Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkvistarf gengur betur Betur gengur nú en áður að ráða niðurlögum skógareldanna í Portúgal, sem hafa geisað þar að undanförnu. 23.8.2005 00:01
Kæfður og vafinn inn í segldúk Skoskir lögreglumenn upplýstu í gær að Rory Blackhall, ellefu ára, hefði að öllum líkindum verið myrtur en lík hans fannst á sunnudaginn. Málið hefur að vonum vakið mikinn óhug í Bretlandi. 23.8.2005 00:01
Tíminn of naumur Formaður stjórnarskrárnefndar Íraks telur þrjá daga ekki nægja til að ná samkomulagi um stjórnskipan landsins. Vera má að plaggið verði borið undir þjóðaratkvæði þrátt fyrir andstöðu súnnía. 23.8.2005 00:01
Brottflutningnum lokið Rýmingu 25 landnemabyggða á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni lauk í gær. Þrátt fyrir mikla andstöðu á meðal heittrúaðra gyðinga kom til mun minni átaka en óttast hafði verið. 23.8.2005 00:01
Sannleikurinn um píanómanninn Einhver leyndardómsfyllsta frétt sumarsins fjallaði um mállausan píanóleikara sem fannst rennandi blautur á breskri strönd. Eftir mánaðadvöl á breskri sjúkrastofnun er sannleikurinn um hann loksins kominn í ljós. 23.8.2005 00:01
Kynjaaðskilnaður í strætó Yfirvöld í Nígeríu hafa ákveðið að grípa til aðgerða til þess að sporna gegn siðferðilegri hnignun í borginni Kanó í norðurhluta landsins. 23.8.2005 00:01
Vilja ekki fleiri trúarskóla Tveir þriðju hlutar Breta eru mótfallnir áformum ríkisstjórnarinnar um að fjölga skólum reknum af trúfélögum í landinu, samkvæmt skoðanakönnun sem breska blaðið The Guardian lét vinna. Tilgangurinn er að fjölga valkostum í skólakerfinu. 23.8.2005 00:01
Deilt um öryggismyndavélar Fregnum ber ekki saman af því hvort öryggismyndavélar á Stockwell neðanjarðarlestarstöðinni í Lundúnum hafi verið í lagi daginn sem Brasilíumaðurinn Jean Charles de Menezes var skotinn af lögreglunni. <b style="mso-bidi-font-weight: normal" /> </strong /> 23.8.2005 00:01
Trúleysi veldur páfa áhyggjum Benedikt sextándi páfi, kom í gærkvöld til Ítalíu, eftir fjögurra daga heimsókn til Þýskalands þar sem hann sagði kaþólskum biskupum að þeir yrðu að leggja meira á sig til að fá menn í prestastarfið og til að fá fólk til að ganga í kaþólsku kirkjuna. 22.8.2005 00:01
Rýmingu Gaza nær lokið Búið er að rýma nær allar landnemabyggðir á Gaza og segja ísraelsk stjórnvöld brottflutninginn hafa gengið mun betur fyrir sig en áætlað var í byrjun. 22.8.2005 00:01
Rútuslys í Nepal Að minnsta kosti 13 manns fórust og um 30 slösuðust þegar rúta féll niður í djúpt gil í fjalllendi í norðvesturhluta Nepals í morgun. Féll rútan niður um 600 metra en slysið varð á afskekktum slóðum og því liður margar klukkustundir þar til einhver tók eftir flaki rútunnar. 22.8.2005 00:01
Hagel vill bandaríska hermenn heim Chuck Hagel, sem nefndur hefur verið líklegur frambjóðandi Repúblikana, í næstu forsetakosningum, sagði í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC í gær, að Íraksstríðið líktist æ meir Víetnam stríðinu og að Bandaríkin þyrftu að gera áætlun sem gerði ráð fyrir að herinn færi frá landinu innan fárra ára. 22.8.2005 00:01
Yfirgefa heimli sín vegna átaka Hundruð Íraka hafa yfirgefið heimili sín í bænum Rawah, vegna stöðugrar baráttu milli bandaríska hersins og íraskra uppreisnarmanna. Hús, verslanir og opinberar byggingar eru víða í rúst og hafa margar götur verið lokaðar. 22.8.2005 00:01
Fjörutíu særast í nautahlaupi Að minnsta kosti fjörutíu særðust, þar af fimmtán alvarlega, eftir að þúsundir manna tóku þátt í nautahlaupi í Tlaxcala í Mexíkó í gær. Um er að ræða árlegan viðburð sem felst í því að sleppa fjölda nauta út á götur borgarinnar í von um að það nái engum en samskonar viðburður er haldinn á Spáni á hverju ári. 22.8.2005 00:01
Haldlögðu þrjú tonn af kókaíni Sjóher Venezuela lagði í gær hald á rúmlega þrjú tonn af kókaíni sem voru um borð í skipi sem sigldi á alþjóðlegu hafsvæði austur af Trinidad-eyju. Í bátnum voru alls níu menn og voru þeir allir handteknir en skip sjóhersins hafði elt bátinn í þrjá daga. Eiturlyf frá Kólumbíu, aðallega kókaín, fer oft um Venezuela en þaðan er það flutt til Bandaríkjanna og til Evrópu. 22.8.2005 00:01
Ekki bólar enn á stjórnarskrá Ekkert bólar enn á stjórnarskrá Íraks, en hún á að liggja fyrir í dag. Í síðustu viku gáfu írakskir þingmenn sér viku til viðbótar til að ná sáttum um drög að stjórnarskrá og virðist sem að þeir hafi um fátt annað að velja í dag en að framlengja frestinn um aðra viku. 22.8.2005 00:01
Ráðgátan um píanómanninn leyst Píanómaðurinn svokallaði sem fannst holdvotur á strönd í Bretlandi fyrir fjórum mánuðum, hefur nú loks leyst frá skjóðunni og er farinn heim til Þýskalands. 22.8.2005 00:01
Deilt um stjórnarskrá í Írak Ekkert bólar enn á stjórnarskrá Íraks en hún á að liggja fyrir í dag. Fréttaskýrendur segja hægt að lengja frestinn eða leysa upp þingið og efna til nýrra kosninga. 22.8.2005 00:01
Portúgalar berjast enn við elda Flugvélar sem notaðar eru til þess að berjast við skógarelda steyma nú til Portúgals, en stjórnvöld þar hafa beðið um aðstoð, þar sem þau ráði ekki lengur við eldana. Flugvélar frá Frakklandi og Spáni eru komnar til landsins, og fleiri eru á leiðinni, meðal annars frá Kanada. 22.8.2005 00:01
Herskáir prestar reknir frá Evrópu Herskáir prestar múslima eru nú reknir frá Evrópu, hver af öðrum. Innanríkis- og dómsmálaráðherrar Frakklands, Ítalíu, Þýskalands og Bretlands gerðu með sér samkomulag um að ráðast þannig strax að rótum vandans, án þess að bíða eftir því að Evrópusambandið, sem heild, tæki afstöðu í málinu. 22.8.2005 00:01
Réttarhöldum frestað Héraðsréttur í Boksburg frestaði í gær máli yfir parinu sem grunað er um að hafa myrt Gísla Þorkelsson í Suður-Afríku. Þau Willie Theron 28 ára og Desiree Oberholzer 43 ára eiga að mæta aftur fyrir rétti 5. september. 22.8.2005 00:01
Vildu selja ungling fyrir krakk Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur komið upp um par í Ohio-ríki sem ætlaði að selja 15 ára stúlku í skiptum fyrir pakka af krakki. Nota átti stúlkuna í vændi. 22.8.2005 00:01
Hollenska hænsnfugla undir þak Yfirvöld í Hollandi ætla að leggja bann við því að bændur hafi hænsnfugla sína utandyra í því skyni að sporna gegn útbreiðslu á fuglaflensu. 22.8.2005 00:01
Millilandaflug hefst til Basra Flugvél frá útlöndum lenti í fyrsta skipti í fimmtán ár í Basra, nærststærstu borg Íraks, í gær en þá komst millilandaflug á að nýju eftir langt hlé, við mikinn fögnuð heimamanna, að því er AP-fréttastofan skýrir frá. 22.8.2005 00:01
Varafréttastjóri TV 2 segir af sér Varafréttstjóri sjónvarpsstöðvarinnar TV 2 í Danmörku hefur sagt starfi sínu lausu, eftir að hún hleypti í gegn fréttapistli um innflytjendagengi, sem ekki var fótur fyrir. 22.8.2005 00:01
Saklausir fá engar bætur Fangar í Bandaríkjunum sem hafa ranglega verið dæmdir fyrir glæpi sem þeir frömdu ekki eiga í miklum erfiðleikum með að sækja bætur frá ríkinu. 22.8.2005 00:01
Fyrsti gifti prestur Spánar Kaþólski biskupinn á spænsku eyjunni Teneríf á Kanaríeyjum hefur skipað giftan, tveggja barna föður í embætti prests á eyjunni. 22.8.2005 00:01
100 þúsund manna borg í hættu Þúsundir slökkviliðsmanna og enn fleiri íbúar Portúgal unnu hörðum höndum við að ráða niðurlögum skógarelda sem geisa víða um landið. Hundrað þúsund manna borg er í hættu og ríkisstjórnin hefur beðið nágrannaþjóðir um hjálp. </font /></b /> 22.8.2005 00:01
Vélina skorti eldsneyti Fall á loftþrýstingi og eldsneytisskortur varð til þess að kýpverska flugvélin, sem hrapaði norður af Aþenu í Grikklandi fyrr í mánuðinum þegar 121 farþegar og áhöfn létust, missti afl. 22.8.2005 00:01
Brasilíumenn yfirheyra nefnd Tveir háttsettir brasilískir embættismenn komu til Lundúna í gær til að yfirheyra rannsóknarnefndina sem rannsakar drápið á Jean Charles de Menezes. 22.8.2005 00:01
Brasilísk stjórnvöld vilja svör Ian Blair kveðst nú ekki hafa vitað að brasilíumaðurinn Jean Charles De Menezes hefði verið blásaklaus fyrr en sólarhring eftir að hann var skotinn á neðanjarðarlestarstöð í misgripum fyrir hryðjuverkamann. 22.8.2005 00:01
Farfuglar smitleið fuglaflensu Rússneskir farfuglar frá Síberíu þar sem fuglaflensa geisar munu verða á vegi íslenskra farfugla í vetur. Allar líkur eru á að flensan berist í kjölfarið hingað til lands í vor. 22.8.2005 00:01
Tekist á um stjórnarskrá Borgarastríð blasir við þvingi Sjítar og Kúrdar sína útgáfu af írakskri stjórnarskrá í gegnum þingið, þvert á vilja Súnníta. 22.8.2005 00:01
Róttækar björgunaraðgerðir Árekstrar mannskepnunnar og tignarlegra kattardýra valda því að bengal-tígrisdýrin eru í útrýmingarhættu. Grípa á til róttækra aðgerða til að sporna við þessari þróun. 22.8.2005 00:01
Stjórnarskrárdrög lögð fram í Írak Drög að nýrri stjórnarskrá Íraks voru kynnt íraska þinginu í gær, þrátt fyrir mótmæli minnihluta súnnía. "Við höfnum stjórnarskrárdrögunum sem lögð voru fram því samþykki okkar vantaði," sagði Nasser al-Janabi, fulltrúi súnnía. 22.8.2005 00:01
Brottflutning lokið á Gaza Brottflutningi landnema gyðinga á Gaza lauk í gær, en Ísraelsher mætti ekki andstöðu þegar farið var inn í Netzarim, síðustu landnemabyggðina, síðdegis í gær. 22.8.2005 00:01
Neitar að hafa vitað af sakleysi Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna, neitar því að hafa vitað að Brasilíumaðurinn sem lögreglan skaut til bana á neðanjarðarlestarstöð fyrir mánuði, hafi verið saklaus, fyrr en sólarhring síðar. Fjölskylda hins látna krefst þess að lögreglustjórinn segi af sér, það geti hreinlega ekki verið að lögreglustjórinn hafi gefið opinberar yfirlýsingar um málið án þess að vera kunnugt um staðreyndir. 21.8.2005 00:01
Einingartákni stolið í Sviss Sögulegu 80 kílóa tákni um einingu svissnesku þjóðarinnar hefur verið stolið. Um er að ræða heljarinnar grjóthnullung sem kallaður er Unspunnenstein. Steinaræningjarnir hafa enn ekki sett fram kröfur um lausnargjald, en talið er að þjófarnir séu frönskumælandi íbúar Júrafjalla sem krefjast þess að þeirra svæði verði hluti af frönskumælandi Júrakantónununni en ekki Bernarkantónu þar sem þýska er ráðandi. 21.8.2005 00:01
Íbúar í Júrafjöllum grunaðir Unspunnenstein, sögulegu áttatíu kílóa tákni um einingu svissnesku þjóðarinnar hefur verið stolið. Lögregla telur hóp frönskumælandi íbúa Júrafjalla vera að verki. 21.8.2005 00:01
Ísraelsher mætir mótstöðu Ísraelski herinn er nú að brjóta sér leið inn í síðustu landnemabyggðirnar á Gaza-ströndinni og á Vesturbakkanum sem á að rýma. Hann hefur mætt töluverðri mótstöðu sums staðar og hefur þurft að nota jarðýtur til að ryðja frá brennandi haugum af dekkjum og heyi sem íbúar hafa hlaðið fyrir framan hliðin að byggðunum. 21.8.2005 00:01
Hátt í milljón við messu páfa Allt að ein milljón ungmenna frá tæplega tvö hundruð löndum hlýddi á útimessu Benedikts sextánda páfa í Marienfeld í Þýskalandi í dag. Messan var lokapunktur fyrstu heimsóknar Benedikts til annars lands og brýndi hann fyrir ungdómnum að í trúnni sé ekki hægt að velja og hafna. 21.8.2005 00:01
Þyrla hafi ekki verið skotin niður Rannsókn á tildrögum þess að þyrla með sautján spænska friðargæsluliða innanborðs hrapaði í Afganistan á þriðjudaginn hefur leitt í ljós að útilokað er að hún hafi verið skotin niður. Allir sem um borð voru létust og var útför þeirra gerð í Madríd í gær. Háttsettur talibanaleiðtogi hafði áður lýst því yfir að skæruliðar talibana hefðu grandað þyrlunni en gat ekkert sýnt því til sönnunar. 21.8.2005 00:01
Ljón drápu konu í Zimbabwe Japönsk kona lést eftir að hópur ljóna réðst á hana í dýrargarði nærri Harare, höfuðborg Zimbabwe, í dag. Konan, sem starfaði í sendiráði Japana í landinu, var í garðinum ásamt fimm samstarfsmönnum og hafði farið inn fyrir ljónagirðingu ásamt starfsmanni garðsins. Þegar konan hugðist svo fara út fyrir girðinguna aftur réðst eitt ljónanna á hana og nokkur önnur fylgdu svo í kjölfarið. 21.8.2005 00:01
Portúgal leitar til ESB vegna elda Portúgalar hafa beðið Evrópusambandið um aðstoð vegna skógarelda sem eyðilagt hafa á annað hundrað þúsund hektara landsvæðis á síðustu vikum. Yfirvöld í Portúgal glíma nú við mestu þurrka sem um getur í landinu frá því að skráningar hófust og hafa þeir gert slökkviliðsmönnum mjög erfitt fyrir. 21.8.2005 00:01
Sprengja sprakk nærri sendiráðsbíl Tveir starfsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í Afganistan særðust lítillega þegar vegsprengja sprakk nærri bílalest þeirra við höfuðborgina Kabúl í dag. Talsmaður sendiráðsins vildi ekki greina frá því hverjir hefðu særst og neitaði að svara því hvor sendiherrann sjálfur, Ronald Neumann, hefði verið í bílalestinni. 21.8.2005 00:01