Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hipkins tekur við af Ardern Nýsjálenski þingmaðurinn Chris Hipkins gefur einn kost á sér í formannsstöðu nýsjálenska Verkamannaflokksins og mun því að öllum líkindum taka við sem forsætisráðherra á mánudag af Jacindu Ardern, sem tilkynnti afsögn sína í gær. 20.1.2023 23:31
Macron ætlar í mikla hernaðaruppbyggingu Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í dag áætlun sína um þriðjungs aukningu á fjárútlátum til varnarmála. Samkvæmt áætlun hans á að verja 413 milljörðum evra til hersins á árunum 2024 til 2030, en á síðustu sambærilegu fjárhagsáætlun, frá 2019 til 2025, voru sömu fjárútlát 295 milljarðar. 20.1.2023 15:56
Samþykkja ekki enn skriðdrekasendingar til Úkraínu Boris Pistorius, nýr varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði við blaðamenn í Ramstein í Þýskalandi í dag að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Hann sagði þó að ráðuneyti hans myndi fara yfir birgðastöðu Þjóðverja og kanna hve marga skriðdreka hægt væri að senda og hve fljótt, verði slík ákvörðun tekin á næstunni. 20.1.2023 14:25
Gæsluvarðhald Andrew Tate framlengt um þrjátíu daga Dómstóll í Rúmeníu hefur framlengt gæsluvarðhald yfir Andrew Tate og bróður hans Tristan, til 27. febrúar. Þeir eru til rannsóknar vegna meintra kynferðisbrota og frelsissviptinga. 20.1.2023 13:44
Íslensk kona alvarlega særð eftir hnífsstunguárás í Noregi Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið handtekinn í Rogalandi í Noregi, grunaður um að hafa stungið fyrrverandi eiginkonu sína, sem einnig er íslensk, fyrir utan McDonalds-veitingastað í gær. 20.1.2023 11:51
Rússar segja að sendingar vestrænna skriðdreka muni engu máli skipta Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútíns, forseta Rússlands, segir að hergagnasendingar Vesturlanda til Úkraínu muni ekki hafa nein áhrif á stöðu mála á víglínum landsins. Sendingarnar muni eingöngu auka á vandræði Úkraínumanna. 20.1.2023 11:17
Gríðarmikill eldur í fátækrahverfi í Seúl Um fimm hundruð íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín eftir að mikill eldur kom upp í fátækrahverfi í suðurkóresku höfuðborginni Seúl fyrr í dag. 20.1.2023 08:48
Bíll Julian Sands er fundinn Búið er að finna bíl breska leikarans Julians Sands í San Gabriel-fjöllunum, norður af Los Angeles. Leikarinn hélt í fjallgöngu á Baldy Bowl-svæðinu í síðustu viku og hefur hans verið saknað síðan á föstudag. 20.1.2023 07:46
Trump og lögmaður hans dæmdir til greiða milljón dala í sektir Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og einum lögmanna hans að greiða sameiginlega nærri milljón Bandaríkjadala í sektir fyrir tilhæfulausa málsókn þar sem Hillary Clinton, landsnefnd Demókrataflokksins og aðrir meintir óvinir Trump voru sakaðir um umfangsmikið samsæri gegn honum. 20.1.2023 07:35
Serbar æfir vegna auglýsinga Wagner málaliðahópsins Rússneskt fréttamyndskeið þar sem serbneskir sjálfboðaliðar eru sagðir undirbúa sig undir að berjast við hlið Rússa í Úkraínu hefur vakið mikla reiði í Serbíu. Um er að ræða myndskeið framleidd af Wagner-málaliðahópnum, þar sem Serbar eru hvattir til að ganga til liðs við hópinn. 20.1.2023 07:19
Tíu handteknir eftir ofbeldisöldu í Stokkhólmi Tíu manns hafa verið handteknir undanfarinn sólarhring í Stokkhólmi, grunaðir um að eiga aðild að skotárásum og sprengingum sem hafa átt sér stað í sænsku höfuðborginni síðustu vikur. Talsmaður lögreglunnar segir að handtökurnar eigi eftir að verða fleiri. 19.1.2023 23:19
Tankurinn tómur og tími kominn til að kveðja Fráfarandi forsætisráðherra Nýja Sjálands segir það hafa verið forréttindi að fá að leiða þjóð sína á erfiðum tímum undanfarin tæpu sex ár. Nú væri tankur hennar hins vegar tómur og tími til kominn að kalla til nýjan leiðtoga. 19.1.2023 19:45
Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að hann skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó í október 2021. 19.1.2023 16:28
Var á gangi með eins árs syninum við skóla þegar hvítabjörninn réðst á mæðginin Lögregla í Alaska hefur nafngreint hina 24 ára konu og eins árs son hennar sem létust í árás hvítabjarnar í bænum Wales á vesturströnd Alaska á þriðjudag. Mæðginin voru á gangi á milli skólans og heilsugæslunnar í bænum þegar björninn réðst til atlögu. 19.1.2023 14:38
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að njósna um Svía fyrir Rússa Dómstóll í Stokkhólmi hefur dæmt tvo bræður í fangelsi fyrir njósnir en þeir voru sagðir hafa veitt Rússum upplýsingar sem gætu skaðað þjóðaröryggi Svía. Eldri bróðirinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi en sá yngri fékk tæplega tíu ára dóm. Sérfræðingur segir brot af þessari stærðargráðu sjaldgæf í Svíþjóð. 19.1.2023 12:50
Útflutningur Leopard skriðdreka sagður háður ákvörðun Bandaríkjamanna Þjóðverjar eru reiðubúnir til að senda Úkraínumönnum skriðdreka að því gefnu að Bandaríkjamenn samþykki að gera það sömuleiðis. Þetta hefur Reuters eftir heimildarmanni innan ríkisstjórnarinnar. 19.1.2023 08:27
Ardern segir af sér Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur ákveðið að segja af sér. Hún mun láta af störfum ekki seinna en 7. febrúar og segist hreinlega ekki hafa orku til að sinna starfinu lengur. 19.1.2023 06:41
Trump vill komast aftur á Facebook Donald Trump vill komast aftur á Facebook eftir að hafa verið bannaður á miðlinum í kjölfar innrásarinnar í bandaríska þinghúsið í janúar árið 2021. Talið er að hann vilji komast þangað til þess að koma kosningaherferð sinni á flug en hann hefur tilkynnt um framboð sitt til forseta Bandaríkjanna árið 2024. 18.1.2023 23:24
Dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að afhöfða eiginkonu sína Íranskur karlmaður var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að afhöfða sautján ára eiginkonu sína. Konan hafði flúið land þegar maðurinn vildi ekki leyfa henni að skilja við sig en sneri aftur eftir að fjölskylda hennar sagðist geta tryggt öryggi hennar. Hún var myrt nokkrum dögum síðar. 18.1.2023 22:24
Þingmaðurinn ljúgandi sagður hafa grætt á dauðvona hundi Fyrrverandi hermaður hefur sakað þingmanninn George Santos um að hafa nýtt sér dauðvona þjónustuhund sinn til að græða fjögur hundruð þúsund krónur. Hálfu ári eftir að hann stakk af með peninginn lést hundurinn. 18.1.2023 21:53
Klámleikarinn Ron Jeremy með taugahrörnun og getur ekki setið áætluð réttarhöld Klámleikarinn Ron Jeremy, sem er 69 ára að aldri, hefur verið metinn óhæfur andlega til þess að gangast undir réttarhöld. Hann er sagður með taugahrörnun sem hafi valdið vitrænni hnignun. 18.1.2023 20:12
Tekin af lífi með barnið í höndunum Lögreglan í Tulare-sýslu í Kaliforníu segir allt útlit fyrir að morðin á sex einstaklingum í smábænum Goshen í morgun hafi verið aftökur. Móður á táningsaldri var á flótta undan morðingjunum með tíu mánaða gamalt barn hennar er þau voru bæði tekin af lífi. 18.1.2023 13:21
Fékk sæti í tveimur þingnefndum þrátt fyrir lygar Bandaríski þingmaðurinn George Santos fékk sæti í tveimur nefndum fulltrúadeildarinnar í gær. Það er þrátt fyrir að margir Repúblikanar kalli eftir afsögn hans vegna umfangsmikilla lyga fyrir kosningarnar og að kallað sé eftir því að hann verði rannsakaður vegna lyganna og fjármála hans. 18.1.2023 10:38
Elsta manneskja heims er látin Systir Andre, frönsk nunna sem tók á síðasta ári við titlinum „elsta manneskja heims“, er látin. Hún var 118 ára gömul og hefði orðið 119 í næsta mánuði. 18.1.2023 09:00
Ráðherra meðal þeirra sem dóu þegar þyrla brotlenti á leikskóla Denys Monastyrskiy, innanríkisráðherra Úkraínu, aðstoðarinnanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri eru meðal þeirra minnst átján sem dóu í þyrluslysi í Brovary, skammt austur af Kænugarði, í morgun. 18.1.2023 08:41
Tugur barna þarfnaðist læknisaðstoðar í kjölfar íþróttaæfingar Foreldrar framhaldsskólanema í Bandaríkjunum eru æfir vegna meðferðar þjálfara á börnum þeirra en fjöldi þurfti að leita á sjúkrahús fyrir um tveimur vikum síðan í kjölfar afar strangra æfinga. 18.1.2023 08:01
Fjórir ættliðir myrtir í smábæ í Kalíforníu Sex manneskjur allar nema ein úr sömu fjölskyldu voru skotnar til bana í smábæ í Kalíforníu í Bandaríkjunum í fyrradag. 18.1.2023 07:45
Spilltur fyrrverandi þingmaður lofar að leysa frá skjóðunni Ítalinn Pier Antonio Panzeri, sem er fyrrverandi þingmaður á Evrópuþinginu og meintur höfuðpaur í stóru mútumáli sem nú skekur sambandið segist ætla að greina frá öllu og í sambandi við málið og hvaða lönd komu þar nærri. 18.1.2023 07:39
Kona og drengur létust eftir árás hvítabjarnar Kona og ungur drengur létust eftir að hafa orðið fyrir árás hvítabjarnar í Wales á vesturströnd Alaska í Bandaríkjunum í gær. 18.1.2023 07:32
Mótmælaréttur Breta í húfi Breskir mótmælendur eru uggandi yfir nýrri löggjöf um mótmæli sem er til umræðu hjá þinginu. Yrði frumvarpið og lagfæringar þess að lögum myndi það hefta verulega leiðir sem hafa verið notaðar af hagsmunasamtökum til þess að koma skilaboðum sínum áleiðis. 17.1.2023 23:55
Telja sig hafa fundið elsta rúnastein sögunnar í Noregi Fornleifafræðingar í Noregi telja sig hafa fundið elsta rúnastein sögunnar. Steinninn er allt að tvö þúsund ára gamall en talið er að hann sé einn sá fyrsti sem norrænir menn reyndu að skrifa rúnir á. 17.1.2023 23:05
Hvítabirnir á Suðaustur-Grænlandi koma vísindamönnum á óvart Lítill en einangraður stofn hvítabjarna, sem heldur til á Suðaustur-Grænlandi, hefur sýnt einstaka hæfni við að laga sig að breyttum lífsskilyrðum með hverfandi hafís og er auk þess erfðafræðilega frábrugðinn öðrum stofnum. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs hóps vísindamanna, sem kallar eftir sérstakri verndun þessa undirstofns. 17.1.2023 22:50
„Þú veist hver ég er. Ég er Matteo Messina Denaro“ Mafíósinn Matteo Messina Denaro var handtekinn á Sikiley í gærmorgun eftir að hafa verið í þrjátíu ár á flótta frá lögreglunni á Ítalíu. Líkt og gera má sér grein fyrir var það hægara sagt en gert að handsama kauða en alvarleg veikindi hans voru það sem komu lögreglu á rétta slóð. 17.1.2023 19:41
Greta Thunberg handtekin við mótmæli í Þýskalandi Umhverfisaðgerðarsinninn Greta Thunberg var handtekin í dag ásamt fleiri mótmælendum vegna mótmæla við kolanámu í Luetzerath í Þýskalandi. 17.1.2023 17:36
Deilt í Disney Forsvarsmenn Disney sögðu í dag að það hafði verið rétt af þeim að neita fjárfestinum Nelson Peltz um sæti í stjórn félagsins. Hann hefði ekki reynslu til að hjálpa Disney og að hann skorti skilning á starfsemi félagsins. Peltz segist vilja bjarga Disney frá því sem hann kallar „krísu“. 17.1.2023 16:03
Annar flugritinn sendur til Frakklands til greiningar Yfirvöld í Nepal hafa sent annan af flugritum flugvélar sem brotlenti á sunnudaginn til Frakklands til rannsóknar. Um er að ræða þann flugrita sem geymir gögn um flugferðina en hinn flugritinn, sem tekur upp samskipti flugmanna í stjórnklefa flugvélarinnar verður rannsakaður í Nepal. 17.1.2023 14:14
Á að ákveða hvort Úkraína fái vestræna skriðdreka Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti í morgun að hann myndi skipa Boris Pistorius í embætti varnarmálaráðherra. Sá hefur verið innanríkisráðherra Neðra-Saxlands frá árinu 2013 en hans fyrsta verk í nýju embætti verður að taka ákvörðun um það hvort flytja megi Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. 17.1.2023 13:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við í fjármálaráðherra og spyrjum út í afstöðu hans til Þjóðarhallarinnar sem kynnt var með pompi og pragt í gær. 17.1.2023 11:37
Tapaði kosningum og lét skjóta á hús Demókrata Fyrrverandi frambjóðandi Repúblikanaflokksins til ríkisþings New Mexico í Bandaríkjunum var handtekinn í gær. Hann er grunaður um að hafa greitt mönnum fyrir að skjóta á hús fjögurra Demókrata í ríkinu og tekið þátt í minnst einni skotárás. 17.1.2023 11:00
Wagner-liði vill hæli í Noregi Fyrrverandi yfirmaður í rússneska málaliðahópnum Wagner Group hefur beðið um hæli í Noregi. Andrey Medvedev flúði yfir landamæri Noregs og Rússlands við Pasvikdalen á föstudaginn þar sem hann var handtekinn af norskum landamæravörðum. 17.1.2023 09:15
Lýsa yfir stríði á hendur blóðnefsvefurum Miklir þurrkar í Kenía á síðustu misserum hafa torveldað grasvöxt í landinu og hefur ein afleiðing þess verið að algengar fuglategundir hafa leitað annarra leiða til að slá á hungrið. 17.1.2023 07:54
Ákæra fyrir árásina á þinghús Brasilíu Dómsmálaráðherra Brasilíu hefur nú ákært þrjátíu og níu einstaklinga fyrir aðild að árásinni á brasilíska þinghúsið á dögunum, eða þann áttunda janúar síðastliðinn. 17.1.2023 07:32
Kínverjum fækkar í fyrsta sinn frá árinu 1961 Kínverjum fer nú fækkandi í fyrsta sinn síðan árið 1961. Í lok síðasta árs voru Kínverjar 1.41175 milljarðar en ári áður voru þeir 1.41260 milljarðar, sem er fækkun um 850 þúsund einstaklinga á einu ári. 17.1.2023 07:27
Sturgeon segir beitingu neitunarvaldsins árás Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að beita neitunarvaldi sínu gagnvart skoska þinginu og lagafrumvarpi þess sem myndi gera fólki auðveldara fyrir að ákvarða og breyta eigin kynskráningu. 17.1.2023 00:02
Tugir látnir og innflutningur notaðra dekkja bannaður í Senegal Meira en tuttugu eru látin eftir að árekstur varð á milli trukks og rútu í norðanverðu Senegal í dag. Nærri fimmtíu manns voru í rútunni en hámarksfjöldi leyfðra farþega var 32. Talið er að innflutningur og sala notaðra dekkja eigi þátt í þeim mikla fjölda umferðarslysa sem verða á svæðinu. 16.1.2023 23:40
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent