Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Má ekki breyta flaki í klakstöð Ekki má breyta flaki Guðrúnar Gísladóttur í klakstöð, en talið var að verkefnið myndi kosta um 400 milljónir íslenskra króna næstu 5 árin. Fram kom í norska ríkisútvarpinu að sjávarútvegsráðuneytið þar í landi telji verkefnið of kostnaðarsamt. Það eru því allar líkur á því að flak Guðrúnar hvíli í votri gröf til frambúðar, en Guðrún sökk í júní 2002 eftir að það skeytti á skeri við Lófót í Norður-Noregi. 24.8.2005 00:01
Skaut tíu ára systur sína Móðir í Miami í Bandaríkjunum var í gær ákærð fyrir vanrækslu eftir að þriggja ára sonur hennar fann byssu á heimilinu og skaut 10 ára systur sína á mánudag. Stúlkan liggur nú á sjúkrahúsi og er í lífshættu. 24.8.2005 00:01
Mikil flóð í Mið--Evrópu Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín í suðurhluta Þýskalands sem og í Austurríki og Sviss vegna flóða og hafa björgunarsveitir og herinn haft í nógu að snúast. Tala látinna vegna flóðanna í löndunum þremur er komin í sex en tveggja til viðbótar er saknað í Sviss. Úrhelli hefur verið í Ölpunum norðanverðum á síðustu dögum og hafa ár flætt yfir bakka sína. 24.8.2005 00:01
Khodorkovskí í hungurverkfall Rússinn Míkhaíl Khodorkovskí, stofnandi olíufyrirtækisins Yukos, hefur hafið mótmælasvelti til að vekja athygli á slæmri meðferð rússneskra fangelsisyfirvalda á viðskiptafélaga hans og honum sjálfum. Segja lögfræðingar Khodorkovskís hann hafa hvorki þegið vott né þurrt á síðustu dögum. 24.8.2005 00:01
Gerir lítið úr orðum Robertsons Bandaríkjastjórn gerði í gærkvöld lítið úr ummælum sjónvarpsprédikarans Pats Robertsons sem hvatt hefur til að Hugo Chavez, forseti Venesúela, verði drepinn. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði ummæli Robertsons hafa verið óviðeigandi en hann væri óháður einstaklingur og skoðanir hans endurspegluðu ekki stefnu Bandaríkjanna. 24.8.2005 00:01
Öfgamönnum vísað strax úr landi Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, hefur birt nýjar reglur um brottvísun einstaklinga sem ekki eru breskir ríkisborgarar og grunaðir eru um að hvetja til hryðjuverka. Þeir sem eru taldir ógna þjóðaröryggi með því að styðja hryðjuverkastarfsemi, vegsama hana eða upphefja með einhverju móti, geta nú átt von á því að verða sendir tafarlaust úr landi. 24.8.2005 00:01
Toyota sakað um lífsstílsfasisma Reykingamenn verða ekki ráðnir til starfa í verksmiðjum Toyota í Asker og Bærum í Noregi. Í heilsíðuauglýsingu frá fyrirtækinu í norskum blöðum þar sem auglýst er eftir starfsfólki er tekið fram að reykingamenn geti sleppt því að sækja um. Yfirmaður Toyota í Noregi segir þetta gert vegna þess að starfsrýmin séu mjög opin og þar eigi reykingamenn hreinlega ekki heima. 24.8.2005 00:01
Mannréttindasamtök lítt hrifin Útlendingar sem eru taldir ógna þjóðaröryggi Breta með því að hvetja til hryðjuverka, vegsama þau eða upphefja með einhverju móti geta nú átt von á því að verða sendir tafarlaust úr landi, samkvæmt nýjum reglum sem Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, birti í dag. Mannréttindasamtök eru ekki hrifin. 24.8.2005 00:01
Píanómaðurinn sagður geðsjúkur Píanómaðurinn svonefndi, sem fannst á gangi á strönd í Kent á Englandi fyrir fjórum mánuðum, á við geðsjúkdóm að stríða og gerði sér ekki upp sjúkdómseinkenni. Þetta segja lögmenn mannsins sem þagði í fjóra mánuði áður en hann rauf loks þögnina síðastliðinn föstudag og sagðist vera Þjóðverji. Hann var útskrifaður af geðsjúkrahúsi á Englandi og fór til Þýskalands á laugardag. 24.8.2005 00:01
Jarðarbúar níu milljarðar 2050 Indverjar verða orðnir fleiri en Kínverjar árið 2050, samkvæmt nýjustu skýrslu Mannfjölgunarráðs, sem hefur rannsakað mannfjölgun í 75 ár. Nær öll fjölgun jarðarbúa næstu áratugina verður í þróunarríkjunum, en spáð er að mannkynið verði orðið níu milljarðar eftir 45 ár. 24.8.2005 00:01
Átak gegn hundaskít í Búdapest Borgaryfirvöld í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, ætla að eyða 65 milljónum króna í herferð til að draga úr hundaskít í borginni. Talið er að um 400 hundruð þúsund hundar séu í Búdapest og að þeir skilji eftir sig 14.600 tonn af hundaskít árlega. Mest af honum lendir á gangstéttum og í almenningsgörðum borgarinnar, vegfarendum til mikils ama og jafnvel heilsutjóns. 24.8.2005 00:01
Nýr formaður Vestnorræna ráðsins Henrik Old, þingmaður á færeyska lögþinginu, var í gær kosinn nýr formaður Vestnorræna ráðsins á fundi þess sem fram fer á Ísafirði og lýkur í dag. Old tekur við formannsstarfinu af Birgi Ármannssyni þingmanni. 24.8.2005 00:01
Fleiri farast í flóðum í Rúmeníu Sjö hafa fundist látnir og átta er saknað eftir mikil flóð í Mið-Rúmeníu í gærkvöld. Rúmenar hafa ekki farið varhluta af mikilli úrkomu í Mið- og Austur-Evrópu síðustu daga en úrkoman hefur leitt til þess að ár hafa flætt yfir bakka sína og ætt yfir bæi og borgir með tilheyrandi mann- og eignatjóni. 24.8.2005 00:01
Íransþing hafnar fjórum ráðherrum Íranska þingið hafnaði í dag fjórum af 21 ráðherra sem nýr forseti landsins, Mahmoud Ahmadinejad, hafði lagt til að skipaði ríkisstjórn landsins. Meðal þeirra var Ali Saeedlou sem átti að gegna embætti olíumálaráðherra, en margir þingmenn sögðu hann of reynslulítinn til að gegna embættinu. Ahmadinejad hefur nú þrjá mánuði til þess að finna nýja menn í ráðuneyti olíumála, menntunar, samstarfsmála og félagsmála. 24.8.2005 00:01
Annan lofar íbúum Níger aðstoð Kofi Annan, framkvæmdstjóri Sameinuðu þjóðanna, lofaði því í dag að koma íbúum Níger til aðstoðar vegna þeirra erfiðleika sem þeir standa frammi fyrir. Hungursneyð er í landinu og er talið að 2,5 milljónir manna þjáist af þeim sökum, þar af 32 þúsund börn sem eru alvarlega vannærð. 24.8.2005 00:01
Hópuppsögn hjá Saddam Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, hefur rekið alla lögfræðinga sína nema einn. 24.8.2005 00:01
Vill láta myrða Chavez Bandarísk stjórnvöld segjast ekki deila skoðunum með sjónvarpspredikaranum Pat Robertson sem stakk upp á því á dögunum að Hugo Chavez, forseti Venesúela, yrði ráðinn af dögum. 24.8.2005 00:01
Neitar að neyta matar Rússneski auðkýfingurinn Mikhail Khodorkovskí er nú kominn í hungurverkfall til þess að mótmæla meðferðinni á Platon Lebedev, félaga hans. 24.8.2005 00:01
Þjóðin er klofin í afstöðu sinni Íraska þingið mun að öllum líkindum afgreiða drög að stjórnarskrá í kvöld. Meiri vafi leikur hins vegar á dómi þjóðarinnar enda ríkir mikill ágreiningur um grundvallaratriði. 24.8.2005 00:01
Egyptar taka við vörslunni Ríkisstjórnir Ísraels og Egyptalands hafa komist að samkomulagi um að egypski herinn taki við landamæravörslu á landamærum Egyptalands og Gaza-svæðisins af öryggissveitum Ísraelshers. 24.8.2005 00:01
Bretar auka drykkju sína Bretar drekka mest af stórþjóðum Evrópu og juku drykkju sína um fimm prósentustig á árunum 1999 til 2004 á meðan Frakkar og Þjóðverjar drógu úr henni. Þetta kemur fram í könnun markaðsrannsókafyrirtækisins Mintel og greint er frá á vef <em>Sky</em>-fréttastöðvarinnar. 24.8.2005 00:01
Reka öfgamenn úr landi Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, hefur kynnt ákvæði nýrrar reglugerðar gegn hryðjuverkum sem heimilar að erlendir öfgamenn séu reknir úr landi þegar í stað. 24.8.2005 00:01
Á fimmta tug fórst í flugslysi Að minnsta kosti 41 lést þegar þota af gerðinni Boeing 737-200 nauðlenti í Amazon-frumskóginum í Perú á þriðjudagskvöld. 56 þar til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús, misalvarlega slasaðir. Sumir fengu að fara heim að skoðun lokinni. 24.8.2005 00:01
Tugir farast í flóðum Að minnsta kosti 34 hafa látist í stórflóðunum í Mið-Evrópu á um það bil viku. Rúmenía hefur orðið verst úti en þar hafa 25 manns látist í flóðunum. Yfir 250 manns þurftu að flýja heimili sín í Bern, höfuðborg Sviss í gær og yfirvöld í Rúmeníu sögðu fólk hafa drukknað í svefni í rúmum sínum í fyrrinótt. 24.8.2005 00:01
Kofi Annan í Níger Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna er nú í Níger þar sem hann fylgist með hjálparstarfi. Hann segist staðráðinn í því að taka höndum saman við frjáls félagasamtök um að koma hjálp til allra þeirra sem þurfa á henni að halda en hungursneyð er yfirvofandi í landinu. 24.8.2005 00:01
Erfið barátta við elda í Portúgal Frakkar, Spánverjar, Ítalir og Hollendingar hafa allir sent aðstoð til Portúgals til að berjast við gríðarlega skógarelda. Á meðan veðurskilyrði breytast ekki er baráttan þó erfið, enn loga fimm eldar og það er ekki auðvelt að ná tökum á þeim. Verstu eldarnir geisa í kringum borgina Coimbra og eru tíu hús í úthverfi borgarinnar þegar ónýt og fleiri eru í hættu. 24.8.2005 00:01
Fimmta flugslysið í mánuðinum Að minnsta kosti 41 fórst og 56 særðust þegar reynt var að nauðlenda farþegaflugvél í Perú í gærkvöldi. Þetta er fimmta farþegavélin sem ferst í mánuðinum. 24.8.2005 00:01
Samþykki áströlsk gildi eða fari Þeir sem ekki vilja samþykkja áströlsk gildi geta hunskast burt, segir ástralski menntamálaráðherrann Brendan Nelson. Þessi ummæli hafa valdið nokkrum úlfaþyt hjá áströlskum múslimum, en Nelson lét þessi orð falla í sambandi við skipulagða fundi með forsvarsmönnum múslima í landinu. 24.8.2005 00:01
Íbúðablokk hrundi á Indlandi Að minnsta kosti ellefu manns létust þegar íbúðablokk hrundi til grunna í Bombay á Indlandi í nótt. Þá er 25 manns enn saknað. Húsið var fjögurra hæða og meira en 100 ára gamalt. Þar bjuggu 16 fjölskyldur og voru flestir sofandi þegar húsið hrundi. Ekki er fátítt að hús hrynji í Bombay en erfiðlega gengur að fá fólk til að halda húsum sínum við vegna fátæktar. 23.8.2005 00:01
Fimmtán látist í skógareldum Enn geysa skógareldar í Portúgal og gengur erfiðlega að ráða niðurlögum þeirra. Evrópusambandið hefur orðið við neyðarkalli portúgalskra stjórnvalda og sent flugvélar til að hjálpa slökkviliðsmönnum þar í landi en þurrkar hafa ekki verið eins miklir í Portúgal frá árinu 1945. 23.8.2005 00:01
Öflug sprenging í Beirút Að minnsta kosti þrír særðust er sprengja sprakk í verslunarmiðstöð í Beirút, höfuðborg Líbanon í gær. Sprengjan var mjög öflug en sérfræðingar segja að um 20 kíló að TNT efni hafi verið notað. 23.8.2005 00:01
Armstrong sakaður um lyfjanotkun Stærsta íþróttablað Frakklands, Le Equipe segir að hjólreiðamaðurinn Lance Armstrong hafi notað hið forboðna lyf EPO þegar hann sigraði í fyrstu Tour de France hjólreiðakeppninni árið 1999. 23.8.2005 00:01
Mannskæð fuglaflensa í Kasakstan Staðfest hefur verið að mannskæð fuglaflensa hefur borist til sjö þorpa í Kasakstan. Talin er bráð hætta á að H5N1-stofn fuglaflensu breiðist út um vesturhluta landsins. Frönsk heilbrigðisyfirvöld segja hættuna á fuglaflensusmiti í Evrópu af völdum farfugla frá Rússlandi takmarkaða en að rétt sé að vera á verði. 23.8.2005 00:01
Valdbeiting á landnemabyggðum Ísraelskar hersveitir brutust með valdi inn í tvær landnemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum í morgun og drógu þaðan öfgahægrimenn sem komið höfðu sér þar fyrir. Lögreglumenn réðust inn í bænahús og borgarvirki í byggðunum Sanur og Homesh, en þar voru landnemar búnir undir átök. 23.8.2005 00:01
Raðsprengjumaður dæmdur Maðurinn sem sprengdi sprengju í Ólympíugarðinum í Atlanta árið 1996, með þeim afleiðingum að ein kona lést og 111 slösuðust, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi í Atlanta í Bandaríkjunum. 23.8.2005 00:01
Brottflutningi lokið Brottflutningi gyðinga frá Gaza er lokið, eftir hátt í fjörutíu ára landnám. Bush Bandaríkjaforseti sagði brottflutninginn sögulegt skref í átt til friðar í Mið-Austurlöndum. Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna hefur lofað Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, að vinna að friði fyrir botni Miðjarðarhafs. 23.8.2005 00:01
Föngum sleppt í Rúanda Yfir tuttugu þúsund föngum hefur verið sleppt úr fangelsum í Rúanda að undanförnu. Þetta er þó um fjórtán þúsund föngum færra en fangelsisyfirvöld lofuðu í síðasta mánuði. Pal Kagame, forseti landsins, fyrirskipaði í janúar árið 2003, að þeir sem settir hefðu verið í fangelsi án dóms og laga yrði sleppt en föngunum er gefið að sök að hafa átt aðild að þjóðarmorðunum í landinu árið 1994. 23.8.2005 00:01
Banvænasta flensa sögunnar Fuglaflensa er banvænasta flensa sögunnar. Meira en helmingur þeirra sem sýkjast lifa ekki af. Staðfest hefur verið að mannskæð fuglaflensa hefur borist til sjö þorpa í Kasakstan. Talin er bráð hætta á að H5N1-stofn fuglaflensu breiðist út um vesturhluta landsins. 23.8.2005 00:01
Harðvítugar deilur um stjórnarskrá Harðvítugar deilur standa um stjórnarskrá Íraks en drög að henni voru lögð fram í gærkvöldi. Til stendur að þingið samþykki stjórnarskrána á næstu dögum þrátt fyrir mótmæli og hótanir um borgarastríð. 23.8.2005 00:01
Bruðlaði með fé embættisins Sjávarútvegsráðherra Grænlands hefur hrökklast úr embætti fyrir misnotkun á almannafé. Rasmus Fredriksen tók við embættinu í nóvember á síðasta ári. Fram að áramótum notaði hann um tvöhundruð þúsund krónur af risnufé embættisins. 23.8.2005 00:01
Arftaki Concorde í loftið Japanska geimvísindastofnunin ætlar í september að reynslufljúga arftaka Concorde farþegaþotunnar. Búið er að fá heimild til flugsins yfir eyðimörkum Ástralíu. 23.8.2005 00:01
Khodorovsky í hungurverkfalli Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorovsky er í hungurverkfalli, í fangelsi sínu, til þess að mótmæla meðferðinni á viðskiptafélaga og vini, sem haldið er í einangrun. 23.8.2005 00:01
Deila um eyju Tvö kanadísk herskip eru á leiðinni að Hans-ey sem liggur milli Grænlands og Kanada, en þessi tvö lönd deila hart um yfirráð yfir eynni. 23.8.2005 00:01
Vesturbakkinn rýmdur Ísraelski herinn hefur lokið flutningum á landnemum frá Vesturbakkanum. Eins og á Gaza svæðinu gekk það fljótt og vel fyrir sig, þrátt fyrir hótanir öfgamanna um harða mótspyrnu. </font /> 23.8.2005 00:01
Slysaskot í innflytjendaerjum Tveir ungir menn særðust í uppgjöri tveggja hópa innflytjenda í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. 23.8.2005 00:01