Sannleikurinn um píanómanninn 23. ágúst 2005 00:01
Einhver leyndardómsfyllsta frétt sumarsins fjallaði um mállausan píanóleikara sem fannst rennandi blautur á breskri strönd. Eftir mánaðadvöl á breskri sjúkrastofnun er sannleikurinn um hann loksins kominn í ljós. Sagan af mállausa píanóleikaranum er næstum þjóðsagnakennd. Hann fannst fyrir rúmum fjórum mánuðum á ströndinni í Sheerness, hundblautur í jakkafötum með bindi. Hann var ekki með skilríki og miðar höfðu verið fjarlægðir af fötum hans. Enginn vissi hver maðurinn var og sjálfur sagði hann ekki orð. Hann var færður á sjúkrahúsið Little-Brook í Dartford, þaðan sem ótrúlegar sögur bárust. Starfsfólkið á að hafa rétt honum bleðil og penna svo að hann gæti skrifað nafnið sitt, en hann teiknaði flygil. Breskir fjölmiðlar greindu frá því að hann væri hreinn píanósnillingur sem léki verk stóru meistaranna tímunum saman. Allt vera þetta tómt kjaftæði. Í fyrsta lagi kann maðurinn ekkert á píanó, heldur barði alltaf sömu nótuna. Og á föstudaginn var kom í ljós að hann var hvorki mállaus né mikið veikur, því þá stundi hann því upp hver hann er. Þarna reyndist vera á ferð Andreas Grassl frá Prosdorf í Þýskalandi. Hann kvaðst hafa farið frá París til Bretlands eftir að hafa verið rekinn úr vinnunni sinni og reynt að fremja sjálfsmorð á ströndinni. Allt sem á eftir fylgdi telja Bretar nú að hafi verið leikrit, þar sem Andreas vann lengi með geðsjúkum og er talinn hafa notfært sér þá vitneskju til að plata starfsfólk sjúkrahússins. Andreas er nú kominn aftur til Þýskalands, þar sem enginn skilur neitt í neinu. Nágranni hans sagði hegðun hans vera ótrúlega. Hún sagði að hann væri gáfaður maður sem sem alltaf hefði staðið sig vel í skóla og hún sagði þetta auðvitað vera algjöran óþarfa honum að láta svona. Á sjúkrahúsinu íhuga menn nú skaðabótamál til að fá upp í kostnað við umhyggjuna en íhuga einnig hvort að ekki sé dulítið til í því að Andreas sé ekki með öllum mjalla.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira