Fleiri fréttir

Tíu enn saknað eftir leit í nótt
Tíu er enn saknað í norska bænum Ask, þar sem gríðarlegar leirskriður féllu í fyrrinótt. Leitarhundur ásamt þjálfara, voru látnir síga niður úr þyrlu á hamfarasvæðinu í nótt til að meta aðstæður og leita að fólki. Enginn fannst í aðgerðinni.

Einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna látinn
Samuel Little, einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Little játaði á sig yfir níutíu morð víðsvegar um Bandaríkin og var dæmdur í margfalt lífstíðarfangelsi.

Grænland lokað næstu tvær vikur
Grænlenska landsstjórnin hefur bannað allt farþegaflug til Grænlands næstu tvær vikur, til 12. janúar. Aðeins verður leyft farþegaflug á vegum stjórnvalda og neyðarflug. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Kim Kielsen forsætisráðherra og Henrik L. Hansen, landlæknir Grænlands, héldu í Nuuk í gær.

Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur
Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum.

Þingmenn munu neyðast til að taka afstöðu með eða á móti Trump
Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley greindi frá því í dag að hann hygðist mótmæla þegar Bandaríkjaþing „telur“ kjörmannaatkvæðin eftir forsetakosningarnar 6. janúar næstkomandi.

Baráttunni „engan veginn lokið“ í Bretlandi
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur biðlað til landsmanna að halda sig heima um áramótin og sýna þolinmæði. Baráttunni væri „engan veginn lokið“ þar sem veiran væri í mikilli útbreiðslu, þá sérstaklega vegna nýja afbrigðisins sem hefur hingað til verið kennt við Bretland.

Stjórnvöld hunsa ráðleggingar sérfræðinga um sykur- og alkóhólneyslu
Bandarísk stjórnvöld hunsuðu ráðleggingar vísindamanna þegar ný viðmið um ráðlagða dagskammta voru gefin úr. Ráðgjafanefnd hafði mælt með því að ráðlögð neysla sykurs og alkóhóls yrðu minnkuð en ekki var farið að tillögum nefndarinnar.

Yfirvöld í Essex lýsa yfir neyðarástandi: Óska eftir aðstoð frá hernum
Neyðarástand er að skapast í Essex vegna Covid-19 faraldursins og hafa yfirvöld á svæðinu biðlað til breska hersins um aðstoð. Essex er á efsta viðbúnaðarstigi en ástandið er hvergi verra á Englandi heldur en í suðurhluta sýslunnar.

Fimmtán enn saknað í Ask
Fimmtán er enn saknað eftir að stærðarinnar leirskriður féllu í nótt í bænum Ask í Noregi.

Mæla með frekari grímunotkun í ljósi metfjölda dauðsfalla
Yfirvöld í Svíþjóð lögðu til í dag að farþegar almenningsamganga notuðust við grímur á háannatíma. Það yrði væri gert til að sporna gegn mikilli dreifingu nýju kórónuveirunnar. Svíar tilkynntu í dag að 8.846 hefðu greinst smitaðir nýverið og voru 243 ný dauðsföll tilkynnt.

Skriða féll hundrað metrum frá heimili Hafdísar
Íslensk kona sem búsett er í norska bænum Ask þar sem aurskriður féllu í nótt lýsir því að skriða hafi fallið um hundrað metrum frá heimili hennar í bænum. Uggur sé í bæjarbúum en þeir standi saman í hamförunum.

Breska þingið samþykkir viðskiptasamning við ESB
Breska þingið samþykkti nú rétt í þessu viðskiptasamning breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. 521 þingmaður greiddi atkvæði með samningnum en 73 gegn honum.

Meint fjársvik Navalní til rannsóknar í Rússlandi
Yfirvöld í Rússlandi opnuðu í gær rannsókn sem snýr að meintum fjársvikum stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní. Hann er sagður grunaður um að hafa notað persónulega um 600 milljónir króna sem hann safnaði meðal annars til and-spillingar stofnunar sinnar.

Deilurnar um ávísanirnar halda áfram
Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, kom sér undan því í gær að halda atkvæðagreiðslu um það að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun. Frumvarpið hefur áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, þar sem Demókratar eru í meirihluta. Þar að auki hafði Donald Trump, fráfarandi forseti, krafist þess að frumvarp þar að lútandi yrði samþykkt.

Mannfall eftir sprengjuárás á flugvelli í Jemen
Fimm manns hið minnsta eru látnir og fjöldi særður eftir sprengjuárás á flugvelli í jemensku hafnarborginni Aden í morgun. Sprengingar heyrðust og skotið var úr byssum á flugvellinum skömmu eftir að flugvél með nýrri ríkisstjórn landsins lenti á flugvellinum eftir að hafa komið frá Sádi-Arabíu.

Bent á sprengjugerð Warner fyrir rúmu ári
Lögreglan í Nashville fékk í fyrra tilkynningu um að maðurinn sem sprengdi húsbíl sinn í loft upp þar í borg um jólin, hefði verið að setja saman sprengjur. Tveir lögregluþjónar fóru heim til hans en fundu hann ekki og sáu ekki inn í húsbíl hans, þar sem hann átti að vera að stunda sprengjugerðina.

Ráðamenn sagðir takmarka flæði upplýsinga um uppruna Covid-19
Ráðamenn í Kína eru sagðir hafa takmarkað verulega flæði upplýsinga og rannsóknir um mögulegan uppruna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, sem greindist fyrst í mönnum í Kína. Vísindamenn sem hafa reynt að rannsaka uppruna sjúkdómsins í Kína hafi orðið fyrir miklum hindrunum frá hinu opinbera.

Ekki vitað um afdrif 21 sem er til heimilis á hamfarasvæðinu
Ekki er vitað um afdrif 21 sem er skráður til heimilis í húsum á hamfarasvæðinu í norska bænum Ask þar sem aurskriður féllu í nótt. Þetta sagði norska lögreglan um klukkan tólf, en um klukkan ellefu var rætt um 26 og hefur nú verið gert grein fyrir fimm af þeim.

Herða sóttvarnir í Sydney fyrir áramótin
Yfirvöld í Ástralíu hafa hert samkomutakmarkanir og sóttvarnir í Sydney, stærstu borg landsins, fyrir áramótin. Það var gert eftir að nýr klasi smitaðra greindist þar. Í heimahúsum mega fimm að hámarki koma saman og þrjátíu á almannafæri. Þá mega gestir ekki heimsækja íbúa dvalarheimila.

Að minnsta kosti níu slasaðir og mikil eyðilegging
Að minnsta kosti níu eru slasaðir eftir jarðvegsskriðurnar sem féllu í norska bænum Ask, norðaustur af Osló, í nótt. Myndir frá vettvangi sýna fram á mikla eyðileggingu á staðnum.

Argentínska þingið heimilar þungunarrof
Meirihluti öldungadeildar argentínska þingsins hefur samþykkt að konum verði heimilt að gangast undir þungunarrof fram í fjórtándu viku meðgöngu. Spennustigið á götum höfuðborgarinnar Buenos Aires hefur verið hátt síðustu vikurnar vegna málsins þar sem stuðningsmenn og andstæðingar lagabreytingarinnar hafa safnast saman.

Nýkjörinn þingmaður látinn af völdum Covid-19
Repúblikaninn Luke Letlow, sem kjörinn var á fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Louisiana í kosningunum í nóvember, er látinn af völdum Covid-19. Hinn 41 árs gamli Letlow er fyrsti bandaríski þingmaðurinn til að láta lífið af völdum sjúkdómsins.

Bóluefni AstraZeneca fær markaðsleyfi í Bretlandi
Bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla gegn Covid-19 hefur fengið markaðsleyfi í Bretlandi. Þar af leiðandi er hægt að hefja bólusetningar með efninu í landinu.

Miklar aurskriður skullu á íbúðahús í norska bænum Ask
Margir eru sagðir hafa slasast eftir að aurskriður skullu á fjölda húsa í bænum norska bænum Ask í nótt. Um tvö hundruð manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín vegna skriðuhættu.

Nýja afbrigði kórónuveirunnar komið til Bandaríkjanna
Hið nýja afbrigði kórónuveirunnar sem gert hefur usla á Bretlandseyjum hefur nú fundist í fyrsta sinn í Bandaríkjunum.

Copy/Paste í Brexit-díl: Nýr samningur, úreltur texti
Grunur leikur á að kaflar í nýjum samningi Bretlands og Evrópusambandsins hafi verið teknir í heilu lagi úr gömlum lögum eða samningum, þar sem í þeim má finna tilvísanir í úrelta tækni á borð við Netscape Communicator og 1024-bita RSA dulkóðun.

Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu þurft að velja hverjir lifa og hverjir deyja
Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu á næstu dögum og vikum staðið frammi fyrir því að þurfa að velja hverjir lifa og hverjir deyja. Þetta segja sérfræðingar innan opinbera heilbrigðiskerfisins, sem sjá fram á mesta álag í sögu NHS vegna Covid-19 faraldursins.

WHO: Munum þurfa að lifa með SARS-CoV-2 og megum vænta verra
Bólusetning á heimsvísu mun ekki marka endalok Covid-19, segja vísindamenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þeir gera ráð fyrir að SARS-CoV-2 muni áfram fara um samfélagið, líkt og árstíðabundnar flensuveirur, og segja menn þurfa að læra að lifa með henni.

Tregir Frakkar: Aðeins fjórir af tíu hyggjast þiggja bólusetningu
Aðeins fjórir af hverjum tíu Frökkum hyggst láta bólusetja sig gegn Covid-19, samkvæmt niðurstöðum könnunar Ipsos Global Advisor og World Economic Forum.

„Ástin sigrar,“ segja Meghan og Harry í fyrsta hlaðvarpsþættinum
„Sama hvað lífið gefur þér, treystið okkur þegar við segjum: Ástin sigrar.“

Faraldurinn enn á siglingu í Danmörku og takmarkanir framlengdar til 17. janúar
Þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi í Danmörku verða framlengdar til 17. janúar. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherrans Mette Frederiksen nú fyrir stundu. Til stóð að endurskoða þær 3. janúar.

Fimm létust í jarðskjálftanum í Króatíu
Fimm létust í kröftugum jarðskjálfta sem varð nærri Zagreb í Króatíu um hádegisbil og þar af 12 ára stúlka. Nýjustu mælingar sýna að skjálftinn hafi verið um 6,4 að stærð samkvæmt frétt Reuters.

Segir forystu Repúblikanaflokksins aumkunarverða og kunna ekkert nema að tapa
Svo virðist sem uppreisn sé hafin gegn ofríki Donald Trump innan Repúblikanaflokksins en forsetinn fór mikinn á Twitter í dag eftir að samflokksmenn hans í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til hermála, sem Trump hafði neitað að lögfesta með undirskrift sinni.

Fór sjálfur í verslunarmiðstöð eftir að hafa beðið Svía að gera það ekki
Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar fór í verslunarmiðstöðina Gallerian í miðborg Stokkhólms 20. desember síðastliðinn, tveimur dögum eftir að ríkisstjórn hans hvatti fólk til að forðast verslunarmiðstöðvar og hvers kyns mannmargar samkomur vegna faraldurs kórónuveiru.

Væntir hörmunga í Englandi verði aðgerðir ekki hertar
Vísindamaður sem hefur ráðlagt yfirvöldum í Englandi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar segir nauðsynlegt að herða sóttvarnir til muna svo koma megi í „hamfarir“ á nýju ári. Smituðum fari hratt fjölgandi í landinu og sporna verði gegn því.

Rússneskur munkur handtekinn í áhlaupi á klaustur
Rússneskir lögregluþjónar, útbúnir fyrir óeirðir, handtóku fyrrverandi munk í áhlaupi á klaustur í Úralfjöllum í morgun. Þar var munkurinn, sem heitir Nikolai Romanov en er kallaður faðir Sergei, handtekinn og hefur verið ákærður fyrir að hvetja ungmenni til sjálfsvíga.

Stúlka lést í stóra skjálftanum í Króatíu og fjöldi fastur í húsarústum
Tólf ára stúlka lést í kröftugum jarðskjálfta sem varð nærri Zagreb í Króatíu um hádegisbil. Skjálftinn mældist 6,4 að stærð. Adrej Plenkovic, forsætisráðherra, ávarpaði landsmenn í borginni Petrinju sem varð verst úti í skjálftanum.

Sakar Trump-liða um að draga lappirnar
Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, segir að pólitískt ráðnir starfsmenn Donalds Trump, fráfarandi forseta, og Trump sjálfur séu að draga lappirnar varðandi stjórnarskiptin. Vísaði hann sérstaklega til starfsmanna stofnanna í varnarmálaráðuneytinu og Office of Management and Budget eða OMB.

Margfalt fleiri gætu hafa smitast af Covid-19 í Wuhan en vitað er
Sóttvarnastofnun Kína segir útlit fyrir að tíu sinnum fleiri hafi smitast af nýju kórónuveirunni og fengið Covid-19 í Wuhan, borginni hvar veiran rataði fyrst í sviðsljósið, en opinberar tölur segja til um.

Fengu óvart fimmfaldan skammt bóluefnis
Fjórir starfsmenn hjúkrunarheimilis í norðurhluta Þýskalands voru fluttir á sjúkrahús eftir að átta starfsmenn fengu fyrir mistök fimmfaldan, ráðlagðan skammt af bóluefni gegn Covid-19. Starfsmennirnir fjórir voru fluttir á sjúkrahús til að gæta allrar varúðar eftir að þeir fóru að finna fyrir flensulíkum einkennum.

Gaf eigur sínar í aðdraganda sprengingarinnar
Anthony Quinn Warner, sem sprengdi sig og húsbíl sinn í loft upp í Nashville á jóladag hafði breytt lífi sínu í aðdraganda sprengingarinnar. Þær breytingar þykja til marks um að hann hafi ekki ætlað sér að lifa sprenginguna af.

Skjálfti 6,3 að stærð í Króatíu
Jarðskjálfti 6,3 að stærð varð í Króatíu, um 46 kílómetrum suðaustur af höfuðborginni Zagreb um hádegisbil í dag.

Skipað að snúa aftur til Rússlands vegna skilorðs sem fellur úr gildi á morgun
Fangelsismálayfirvöld Rússlands hafa skipað Alexei Navalní að snúa aftur til Rússlands eða eiga á hættu að vera dæmdur til fangelsisvistar. Honum var gert að mæta á fund nú í morgun en fór ekki.

Lestarsamgöngur röskuðust vegna syrgjandi svans
Syrgjandi svanur olli því að lestarsamgöngur milli þýsku borganna Kassel og Göttingen röskuðust mikið í gærmorgun. Fella varð niður rúmlega tuttugu ferðir vegna fuglsins.

Gaf Demókrötum gullið tækifæri
Þingmenn á fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gærkvöldi frumvarp um að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun, en ekki 600 dali eins og til stendur. Donald Trump, fráfarandi forseti, hefur krafist þess á undanförnum dögum.