Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ferguson: Við þurfum að eiga frábæran leik Nú styttist í að flautað verði til leiks í síðari undanúrslitaleik AC Milan og Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst útsending klukkan 18:30. Sir Alex Ferguson segir sína menn þurfa á algjörum toppleik að halda til að komast í úrslitin. 2.5.2007 16:45
Tap gegn Englendingum Íslenska U-17 ára landslið Íslands tapaði í dag fyrsta leik sínum í úrslitakeppni EM í Belgíu þegar það lá 2-0 fyrir Englendingum í B-riðli. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik þar sem Englendingar voru sterkari aðilinn, en nokkuð jafnræði var með liðunum í þeim síðari. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Hollendingum á föstudaginn, en þá mæta Englendingar heimamönnum Belgum. 2.5.2007 16:36
Reina rændur Spænski markvörðurinn Jose Reina hjá Liverpool var hetja liðsins í sigrinum á Chelsea í gær, en kvöldið var þó ekki eintóm hamingja hjá kappanum. Innbrotsþjófar brutust inn á heimili hans á meðan leiknum stóð og stálu öllu steini léttara. Þá var Porche-jeppa hans stolið og fannst hann úrbræddur í vegkanti í morgun. 2.5.2007 15:41
Mourinho gefur lítið út á stemminguna á Anfield Jose Mourinho vill ekki meina að stemmingin góða á Anfield í gær hafi orðið sínum mönnum í Chelsea að falli, en Rafa Benitez stjóri Liverpool sagði að áhorfendur liðsins væru "sá útvaldi" hjá Liverpool og skaut þar með á nafngiftina sem Mourinho gaf sjálfum sér þegar hann tók við Chelsea. 2.5.2007 15:34
Klose fer ekki til Bayern Forráðamenn Werder Bremen í Þýskalandi hafa nú ítrekað að framherjinn Miroslav Klose muni ekki fara til Bayern Munchen í sumar eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum þar í landi. Bayern á yfir höfði sér refsingu eftir að félagið átti ólöglegan fund með landsliðsmanninum á dögunum. "Klose fer ekki til annars liðs í Þýskalandi í sumar," sagði talsmaður Bremen. Klose á eitt ár eftir af samningi sínum. 2.5.2007 15:31
Hvítir dómarar harðari við svarta leikmenn Niðurstöður rannsóknar sem birt var á heimasíðu New York Times á þriðjudagskvöldið hafa valdið nokkru fjaðrafoki í NBA deildinni. Í könnuninni, sem var úttekt á dómgæslu á 13 árum fram að 2004, kom í ljós að hvítir dómarar virtust dæma áberandi fleiri villur á svarta leikmenn. Forráðamenn NBA deildarinnar blása á þessar niðurstöður og segja þeir ekki marktækar. 2.5.2007 15:14
Vieira: Wenger gæti farið fá Arsenal Miðjumaðurinn Patrick Vieira hjá Inter Milan og fyrrum fyrirliði Arsenal, segist viss um að Arsene Wenger muni hugsa sig vel um áður en hann samþykki að framlengja samning sinn við félagið eftir að David Dein fór frá félaginu á dögunum. 2.5.2007 15:03
Engin skrúðganga hjá Sunderland Forráðamenn Sunderland hafa ákveðið að afþakka boð borgaryfirvalda um að halda skrúðgöngu í tilefni þess að liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni á ný. Þetta segja þeir til marks um nýja stefnu félagsins, sem ætli sér annað og meira en bara að tryggja sér úrvalsdeildarsætið. 2.5.2007 14:57
Benitez vill gera betur í deildinni Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir gríðarlega mikilvægt fyrir félagið að ná góðum árangri í Meistaradeildinni, en segir tíma til kominn að veita Manchester United og Chelsea meiri samkeppni í ensku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. 2.5.2007 14:53
Ranieri efst um framtíð Mourinho hjá Chelsea Claudio Ranieri, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segir að tap liðsins fyrir Liverpool í gær varpi skugga yfir framtíð Jose Mourinho hjá félaginu á ný. Hann segir ólíklegt að Mourinho haldi starfi sínu ef hann vinnur ekki annað en deildarbikarinn í ár. 2.5.2007 14:48
Fínt að vinna deildarbikarinn fyrir 500 milljónir punda Rick Parry, yfirmaður Liverpool, gat ekki stillt sig um að skjóta á Chelsea í gær þegar Liverpool tryggði sér sæti í úrslitum Meistaradeildarinnar með því að slá Chelsea út úr keppninni. Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea hafði kallað Liverpool lítið félag og lið sem sérhæfði sig í bikarkeppnum fyrir leikina og Parry skaut til baka í gær. 2.5.2007 14:43
Dallas hélt naumlega lífi Dallas náði í nótt að afstýra óvæntustu úrslitum í sögu fyrstu umferðar úrslitakeppni NBA deildarinnar - um að minnsta kosti tvo sólarhringa - þegar liðið vann mjög nauman sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Dallas 118-112. Gestirnir voru með unninn leik í höndunum í lokin, en þá stimplaði Dirk Nowitzki sig loksins inn í einvígið með eftirminnilegum hætti. 2.5.2007 05:14
Mourinho: Við vorum betri Jose Mourinho knattspyrnustjóri sagðist stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir tapið gegn Liverpool í Meistaradeildinni í gærkvöld og sagði sína menn hafa verið betri aðilan í leiknum. 2.5.2007 05:00
Toronto minnkaði muninn Toronto minnkaði muninn í 3-2 í einvígi sínu við New Jersey Nets í úrslitakeppni NBA í nótt með 98-96 sigri á heimavelli. Toronto náði strax góðu forskoti í leiknum og stefndi í auðveldan sigur liðsins, en gestirnir voru klaufar að stela ekki sigrinum í blálokin eftir mikla rispu. 2.5.2007 04:57
Benitez: Get ekki beðið um meira Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var að vanda ánægður með leik sinna manna í gærkvöldi þegar liðið lagði Chelsea í Meistaradeildinni og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Hann vildi ekki ræða stríð sitt við Jose Mourinho frekar, heldur kaus að njóta sigursins. 2.5.2007 03:14
3-0 fyrir Milan Nú stefnir í að úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu þetta árið verði endurtekning á leiknum í Istanbul árið 2005, því Alberto Gilardino var að koma AC Milan í 3-0 gegn Manchester United á San Siro. Gestirnir þurfa nú að skora tvö mörk á tíu mínútum til að tryggja framlengingu. 2.5.2007 20:21
Milan hefur 2-0 yfir í hálfleik AC Milan er í mjög góðum málum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni. Kaka kom heimamönnum yfir eftir ellefu mínútur og eftir hálftíma leik bætti Clarence Seedorf við öðru marki. Manchester United þarf nú að skora tvö mörk til að eiga möguleika á að ná í úrslitin. 2.5.2007 19:33
2-0 fyrir Milan AC Milan er komið í 2-0 gegn Manchester United á San Siro. Það var Clarence Seedorf sem skoraði annað markið á 30. mínútu eftir að Kaka skoraði fyrsta markið á 11. mínútu. Gestirnir frá Englandi eru nú komnir í vond mál og þurfa að skora tvö mörk til að komast áfram. 2.5.2007 19:15
Kaka kemur Milan yfir Brasilíski snillingurinn Kaka hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Manchester United á San Siro. Markið skoraði hann með laglegu skoti í bláhornið á elleftu mínútu leiksins og heimamenn mjög ákveðnir í byrjun. 2.5.2007 19:04
HondaRacing leggur land undir fót Honda Racing hefur áhveðið að skella sér á krókinn um komandi helgi með MX1, MX2 , MX85 liðið og stelpurnar, í brautina sem hefur verið í smíðum undanfarið á króknum. 2.5.2007 11:46
Liverpool í úrslit Meistaradeildarinnar Liverpool tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn á tveimur árum með því að bera sigurorð af Chelsea í kvöld. Liverpool vann leikinn 1-0 og því þurfti að grípa til framlengingar og síðar vítakeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram. Leikmenn Liverpool sýndu stáltaugar í vítakeppninni og mæta Milan eða Manchester United í úrslitum. 1.5.2007 21:24
Vidic og Ferdinand klárir í slaginn Miðverðirnir Nemanja Vidic og Rio Ferdinand hafa báðir fengið grænt ljós á að spila með liði sínu Manchester United annað kvöld þegar liðið sækir AC Milan heim í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Gennaro Gattuso hefur sömuleiðis náð sér af meiðslum hjá Milan en varnarmaðurinn Paolo Maldini er mjög tæpur. 1.5.2007 19:03
Joey Barton í banni út leiktíðina Vandræðagemlingurinn Joey Barton hjá Manchester City er enn búinn að koma sér í fréttirnar á röngum forsendum. Félagið tilkynnti í dag að miðjumaðurinn kæmi ekki meira við sögu með liðinu út leiktíðina, því hann hefði verið settur í bann fyrir að slást við félaga sinn Ousmane Dabo á æfingu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Barton kemur sér í vandræði vegna óláta sinna og nú missir hann meðal annars af grannaslagnum við United á laugardaginn þar sem þeir rauðu geta tryggt sér meistaratitilinn. 1.5.2007 18:57
FH-ingar deildarbikarmeistarar Íslandsmeistarar FH tryggðu sér í dag sigur í Lengjubikarnum eftir að þeir lögðu Val 3-2 eftir framlengdan úrslitaleik á Stjörnuvelli. Valsmenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, en Sigurbjörn Hreiðarsson fór illa að ráði sínu í upphafi leiks þegar hann lét Daða Lárusson verja frá sér vítaspyrnu. 1.5.2007 18:32
Tekst Golden State hið ómögulega í kvöld? Þeir sem hafa aðgang að NBA TV sjónvarpsstöðinni geta í kvöld orðið vitni að einhverjum óvæntustu úrslitum í sögu NBA deildarinnar ef Golden State Warriors tekst að leggja Dallas Mavericks að velli í fimmta leik liðanna klukkan hálf tvö. 1.5.2007 18:13
HK: Nýliðarnir númeri of litlir Fréttablaðið byrjar í dag að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu því næstu ellefu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Það spáir nýliðum HK 10. sætinu og að Kópavogsliðið falli því úr deildinni í haust. 1.5.2007 17:32
Saviola útilokar að fara til Real Madrid Framerjinn Javier Saviola hjá Barcelona segist aldrei muni gera stuðningsmönnum Barcelona þann grikk að ganga til liðs við erkifjendur liðsins Real Madrid. Hann segist súr yfir því að þurfa að yfirgefa herbúðir Spánarmeistaranna. 1.5.2007 16:12
Shevchenko er ekki í deilum við Chelsea Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að ástæða þess að Andiy Shevchenko fer ekki með liðinu til Liverpool sé meiðsli en ekki deilur við knattspyrnustjórann. Shevchenko tilkynnti í gær að hann gæti ekki spilað gegn Liverpool vegna nárameiðsla, en bresku blöðin héldu því fram að hann hefði neitað að fara með liðinu eftir að honum hafi verið tjáð að hann væri ekki í byrjunarliðinu í kvöld. 1.5.2007 15:53
Robert Horry snýr aftur San Antonio hefur náð afgerandi 3-1 forystu í einvígi sínu við Denver í úrslitakeppni NBA eftir 96-89 útisigur á Denver í fjórða leik liðanna í nótt. Það var gamli refurinn Robert Horry sem tryggði sigur San Antonio með þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Denver þurfti nauðsynlega á sigri að halda en tapaði öðrum heimaleik sínum í röð eftir að gestirnir luku leiknum með 17-6 rispu. 1.5.2007 05:19
Houston náði forystu á ný gegn Utah Houston er nú komið í vænlega stöðu í einvígi sínu gegn Utah í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Houston vann í nótt 96-92 sigur í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum og getur nú unnið fyrsta einvígi sitt í úrslitakeppni síðan árið 1997 með sigri í Utah á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og var í járnum frá fyrstu mínútu. 1.5.2007 03:53
Cleveland sópaði Washington Cleveland Cavaliers er komið í aðra umferð úrslitakeppni NBA eftir sigur á Washington í fjórða leik liðanna í nótt 97-90. Cleveland vann seríuna því 4-0 og var þetta í fyrsta skipti í sögu félagsins sem liðinu tekst það, en lið Washington átti aldrei möguleika í einvíginu með tvö stjörnuleikmenn á meiðslalistanum. 1.5.2007 03:39
Framlengt á Anfield Það stefnir í mikla dramatík í leik Liverpool og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fer í framlengingu eftir að Liverpool var yfir 1-0 eftir venjulegan leiktíma. Staðan í einvíginu er því 1-1 og því þarf að spila til þrautar í kvöld - hvort sem það verður eftir framlengingu eða vítakeppni. 1.5.2007 20:34
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Það var danski varnarmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark heimamanna á 22. mínútu og staðan í einvíginu er því jöfn 1-1. Leikurinn er sýndur á Sýn í beinni lýsingu Arnars Björssonar frá Anfield. 1.5.2007 19:30
Agger kemur Liverpool yfir Liverpool er komið yfir 1-0 gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Agger skoraði með laglegu skoti eftir fyrirgjöf Steven Gerrard sem kom upp úr vel tekinni aukaspyrnu á vinstri vængnum á 22. mínútu. Staðan er nú orðin 1-1 í einvíginu. 1.5.2007 19:07
Byrjunarliðin klár Nú styttist í að flautað verði til leiks í síðari undanúrslitaleikur Liverpool og Chelsea hefjist á Anfield í Liverpool. Arnar Björnsson lýsir leiknum beint frá Liverpool og verður hann sýndur beint á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér fyrir neðan. 1.5.2007 18:01