Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveggja mánaða prinsessa stal senunni á afmæli afa síns Lítil sænsk tveggja mánaða gömul prinsessa stal senunni í dag þegar Karl Gústaf Svíakóngur hélt upp á 66 ára afmælið sitt. Prinsessan litla er dóttir Viktoríu krónprinsessu. Þetta var í fyrsta skipti sem Viktoría sýnir hana opinberlega og krónprinsessan hélt sjálf á henni við það tækifæri á svölum konungshallarinnar. 30.4.2012 20:19
Dagbók Bin Ladens á Netið Gögn sem fundust á aðsetri Osama Bin Laden munu fara á Netið síðar í þessari viku, að því er sérfræðingur Hvíta hússins fullyrðir. Bandarískir hermenn lögðu hald á gögnin þegar ráðist var inn í virki Bin Ladens í Abbottabad í maí í fyrra og hann tekinn af lífi. Á gögnunum eru meðal annars útprent af samskiptum Bin Ladens við aðstoðarmenn hans og handskrifuð dagbók. Í gögnunum kemur meðal annars fram að Bin Laden hugðist breyta nafni al-Qaeda vegna þess að svo margir hátt settir menn innan samtakanna höfðu verið teknir af lífi. 30.4.2012 20:00
Guangcheng sagður vera í Peking Blindi andófsmaðurinn Chen Guangcheng, sem slapp úr stofufangelsi í síðustu viku, er sagður vera í bandaríska sendiráðinu í Peking. 30.4.2012 15:07
Ný aðferð við meðhöndlun krabbameins í brisi Breskir vísindamenn hafa þróað nýja aðferð við meðhöndlun krabbameins í brisi. Þessi tiltekna tegund krabbameins er afar mannskæð og er talið að færri en einn af hverjum fimm sem greinast með það séu á lífi ári eftir greiningu. 30.4.2012 14:46
Drukknaði þegar bíllinn fór á kaf Yfirvöld í Bretlandi óttast að mikil flóðatíð sé nú að hefjast í landinu. Síðustu daga hefur veður verið afar vindasamt og blautt á Bretlandseyjum og er óttast að ár fari brátt að flæða yfir bakka sína. 30.4.2012 14:09
IKEA gefur viðskiptavinum myndavél Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA hefur opinberað vistvæna myndavél sem fyrirtækið mun gefa viðskiptavinum sínum. Myndavélin er nær eingöngu gerð úr pappa. 30.4.2012 13:19
Ghanem drukknaði í Dóná Ekkert er sagt benda til þess að andlát Shukri Ghanem fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu hafi borið að með saknæmum hætti en lík hans fannst í Dóná í Vínarborg í gær. Að sögn lögreglu drukknaði Ghanem og enn sem komið er bendir ekkert til að hann hafi verið myrtur. 30.4.2012 13:49
Níu látnir eftir að eldingu laust niður í hof Níu létust og 15 særðust þegar eldingu laust niður í musteri í vestur Bengal á Indlandi í gær. 30.4.2012 13:39
Kínverjar skjóta gervitunglum á sporbraut um jörðu Geimferðastofnun Kína skaut tveimur gervitunglum á sporbraut um jörðu í nótt. Þannig eru yfirvöld í landinu komin skrefinu nær því að fullklára hnattrænt staðsetningarkerfi sitt. 30.4.2012 12:46
Mál al-Khawaja tekið fyrir á ný Mál stjórnarandstæðingsins Abdulhadi al-Khawaja verður tekið fyrir á ný af dómstólum í Barein. Abdulhadi, sem er danskur ríkisborgari, var dæmdur í lífstíðarfangelsi af herdómstól í Barein í júní á síðasta ári. 30.4.2012 12:27
Árásir halda áfram í Nígeríu Að minnsta kosti þrír létust í sprengjuárásum í norðaustur Nígeríu í dag. Árásin átti sér stað í bænum Jalingo og beindist hún að bílalest lögreglunnar. 30.4.2012 11:37
Danir orðnir drykkfelldari en Grænlendingar Danir njóta nú þess vafasama heiðurs að verða orðnir drykkfelldari en Grænlendingar. 30.4.2012 06:55
Rannsaka dauða yfir 500 pelikana á strönd í Perú Stjórnvöld í Perú eru nú að rannsaka dauða yfir 500 pelikana en hræ þeirra fundust á 70 kílómetra langri strandlengju í norðurhluta landsins. 30.4.2012 06:39
Eftirlitssveitir SÞ geta ekki stöðvað átökin í Sýrlandi Robert Mood yfirmaður eftirlitssveitar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Sýrlandi er ekki bjartsýnn á framtíðina. Hann segir að jafnvel 1.000 eftirlitsmenn muni ekki geta stöðvað átökin í landinu en Sameinuðu þjóðirnar áforma að senda 300 eftirlitsmenn til Sýrlands. 30.4.2012 06:34
Fjölskylda keypti 150 ára gamla kirkju og flytur brátt inn í hana Sænsk fjölskylda hefur keypt ríflega 150 ára gamla kirkju og hyggst brátt flytja inn í hana. 30.4.2012 06:27
Kristján hlaut ein af hinum eftirsóttu Reumert verðlaunum Kristján Ingimarsson eigandi og stjórnandi Neander leikhússins í Vordingborg í Danmörku hlaut ein af hinum eftirsóttu Reumert verðlaunum í gærkvöldi. 30.4.2012 06:20
Chen fer enn huldu höfði Mál kínverska andófsmannsins Chen Guangcheng flækir samskipti Bandaríkjanna og Kína, en fullyrt er að hann hafist við í sendiráði Bandaríkjanna í Peking. Chen slapp úr stofufangelsi á heimili sínu í þorpinu Dong-shigu. Ljóst þykir að hann hafi fengið hjálp þorpsbúa við flóttann, en hann er blindur. 30.4.2012 03:30
Fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu fannst látinn í Vín Fyrrverandi olíumálaráðherra Líbíu, Shukri Ghanem, fannst látinn í á í Vín í Austurríki í dag. Ghanem flúði Líbíu eftir að ástandið þar fór snöggversnandi, nokkrum mánuðum áður en uppreisnarmönnum tókst að fella Muammar Gaddafi. 29.4.2012 20:30
Ár liðið síðan Osama var drepinn - hryðjuverkastríðið heldur samt áfram Ár er liðið frá því að sérsveitir bandaríska hersins fundu og drápu hryðjuverkaleiðtogann Osama Bin Laden á felustað sínum í Pakistan. Sérfræðingar sem AP fréttastofan ræddi við segja að fráfall Bin Ladens dragi ekki úr hryðjuverkaógninni; enn sé óttast að Al Kaída reyni að ráðast á Bandaríkin. 29.4.2012 19:37
Erlendir ríkisborgarar geta ekki lengur farið á hasskaffihús í Hollandi Hollenskir dómstólar hafa úrskurðað að erlendir ríkisborgarar mega ekki kaupa og neyta kannabisefna á svokölluðum hasskaffihúsum í Hollandi. Landið er heimsfrægt fyrir umburðarlynda stefnu gagnvart kannabisnotkun þó það sé tæknilega séð ekki löglegt að neyta efnanna. 29.4.2012 14:00
Varað við flóðum í Bretlandi Bresk yfirvöld hafa varað við hugsanlegum flóðum í landinu vegna mikillar úrkomu en sérlega blautt og vindasamt verður á Bretlandseyjum næstu daga. 29.4.2012 13:29
Breskur læknir afhöfðaður í Pakistan Breskur læknir, sem hefur verið í haldi mannræningja frá því í janúar, fannst látinn í pakistönsku borginni Quetta í dag. 29.4.2012 13:01
Flugslys í Sviss - sex létust Sex létust þegar lítil flugvél fórst hálftíma eftir flugtak í nágrenni við þorpið Tatroz í vesturhluta Sviss í gærkvöldi. 29.4.2012 10:21
Enn engar sannanir um að farsímar hafi skaðleg áhrif á heilsu Enn hafa engar sannarnir sýnt fram á að farsímanotkun skaði heilsu fólks. Þetta segja breskir vísindamenn sem fóru yfir hundruð rannsókna á farsímanotkun sem gerðar hafa verið síðustu ár. Fjallað er um niðurstöður þeirra á vefsíðu breska ríkisútvarpsins, BBC. 29.4.2012 10:14
Alvarlegt rútuslys í Japan - voru á leiðinni í Disney-skemmtigarðinn Sjö létust og þrjátíu og átta slösuðust, þar af þrettán alvarlega, í rútuslysi í Japan í morgun. Slysið átti sér stað á hraðbraut fyrir norðan Tókíó en farþegarnir voru flestir á leið í Disney-skemmtigarðinn. 29.4.2012 10:09
Herskáir íslamistar réðust inn í háskóla í Nígeríu Byssumenn hafa ráðist á háskólann í nígerísku borginni Kano auk þess sem sprengjur hafa sprungið nærri háskólanum. Samkvæmt frétt BBC stendur árásin enn yfir en talið er að árásin beinist að kristnum stúdentum í skólanum. 29.4.2012 10:06
Mexíkósk kona laug að hún gengi með níbura Það var greint frá því í öllum helstu fjölmiðlum heims á fimmtudaginn að kona í Mexíkó ætti von á níburum. Þannig var greint frá því bæði á fréttavef okkar Vísi sem á RÚV og fleiri íslenskum fjölmiðlum að konan hefði gengist undir tæknifrjóvgun og ávöxturinn væru níu börn, sex stúlkur og þrír drengir. 28.4.2012 15:12
Skutu táragasi á mótmælendur í Malasíu Lögreglan í Malasíu skutu táragasi á mótmælendur og handtóku á þriðja hundrað manns eftir að tugir þúsunda mótmælenda komu saman í borginni Kuala Lumpur í dag. Mótmælin eru tilkomin vegna kosninga þar í landi sem verða í júní, en mótmælendur krefjast sanngjarna og frjálsra kosninga. Flokkur forsætisráðherra landsins, Najib Razak, hefur haldið um stjórnartaumana í landinu í nærri 55 ár. 28.4.2012 14:21
Ríkisstjórn Rúmeníu fallin Ríkisstjórn Rúmeníu er fallin eftir að vantraust á hana var samþykkt í rúmenska þinginu í gær. Þetta er í annað skipti á þessu ári sem ríkisstjórn í Rúmeníu fellur en stjórnin hafði einungis verið við völd í tæpa þrjá mánuði. 28.4.2012 10:20
Kínverskur andófsmaður flúði úr stofufangelsi Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hefur flúið úr stofufangelsi og er sagður í felum einhvers staðar í Peking. Embættismenn hófu strax ákafa leit að honum og beindu athyglinni í fyrstu að fjölskyldu hans. 28.4.2012 00:15
Nauðgað á skipi drottningar Tveir sjóliðar af dönsku drottningarsnekkjunni Dannebrog voru í gær dæmdir í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun, fyrir rétti í Nuuk. 28.4.2012 10:30
Gekk fagnandi út úr dómsal Pólitísk ólga magnaðist enn á ný í Pakistan eftir að hæstiréttur landsins sakfelldi Yousuf Raza Gilani forsætisráðherra fyrir að hafa sýnt dómstól lítilsvirðingu. 28.4.2012 08:00
Nú er hægt að uppfæra Facebook úr gröfinni Aðdáendum samskiptavefa býðst nú að birta uppfærslur og myndir eftir dauða sinn. Þjónustan er kölluð "DeadSocial“ og hefur nú þegar fengið fjölda nýskráninga. 27.4.2012 23:29
Tupac enn á ný kominn á vinsældarlista Rapparinn Tupac er enn á ný kominn á vinsældarlistana vestanhafs. Hann steig á svið á Coachella tónlistarhátíðinni fyrr í þessum mánuði, þrátt fyrir að hafa verið látinn í rúmlega 15 ár. 27.4.2012 22:00
Gíslatökumaðurinn yfirbugaður Lögreglumenn hafa handtekið karlmann á fimmtugsaldri sem tók fjóra menn í gíslingu í byggingu við Tottenham Court Road í miðborg Lundúna í dag. Leyniskyttur og fjölmargir lögreglumenn komu sér fyrir við bygginguna í dag og þá ræddu einnig sérþjálfaðir samningamenn við manninn í síma. Maðurinn mun hafa komið inn í umrædda byggingu og sagts vera reiður yfir því að hafa ekki fengið meirapróf á bíl. Hann hefði því ekkert að lifa fyrir. Samkvæmt Sky-fréttastofunni var maðurinn með gashylki utan á sér og hótaði að sprengja þau. 27.4.2012 15:25
Umsátur í Lundúnum Sprengjusérfræðingar og lögregla hafa tekið sér stöðu á Tottenham Court Road í miðborg Lundúna. Samkvæmt frásögnum af vettvangi hafa fjórir verið teknir í gíslingu í götunni sem er mjög fjölfarin. Maðurinn mun hafa komið inn í umrædda byggingu og sagst vera reiður yfir því að hafa ekki fengið meirapróf á bíl. Hann hefði því ekkert til að lifa fyrir. Kallað var til lögreglu þegar maðurinn fór að henda til tölvum, húsgögnum og blöðum. Síðan varð hann verulega ógnandi. 27.4.2012 12:53
Þrír handteknir vegna gruns um hryðjuverkaundirbúning Danska leyniþjónustan hefur handtekið þrjá unga menn sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverk í Danmörku. Jafnframt var lagt hald á hríðskotabyssur og skotfæri í þær. 27.4.2012 11:20
Ófrísk að níburum Mexíkósk kona hefur í nógu að snúast eftir að hún uppgötvaði að hún gengur með níbura. Helsta sjónvarpsstöð landsins, Televisa, sagði frá því í gær að konan, sem heitir Karla Vanessa Perez, gengur með sex stúlkur og þrjá drengi. Karla á von á sér 20. maí næstkomandi. Hún gekkst undir tæknifrjóvgun þegar hún varð ófrísk. 27.4.2012 11:13
Vara við siglingum með skemmtiferðaskipum á Norðurslóðum Breska utanríkisráðneytið hefur varað breska ferðamenn við því að sigla með skemmtiferðaskipum um Norðurslóðir. 27.4.2012 10:04
Aldrei hafa fleiri farist í vinnuslysum í Noregi en í fyrra Alls fórust 52 Norðmenn í vinnuslysum í fyrra og er það mesti fjöldi sem ferst í slíkum slysum í landinu frá upphafi. 27.4.2012 07:20
Úrskurðað um aðgang ferðamanna að hasskaffihúsum Dómari í Hollandi í dag mun kveða upp úrskurð um hvort banna eigi aðgang erlendra ferðamanna að svokölluðum hasskaffihúsum í landinu. 27.4.2012 07:08
Vændishneyksli leyniþjónustunnar vindur upp á sig Hneykslismálið í kringum leyniþjónustumennina sem sjá um öryggi Bandaríkjaforseta heldur áfram að vinda upp á sig. 27.4.2012 07:03
Mannréttindafrömuðir fagna dóminum yfir Taylor Mannréttindafrömuðir víða um heiminn hafa fagnað dóminum yfir Charles Taylor fyrrum leiðtoga Líberíu. 27.4.2012 07:01
Samið um fækkun hermanna á Okinawa eyju Japönsk og bandarísk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um að draga verulega úr fjölda bandarískra hermanna á Okinawa eyju. 27.4.2012 06:59
Tannlæknar segja munnskol geta verið hættulegt fyrir heilsuna Danskir tannlæknar hafa varað við því að dagleg notkun á munnskoli geti verið hættuleg heilsu manna. 27.4.2012 06:56