Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Barcelona vill semja við Ronaldinho til 2014 Varaforeti Barcelona segir félagið hafa mikinn hug á að halda Brasilíumanninum Ronaldinho eins lengi og mögulegt er. Hann segir samning í smíðum sem gilda muni til ársins 2014 og segir Barcelona heldur ekki vilja selja menn eins og Deco og Leo Messi. 20.3.2007 12:43
Valencia og Inter áfrýja Knattspyrnufélögin Valencia á Spáni og Inter Milan á Ítalíu hafa bæði áfrýjað dómi Knattspyrnusambands Evrópu í dögunum þar sem leikmönnum liðanna var refsað harðlega fyrir slagsmálin sem urðu eftir leik þeirra í Meistaradeildinni þann 6. mars. 20.3.2007 12:23
Ronaldo: Ég er of góður Christiano Ronaldo var ekki sáttur við að vera enn á ný sakaður um leikaraskap í gærkvöld þegar hann skoraði sigurmark Manchester United í sigrinum á Middlesbrough í enska bikarnum. Ronaldo fiskaði vítaspyrnu og skoraði úr henni sjálfur - og Boro-menn sökuðu hann um leikaraskap. 20.3.2007 12:07
Kidd og Bryant leikmenn vikunnar Jason Kidd hjá New Jersey og Kobe Bryant hjá LA Lakers voru útnefndir leikmenn vikunnar í NBA deildinni í gær. Kidd leiddi New Jersey til sigurs í þremur af fjórum leikjum sínum og skoraði 14,5 stig, gaf 12,8 stoðsendingar og hirti 7,5 fráköst. Kobe Bryant fór fyrir liði Lakers og skoraði að meðaltali 46,7 stig að meðaltali í þremur leikjum með LA Lakers, en liðið vann tvo af þremur leikjum sínum í vikunni. 20.3.2007 12:02
Boston steinlá fyrir New Orleans Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. New Orleans vann auðveldan sigur á Boston í Oklahoma City 106-88 og Atlanta burstaði Sacramento 99-76. Leikur New Jersey og Denver verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23 í kvöld. 20.3.2007 11:52
Áhorfandi reyndi að ráðast á Lampard Enska knattspyrnusambandið er nú að rannsaka atvik sem átti sér stað eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum í gærkvöldi þegar áhorfandi á White Hart Lane réðist að Frank Lampard hjá Chelsea. "Ég hélt að hann myndi ná að kýla mig - ég beygði mig bara," sagði Lampard. 20.3.2007 11:41
Grindvíkingar grimmir í fyrri hálfleik Grindvíkingar mættu mjög grimmir til leiks í viðureign sinni gegn Skallagrímsmönnum í Borgarnesi og hafa yfir í hálfleik 50-38. Heimamenn náðu aðeins að laga stöðuna fyrir lok hálfleiksins eftir að hafa lent meira en 20 stigum undir. Darrell Flake hefur haldið Skallagrími á floti í fyrri hálfleik og er kominn með 22 stig, en Jonathan Griffin var líka frábær í liði Grindavíkur. 20.3.2007 20:53
ÍR yfir í vesturbænum ÍR hefur 43-39 gegn KR í hálfleik í oddaleik liðanna um sæti í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Grindvíkingar byrja betur í leiknum gegn Skallagrími í Borgarnesi og komust í 16-6 snemma leiks. 20.3.2007 20:10
Grótta yfir í hálfleik Grótta hefur yfir 12-9 í hálfleik gegn Stjörnunni í toppleik kvöldsins í DHL-deild kvenna í handbolta. Alina Petrace er komin með 3 mörk í liði Stjörnunnar og Kristín Clausen og Rakel Bragadóttir með 2 hvor. Sandra Paegle og Natasha Damlianovic eru komnar með 3 mörk hvor hjá Gróttu. 20.3.2007 19:52
Skallagrímur - Grindavík í beinni á Sýn Í kvöld verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta. KR tekur þá á móti ÍR í DHL-höllinni klukkan 19:15 og Skallagrímur á móti Grindavík í Fjósinu í Borgarnesi, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn klukkan 20. Þetta eru oddaleikir liðanna um sæti í undanúrslitum, þar sem Snæfell og Njarðvík hafa þegar tryggt sér sæti. 20.3.2007 15:17
Supercross Lites úrslit Gríðarleg spenna var í lites flokknum þegar það kom að aðalkeppninni í Orlando. Bjuggust menn við svipuðum úrslitum líkt og í síðustu keppnum, þar sem þeir sömu jafnan raða sér upp á verðlauna pall. 20.3.2007 10:08
Orlando Supercross, síðasta keppni Carmichaels (Engin úrslit ) Já það er óhætt að segja að þetta hafi verið margþrunginn helgi hjá Ricky Carmichael þar sem hann keppti sína síðustu keppni í Orlando, sem auk þess er heimavöllur kappanns. 20.3.2007 09:34
Chelsea og Man Utd kláruðu dæmið Chelsea og Manchester United eru komin í undanúrslit enska bikarsins eftir góða sigra í kvöld. Chelsea lagði granna sína í Tottenham 2-1 á útivelli og Manchester United kláraði Middlesbrough 1-0 á Old Trafford. 19.3.2007 22:06
Emre sleppur í bili Miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle var í dag hreinsaður af ásökunum um kynþáttaníð á knattspyrnuvellinum eftir að leikmenn Everton kvörtuðu undan honum eftir leik þann 30. desember í fyrra. Ekki þóttu nægar sannanir liggja fyrir svo hægt væri að aðhafast gegn leikmanninum, en hann á annað mál af svipuðum toga yfir höfði sér eftir að viðlíka kvartanir bárust undan honum frá liði Watford. 19.3.2007 20:30
Boris og félagar óvinsælir í Íran Kraftakeppni var aflýst í Íran eftir að norskur keppandi gekk fram af siðgæðislögreglu landsins. Hann lyfti tveimur konum upp, eins og kraftajötna er von og vísa, og hlaut bágt fyrir. Kristinn Óskar Haraldsson "Boris" segir að mótið hafi verið blásið af og allir jötnarnir hvattir til að fara úr landi hið fyrsta. 19.3.2007 20:00
Beckham hefur engar áhyggjur af félögum sínum Fyrrum landsliðsfyrirliðinn David Beckham hjá Real Madrid segist ekki hafa neinar áhyggjur af fyrrum félögum sínum í enska landsliðinu fyrir leikina gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM á næstu dögum. 19.3.2007 19:46
Warnock sendir Southgate tóninn Neil Warnock, knattspyrnustjóri Sheffield United, sendi kollega sínum hjá Middlesbrough tóninn í fjölmiðlum í dag og sagði vinnubrögð Gareth Southgate bera vott um vanvirðingu í garð andstæðinga Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni. 19.3.2007 19:27
David Nugent kallaður inn í enska landsliðið Framherjinn David Nugent hjá Preston var í dag kallaður inn í enska landsliðið og leysir þar af Darren Bent hjá Charlton sem er meiddur. Ef Nugent fær að spila með Englendingum gegn Ísraelum á laugardaginn, yrði það í fyrsta skipti á öldinni sem enskur landsliðsmaður sem leikur utan efstu deildar fær að spreyta sig með liðinu. Nugent á að baki leiki með U-21 árs liði Englendinga. 19.3.2007 18:52
Einar Hólmgeirsson úr leik á ný Einar Hólmgeirsson, landsliðsmaður í handbolta, meiddist í leik með liði sínu, Grosswalsstadt, í þýska handboltanum um helgina. Einar var nýbúinn að ná sér af meiðslum sem hann varð fyrir í lok desember og urðu þess valdandi að hann missti af HM. Þetta kom fram í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. 19.3.2007 18:37
Sebastian Pourcel leiðir franska meistara mótið. Sebastien Pourcel vann fyrstu umferðina í franska meistaramótinu sem var haldið nú um helgina í La Chapelle st Aubins. Rigning og drulla einkenndi mótið og voru allir í stökustu vandræðum og duttu eiginlega allir einu sinni eða oftar. 19.3.2007 17:09
Jermaine Jenas: Við getum lagt Chelsea Miðjumaðurinn Jermaine Jenas hjá Tottenham segir sína menn hafa fulla trú á því að geta slegið Chelsea út úr enska bikarnum í kvöld þegar liðin mætast í aukaleik á White Hart Lane um sæti í undanúrslitum keppninnar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og leikur Man Utd og Middlesbrough á Sýn - en þeir hefjast báðir um klukkan 20. 19.3.2007 17:02
Kobe Bryant orðinn stigahæstur á ný Kobe Bryant er nú kominn með hæsta meðaltalið í stigaskorun í NBA deildinni í fyrsta skipti í vetur eftir að hann skoraði 115 stig í síðustu tveimur leikjum. Carmelo Anthony hjá Denver hafði verið stigahæstur í deildinni síðan 18. nóvember, en nú er Bryant kominn upp í 30 stig að meðaltali í leik á meðan Anthony er með 29,8 stig að meðaltali. 19.3.2007 16:33
Stjörnuleikur FIBA í beinni á netinu annað kvöld Árlegur Stjörnuleikur í Evrópukörfuboltanum fer fram í Lemesos á Kýpur annað kvöld og verður hann sýndur í beinni útsendingu á heimasíðu evrópska körfuknattleikssambandsins www.fibaeurope.com. Nokkrir áhugaverðir leikmenn verða þar á meðal keppenda og má þar nefna danska landsliðsmanninn Christian Drejer og Marc Gasol, bróðir Pau Gasol sem spilar í NBA deildinni. 19.3.2007 16:16
Carragher: United og Chelsea eru betri en við Jamie Carragher leikmaður Liverpool viðurkennir að Manchester United og Chelsea séu talsvert sterkari lið en Liverpool og segir liðið ætla að einbeita sér að því að reyna að ná þriðja sætinu í úrvalsdeildinni. 19.3.2007 16:07
Jón Arnór skoraði sigurkörfu Roma Jón Arnór Stefánsson var hetja liðs síns Lottomatica Roma í gærkvöld þegar hann tryggði liði sínu sigurinn á Montepaschi Siena í framlengdum leik í ítölsku úrvalsdeildinni. Roma sigraði 84-82 með körfu Jóns í lok framlengingar, en hann skoraði aðeins 4 stig í leiknum. 19.3.2007 16:02
Tveir nýliðar í íslenska landsliðinu Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag 18 manna hóp sinn sem mætir Spánverjum miðvikudaginn 28. mars. Tveir nýliðar eru í hópnum - þeir Atli Jóhannsson úr KR og Gunnar Þór Gunnarsson frá Hammarby. 19.3.2007 15:51
Lampard vill ekki fara frá Chelsea Frank Lampard segist vera orðinn leiður á sífelldum orðrómi um að hann sé að fara frá Chelsea og segist alls ekki vilja fara eitt eða neitt. "Ég hef ekki verið að tala um framtíð mína því nú er í gangi mikilvægur kafli á leiktímabilinu, en ég get fullvissað alla um að ég hef engan áhuga á að fara frá félaginu og hef aldrei hugleitt það," sagði Lampard í samtali við The Sun. 19.3.2007 15:00
Pearce: Ég á skilið að fá skammir Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segist eiga það fyllilega skilið að fá að heyra það frá stuðningsmönnum félagsins vegna lélegs gengi City í vetur. Liðið vann Middlesbrough um helgina eftir fimm töp í röð og var komið óþægilega nálægt fallsvæðinu fyrir vikið. 19.3.2007 14:15
Gareth Barry í enska landsliðið Steve McClaren landsliðsþjálfari hefur kallað bakvörðinn Gareth Barry frá Aston Villa inn í hóp sinn sem mætir Ísrael og Andorra í undankeppni EM í þessum mánuði. Þetta gerði hann vegna meiðsla þeirra Gary Neville og Micah Richards, sem báðir verða væntanlega að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Barry kom aftur inn í landsliðshópinn í febrúar eftir fjögurra ára fjarveru. 19.3.2007 13:32
Skráning hafin í stærstu endurokeppni Íslands Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK) hefur opnað fyrir skráningu í stærstu endurokeppni Íslands, Klaustur offroad challenge. Árlega keppa rúmlega 400 ökumenn bæði innlendir sem og erlendir og hefur keppnin hlotið gífurlegra vinsælda síðastliðin ár. 19.3.2007 11:47
Enn ein sýningin hjá Kobe Bryant Kobe Bryant olli ekki aðdáendum sínum vonbrigðum frekar en fyrri daginn þegar hann skoraði 50 stig fyrir LA Lakers í 109-102 sigri liðsins á Minnesota í beinni útsendingu á NBA TV í nótt. Orlando stöðvaði sigurgöngu Miami og Houston burstaði Philadelpha með 50 stiga mun á útivelli. 19.3.2007 03:12
Gerrard ómeiddur Miðjumaðurinn Steven Gerrard verður í landsliðshóp Englendinga í vikunni þrátt fyrir að hafa haltrað af velli í leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gerrard fékk aðeins spark í sköflunginn og hefur staðfest að hann verði klár í slaginn með Englendingum gegn Ísrael í Tel Aviv í vikunni í undankeppni EM. 19.3.2007 03:03
Ekkert mark komið í bikarnum Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leikjunum tveimur sem standa yfir í enska bikarnum þar sem kominn er hálfleikur. Manchester United hefur verið betri aðilinn gegn Middlesbrough á Old Trafford, en jafnræði hefur verið með Tottenham og Chelsea á White Hart Lane. Sjónvarpsstöðvar sýnar eru með beina útsendingu frá báðum viðureignum sem hófust klukkan 20. 19.3.2007 20:54
Njarðvík í undanúrslit Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í körfubolta með öruggum útisigri á Hamar/Selfoss 86-60. Skallagrímur og Grindavík mætast í oddaleik í Borgarnesi eftir helgi eftir að Skallagrímur vann sigur í öðrum leik liðanna í Grindavík í kvöld 87-80. 18.3.2007 21:02
Singh sigraði á Arnold Palmer Invitational Fiji-maðurinn Vijay Singh sigraði á Arnold Palmer Invitational mótinu í golfi sem lauk á Bay Hill vellinum í kvöld. Singh lék lokahringinn á þremur höggum undir pari og lauk keppni á átta undir. Þetta var 31. sigur hans á PGA mótaröðinni á ferlinum og langþráður sigur hjá honum á þessu tiltekna móti þar sem hann hafði þrisvar hafnað í öðru sæti. 18.3.2007 22:37
Góður sigur Dallas í Detroit Dallas vann í kvöld mikilvægan sigur á Detroit á útivelli í NBA deildinni í körfubolta. Dirk Nowitzki fór fyrir liði Dallas eins og svo oft áður og skoraði 28 stig og hirti 12 fráköst. Detroit var án leikstjórnandans Chauncey Billups sem er meiddur, en staðgengill hans Ron Murray skoraði 18 stig fyrir Detroit. 18.3.2007 22:24
Wenger: Tímabilið er búið hjá Walcott Arsene Wenger hefur staðfest að innkoma Theo Walcott hjá Arsenal í tapinu gegn Everton í dag hefði verið sú síðasta á tímabilinu, því leikmaðurinn muni gangast undir aðgerð vegna axlarmeiðsla seinna í vikunni. Hvað leikinn í dag varðar, sagði Wenger úrslit síðustu leikja sýna svart á hvítu að lið sitt skorti reynslu. 18.3.2007 21:40
Nadal sigraði á Indian Wells Spænski tenniskappinn Rafael Nadal vann í kvöld sigur á serbneska táningnum Novak Djokovic í úrslitaleik Indian Wells Masters mótsins sem fram fór í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Nadal sigraði 6-2 og 7-5 og var þetta fyrsti sigur kappans síðan á opna franska meistaramótinu í fyrra. 18.3.2007 21:29
Deco þarf í uppskurð Portúgalski miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona þarf að fara í uppskurð vegna handarmeiðsla á og missir væntanlega af landsleikjum Portúgala við Belga og Serba. Deco fór af velli meiddur á fingri í leik Barcelona og Recreativo í gær og fer í uppskurð á morgun ef marka má frétt á heimasíðu félagsins. Hann mun væntanlega þurfa einar þrjár vikur til að jafna sig eftir uppskurðinn. 18.3.2007 21:10
Bremen styrkir stöðu sína Werder Bremen styrkti stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með 2-0 sigri á Mainz á heimavelli. Jurica Vranjes og Diego skoruðu mörk heimamanna, sem eru þremur stigum á eftir toppliði Schalke. Leverkusen vann dýrmætan 1-0 sigur á botnliði Gladbach með marki Andriy Voronin í uppbótartíma. Sigurinn kom Leverkusen í Evrópusæti í fyrsta sinn síðan í fyrstu umferð deildarinnar, en Gladbach er í mjög vondum málum á botninum. 18.3.2007 20:56
Robinho tryggði Real sigur Real Madrid var ekki ýkja sannfærandi í spænska boltanum í kvöld þegar liðið vann nauman sigur á smáliði Gimnastic Tarragona 2-0 eftir að vera manni fleiri í 85 mínútur. Real liðið var andlaust í fyrri hálfleik en Robinho breytti gangi leiksins þegar hann kom inn sem varamaður og skoraði fyrra mark liðsins eftir 55 mínútur. 18.3.2007 20:43
New York skellti Toronto Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. New York Knicks lagði Toronto auðveldlega í Madison Square Garden 92-74. Stephon Marbury skoraði 14 af 21 stigi sínu í þriðja leikhlutanum þar sem New York hafði betur 35-13 og lagði grunninn að sigrinum. 18.3.2007 18:50
Þetta var mexíkóskur bardagi Juan Manuel Marquez vann í nótt sigur á fyrrum heimsmeistaranum Marco Antonio Barrera í einvígi þessara mögnuðu mexíkósku hnefaleikara í Las Vegas. Marquez er því handhafi WBC titilsins í fjaðurvigt, en var sigur hans á stigum nokkuð umdeildur þar sem nokkur vafaatriði settu svip sinn á bardagann. 18.3.2007 18:36
Sigur hjá toppliðunum Toppliðin þrjú í DHL-deild karla í handbolta unnu öll leiki sína í dag þegar fjórir leikir voru á dagskrá í deildinni. Valsmenn eru sem fyrr á toppnum eftir 35-29 sigur á Fylki í dag og HK heldur öðru sætinu eftir góðan útisigur á Stjörnunni 26-25. 18.3.2007 18:21
Zlatan með tvö í sigri Inter Inter Milan lagði botnlið Ascoli 2-1 með tveimur mörkum frá sænska framherjanum Zlatan Ibrahimovic í dag og er liðið nú komið með 18 stiga forskot á toppi deildarinnar eftir að Roma náði aðeins markalausu jafntefli gegn Fiorentina. Palermo er í þriðja sæti eftir 1-1 jafntefli við Sampdoria í gær. Lazio getur komist í þriðja sæti með sigri á Palermo í kvöld en Milan er í fimmta sætinu eftir sigur á Atalanta. 18.3.2007 18:18