Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þúsundir krefjast réttlætis Dauði sautján ára blökkudrengs í Flórída í Bandaríkjunum heldur áfram að kalla fram hörð viðbrögð þar í landi. Pilturinn var á leið heim til sín með sælgæti sem hann hafði keypt sér þegar hann var skotinn til bana. Sá sem skaut hann var hvítur maður sem stýrði nágrannavörslu í hverfinu. Hann gengur enn laus og ber því fyrir sig að hafa verið að verja sig þrátt fyrir að pilturinn hafi verið óvopnaður. Þúsundir hafa mótmælt og krefjast réttlætis í málinu. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, steig svo fram í gær og sagði málið mikinn harmleik sem þyrftI að rannsaka betur. 24.3.2012 10:30
Jarðskjálfti í Ástralíu Jarðskjálfti upp á sex komma einn á richter skók ástralska jörð í morgun en þetta er stærsti skjálfti sem mælst hefur í landinu í um fimmtán ár. Upptök hans voru á um þriggja kílómetra dýpi og þrjúhundruð og sautján kílómetra suðvestur af borginni Alice Springs í Mið-Ástralíu. Skjálftinn olli engu tjóni en íbúar á svæðinu fundu vel fyrir honum. 24.3.2012 09:54
Obama vill láta rannsaka málið til hlítar „Ef ég ætti son, þá myndi hann líta út eins og Trayvon,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í gær. Þar með blandaði hann sér í umræðu um mikil hitamál í Bandaríkjunum, sem snýst um dráp á þeldökkum unglingspilti í bænum Sanford í Flórída í síðasta mánuði. 24.3.2012 03:00
Lögreglan efast um tengsl við al Kaída Franska lögreglan segist ekki hafa neina ástæðu til að halda að Mohammed Merah hafi verið í sambandi við hryðjuverkasamtökin al Kaída, hvað þá fengið skipanir frá þeim, jafnvel þótt hann hafi fullyrt það sjálfur. 24.3.2012 00:00
Evrópusambandið herðir tökin á sjóræningjum Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að herða tökin á sjóræningjum við Sómalíu. 23.3.2012 14:08
ESB setur eiginkonu Sýrlandsforseta í ferðabann Evrópusambandið ætlar að setja Asma al-Assad eiginkonu forseta Sýrlands í ferðabann og jafnframt eru uppi áform um að frysta allar eigur hennar innan Evrópusambandslanda. 23.3.2012 10:19
Tónlistarmenn í haldi án dóms Tónlistarmenn sem staðið hafa fyrir friðsömum mótmælum í Aserbaídsjan undanfarið hafa verið barðir og fangelsaðir. Tveir tónlistarmenn hafa verið í haldi frá 17. mars án aðkomu dómstóla fyrir móðgandi ummæli um látna móður forseta landsins. 23.3.2012 08:30
Breskir lögreglumenn vilja fá verkfallsrétt að nýju Breskir lögreglumenn vilja fá verkfallsrétt sinn aftur og hafa efnt til atkvæðagreiðslu um málið hjá meðlimum samtaka sinna í Englandi og Wales. 23.3.2012 07:20
Hjón fundu sjaldgæfa 6.000 ára gamla rafperlu Hjón sem voru á gangi eftir ströndinni við Tårs á Lálandi fundu afar sjaldgæfa útskorna rafperlu þar. Rafið er skorið út í líki lítils gullfisks en það er talið vera um 6.000 ára gamalt. 23.3.2012 07:03
Rigning á Titan á 1.000 ára fresti Nýja rannsókn sem unnin hefur verið úr gögnum frá Cassini geimfarinu sýna að það rignir á Titan einu af tungli Satrúnusar. 23.3.2012 07:00
Háværar kröfur um opinbera rannsókn á máli Merah Háværar kröfur eru uppi í Frakklandi um opinbera rannsókn á því af hverju leyniþjónusta landsins kom ekki í veg fyrir morðin sem Mohammed Merah framdi í Toulouse áður en hann var sjálfur felldur eftir umsátur sérsveitar lögreglunnar í gærmorgun. 23.3.2012 06:56
Kókaín fannst í blóði Whitney Houston Andlát söngkonunnar Whitney Houston var slys. Dánarorsökin liggur ljós fyrir, Houston drukknaði í baðkari á herbergi sínu á Beverley Hilton hótelinu í Los Angeles. 23.3.2012 06:51
Romney þokast nær sigrinum Mitt Romney er kominn langleiðina að því að tryggja sér útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Forvali er nú lokið í helmingi ríkjanna. Slagur repúblikana hefur verið afar langur og óvæginn, en Romney hefur smátt og smátt verið að bæta við sig kjörmönnum á flokksþingið í ágúst. Þar verður frambjóðandi flokksins útnefndur til að takast á við Barack Obama forseta. 23.3.2012 02:00
Herinn vildi fá öflugri vopn Amadou Toumani Toure, forseti Malí, komst heilu og höldnu undan þegar herinn í landinu gerði þar valdarán í fyrrinótt. Herinn tók á sitt vald helstu valdastofnanir landsins. 23.3.2012 01:00
Áhrif á kosningabaráttuna Mánuður er til forsetakosninga í Frakklandi og margt bendir til þess að voðaverk Mohammeds Merah séu strax farin að hafa áhrif á þær. 23.3.2012 00:00
Whitney Houston drukknaði í baði Krufning hefur leitt í ljós að dánarmein stórsöngkonunnar Whitney Houston var drukknun. Svo vriðist sem hún hafi drukknað í baðkarinu þar sem hún fannst þann 11. febrúar síðastliðinn. Það er BBC sem greinir frá þessu. 22.3.2012 22:05
Leyniskytta felldi Merah Fjöldamorðinginn Mohammed Merah lést eftir að leyniskytta skaut hann í höfuðið. Saksóknari staðfesti þetta fyrir stuttu. 22.3.2012 16:05
Dramatík í Toulouse - skaut að sérsveitarmönnum og stökk út Umsátrinu í Toulouse er nú lokið og fjöldamorðinginn Mohammed Merah er látinn. Innanríkisráðherra Frakklands, Claude Gueant, staðfesti þetta fyrir skömmu og gaf nánari útlistun á atburðarrásinni. 22.3.2012 12:28
Tölvuglæpir urðu að pólitísku andófi á síðasta ári Aðgerðarsinnar stálu mun meira af gögnum frá stórfyrirtækjum á síðasta ári en tölvuþrjótar. Fjarskiptafyrirtækið Verizon hefur birt niðurstöður rannsóknar þar sem rýnt var í fjölda tölvuárása og skaðsemi þeirra. 22.3.2012 13:25
Komst undan með klinkhaug Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þungar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þúsund danskra króna, í smámynt. 22.3.2012 11:00
Frönsk sérsveit felldi fjöldamorðingjann í Toulouse Fjöldamorðinginn Mohammed Merah féll í árás sérsveitar frönsku lögreglunnar inn í íbúð hans í borginni Toulouse fyrir nokkrum mínútum. Þar með lauk yfir 30 klukkustunda umsátri lögreglunnar um íbúðina. 22.3.2012 10:45
Lögreglan ræðst inn í íbúð fjöldamorðingjans í Toulouse Þær fréttir berast nú að franska lögreglan hafi látið til skarar skríða gegn Mohammed Merah fjöldamorðingjanum sem hefur verið umkringdur í borginni Toulouse í 30 klukkustundir. Lögeglan vill þó ekki staðfesta þetta. 22.3.2012 10:17
Hafði verið látinn í 3 mánuði 62 ára enskur maður sem bjó á Írlandi fannst látinn í íbúð sinni í gær. Hann hafði verið látinn frá því um jól án þess að nokkur gerði sér grein fyrir því. 22.3.2012 10:00
NASA finnur vísbendingar um ís á Merkúr Geimskip frá NASA, geimferðarstofnun Bandaríkjanna, hefur fundið vísbendingar um að ís sé að finna við norður- og suðurskaut pláneturnnar Merkúrs. 22.3.2012 07:28
Náðist eftir sjö ár á flótta frá lögreglunni í Ástralíu Lögreglunni í Ástralíu tókst loks að hafa hendur í hári Malcolm Naden en hann hefur verið á flótta undan lögreglunni undanfarin sjö ár. 22.3.2012 07:24
Uppreisnarmenn taka völdin í Mali Uppreisnarmenn úr röðum stjórnarhersins í vesturafríkuríkinu Mali hafa tekið völdin í landinu. 22.3.2012 07:09
Jeb Bush styður Mitt Romney Mitt Romney náði mikilvægum áfanga í gærdag í baráttu sinni um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins. Þá ákvað Jeb Bush hinn áhrifamikli ríkisstjóri Flórída að styðja Romney og hvatti jafnframt alla Repúblikana til að gera hið sama. 22.3.2012 07:01
Umsátrið í Toulouse stendur enn Umsátrið um fjölbýlishúsið í Toulouse þar sem fjöldamorðinginn Mohammed Merah heldur sig stendur enn sólarhing eftir að það hófst. 22.3.2012 06:55
Sakaður um fjöldamorð og árásir á borgara Yfirvöld í Máritaníu ætla að framselja Abdullah al-Senoussi, fyrrverandi samstarfsmann Gaddafís, til Líbíu, þar sem réttað verður yfir honum. 22.3.2012 02:00
Bretar lækka hátekjuskattinn Hátekjuskattur í Bretlandi verður lækkaður úr 50 prósentum í 45 prósentum fyrir apríl á næsta ári. George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, greindi meðal annars frá þessu þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið í gær. 22.3.2012 01:00
46 drepnir í árásum í Írak Al-Kaída hefur lýst sprengjuárásum í átta borgum í Írak á hendur sér. Minnst 46 létust í árásunum í fyrradag, en þeim var beint gegn lögreglunni og sjíta-múslimum. 22.3.2012 00:00
Merah ætlaði að myrða aftur Innanríkisráðuneyti Frakklands tilkynnti fyrir stuttu að Mohammed Merah, sem grunaður er um hrynu ódæðisverka í suðurhluta Frakklands, hafi lagt á ráðin um að myrða tvö lögregluþjóna og hermann í borginni Toulouse. 21.3.2012 16:39
Öryggisráðið samþykkir áætlun Kofi Annans Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti áætlun Kofi Annans varðandi ástandið í Sýrlandi í dag. 21.3.2012 16:00
Umsátursástand ríkir enn í Toulouse Innanríkisráðherra Frakklands sagði fyrir stuttu að meintur fjöldamorðingi hafi ekki verið handsamaður af lögreglu í Toulouse. Umsátursástand ríkir enn við fjölbýlishús þar sem maðurinn heldur til. 21.3.2012 14:17
Fjöldamorðinginn ætlar að birta myndbönd af morðunum í dag Meintur fjöldamorðingi sem nú hefur verið króaður af í fjölbýlishúsi í borginni Toulouse í Frakklandi hafði samband við fréttastofuna France 24 í nótt. Maðurinn lýsti yfir ábyrgð á morðunum við blaðamann og sagðist hafa myndað ódæðin. 21.3.2012 11:59
Meintur fjöldamorðingi ætlar að gefast upp seinna í dag Hinn meinti fjöldamorðingi sem franska lögreglan hefur umkringt í fjölbýlishúsi í borginni Toulouse segir að hann muni gefast upp fyrir lögreglunni síðar í dag. 21.3.2012 10:12
Romney vann stórsigur í Illinois Mitt Romney vann stórsigur í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Illinois. Romney hlaut 47% atkvæða en helsti keppninautur hans, Rick Santorum, hlaut 35% atkvæða. Ron Paul hlaut 9% en Newt Gingrich hafnaði síðastur með aðeins 7% atkvæða. 21.3.2012 06:53
Fjöldamorðinginn umkringdur af lögreglu í Toulouse Sérsveit frönsku lögreglunnar hefur staðið í skotbardaga í nótt við húsi í úthverfi Toulouse en þar býr maður sem grunaður er um aðild að skotárásinni á gyðingaskóla í borginni fyrr í vikunni. Búið er að handtaka bróður mannsins en tveir lögreglumenn munu hafa særst í bardaganum. 21.3.2012 06:39
Rúm 60% Breta vilja verja Falklandseyjar hvað sem það kostar Nú skoðanakönnun sýnir að 61 prósent Breta vilja að breski herinn verji Falklandseyjar, hvað sem það kostar, ef Argentínumenn ætla að leggja eyjarnar undir sig á ný. 21.3.2012 07:29
Feneyjaborg heldur áfram að sökkva Nýjar gervihnattamælingar sýna að Feneyjaborg á Ítalíu heldur áfram að sökkva en frekar lítið milli ára eða um tvo millimetra. 21.3.2012 07:26
Öflugur jarðskjálfti reið yfir suðurhluta Mexíkó Öflugur jarðskjálfti sem mældist 7,4 stig á Richter reið yfir suðurhluta Mexíkó í gærkvöldi. Upptök skjálftans voru í Guerrero héraðinu en íbúar Mexíkóborgar fundu einnig vel fyrir honum. 21.3.2012 06:57
Franski fjöldamorðinginn handtekinn Umsátursástandinu við fjölbýlishús í borginni Toulouse í Frakklandi er lokið. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu var hinn 23 ára gamli Mohammed Merah handtekinn fyrir stuttu. 21.3.2012 13:36
Öflugur skjálfti í Mexíkó Jarðskjálfti upp á 7,6 á richter reið yfir nærri Mexíkó borg á sjöunda tímanum í kvöld. Samkvæmt Boston Herald flýðu starfsmenn háhýsa í ofboði út á götur þar sem háhýsin sveifluðust í sterkum skjálftanum sem var langur, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum. 20.3.2012 18:54
Rússar munu styðja ályktun Öryggisráðsins Yfirvöld í Rússlandi tilkynntu í dag að þau muni styðja ályktun Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna um sendiferð Kofi Annans til Sýrlands. 20.3.2012 15:46
Mikið mannfall í Írak eftir röð sprengjuárása Röð sprengjuárása í Írak kostaði 45 manns lífið í dag. Að minnsta kosti 13 létust þegar tvær bílasprengjur sprungu í borginni Kerbala. 20.3.2012 14:46