adriano skoraði um tíma ekki mark í níu mánuði fyrir lið sitt og var í kjölfarið sæmdur "Gullnu Ruslatunnunni" sem eru verðlaun sem ítölsk útvapsstöð veitir fyrir lélegustu frammistöðuna á tímabilinu. 3.5.2007 17:15
Rangers og Osasuna sektuð Knattspyrnusamband Evrópu sektaði í dag Glasgow Rangers og Osasuna fyrir ólæti stuðninigsmanna félaganna á leik liðanna í Evrópukeppninni í síðasta mánuði. Skoska liðið þarf að greiða 8,200 punda sekt en spænska liðið öllu meira - 31,000 pund. 3.5.2007 17:09
Kona Shevchenko með heimþrá? Ítalska dagblaðið Gazzetta Dello Sport greindi frá því í dag að kona Andriy Shevchenko hjá Chelsea hafi hringt grátandi í varaforseta AC Milan og tjáð honum að flutningur þeirra hjóna til Lundúna hafi verið stór mistök. 3.5.2007 17:02
Wenger fær enn eina sektina Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur nú þurft að punga út tæpum tveimur milljónum króna í sektargreiðslur á leiktíðinni. Hann var í dag sektaður og áminntur enn eina ferðina af aganefnd enska knattspyrnusambandsins, fyrir ummæli sem hann lét falla eftir úrslitaleikinn í enska deildarbikarnum í febrúar. 3.5.2007 16:50
Maldini ætlar að halda áfram að spila Ítalska knattspyrnugoðið Paolo Maldini hjá AC Milan hefur staðfest að hann sé hvergi nærri hættur að spila þó hann sé orðinn 38 ára gamall og ætlar að spila í það minnsta út næstu leiktíð. Hann fer væntanlega í hnéuppskurð eftir þessa leiktíð vegna meiðsla sem hann hlaut á dögunum, en annars er þessi frábæri varnarmaður í góðu formi. 3.5.2007 15:45
Whelan íhugar að höfða mál gegn West Ham Dave Whelan, stjórnarformaður Wigan í ensku úrvalsdeildinni, segist vera að íhuga að höfða mál á hendur West Ham og ensku úrvalsdeildinni. Hann segir að West Ham hafi sloppið fáránlega vel með 5,5 milljón punda sekt fyrir að tefla fram ólöglegum leikmönnum og vill að minnst 10 stig verði dregin af liðinu. 3.5.2007 15:09
Spænskir fjölmiðlar fara hamförum Spænska blaðið Sport í Barcelona sparar ekki yfirlýsingarnar í dag þar sem fullyrt er að knattspyrnufélagið Barcelona ætli sér að kaupa hvorki meira né minna en fjóra leikmenn frá Chelsea í sumar. 3.5.2007 15:00
Barthez ætlar ekki að hætta Franski markvörðurinn Fabien Barthez, sem fór frá liði Nantes eftir átök við stuðningsmenn á dögunum, segist ekki ætla að hætta knattspyrnuiðkun. "Ég á enn tvö góð ár eftir og ætla alls ekki að hætta," sagði hinn 35 ára gamli Barthez. 3.5.2007 14:15
Ashley Cole fær óblíðar móttökur Bakvörðurinn Ashley Cole hjá Chelsea fær væntanlega óblíðar móttökur á Emirates vellinum á sunnudaginn þegar hann spilar sinn fyrsta leik með Chelsea á gamla heimavellinum. Stuðningsmenn Arsenal eru tilbúnir með ávexti og grænmeti sem gæti átt eftir að rigna yfir leikmanninn. 3.5.2007 14:01
Gunnar Heiðar að fá samkeppni? Þýska úrvalsdeildarfélagið Hannover er nú sagt vera langt komið með að semja við Birmingham á Englandi um kaup á finnska framherjanum Mikael Forssell fyrir um eina milljón punda. Forssell á eitt ár eftir af samningi sínum við Birmingham, en hann er fæddur í Þýskalandi og hefur reynslu af því að spila þar í landi. Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover. 3.5.2007 13:21
Evrópukeppni félagsliða beint á Sýn í kvöld Í kvöld fara fram síðari leikirnir í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða og verða þeir báðir sýndir beint á rásum Sýnar klukkan 18:35. Sevilla mætir Osasuna á Sýn og Werder Bremen tekur á móti Espanyol á Sýn Extra. Espanyol er í mjög vænlegri stöðu fyrir síðari leikinn eftir 3-0 sigur á Bremen, en Sevilla tapaði 1-0 fyrir Osasuna. 3.5.2007 13:12
Dabo íhugar að fara í mál við Barton Miðjumaðurinn Ousmane Dabo hjá Manchester City segist vera að íhuga að fara í mál við félaga sinn Joey Barton eftir að sá síðarnefndi lamdi hann til óbóta á æfingu hjá félaginu á dögunum. Bresku blöðin segja að Dabo hafi litið út eins og fílamaðurinn eftir hnefahögg félaga síns. Dabo kallar Barton skræfu fyrir að kýla sig kaldan af ástæðulausu. 3.5.2007 12:31
Shevchenko fær skaðabætur frá Mirror Andriy Shevchenko, leikmanni Chelsea, hafa verið dæmdar umtalsverðar skaðabætur eftir að hann vann meiðyrðamál á hendur breska blaðinu The Mirror. Hann fór í mál við blaðið eftir að það birti greinar þar sem hann var sakaður um að vera njósnari Roman Abramovich eiganda félagsins í búningsherberginu og var sagður bera allt sem Jose Mourinho segði í eiganda félagsins. 3.5.2007 12:27
Einar Árni hættur að þjálfa Njarðvík Nýkjörinn þjálfari ársins, Einar Árni Jóhannsson hjá Njarðvík, sagði starfi sínu lausu hjá félaginu í gær. Einar hefur þjálfað Njarðvíkinga í þrjú ár og gerði þá að Íslandsmeisturum í fyrra. 3.5.2007 12:23
Phoenix komið í aðra umferð Phoenix Suns tryggði sér í nótt sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni með 119-110 sigri á LA Lakers á heimavelli sínum í fimmta leik liðanna. Phoenix var í fluggírnum í gær eins og í öllu einvíginu og reyndist einfaldlega of stór biti fyrir Lakers til að kyngja. Phoenix vann einvígið 4-1 og mætir San Antonio í næstu umferð. 3.5.2007 12:10
Gerrard: Við erum martröð allra liða Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist ekki geta beðið eftir því að fara með lið sitt í annan úrslitaleik Meistaradeildarinnar á tveimur árum. Hann segir það martröð fyrir hvaða lið sem er að mæta Liverpool í keppninni því þeir rauðu gefist aldrei upp. 3.5.2007 10:15
San Zero Breskir fjölmiðlar buðu upp á skrautlegar fyrirsagnir eftir leik AC Milan og Manchester United í gær þar sem enska liðið féll úr keppni eftir 3-0 tap. The Sun bauð upp á fyrirsögnina "San Zero" og vísaði þar í markatöluna og máttlausa frammistöðu United. Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri viðurkenndi að hans menn hefðu verið slakir og er enn fúll yfir því að þurfa að mæta grönnum liðsins í Manchester City strax á laugardaginn. 3.5.2007 07:45
Fastir liðir hjá San Antonio - Denver úr leik San Antonio Spurs er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar í NBA eftir öruggan 93-78 sigur á Denver Nuggets í fimmta leik liðanna í nótt. Michael Finley var hetja San Antonio í þetta skiptið og setti félagsmet með 8 þriggja stiga körfum úr 9 tilraunum. San Antonio vann einvígið 4-1 og mætir sigurvegaranum úr einvígi Phoenix og LA Lakers. 3.5.2007 03:21
Fylkir missir sína sterkustu menn Nú er ljóst að Fylkir mun missa sína sterkustu leikmenn en liðið féll nú á vikunum úr DHL-deildinni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Fylkir ætli að tefla fram liði í 1. deild karla á næsta ári. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson og Hlynur Morthens gætu vel verið á leið til Stjörnunnar ásamt ÍR-ingnum Ragnari Má Helgasyni. 3.5.2007 00:01
Ancelotti: United er betra lið en Liverpool Carlo Ancelotti þjálfari Milan var kátur með sigur sinna manna á Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld. Nú getur Milan náð fram hefndum á Liverpool eftir hrunið í Istanbul fyrir tveimur árum. 2.5.2007 21:38
Ferguson: Milan verðskuldaði sigurinn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, viðurkenndi að AC Milan hefði verið betra liðið í kvöld þegar lið hans féll úr keppni í Meistaradeildinni eftir 3-0 tap í Mílanó. Hann sagði sína menn aldrei hafa verið sérstaklega líklega til að skora. 2.5.2007 21:28
Milan og Liverpool mætast í úrslitum Það verður AC Milan sem leikur til úrslita gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Ítalska liðið vann í kvöld sannfærandi 3-0 sigur á Manchester United í síðari leik liðanna í undanúrslitum á San Siro. Milan og Liverpool mættust í úrslitaleik keppninnar fyrir tveimur árum. 2.5.2007 20:32
Pat Riley: Við fengum það sem við áttum skilið Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, segir að allt annar bragur verði á liðinu á næsta tímabili, en það steinlá 4-0 fyrir Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á dögunum. Hann segir að liðið hafi verðskuldað að falla úr keppni en er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann muni þjálfa liðið næsta vetur. 2.5.2007 22:01
Tiger og Michael Jordan saman í liði Tveir af frægustu íþróttamönnum sögunnar, körfuboltamaðurinn Michael Jordan og Tiger Woods, eru saman í liði í Pro/Am móti sem fram fer á Quail Hollow vellinum í Norður-Karólínu í dag. 2.5.2007 19:49