Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fresta aðildarviðræðum Tyrkja Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykkti á fundi sínum í dag að fresta hluta af undirbúningsviðræðum um aðild Tyrkja að ESB um óákveðinn tíma. Tregðu Tyrkja við að opna Kýpverjum hafnir sínar og flugvelli er sögð ástæðan. 11.12.2006 18:22
Fimmtu vændiskonunnar saknað Lögreglan í Bretlandi leitar nú fimmtu vændiskonunnar sem horfið hefur á stuttum tíma og óttast raðmorðingja sem líkir eftir verkum hins alræmda Kobba kviðristu, sem Englendingar kalla Jack the ripper. Þrjár þessara fimm hafa þegar fundist myrtar. 11.12.2006 18:12
Albert afhenti trúnaðarbréf í Washington Albert Jónsson afhenti í dag George W. Bush, forseta Bandaríkjanna sem trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Afhendingin fór fram á skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu. Albert var ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum til margra ára og leiddi samninganefnd Íslendinga í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn. 11.12.2006 17:39
Íhuga að opna kistu Páls postula Embættismenn í Páfagarði eru að velta því fyrir sér að láta opna stóra þykka marmarakistu, sem talið er að geymi jarðneskar leifar Páls postula. Búið er að reyna að taka röntgen myndir af kistunni, en hún er of þykk til þess að sjáist inn í hana. 11.12.2006 16:25
Veira herjar á farþega stærsta skemmtiferðaskips heims Stærsta skemmtiferðaskip heims, Royal Caribbean´s Freedom of the Seas, er nú fast við bryggju í Miami eftir að magakveisa kom upp meðal farþega í annað skiptið á stuttum tíma. 11.12.2006 16:04
Fjórir rannsakaðir í Þýskalandi vegna hugsanlegrar póloneitrunar Verið er að rannsaka fjórar manneskjur í Þýskalandi vegna gruns um að þær hafi orðið fyrir sams konar eitrun og dró Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnara hjá KGB, til dauða. 11.12.2006 15:37
Verdi í gallabuxum Franski tenórinn Roberto Alagna stormaði af sviðinu á Scala óperunni í Milanó í gær, eftir að hópur áhorfenda púaði á hann. Þetta gerðist í miðjum flutningi á óperunni Aidu, eftir Verdi. Púið var ekki vegna þess að Alagna stæði sig illa, heldur til þess að lýsa vanþóknun á þeim ummælum hans að áhorfendurnir í Scala óperunni væru erfiðir og duttlingafullir. 11.12.2006 15:19
Brenndu myndir af forseta Írans Tugir stúdenta brenndu myndir af Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, og köstuðu kínverjum til þess að trufla ræðu sem hann flutti við háskóla í Teheran, í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Ahmadinejad er sýndur svo opinn fjandskapur, síðan hann vann stórsigur í forsetakosningum árið 2005. 11.12.2006 14:32
Pardew rekinn frá West Ham Alan Pardew var í dag sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri West Ham eftir slakt gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu, sem er nú í eigu Íslendinga, að það sé gert með hagsmuni félagins í huga en Kevin Keen, þjálfari liðsins, tekur við því tímabundið. 11.12.2006 14:02
Von á yfirlýsingu um framtíð Pardews hjá West Ham Greint var frá því á Sky-sjónvarpsstöðinni fyrir stundu að vænta mætti yfirlýsingar frá Íslendingafélaginu West Ham um framtíð knattspyrnustjórans Alans Pardews síðar í dag. 11.12.2006 13:36
Danir kaupa eina geit á mínútu Hjálparstofnun dönsku kirkjunnar er lent í vanda útaf sístækkandi geitahjörð sinni. Stofnunin hleypti um helgina af stað söfnun fyrir fátæka í Afríkuríkinu Malawi, þar sem Danir voru hvattir til þess að kaupa geit í jólagjöf handa þeim. 11.12.2006 13:30
Óttast raðmorðingja vændiskvenna Breska lögreglan óttast að raðmorðingi, ámóta og hinn illræmdi Jack The Ripper, herji á vændiskonur í Ipswich í austurhluta landsins. Þrjár vændiskonur hafa fundist myrtar þar síðastliðna níu daga. Hinnar fjórðu er saknað og lögreglan telur ástæðu til þess að hafa áhyggjur af öryggi hennar. 11.12.2006 13:10
Pinochet fær ekki viðhafnarútför Til átaka kom í Santiago, höfuðborg Chile, í gærkvöldi eftir að fréttir bárust af því að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, væri látinn. Pinochet fær ekki viðhafnarútför og þjóðarsorg hefur ekki verið lýst yfir í landinu. 11.12.2006 12:15
Interpol lýsir eftir frænda Saddams Husseins Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir og hefur gefið út viðvörun til aðildarríkja sinna eftir að Ayman Sabawai, frændi Saddams Husseins, fyrrverandi Íraksforseta, slapp úr fangelsi nærri Mósúl í Írak. 11.12.2006 12:01
54 týnt lífi í 3 eldsvoðum í Rússlandi Eldar kviknuðu í tveimur heilbrigðisstofnunum í Rússlandi í nótt. 9 týndu lífi á geðsjúkrahúsi í Síberíu en öllum var bjargað frá bráðum bana af sams konar sjúkrahúsi norðvestur af Moskvu. 54 hafa því týnt lífi í eldum á sjúkrahúsum í Rússlandi um helgina. 10.12.2006 19:00
Augusto Pinochet er allur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, lést í dag, níutíu og eins árs að aldri. Pinochet hafði verið heilsutæpur um nokkurt skeið og fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Hann var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 og ríkti í sautján ár. Á þeim tíma voru yfir þrjú þúsund manns myrtir eða látnir hverfa. 10.12.2006 18:05
Hundruð þúsunda mótmæltu í Beirút Mörg hundruð þúsund mótmælendur komu saman í Beirút, höfuðborga Líbanons, í dag og kröfðust afsagnar Sanioras, forsætisráðherra. Það voru Hizbollah-liðar og bandamenn Sýrlendinga sem fóru fyrir mótmælendum. Þetta eru ein fjölmennustu mótmæli sem efnt hefur verið til í Beirút og tíundi dagurinn í röð sem breytinga er krafist. Saniora hefur neitað að víkja fyrir Hizbollah-liðum sem hann telur vilja ræna völdunum. 10.12.2006 17:59
Yunus tekur við friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus veitti friðarverðlaunum Nóbels viðtöku við hátíðlega athöfn í Osló í Noregi í dag. Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði deila með sér verðlaununum í ár. 10.12.2006 13:25
Tveir danskir hermenn særðust Í Írak Tveir danskir hermenn úr skriðdrekasveit Dana eru særðir eftir átök norður af borginni Basra í Írak. Annar mannanna særðist á hálsi og var fyrst talinn alvarlega særður en hinn fékk skot í handlegginn. Hvorugur er í lífshættu, að sögn læknis dönsku herdeildarinnar, Sørens Dervings. Hermennirnir tveir eru á hersjúkrahúsi á herstöðinni Shaiba Log, þar sem dönsku bækistöðvarnar, Danevang, eru einnig staðsettar. 10.12.2006 13:01
Vísar á rússnesk yfirvöld Marina Litvinenko, eiginkona KGB njósnarans Alexanders Litvinenko, segir margt benda til þess að rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á dauða hans. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirka efninu polon 210 í síðasta mánuði. 10.12.2006 12:30
Risatjald reist í heimalandi Borats Forseti Kazakstan, Nursultan Nazarbayev, slær ekki slöku við í uppbyggingu hinnar nýju höfuðborgar landsins á steppunum norðan Baikalvatns. Hann hefur öðru sinni fengið hinn heimsfræga arkitekt Norman Foster, lávarð, til að hanna byggingu í borginni, í þetta skiptið risavaxið tjald, sem nær 150 m hæð, og þekur svæði á við 10 knattspyrnuvelli. 10.12.2006 11:51
Óvænt heimsókn í 13. sinn Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Þetta var í 13. sinn sem hann heimsótti bandaríska hermenn þar. 10.12.2006 11:00
Konungur Sáda segir Arabaheiminn suðupott sem gæti sprungið Leiðtogar arabaríkja við Persaflóa funda í dag og á morgun á vegum leiðtogaráðs Persflóaríkja (GCC) í Riyadh höfuðborg Saudi Arabíu til að ræða sameiginlegt gjaldeyrisbandalag ríkjanna, sem fyrirhugað er að koma á laggirnar 2010. Vaxandi áhrif Írana á Persflóasvæðinu verða líka til umræðu. Abdullah, konungur Sádí Arabíu varaði við því í opnunarræðu, að arabaheimurinn væri eins og suðupottur sem lokið væri við það að springa af. 9.12.2006 18:33
Starfsfólk reyndi ekki að bjarga konunum Talið er að kveikt hafi verið í sjúkrahúsi í Moskvu, höfuðborg Rússlands, þar sem fjörtíu og fimm konur létust í nótt. Slökkvilið borgarinnar deilir á starfsfólk fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út. Þetta er mannskæðasti bruni í borginni í þrjú ár. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. 9.12.2006 17:59
Opinberir starfmenn skjóta mótmælaskotum á Gaza 2500 lögreglumenn í Palestínu þustu í dag inn í byggingu ríkisstjórnarinnar í miðborg Gaza, til að mótmæla því að fá ekki greidd laun. Þeir saka stjórnmálaarm Hamas um að greiða eigin öryggissveitum, en ekki laun hundrað sextíu og fimm þúsund opinberra starfsmanna. 9.12.2006 17:09
Nýjar rannsóknir á dauða Díönu en sama niðurstaða DNA rannsókn hefur leitt í ljós að Henri Paul, ökumaður Díönu prinsessu, var ölvaður hina örlagaríku nótt París 1997 þegar hann ók á steinstólpa og Díana lést. Þetta kemur fram í heimildarmynd BBC sjónvarpsstöðvarinnar. Mohamed al Fayed hefur samt barist fyrir opinberum vitnaleiðslum um málið sem fara fram í næsta mánuði. 9.12.2006 13:47
Staða Palestínumanna verri en blökkumanna undir Apartheid Stefna Ísraelsmanna í málefnum Palestínu býr Palestínumönnum verri aðbúnað en svartir bjuggu við á tímum aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Þetta sagði Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseti þegar hann svaraði spurningum um efni bókar sinnar um Palestínumálið. 9.12.2006 12:12
Indverskir karlmenn með of stutt typpi Rannsókn á rúmlega 1000 indverskum karlmönnum hefur leitt í ljós að alþjóðlegar staðalstærðir á smokkum eru fullrúmar fyrir indversk typpi. Samkvæmt niðurstöðum vísindamannanna er rúmur helmingur indversku mannanna með of stutta limi til að fylla upp í verjurnar. Þess vegna verður núna boðið upp á smokka í mismunandi stærðum á Indlandi. 8.12.2006 23:15
Aldurstakmörk á fyrirsætur í Brasilíu Skipuleggjendur tískuvikunnar í Sao Paulo, sem haldin verður í næsta mánuði, ætla að setja 16 ára aldurstakmark á fyrirsætur sem koma fram á tískusýningum, eftir að brasilísk fyrirsæta lést úr anorexíu í síðasta mánuði. Ríkisstjórn Brasilíu stendur nú fyrir átaki gegn átröskunarsjúkdómum. 8.12.2006 22:59
Annar elsti karlmaður heims látinn Moses Hardy, sem talinn var annar elsti maður heims, lést í dag, 113 ára að aldri. Hann var eini eftirlifandi svarti maðurinn sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni. Hardy var sjötti á lista heimsmetabókar Guinness yfir elsta fólk í heimi, sú sem er efst á þeim lista er 116 ára gömul. 8.12.2006 22:19
Kynþokki Cortes vekur athygli í Bretlandi Netblað í Liverpool fjallar í dag um Garðar Thor Cortes, sem kemur fram á tónleikum með Catherine Jenkins í LIverpool á sunnudagskvöld. Greinin byrjar á stuttri kynningu á landi og þjóð, 13 jólasveinum og nafnahefðina, og segir síðan frá einum besta óperusöngvara landsins sem einnig hafi verið útnefndur kynþokkafyllsti maður landsins í tvígang. 8.12.2006 21:53
65 fangar sluppu nærri Cancun Tugir fanga í mexíkósku fangelsi nærri ferðamannastaðnum Cancun brutu lása á klefadyrum sínum, börðu verði og sluppu út úr fangelsinu í dag. Tveir létust í slagnum. Hundruð fanga byrjuðu að mótmæla þegar nokkrir fanganna voru færðir í annað fangelsi, þeirra á meðal Marcos Gallegos, sem hefur verið kallaður "guðfaðirinn" í fangelsinu. 8.12.2006 21:50
Siniora segir Hisbollah stefna á valdarán Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, sakaði leiðtoga Hisbollah um að vilja ræna völdum af réttkjörinni ríkisstjórn í óvenju harðorðri ræðu í kvöld. Ræðan var send út frá skrifstofu hans, þar sem hann hefur hafst við í rúma viku, síðan stuðningsmenn Hisbollah lögðu undir sig göturnar fyrir utan stjórnarráðið í Beirút. 8.12.2006 20:56
Rumsfeld ekki ábyrgur fyrir pyntingum Bandarískur dómari sagðist í dag efast um að hægt væri að sækja Donald Rumsfeld til saka fyrir pyntingar bandarískra hermanna á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Thomas Hogan, dómari, sagði að þó að pyntingar væru óásættanlegar, þá væri ekki víst að níu írösk fórnarlömb þeirra gætu dregið varnarmálaráðherrann til ábyrgðar. 8.12.2006 20:39
Quebecsk erfðagreining Líkt og Íslendingar, eru íbúar Quebec-héraðs komnir af nokkrum fjölskyldum, sem fluttu frá Frakklandi til Quebec í Kanada. Erfðafræðingar telja að erfamengi Quebec-búa í Kanada geti af þessum ástæðum hentað vel til erfðarannsókna og hugsa sér gott til glóðarinnar að þróa lyf og læknismeðferðir út frá rannsóknum í Quebec. 8.12.2006 20:19
Ætlaði að kúga auðjöfra KGB maðurinn Alexander Litvinenko, sem myrtur var í síðasta mánuði, ætlaði að ljóstra upp um spillingarmál tengd valdamiklum auðjöfri sem mun tengjast ráðamönnum í Moskvu. Þetta fullyrti rússneskur doktorsnemi á blaðamannafundi í Lundúnum í dag. 8.12.2006 20:00
Hlýtt í Evrópu Vísindamenn segja ekki hafa verið hlýrra í Evrópu á þessum árstíma í fimm hundruð ár. Óttast er að skíðamenn fái lítið sem ekkert að renna sér í Ölpunum þennan veturinn og þurfi þess í stað að taka fram gönguskóna vilji þeir njóta náttúrunnar þar. 8.12.2006 19:30
Írakar reyna við þjóðarsátt Írakar munu halda þjóðarsáttarráðstefnu í næstu viku, nánar tiltekið þann 16. des. að því er fram kemur í fréttum sjónvarpsstöðvar á vegum íraska ríkisins í kvöld. Forsætisráðherrann Nuri al-Maliki tilkynnti á þriðjudag að leiðtogar helstu stjórnmálaafla Íraks muni hittast um miðjan desember án þess að tilgreina nánari tímasetningu. 8.12.2006 19:04
Írar banna tóbakssælgæti og smápakka af sígarettum Írar ætla að banna sölu á sígarettupökkum með færri en 20 sígarettum í maílok á næsta ári til þess að reyna að draga úr reykingum barna og unglinga. Yngstu reykingamennirnir sækja í minni sígarettupakkningar þar sem þær eru ódýrari, að sögn heilbrigðisráðuneytisins. Þá verður sælgæti sem líkist tóbaksvörum einnig bannað. 8.12.2006 18:19
Kæra flugmenn vegna þotuslyss Tveir bandarískir flugmenn voru í dag ákærðir fyrir að stofna flugöryggi í hættu þegar brasilísk Boeing-þota hrapaði í Amazon-frumskóginum þann 29. september. Mennirnir tveir flugu lítilli einkaþotu sem rakst á væng farþegaþotunnar með þeim afleiðingum að stærri þotan hrapaði og 154 farþegar og áhafnarmeðlimir létust. 8.12.2006 17:49
Seselj hættur að svelta sig Öfgaþjóðernissinninn serbneski Vojislav Seselj, er hættur við mótmælasvelti sem hann hefur haldið til streitu í 28 daga. Hann svalt sig til að krefjast þess meðal annars að skipt yrði um dómara í máli hans fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. Hann hefur verið þar í haldi síðan árið 2003, ákærður fyrir stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 8.12.2006 17:19
Aðlagist okkur eða farið annað -Ton y Blair Fólk sem vill setjast að í Bretlandi verður að semja sig að umburðarlyndum gildum þess, eða fara eitthvað annað, sagði Tony Blair, forsætisráðherra, í erindi sem hann flutti í dag. 8.12.2006 16:44
Þjóðverjar reykja áfram Stjórnvöld í Þýskalandi hafa hafnað tillögum um að ríkisstjórnin banni reykingar í skólum og á veitingastöðum um land allt. Ríkisstjórnin ætlar að láta hvert hinna sextán ríkja ákveða fyrir sig hvort reykingar verða bannaðar. 8.12.2006 14:18
Yfirheyra lykilvitni í njósnaramorði Breskir og rússneskir lögreglumenn eru farnir að yfirheyra lykilvitni í morðinu á KGB njósnaranum Alexander Litvinenko, að sögn rússneskra fjölmiðla. 8.12.2006 14:09
Vel þjálfaðar rottur Þær eru vel þjálfaðar rotturnar sem tóku þátt í fjölþraut í Nebraska í Bandríkjunum í gær. Það voru háskólanemar í bænum Lincoln sem efndu til keppninnar og mætti hver þátttakandi með þrautþjálfaða rottuna sína. Þeim var svo gert að klifra upp kaðla, taka þátt í langstökki, synda, hlaupa yfir hindranir og klifra upp veggi. 8.12.2006 13:45
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent