Fleiri fréttir

Hver var Matti Juhani Saari?

Til að sjá var hann ósköp venjulegur ungur maður. En undir niðri var eitthvað skelfilegt að gerast hjá Matta Juhani Saari.

Múslimar í fjöldagröf

Meinafræðingar segjast hafa fundið jarðneskar leifar 362 múslima sem voru myrtir í Srebrenica fjöldamorðunum í Bosníu árið 1995.

Minningarkerti við iðnskólann í Kauhajoki strax á fimmtudag

Komið hefur í ljós að einhver kveikti á minningarkerti við iðnskólann í Kauhajoki í Finnlandi á fimmtudag og leiddi það meðal annars til þess að lögregla kallaði Matti Saari, sem myrti tíu manns í gær, til yfirheyrslu. Frá þessu greinir Huvudstadbladet og hefur eftir lögreglustjóranum.

Morðtilraun vegna Da Vinci lykilsins

Tuttugu og fimm ára maður sem reyndi að myrða prest með hnífi í kirkju í Róm, sagði lögreglunni að hann hefði talið sig vera andKristur

Kjarnorkueftirlitsmenn reknir á braut

Norður-Kóreumenn hafa rofið innsigli Alþjóða kjarnorkustofnunarinnar á helsta kjarnorkuveri sínu og skipað eftirlitsmönnum á braut.

Fellibylur gengur á land í Kína

Átta eru látnir og að minnsta kosti 15 er saknað á Fillipseyjum eftir að fellibylurinn Hagupit gekk þar yfir á síðasta sólarhring.

Danskar konur sólgnar í klám

Danskar konur kaupa og horfa á klámefni í stórauknum mæli. Þessu halda klámbúðaeigendur þar í landi fram og hafa reiknað út að konur og pör kaupi fjórðung þess klámefnis sem þeir selja.

Ruth Kelly segir af sér

Breski samgönguráðherrann Ruth Kelly hefur sagt af sér og lætur af embætti sínu í næstu viku. Heimildir breska blaðsins Telegraph herma að afsögn Kelly sé af persónulegum ástæðum en ekki vegna ágreinings við Gordon Brown forsætisráðherra.

McCain leiðbeinir þinginu í efnahagsmálum

Öldungadeildarþingmaðurinn og forsetaframbjóðandinn John McCain hvetur bandaríska þingið til að fara að ráðum hans og taka viðauka í fimm liðum inn í björgunaráætlun stjórnarinnar sem ætlað er að koma bandarísku hagkerfi til bjargar á ögurstundu.

Finnar íhuga breytt vopnalög

Finnar íhuga nú að breyta lögum um aðgengi almennings að skotvopnum í kjölfar atburðanna í Kauhajoki í gær þegar 22 ára gamall iðnskólanemi skaut tíu manns til bana og stytti sér svo aldur.

Ellefu ráðherrar segja af sér í S-Afríku

Ellefu ráðherrar og aðstoðarráðherrar í ríkisstjórn Suður-Afríku hafa ákveðið að segja af sér í kjölfarið þess á Thabo Mbeki tilkynnti að hann ætlar að láta af embætti forseta landsins næstkomandi fimmtudag.

Sorgin hvílir yfir Kauhajoki

Fjöldi manns kom saman bæði á götum úti og í kirkju í Kauhajoki í kvöld til þess að minast þeirra sem féllu í skotárás ungs manns í iðnskóla í bænum í morgun.

Segja haferni hirða lömb í stórum stíl

Skoskir sauðfjárbændur eru æfir yfir endurreisn hafarnarstofnsins í norðvesturhluta landsins. Þeir segja að ernirnir hafi drepið yfir 200 lömb á síðustu tólf mánuðum eða svo.

Fjöldamorð í Brasilíu

Þúsundir manna falla árlega í valinn í valdastríði eiturlyfjaframleiðenda víðsvegar um heiminn. Ekki er það síst í Suður-Ameríku.

Brown hlaðinn lofi eftir ræðu á landsfundi

Þingmenn og ráðherrar breska Verkamannaflokksins keppast við að hlaða lofi á George Brown forsætisráðherra sinn, eftir ræðu sem hann flutti á landsfundi flokksins í dag.

Finnski byssumaðurinn látinn - Tíunda fórnarlambið einnig

Finnski nemandinn sem skaut fólk til bana í skóla sínum í dag er látinn af skotsári sem hann veitti sér sjálfur. Hann hét Matti Juhani Saari og var 22 ára gamall. Finnska ríkisútvarpið skýrði frá því fyrir stundu að hann hefði látist á sjúkrahúsi.

Níutíu skólabörnum rænt í Kongó

Hinn svokallaði Andspyrnuher Guðs í Úganda hefur rænt níutíu skólabörnum í Congo. Óttast er að þau verði neydd til þess að gerast hermenn.

Fyrrverandi ástkona McCains dúkkar upp í Brasilíu

Sjötíu og sjö ára kona í Brasilíu hefur komist í kastljós fjölmiðla þar í landi eftir að upp komst að hún hefði átt í ástarsambandi við John McCain, forsetaframbjóðanda repúblikana í Bandaríkjunum.

Vel sloppið frá flugslysi

Sextíu manns sluppu með skrámur og marbletti þegar farþegaþotu af gerðinni Fokker F28 hlekktist á í flugtaki frá Quito höfuðborg Ekvadors í gær.

Byssumaður var yfirheyrður vegna YouTube myndbanda í gær

Finnska ríkisstjórnin hefur staðfest að maðurinn sem sést á myndböndum á YouTube skjóta af skammbyssu sé sá sem lét til skarar skríða í iðnskóla í bænum Kauhajoki í Finnlandi í morgun. Hann myrti níu manns sem allir eru sagði nemendur við skólann.

Níu látnir í skotárás í Finnlandi - Byssumaðurinn á lífi

Matti Lehto, yfirlæknir á Háskólasjúkrahúsinu í Tampere, sagði í samtali við Vísi fyrir nokkrum mínútum að maðurinn sem skaut á samnemendur sína í skólanum í Kauhajoki sé kominn á sjúkrahúsið og sé á lífi. Hann er þó í bráðri lífshættu eftir að hann gerði tilraun til að stytta sér aldur í kjölfar ódæðisins.

Pabbi Knúts fannst látinn

Pabbi hvítabjarnarins Knúts er látinn í Þýskalandi. Thomas Dörflein sem var 44 ára gamall fannst látinn í íbúð sinni.

Fjölmargir sagðir látnir og hátt í 20 særðir -myndband

Óttast er að einhverjir séu látnir og hópur særður eftir að ungur maður gekk berserksgang og skaut af byssu í iðnskóla í Kauhajoki í vesturhluta Finnlands í morgun. Maðurinn mun svo hafa svipt sig lífi, að sögn bæjarstjórans í Kauhajoki.

Skotárás í iðnskóla í Finnlandi

Óttast er að einhverjir séu látnir og hópur særður eftir að ungur maður gekk berserksgang og skaut af byssu í iðnskóla í Kauhajoki í vesturhluta Finnlands í morgun.

Brown vill netaðgang handa skólabörnum

Öll bresk skólabörn eiga að hafa netaðgang á heimilum sínum. Þetta sagði forsætisráðherrann Gordon Brown í þingræðu í gær og til að ná þessu markmiði hyggst hann eyrnarmerkja breskum heimilum sem svarar tæpum 50 milljörðum króna.

Bandaríkjamenn ferðast minna

Bandarískir ferðaþjónustuaðilar sjá ekki fram á betri tíð með blóm í haga alveg á næstunni en bandarískur almenningur sker nú ferðalög sín niður sem aldrei fyrr.

BA hættir flugi til Pakistan

Breska flugfélagið British Airways hefur hætt öllu flugi til og frá Pakistan um óákveðinn tíma í kjölfar sprengjuárásarinnar á Marriott-hótelið í Islamabad, höfuðborg landsins, á laugardaginn.

Stal dýrahræjum og setti í skápa

Tvítugur maður er í haldi lögreglu í Dublin í Kaliforníu fyrir að stela dýrahræjum af dýraspítala og koma þeim fyrir í tómum geymsluskápum gagnfræðaskóla nokkurs í bænum.

Sjá næstu 50 fréttir