Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrjár sjálfsmorðssprengingar í Baghdad 25 manns létust og um 52 særðust í þremur sjálfsmorðssprengingum í Baghdad í morgun. Fórnalömbin voru Shia-múslimar í pílagrímsför í Baghdad til þess að taka þátt í árlegum hátíðarhöldum þeirra. 28.7.2008 10:23
Telur að Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn Cynthia Ryan yfirmaður í Flugbjörgunarsveit Bandaríkjanna segir að hún telji að ævintýramaðurinn og auðjöfurinn Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn á síðasta ári. 28.7.2008 07:57
Þrír stripplingar trufluðu landsleik í póló Þrír naktir stripplingar ullu nokkru uppnámi á landsleikjamóti í póló við Windsor-kastalann í gær. Meðal áhorfenda var Karl bretaprins. 28.7.2008 07:33
Fellibylurinn Fung Wong veldur usla á Taiwan Fellibylurinn Fung Wong hefur náð á land á Taiwan og veldur þar töluverðum usla. 28.7.2008 07:30
Skotárás í kirkju kostaði tvo lífið og sjö særða Maður vopnaður haglabyssu réðist inn í kirkju í Tennessee í gær og hóf skothríð á viðstadda. Áður en tókst að yfirbuga manninn hafði hann drepið tvo og sært sjö aðra. 28.7.2008 07:26
Kaupmaður dauðans fyrir rétti í Taílandi Rússneski vopnasalinn Viktor Bout verður leiddur fyrir rétt í Taílandi í dag þar sem afstaða verður tekin til þess hvort framselja eigi hann til Bandaríkjanna. 28.7.2008 07:17
Fylgi Obama enn á uppleið Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum dregur aftur í sundur með þeim Barak Obama og John McCain. Mælist Obama nú með 9% meira fylgi en McCain. 28.7.2008 07:14
Tvær sprengjur kostuðu 16 lífið í Istanbul Að minnsta kosti 16 eru látnir og meir en 150 sárir eftir hryðjuverkaárás í verkamannahverfi í Istanbul höfuðborg Tyrklands í gærkvöldi. 28.7.2008 07:12
Gríðarlegir eldar í Kalíforníu Um tvö þúsund heimili eru í hættu vegna elds sem braust út nærri Yosemite þjóðgarðinum í Kalíforníu á föstudag 27.7.2008 20:34
Ítalska lögreglan handtekur alræmdan mafíuforingja Leiðtogi í einni af alræmdustu hreyfingu úr Napolí mafíunni var handtekinn þegar hann var í verslunarleiðangri í Róm. 27.7.2008 19:38
Flóð valda usla víða um heim Mestu flóð í hundrað ár hafa kostað 17 manns lífið í Úkraínu, Moldóvu og Rúmeníu og valdið gríðarlegum skemmdum á ökrum og beitilandi. Jafnframt eru flóð í suður- og vestur Þýskalandi að gera mönnum lífið leitt. 27.7.2008 19:00
Hungursneyð í Afríku Hungursneyð er yfirvofandi á gríðarstóru svæði í austanverðri Afríku. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að hátt í fimmtán milljónir manna þurfi aðstoðar við eigi ekki að koma til stórkostlegra hörmunga. 27.7.2008 18:30
Lamdi flugfreyju með vodkaflösku og reyndi að opna í 10.000 fetum Tvær breskar stúlkur létu heldur betur til sín taka í um 10.000 feta hæð yfir Austurríki í gær. Vinkonurnar sem voru að koma með flugi frá Grikklandi yfir til Bretlands höfðu fengið sér aðeins of mörg púrtvínsstaup í vélinni. Eftir að hafa verið með almenn leiðindi við áhöfnina lamdi önnur stúlknanna flugfreyju í hausinn með vodka flösku og reyndi síðan að opna neyðarútgang á vélinni. 27.7.2008 16:43
Mbeki: Viðræður halda áfram í Zimbabwe Forseti Suður Afríku, Thabo Mbeki, sagði fyrr í dag að viðræður á milli Roberts Mugabe og hans manna og stjórnarandstöðuflokksins MDC í Zimbabwe myndu halda áfram til þess að leysa stjórnmálavandann sem nú ríkir í landinu. 27.7.2008 15:37
Hersveitir NATO fella uppreisnarmenn í Afganistan Hersveitir NATO felldu tylft Talíbanskra uppreisnarmanna í loftárásum á bæinn Khost í suðausturhluta Afganistan í morgun. Það eru stjórnvöld á staðnum sem halda þessu fram. Ofbeldi hefur aukist í Afganistan á síðustu tveimur árum eftir endurskipulagningu uppreisnarmanna og baráttu þeirra gegn stjórnvöldum og erlendum hersveitum. 27.7.2008 13:56
Búist við sigri Hun Sen í Kambódíu Þingkosningar voru í Kambódíu í dag og er fastlega búist við ótvíræðum sigri Huns Sens, forsætisráðherra sem hefur verið við völd lengur en nokkur annar þjóðarleiðtogi í Asíu - eða allt síðan hann sagði skilið við Rauðu Khmerana á sínum tíma og var settur til valda af Víetnömum 1985. 27.7.2008 12:30
Ráðherrar vilja ekki að Brown víki Ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar segja alrangt að þeir séu að skipuleggja atlögu gegn Gordon Brown forsætisráðherra, eins og bresku blöðin hafa haldið fram. Einn þeirra sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur eftirmaður Browns segist engan áhuga hafa á starfinu. 27.7.2008 11:56
Talíbanar að sigra í áróðursstríðinu Talíbanar í Afghanistan eru að sigra Vesturlönd - í áróðursstríðinu. Svo segir virt rannsóknarstofnun sem einnig bendir á að Talíbanar nýti vandlega reiði almennings yfir of tíðum árásum sem leiði til dauða óbreyttra borgara. 27.7.2008 09:45
45 féllu í sprengingunum á Indlandi Talið er að lítt þekktur hópur íslamskra öfgamanna hafi staðið að 17 sprengingum sem urðu 45 manns að bana í borginni Ahmedabad í vesturhluta Indlands í gær. 27.7.2008 09:31
Grunur um að súrefniskútur hafi sprungið í áströlsku vélinni Rannsóknarmenn ástölsku flugslysanefndarinnar beina nú sjónum sínum að þeim möguleika að súrefniskútur hafi sprungið og valdið skemmdunum á farþegavélinni sem þurfti að nauðlenda á Filippseyjum fyrir helgina. Stórt gat kom á búk vélarinnar skömmu eftir flugtak í Hong Kong. 27.7.2008 09:24
29 hafa látist og 88 slasast í sprengjuárás á Indlandi 29 manns hafa látist hið minnsta og 88 eru slasaðir eftir að sautján sprengjur sprungu á innan við klukkutíma í morgun, í borginni Ahmedabad á Indlandi í morgun. Þetta hefur lögregla og stjórnvöld staðfest. 26.7.2008 20:32
Flokksfélagar Browns hvetja hann til þess að segja af sér Útlit er fyrir að verulega sé farið að síga á síðari hlutann í forsætisráðherratíð Gordons Brown því nú eru bæði þingmenn hans og ráðherrar farnir að hvetja hann til að segja af sér - eða jafnvel að setja hann af. 26.7.2008 19:12
Karadizc heillaði landa sína með náttúrusmyrslum Á meðan Radovan Karadizc fór huldu höfði ferðaðist hann meðal annars til Austurríkis og heillaði landa sína þar með handayfirlagningu og náttúrusmyrslum. Lögreglumenn sem ræddu við hann þar grunaði aldrei að þessi skeggjaði og síðhærði spekingur væri í raun eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og fjöldamorð. Stuðningsmenn hans heima eru reiðir yfir handtökunni. 26.7.2008 18:39
Tveir létu lífið í sprengingu á Indlandi Að minnsta kosti tveir létu lífið og fimmtíu og fimm eru slasaður í sprengingu í borginni Ahmedabad á Indlandi fyrr í dag. 26.7.2008 15:13
Elton John hefur haldið tónleika í öllum fylkjum Bandaríkjanna Elton John hélt sína fyrstu tónleika í Bandaríkjunum árið 1970 og hefur komið þangað reglulega síðan. En það tók hann nær fjóra áratugi að halda tónleika í öllum 50 ríkjunum. Markinu var náð í vikunni þegar hann spilaði í Vermont á austurströndinni. 26.7.2008 13:00
Obama snæddi morgunverð með Tony Blair Barack Obama forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum er í Lundúnum þessa stundina og ræðir við þarlenda stjórnmálaforingja. Allt yfirbragð heimsóknar hans til Bretlands er á mun lægri nótum en þegar hann var í Þýskalandi og Frakklandi fyrir helgi. 26.7.2008 12:18
Erlendum olíustarfsmönnum rænt í Nígeríu Átta erlendum starfsmönnum á olískipi í Lagos í Nígeríu var rænt í nótt. Það voru vopnaðir menn sem tóku starfsmennina sem eru hvítir. Það þýðir að 16 olíustarfsmönnum hefur verið rænt á svæðinu á síðustu tveimur sólarhringum. 26.7.2008 11:12
Jamaica háð Íslandi og öðrum álframleiðsluríkjum Ef Ísland og önnur álframleiðsluríki hættu að kaupa báxít frá Jamaica, yrði landið fljótlega gjaldþrota. 25.7.2008 23:15
Að minnsta kosti fjórir látnir eftir sprengjuárásir á Gaza ströndinni Öflug sprenging varð þremur manns að bana við Gaza ströndina í dag. Einn hinna látnu var ung stúlka. Að minnsta kosti tuttugu manns slösuðust þar að auki. 25.7.2008 22:14
Sum lyfseðilsskyld megrunarlyf hafa alvarlegar aukaverkanir Sífelt fleiri landsmenn neyta lyfseðilsskyldra megrunarlyfja, en sum þeirra hafa alvarlegar aukaverkanir eins og þunglyndi. Skammturinn af nýjasta lyfinu kostar tæplega fjörtíu þúsund krónur. 25.7.2008 18:35
Geta ekki tryggt öryggi friðargæsluliða í Súdan Yfirvöld í Súdan segjast ekki geta tryggt öryggi friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins verði forseti landsins ákærður fyrir stríðsglæpi. 25.7.2008 18:29
Obama segir Írönum að bíða ekki næsta forseta Barack Obama sagði á sameiginlegum blaðamannafundi með Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseta, að Íranar ættu ekki að hika við taka nýju tilboði Vesturveldanna um stuðning á sviði viðskipta og tæknimála gegn því að þjóðin stöðvi auðgun úrans í landinu. 25.7.2008 17:45
Tæknilegir talíbanar í nýrri ímyndarherferð Talíbanar í Afganistan hafa látið af þeirri fjölmiðlafeimni sem þeir voru áður annálaðir fyrir og beita nú DVD-diskum, SMS-skilaboðum, vefsíðum, tölvupósti og jafnvel hringitónum farsíma til að útbreiða áróður sinn gegn afgönskum og vestrænum óvildarmönnum sínum. 25.7.2008 15:48
Danskur hermaður lést í Afganistan Danskur hermaður lést í sprengingu í Afganistan í morgun. Dönsk hersveit var að aðstoða afganska hermenn á umsjónarsvæði sínu í Helmand sýslu þegar skotbardagi við talíbana braust út. Hermaðurinn ók skriðdreka sínum yfir jarðsprengju sem sprakk með þeim afleiðingum að hann lést og þrír aðrir særðust. Þeir voru fluttir á sjúkrahús þar sem gert er að sárum þeirra. 25.7.2008 15:27
Tugir manna létu lífið nærri Kongó Að minnsta kosti 42 létu lífið þegar að bátur þeirra sökk í ánni Oubangui River sem rennur nærri Kongó, að sögn yfirvalda þar. 25.7.2008 15:21
Krabbameinslæknir varar við farsímanotkun barna Umræðan um heilsuvernd og farsímanotkun hefur verið rifin upp með hvelli eftir að dr. Ronald B. Herberman við krabbameinsrannsóknarstöðina í Pittsburgh sendi samstarfsfólki sínu pistil um að börn skyldu eingöngu nota farsíma í ýtrustu neyðartilfellum. 25.7.2008 11:41
Skemmtistaðir Árósa fara nýjar leiðir í fíkniefnamálum Skemmtistaðir í Árósum í Danmörku hafa tekið upp nýjar verklagsreglur fyrir fíkniefnamál sem upp koma á stöðunum. Í stað þess að kalla til lögreglu þegar dyraverðir finna fíkniefni á gestum, með tilheyrandi bið og óhagræði 25.7.2008 11:02
Boeing 747-400 nauðlenti á Filippseyjum Farþegaþota frá Qantas flugfélagilnu nauðlenti á Filippseyjum í morgun eftir að stórt gat kom skyndilega á skrokk vélarinnar og loftþrýstingur féll í farþegarýminu. 25.7.2008 09:45
Veðjað á klak hænueggja á vefnum Veðmálafíklar hafa nú fundið nýstárlega leið til að svala þörfum sínum. Þeir veðja nú á hvaða egg muni klekjast fyrst út. 25.7.2008 08:13
Lífslíkur HIV-smitaðra hafa aukist um 13 ár Lífslíkur þeirra sem smitaðir eru af HIV-veirunni hafa aukist um 13 ár frá því á miðjum síðasta áratug. Þetta er einkum nýjum lyfjum gegn sjúkdóminum að þakka. 25.7.2008 08:06
Libýa stöðvar olíuútflutning til Sviss Stjórnvöld í Líbýu hafa stöðvað allan olíuútflutning til Sviss til að mótmæla handtöku svissnesku lögreglunnar á Hannibal Gaddafi yngsta syni Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu. 25.7.2008 08:01
Enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown í aukakosningum Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands varð fyrir enn einu áfallinu í morgun þegar eitt af öruggustu þingsætum Verkamannaflokksins á Bretlandi féll í hendur Skoska þjóðernisflokksins í aukakosningum. 25.7.2008 07:51
Farc-skæruliðar sleppa átta gíslum Farc-skæruliðasamtökin í Kólombíu hafa leyst úr haldi 8 af 10 gíslum sem þeir rændu í síðustu viku. Reiknað er með að Farc muni krefjast lausnargjald fyrir þá tvo sem eftir eru. 25.7.2008 07:38
Sakar Karzai um að hindra aðgerðir fíkniefnalögreglu Fyrrum yfirmaður í bandarísku fikniefnalögreglunni segir að Hamid Karzai forseti Afganistan hindri aðgerðir lögreglunnar til að draga úr eiturlyfjavandamálum landsins. 25.7.2008 07:36
Yfir 20 á slysadeild eftir hópslagsmál í flóttamannamiðstöð Flytja þurfti 21 á slysadeild eftir hópslagsmál á flóttamannamiðstöð í bænum Valer sem er um það bil 100 kílómetra norðaustur af Osló í Noregi. 25.7.2008 07:24