Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eitt versta rútuslys í Bretlandi í áratug Einn lést og fjörutíu slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar vörubíll og rúta skullu saman á hraðbraut í miðhéruðum Englands í morgun. 24.3.2012 12:12
Bróðir fjöldamorðingjans með sprengiefni í bíl sínum Abdelkader Merah, eldri bróðir fjöldamorðingjans Mohamed Merah, sem myrti sjö manns á síðustu vikum í Toulouse í Frakklandi, er í haldi lögreglu ásamt kærustu sinni. Móður þeirra hefur verið sleppt en fjölskyldan var handtekin stuttu eftir að Merah játaði að hafa framið voðaverkin. 24.3.2012 11:04
Þúsundir krefjast réttlætis Dauði sautján ára blökkudrengs í Flórída í Bandaríkjunum heldur áfram að kalla fram hörð viðbrögð þar í landi. Pilturinn var á leið heim til sín með sælgæti sem hann hafði keypt sér þegar hann var skotinn til bana. Sá sem skaut hann var hvítur maður sem stýrði nágrannavörslu í hverfinu. Hann gengur enn laus og ber því fyrir sig að hafa verið að verja sig þrátt fyrir að pilturinn hafi verið óvopnaður. Þúsundir hafa mótmælt og krefjast réttlætis í málinu. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, steig svo fram í gær og sagði málið mikinn harmleik sem þyrftI að rannsaka betur. 24.3.2012 10:30
Jarðskjálfti í Ástralíu Jarðskjálfti upp á sex komma einn á richter skók ástralska jörð í morgun en þetta er stærsti skjálfti sem mælst hefur í landinu í um fimmtán ár. Upptök hans voru á um þriggja kílómetra dýpi og þrjúhundruð og sautján kílómetra suðvestur af borginni Alice Springs í Mið-Ástralíu. Skjálftinn olli engu tjóni en íbúar á svæðinu fundu vel fyrir honum. 24.3.2012 09:54
Obama vill láta rannsaka málið til hlítar „Ef ég ætti son, þá myndi hann líta út eins og Trayvon,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í gær. Þar með blandaði hann sér í umræðu um mikil hitamál í Bandaríkjunum, sem snýst um dráp á þeldökkum unglingspilti í bænum Sanford í Flórída í síðasta mánuði. 24.3.2012 03:00
Lögreglan efast um tengsl við al Kaída Franska lögreglan segist ekki hafa neina ástæðu til að halda að Mohammed Merah hafi verið í sambandi við hryðjuverkasamtökin al Kaída, hvað þá fengið skipanir frá þeim, jafnvel þótt hann hafi fullyrt það sjálfur. 24.3.2012 00:00
Yfirvöld í Kasakstan æf eftir að rangur þjóðsöngur var spilaður Kolrangur þjóðsöngur ómaði á skotfimikeppni í Kúveit þegar lið Kasakstan tók við gullverðlaunum. Yfirvöld í Kasakstan eru æf vegna málsins en mótshaldarar spiluðu spiluðu útgáfu Borats á þjóðsöngnum. 23.3.2012 23:00
Unglingur fær ekki að bjóða klámmyndastjörnu á dansleik Átján ára gamall nemandi í Bandaríkjunum sem bauð 600 klámstjörnum að fylgja sér á lokadansleik fær ekki að mæta á ballið með þeirri sem þáði boðið. 23.3.2012 22:30
Hermaður kom heim frá Afganistan í gervi Captain America Ungur piltur í Bandaríkjunum rak upp stór augu þegar Captain American bankaði að dyrum á afmælisdegi hans. Maðurinn á bak við grímuna reyndist síðan vera faðir piltsins sem var nýkominn heim frá Afganistan. 23.3.2012 22:00
Hollendingurinn fljúgandi reyndist vera gabb Maður sem birti ótrúlegt myndskeið á vefsíðunni YouTube fyrir stuttu hefur nú viðurkennt að um blekkingu hafi verið að ræða. Myndskeiðið vakti gríðarlega athygli og hafa fjölmiðlar víða um heim fjallað um það. 23.3.2012 22:00
Bollywood Bond bannaður í Pakistan Indverska kvikmyndin Agent Vinod hefur verið bönnuð í Pakistan. Kvikmyndin fjallar um sjarmerandi spæjara sem reynir að koma í veg fyrir að pakistanskir hryðjuverkamenn sprengi kjarnorkusprengju í Nýju-Delí. 23.3.2012 21:30
Evrópusambandið herðir tökin á sjóræningjum Stjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að herða tökin á sjóræningjum við Sómalíu. 23.3.2012 14:08
ESB setur eiginkonu Sýrlandsforseta í ferðabann Evrópusambandið ætlar að setja Asma al-Assad eiginkonu forseta Sýrlands í ferðabann og jafnframt eru uppi áform um að frysta allar eigur hennar innan Evrópusambandslanda. 23.3.2012 10:19
Tónlistarmenn í haldi án dóms Tónlistarmenn sem staðið hafa fyrir friðsömum mótmælum í Aserbaídsjan undanfarið hafa verið barðir og fangelsaðir. Tveir tónlistarmenn hafa verið í haldi frá 17. mars án aðkomu dómstóla fyrir móðgandi ummæli um látna móður forseta landsins. 23.3.2012 08:30
Breskir lögreglumenn vilja fá verkfallsrétt að nýju Breskir lögreglumenn vilja fá verkfallsrétt sinn aftur og hafa efnt til atkvæðagreiðslu um málið hjá meðlimum samtaka sinna í Englandi og Wales. 23.3.2012 07:20
Hjón fundu sjaldgæfa 6.000 ára gamla rafperlu Hjón sem voru á gangi eftir ströndinni við Tårs á Lálandi fundu afar sjaldgæfa útskorna rafperlu þar. Rafið er skorið út í líki lítils gullfisks en það er talið vera um 6.000 ára gamalt. 23.3.2012 07:03
Rigning á Titan á 1.000 ára fresti Nýja rannsókn sem unnin hefur verið úr gögnum frá Cassini geimfarinu sýna að það rignir á Titan einu af tungli Satrúnusar. 23.3.2012 07:00
Háværar kröfur um opinbera rannsókn á máli Merah Háværar kröfur eru uppi í Frakklandi um opinbera rannsókn á því af hverju leyniþjónusta landsins kom ekki í veg fyrir morðin sem Mohammed Merah framdi í Toulouse áður en hann var sjálfur felldur eftir umsátur sérsveitar lögreglunnar í gærmorgun. 23.3.2012 06:56
Kókaín fannst í blóði Whitney Houston Andlát söngkonunnar Whitney Houston var slys. Dánarorsökin liggur ljós fyrir, Houston drukknaði í baðkari á herbergi sínu á Beverley Hilton hótelinu í Los Angeles. 23.3.2012 06:51
Romney þokast nær sigrinum Mitt Romney er kominn langleiðina að því að tryggja sér útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Forvali er nú lokið í helmingi ríkjanna. Slagur repúblikana hefur verið afar langur og óvæginn, en Romney hefur smátt og smátt verið að bæta við sig kjörmönnum á flokksþingið í ágúst. Þar verður frambjóðandi flokksins útnefndur til að takast á við Barack Obama forseta. 23.3.2012 02:00
Herinn vildi fá öflugri vopn Amadou Toumani Toure, forseti Malí, komst heilu og höldnu undan þegar herinn í landinu gerði þar valdarán í fyrrinótt. Herinn tók á sitt vald helstu valdastofnanir landsins. 23.3.2012 01:00
Áhrif á kosningabaráttuna Mánuður er til forsetakosninga í Frakklandi og margt bendir til þess að voðaverk Mohammeds Merah séu strax farin að hafa áhrif á þær. 23.3.2012 00:00
Innbyrti 180 poka af heróíni Rúmlega fimmtug kona var handtekinn á flugvellinum í Dulles í Bandaríkjunum eftir að hún reyndi að smygla 2.3 kílóum af heróíni inn í landið. 22.3.2012 23:30
Risavaxinn málmbútur féll til jarðar í Síberíu Rúmlega 200 kílóa málmbútur féll til jarðar í Síberíu fyrr í vikunni. Samkvæmt fjölmiðlum í Rússlandi eru sérfræðingar á vegum rússnesku geimferðastofnunarinnar að rannsaka hlutinn. 22.3.2012 23:00
Apache herþyrla hrapaði í Afganistan Ótrúlegt myndskeið sem sýnir bandaríska Apache herþyrlu hrapa í Afganistan birtist á vefsíðunni YouTube í dag. 22.3.2012 22:30
Tæplega níræður maður grunaður um líknardráp Tæplega níræður maður var handtekinn á þriðjudaginn í San Diego í Bandaríkjunum. Hann er grunaður um að hafa orðið valdur að dauða eiginkonu sinnar. 22.3.2012 22:00
Whitney Houston drukknaði í baði Krufning hefur leitt í ljós að dánarmein stórsöngkonunnar Whitney Houston var drukknun. Svo vriðist sem hún hafi drukknað í baðkarinu þar sem hún fannst þann 11. febrúar síðastliðinn. Það er BBC sem greinir frá þessu. 22.3.2012 22:05
Leyniskytta felldi Merah Fjöldamorðinginn Mohammed Merah lést eftir að leyniskytta skaut hann í höfuðið. Saksóknari staðfesti þetta fyrir stuttu. 22.3.2012 16:05
Dramatík í Toulouse - skaut að sérsveitarmönnum og stökk út Umsátrinu í Toulouse er nú lokið og fjöldamorðinginn Mohammed Merah er látinn. Innanríkisráðherra Frakklands, Claude Gueant, staðfesti þetta fyrir skömmu og gaf nánari útlistun á atburðarrásinni. 22.3.2012 12:28
Tölvuglæpir urðu að pólitísku andófi á síðasta ári Aðgerðarsinnar stálu mun meira af gögnum frá stórfyrirtækjum á síðasta ári en tölvuþrjótar. Fjarskiptafyrirtækið Verizon hefur birt niðurstöður rannsóknar þar sem rýnt var í fjölda tölvuárása og skaðsemi þeirra. 22.3.2012 13:25
Komst undan með klinkhaug Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þungar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þúsund danskra króna, í smámynt. 22.3.2012 11:00
Frönsk sérsveit felldi fjöldamorðingjann í Toulouse Fjöldamorðinginn Mohammed Merah féll í árás sérsveitar frönsku lögreglunnar inn í íbúð hans í borginni Toulouse fyrir nokkrum mínútum. Þar með lauk yfir 30 klukkustunda umsátri lögreglunnar um íbúðina. 22.3.2012 10:45
Lögreglan ræðst inn í íbúð fjöldamorðingjans í Toulouse Þær fréttir berast nú að franska lögreglan hafi látið til skarar skríða gegn Mohammed Merah fjöldamorðingjanum sem hefur verið umkringdur í borginni Toulouse í 30 klukkustundir. Lögeglan vill þó ekki staðfesta þetta. 22.3.2012 10:17
Hafði verið látinn í 3 mánuði 62 ára enskur maður sem bjó á Írlandi fannst látinn í íbúð sinni í gær. Hann hafði verið látinn frá því um jól án þess að nokkur gerði sér grein fyrir því. 22.3.2012 10:00
NASA finnur vísbendingar um ís á Merkúr Geimskip frá NASA, geimferðarstofnun Bandaríkjanna, hefur fundið vísbendingar um að ís sé að finna við norður- og suðurskaut pláneturnnar Merkúrs. 22.3.2012 07:28
Náðist eftir sjö ár á flótta frá lögreglunni í Ástralíu Lögreglunni í Ástralíu tókst loks að hafa hendur í hári Malcolm Naden en hann hefur verið á flótta undan lögreglunni undanfarin sjö ár. 22.3.2012 07:24
Uppreisnarmenn taka völdin í Mali Uppreisnarmenn úr röðum stjórnarhersins í vesturafríkuríkinu Mali hafa tekið völdin í landinu. 22.3.2012 07:09
Jeb Bush styður Mitt Romney Mitt Romney náði mikilvægum áfanga í gærdag í baráttu sinni um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins. Þá ákvað Jeb Bush hinn áhrifamikli ríkisstjóri Flórída að styðja Romney og hvatti jafnframt alla Repúblikana til að gera hið sama. 22.3.2012 07:01
Umsátrið í Toulouse stendur enn Umsátrið um fjölbýlishúsið í Toulouse þar sem fjöldamorðinginn Mohammed Merah heldur sig stendur enn sólarhing eftir að það hófst. 22.3.2012 06:55
Sakaður um fjöldamorð og árásir á borgara Yfirvöld í Máritaníu ætla að framselja Abdullah al-Senoussi, fyrrverandi samstarfsmann Gaddafís, til Líbíu, þar sem réttað verður yfir honum. 22.3.2012 02:00
Bretar lækka hátekjuskattinn Hátekjuskattur í Bretlandi verður lækkaður úr 50 prósentum í 45 prósentum fyrir apríl á næsta ári. George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, greindi meðal annars frá þessu þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið í gær. 22.3.2012 01:00
46 drepnir í árásum í Írak Al-Kaída hefur lýst sprengjuárásum í átta borgum í Írak á hendur sér. Minnst 46 létust í árásunum í fyrradag, en þeim var beint gegn lögreglunni og sjíta-múslimum. 22.3.2012 00:00
Óreyndur skógarhöggsmaður misreiknaði sig Óreyndu skógarhöggsmaður misreiknaði sig þegar hann reyndi að fella risavaxið barrtré í garði sínum. Tréð féll á húsið hans og til að bæta gráu ofan á svart náðist atvikið á myndband og var sett á vefsíðuna YouTube. 21.3.2012 23:30
Langvinnt umsátur um fjöldamorðingja - lögreglan leggur til atlögu Franska lögreglan hefur lagt til atlögu við heimili fjöldamorðingjans Mohamed Merah. Þrjár sprenginar heyrðust fyrir stundu að því er Reuters greinir frá. 21.3.2012 22:41
Tíu ára gömul og heimsmethafi í kraftlyftingum Tíu ára gömul stúlka í Bandaríkjunum hefur slegið heimsmet í kraftlyftingum. Hún lyfti rúmlega tvöfaldri líkamsþyngd sinni eða tæpum 100 kílóum. 21.3.2012 22:30