Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Obama formlega útnefndur sem forsetaefni Demókrata Barack Obama var formlega útnefndur sem forsetaefni Demókrataflokksins á flokksþinginu í Norður Karólínu í nótt að okkar tíma. 6.9.2012 06:47
Barstarfsmenn drekka óhóflega Starfsmenn veitingahúsa og bara í Svíþjóð eru líklegri til þess að drekka óhóflega mikið en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri sænskri rannsókn. 6.9.2012 06:00
Obama formlega útnefndur Barack Obama Bandaríkjaforseti mun í kvöld taka við útnefningu sem fulltrúi Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum. 6.9.2012 05:00
Of seint að tala um umbætur „Það er of seint að tala um umbætur, nú er tími kominn á breytingar,“ sagði Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, um ástandið í Sýrlandi, þar sem Bashar al Assad forseti reynir enn að berja niður uppreisn. Morsi segir að Assad ætti að draga lærdóm af nýlegri sögu, og vísaði þar til byltinga víða í arabaheiminum. 6.9.2012 04:00
Sjálfboðaliðum þakkað Hundruð manna mættu í gær til minningarathafnar um Sigrid Giskegjerde Schjetne, sex-tán ára stúlku sem fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún hvarf. 6.9.2012 03:00
Arafat verður grafinn upp Hópur franskra réttarmeinafræðinga heldur á næstu dögum til Ramallah á Vesturbakkanum í því skyni að grafa upp lík Jassers Arafats, sem lengi var helsti leiðtogi Palestínumanna. 6.9.2012 02:30
Slasaður eftir dvergflóðhest Dýragarðsvörður í Tékklandi var fluttur á sjúkrahús með þyrlu í gær eftir að hafa orðið fyrir árás dvergflóðhests. 6.9.2012 02:00
Hætta á flóðbylgju við Kosta Ríka og Panama Ekki hafa borist fregnir af stórfelldu tjóni eða mannfalli eftir að öflugur jarðskjálfti skóg norðvesturströnd Kosta Ríku í dag. Skjálftinn var 7.6 stig að stærð en upptök hans voru í um 140 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni San Jose. Upptök jarðskjálftans voru á rúmlega fjörutíu kílómetra dýpi. 5.9.2012 16:41
Auðkýfingur vill lægri laun í Ástralíu Hin ástralska Gina Rinehart, ein ríkasta kona veraldar, hefur valdið miklu fjaðrafoki í heimalandi sínu. Hún sagði á dögunum að Ástralíu væri of dýrt land og að Ástralar væru almennt séð duglausir. Þá fór hún einnig fram á að laun yrðu lækkuð í landinu. 5.9.2012 16:21
Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta við Kosta Ríku Jarðskjálfti af stærðinni 7,9 skók norðvesturströnd Kosta Ríku í dag. Skjálftinn varð um 50 mílur suður af Líberíu og var á 12,4 mílna dýpi. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út. 5.9.2012 15:18
Gufusprenging í kjarnorkuveri í Frakklandi Gufusprenging átti sér stað í Fessenheim kjarnorkuverinu í Frakkland fyrir skömmu. Lögreglan þar í landi hefur staðfest að tveir starfsmenn hafi slasast í sprengingunni. 5.9.2012 15:15
Árásarmennirnir völdu Sigrid af handahófi Ekki er talið að nein tengsl hafi verið á milli hinnar sextán ára gömlu norsku Sigridar og mannanna tveggja sem grunaðir eru um að hafa orðið henni að bana. Stúlkunnar hafði verið leitað í mánuð áður en hún fannst látin í fyrrakvöld. Norska lögreglan sagði á blaðamannafundi í dag að unnið væri eftir fjölmörgum tilgátum. Sú helsta væri að mennirnir hefðu valið fórnarlamb sitt af handahófi. 5.9.2012 14:34
FBI sakað um að njósna um viðskiptavini Apple Alríkislögreglan í Bandaríkjunum þvertekur fyrir að hafa njósnað um viðskiptavini Apple. Tölvuþrjótar birtu í gær notendanöfn og persónuupplýsingar rúmlega milljón Apple-notenda. Hópurinn heldur því fram að upplýsingarnar hafi verið teknar af fartölvu sem útsendari FBI notaði til að fylgjast með viðskiptavinum fyrirtækisins. 5.9.2012 11:36
Framandi spendýr ógna náttúru Evrópu Innreið spendýra á borð við villisvín, þvottabirni, bjór og snáldurmýs í Evrópu er mun umfangsmeiri en áður var talið. 5.9.2012 14:29
Flugeldaverksmiðja sprakk í Indlandi Rúmlega þrjátíu létust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju í suðurhluta Indlands í nótt. Hátt í tuttugu særðust, margir hverjir alvarlega. 5.9.2012 13:37
Meintir morðingjar neita sök Mennirnir tveir sem eru í haldi vegna hvarfs Sigridar Sjetne, norsku stúlkunnar sem fannst látin á mánudag eftir að hafa verið saknað í rúman mánuð, neita báðir sök og segjast báðir hafa fjarvistasannanir. 5.9.2012 12:00
Varðskip bjargaði tíu mönnum af skútu við Færeyjar Áhöfinni á færeyska varðskipinu Brimil tókst undir kvöld í gær að bjarga tíu manna áhöfn pólskrar skútu, sem rak stjórnlaust í stórsjó vestur af Færeyjum. 5.9.2012 06:45
Mikil umræða um "Bermúda þríhyrning" í Englandi Mikil umræða hefur skapast í Englandi um að þar sé til staðar svæði sem svipar til Bermúda þríhyrningsins svokallaða. 5.9.2012 06:30
Múslímskir harðlínumenn rústuðu bar í Túnis Hópur múslímska harðlínumanna, sem kallast Salafistar, réðist í fyrrinótt inn á hótel í bænum Sidi Bouzid í Túnis og lagði bar hótelsins í rúst. Ástæðan fyrir þessari árás var að áfengi var selt á barnum. 5.9.2012 07:12
Aðskilnaðarsinnar sigruðu í þingkosningum í Quebec Flokkur aðskilnaðarsinna var sigurvegari þingkosninganna í Quebec ríki í Kanada. 5.9.2012 07:00
Michelle Obama ræddi um bandaríska drauminn Michelle Obama forsetafrú Bandaríkjanna þótti standa sig vel í opnunarræðu sinni á flokksþingi Demókrataflokksins sem nú stendur yfir í Norður Karólínu. 5.9.2012 06:55
Barinn opinn öllum nemendum Læknafélag Danmerkur vill að unglingum undir lögaldri verði meinað að kaupa áfengi á barnum á skólaböllum. Samkvæmt könnun danska blaðsins Politiken leyfa sjö af hverjum tíu menntastofnunum fyrir unglinga á framhaldsskólaaldri öllum nemendunum að kaupa áfengi á skólaskemmtunum. 5.9.2012 05:00
Fannst látin í skógarlundi Lögreglan í Noregi staðfesti í gær að lík, sem fannst á mánudagskvöld í bænum Kolbotn, væri af Sigrid Giskegjerde Schjetne, sextán ára stúlku sem leitað hefur verið að í mánuð. 5.9.2012 04:00
Ræðast við fyrst í Noregi og síðar á Kúbu Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, tilkynnti í sjónvarpsávarpi í gær að formlegar friðarviðræður við FARC-skæruliðasamtökin væru að hefjast. 5.9.2012 03:00
Vandi flóttabarna frá Sýrlandi fer vaxandi UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, á Íslandi hefur í dag söfnun til styrktar neyðaraðgerðum til hjálpar sýrlenskum börnum í flóttamannabúðum í nágrannaríkjunum. 5.9.2012 02:00
Áhöfn skútunnar bjargað 10 manna áhöfn pólskrar skútu sem komst í hann krappan undan ströndum Færeyja hefur verið bjargað um borð í danska varðskipið Brimil. 4.9.2012 21:17
Staðfest að Sigrid er látin Stúlkan sem fannst látin í úthverfi Oslóar í Noregi í gærkvöld er Sigrid Schjetne. Lögreglan í Oslo staðfesti þetta á blaðamannafundi sem hófst nú klukkan fjögur. 4.9.2012 16:04
Harmleikur í Marokkó Að minnsta kosti fjörutíu og tveir létust þegar rúta rann niður í gil í Atlasfjöllum í Marokkó í nótt. 4.9.2012 16:01
Vírus sem drepur krabbamein - Lækning sett á ís Ódýr og fljótvirk meðferð við krabbameini er nú geymd í frystikistu sænska erfðafræðingsins Magnus Essand í háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum. Tilraunir á músum hafa gengið vonum framar. Því miður er ólíklegt að rannsóknir á mönnum hefjist á næstu árum. 4.9.2012 12:26
Hugsanlegt að lík sem fannst sé af Sigrid Ekki er útilokað að lík sem fundist hefur í Noregi sé af hinni sextán ára gömlu Sigrid Schjetne, sem leitað hefur verið að í um mánuð. Líkið fannst á bak í skógi á bakvið bensínstöð við Kolbotn. Lögreglan segir að á þessari stundu sé ekkert hægt að segja um kyn eða aldur þess sem líkið er af. 4.9.2012 10:24
Lífrænt ræktuð matvæli ekki hollari en þau hefðbundnu Ný samantekt á vegum vísindamanna við Stanford háskólann sýnir að lífrænt ræktuð matvæli eru ekki hollari mönnum en þau hefðbundnu. 4.9.2012 07:04
Kókaíndrottning Kólombíu skotin til bana í Medellin Griselda Blanco sem kölluð hefur verið kókaíndrottning Kólombíu var skotin til bana á götu úti í borginni Medellin í gærdag. 4.9.2012 06:50
Draugaskip vekur athygli í Bandaríkjunum Brakið úr gömlu strönduðu skipi undan strönd Alabama í Bandaríkjunum hefur vakið töluverða athygli en Bandaríkjamenn kalla þetta skip núna draugaskipið. 4.9.2012 06:36
Norska lögreglan boðar til blaðamannafundar vegna líkfundar Norska lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar vegna líkfundar í úthverfi Oslóar í gærkvöld. Nú eftir hádegið í dag var ekki orðið ljóst hvort umrætt lík er af Sigrid Schjetne sem saknað hefur verið frá því í byrjun ágúst. Jørn Kristian Jørgensen, hjá samskiptamiðstöð norsku lögreglunnar, segir að í dag muni fara fram vinna við að bera kennsl á líkið. 4.9.2012 14:30
Portúgalir biðja ESB um aðstoð vegna skógarelda Stjórnvöld í Portúgal hafa farið fram á aðstoð Evrópusambandsins vegna mikilla skógarelda sem geisa í mið- og norðurhluta landsins. 4.9.2012 06:45
Fleiri námuverkamenn urðu fyrir skotum lögreglu Fjórir námuverkamenn í Suður-Afríku særðust í gær þegar lögregla beitti bæði táragasi og gúmmískotum. Einn þeirra er alvarlega særður. 4.9.2012 03:00
Telur verkið nánast ómögulegt Sýrlenski herinn varpaði í gær sprengjum á bæinn al Bab, sem er skammt frá tyrknesku landamærunum. Árásirnar kostuðu að minnsta kosti 19 manns lífið. Átökin í landinu hafa kostað meira en 23 þúsund manns lífið frá því þau hófust snemma á síðasta ári. 4.9.2012 02:00
Harry grínast með sundlaugarpartíið Harry Bretaprins tekur sjálfan sig augljóslega ekki of hátíðlega því þegar hann kom í dag fram opinberlega í fyrsta sinn síðan myndir af honum berum í sundlaugarpartíi í Las Vegas fóru eins og eldur í sinu um fjölmiðla heimsins gerði hann grín að uppátækinu. 3.9.2012 21:28
Skógareldar við Los Angeles Slökkviliðsmenn í Los Angeles í Bandaríkjunum berjast nú við mikla skógarelda sem blossuðu upp í gær. Rúmlega 1.600 hektara svæði hefur orðið eldi að bráð en slökkviliðsmönnum hefur aðeins tekist að hemja um fimm prósent eldanna. 3.9.2012 16:27
Facebook-morðingi í ársfangelsi Fimmtán ára gamall piltur í Hollandi hefur verið dæmdur til eins árs betrunarvistar fyrir að hafa orðið 14 ára stúlku að bana. Aðdraganda morðsins má rekja til rifrildis á samskiptamiðlinum Facebook. 3.9.2012 15:22
Klettamyndanir á botni Eystrasaltsins - ekki geimskip Fyrirbærið sem hafrannsóknarmenn fundu á botni Eystrasaltsins í maí árið 2011 hefur heillað marga. Sumir halda því fram að aldagamalt geimskip liggi þar á hafsbotni meðan aðrir telja hlutinn vera leynivopn nasista frá seinni heimsstyrjöld. Hluturinn, sem er disklaga, er á stærð við Boeing 747 breiðþotu. 3.9.2012 14:52
Lést í sjóslysi á leið frá Íslandi Tæplega sjötugur karlmaður lést eftir að hann féll af skútu sinni vestur af strönd Nýfundnalands á laugardag. Maðurinn, sem var skurðlæknir og prófessor við Harvard háskóla, var á siglingu frá Íslandi til Bandaríkjanna þegar slysið varð, að því er fram kemur á vef CBC fréttastofunnar. Stormur og mikill öldugangur var þegar slysið varð. Fjölskylda mannsins, sem hét Ned Cabot, segir að hann hafi verið vanur siglingamaður og hafi oft ferðast milli Norður Ameríku og Evrópu og hafi þekkt strendur Nýfundnalands og Labrador mjög vel. 3.9.2012 14:01
Russell Crowe bjargað af strandgæslunni Strandgæsla Bandaríkjanna kom Íslandsvininum Russell Crowe til bjargar um helgina. Leikarinn var á kajaksiglingu ásamt félaga sínum við Long Island í New York þegar þeir villtust af leið. 3.9.2012 13:48
Átök harðna í Sýrlandi Að koma á friði milli stríðandi fylkinga í Sýrlandi er gífurlega erfitt verkefni. Þetta segir Lakhdar Brahimi, nýr erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins í Sýrlandi. Hann heimsækir landið á næstu dögum mun þá reyna að miðla málum milli uppreisnarmanna og stjórnvalda í Sýrlandi. 3.9.2012 13:09
Bruce Willis íhugar málshöfðun gegn Apple Bandaríski stórleikarinn Bruce Willis íhugar nú að höfða mál á hendur tæknirisanum Apple og vefversluninni iTunes. Willis, sem er mikill tónlistarunnandi, krefst þess að hann fái að ánafna fjölskyldu sinni tónlistarsafni sínu þegar hann geispar loks golunni. 3.9.2012 11:23