Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar banna dönskum Kóranbrennumanni að koma Rasmus Paludan, stofnandi danska hægriöfgaflokksins Strangrar stefnu, fær ekki að koma til Bretlands. Hann ætlaði sér að brenna Kóraninn í bænum Wakefield í vikunni við upphaf föstumánaðar múslima. 21.3.2023 10:56
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. 21.3.2023 10:26
Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. 21.3.2023 08:27
Sex ára drengur látinn eftir árás sleðahunda á Grænlandi Sex ára drengur er látinn eftir að hafa orðið fyrir árás sleðahunda í grænlenska bænum Aasiaat á vesturströnd landsins í gær. 21.3.2023 07:41
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. 21.3.2023 07:33
Játar að hafa sett konuna í frystinn og er með nauðgunardóma á bakinu Norskur karlmaður, sem var handtekinn á fimmtudag eftir að lík sambýliskonu hans fannst í frystikistu á sveitabæ hans í Vermalandi í Svíþjóð, hefur játað að hafa vanvirt lík konunnar en neitar að hafa myrt hana. Hann á langan sakaferil að baki og hefur meðal annars hlotið dóma fyrir tvær nauðganir. 20.3.2023 23:46
Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla. 20.3.2023 20:44
Ríkisstjórn Frakklands heldur velli Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Frakklands var felld með minnsta mun í dag. Ríkisstjórnin heldur því velli á meðan Frakkar mótmæla á götum úti. 20.3.2023 19:44
Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. 20.3.2023 14:24
Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“ Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar. 20.3.2023 12:31
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. 20.3.2023 11:14
Í viðbragðsstöðu með bóluefni gegn fuglaflensu Lyfjafyrirtæki telja sig geta framleitt hundruð milljóna skammta af bóluefni gegn fuglaflensu fyrir menn á nokkrum mánuðum ef nýtt afbrigði kemur fram sem getur borist á milli manna. Heilbrigðisyfirvöld telja líkurnar á því enn litlar. 20.3.2023 10:05
Salman sagður hafa boðið Raisi í opinbera heimsókn Mohammad Jamshidi, háttsettur embættismaður í Íran, segir Salman bin Abdul Aziz al-Sád, konung Sádi Arabíu, hafa boðið Ebrahim Raisi, forseta Íran, í opinbera heimsókn. 20.3.2023 09:21
Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka. 20.3.2023 09:09
Æfðu kjarnorkuárás á Suður-Kóreu Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafði umsjón með æfingum hersins fyrir kjarnorkugagnárás á Suður-Kóreu um helgina. Yfirlýst markmið æfinganna var að slá ótta í brjóst fjandríkja landsins. 20.3.2023 09:04
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. 20.3.2023 07:47
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. 20.3.2023 06:52
Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. 19.3.2023 16:52
Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Ekkert lát er á mótmælum í Frakklandi vegna ákvörðunar forsetans Emmanuel Macron um að þröngva hækkun á eftirlaunaaldri þar í landi í gegnum þingið. Íbúar héldu út á götu í gærkvöldi, þriðja kvöldið í röð, og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. 19.3.2023 15:05
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. 19.3.2023 14:31
Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. 19.3.2023 10:07
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. 19.3.2023 08:05
Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. 19.3.2023 00:15
Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. 18.3.2023 21:32
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. 18.3.2023 14:56
Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. 18.3.2023 14:30
Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. 18.3.2023 13:32
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. 18.3.2023 12:40
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. 18.3.2023 09:57
Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. 18.3.2023 07:52
Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. 17.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. 17.3.2023 16:13
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. 17.3.2023 15:23
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. 17.3.2023 14:29
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. 17.3.2023 12:08
Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. 17.3.2023 10:19
Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. 17.3.2023 09:17
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. 17.3.2023 07:58
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 17.3.2023 07:45
Átök í París eftir ákvörðun um að þröngva umdeildu frumvarpi í gegnum þingið Til átaka kom á milli lögreglunnar í París og fleiri borgum Frakklands og mótmælenda í gærkvöldi eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta ákvað að þröngva breytingum á eftirlaunakerfinu í gegnum franska þingið án þess að greiða um það atkvæði. 17.3.2023 07:31
Týnda úranið mögulega fundið Hersveitir í austurhluta Líbíu segjast hafa fundið um tvö og hálft tonn af úrani sem leitað hafði verið. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur ekki staðfest fund hersveitanna. 16.3.2023 20:01
Pólverjar fyrstir til að senda orrustuþotur til Úkraínu Andrzej Duda, forseti Póllands, tilkynnti í dag að minnst ellefu MiG-29 orrustuþotur frá tímum Sovétríkjanna yrðu sendar til Úkraínu og að fjórar þeirra yrðu sendar á næstu dögum. Pólland varð þar með fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins til að senda Úkraínumönnum orrustuþotur. 16.3.2023 16:19
Macron þvingar í gegn breytingar á lífeyriskerfi Franska ríkisstjórnin ákvað að þvinga í gegn óvinsælar breytinga á eftirlaunakerfi landsins rétt áður en atkvæðagreiðsla átti að fara fram um þær í neðri deild þingsins í dag. Ákvörðunin byggir á sérstöku stjórnarskrárákvæði. 16.3.2023 14:46
Kókaínframleiðsla jókst um þrjátíu og fimm prósent á einu ári Kókaínframleiðsla jókst um 35 prósent milli 2020 og 2021 og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum Sameinuðu þjóðanna en þar segir að umfang kókaínsölu sé að aukast í Afríku. 16.3.2023 14:31
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. 16.3.2023 14:01