Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjöldamorðanna í Srebrenica minnst Um 50 þúsund manns tóku þátt í minningarathöfn um þá sem fórust í fjöldamorðum Bosníu-Serba á bosnískum múslimum í og við Srebrenica fyrir tíu árum. 11.7.2005 00:01
Tíu ár frá fjöldamorðunum Tugþúsundir minntust þess í Srebrenica í Bosníu í dag að tíu ár eru liðin frá því að átta þúsund íslamskir karlar og drengir voru myrtir á hrottalegan hátt af Bosníu-Serbum í Bosníustríðinu. 11.7.2005 00:01
Árásarmennirnir breskir? Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram. Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar, John Stevens, skrifar grein í dagblað í dag þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að yfirgnæfandi líkur séu á að árásarmennirnir séu breskir, en ekki útlendingar. Hann segir jafnframt að lögreglan hafi komið í veg fyrir átta árásir af sama tagi á undanförnum fimm árum. Þrjár hreyfingar íslamskra öfgamanna hafa gengist við tilræðunum í Lundúnum. 10.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Bagdad Átján fórust og yfir fjörutíu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad í morgun. Árásin var gerð á skráningarstöð nýliða fyrir írakska herinn. Þetta er mannskæðasta árásin í Írak í þessari viku, en vikan þykir raunar hafa verið hlutfallslega róleg. 10.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis í hámarki Nærri einni og hálfri milljón hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín við Mexíkó-flóa í Bandaríkjunum, en hann hefur dýpkað mjög og er óttast að hann geti valdið gríðarlegri eyðileggingu. 10.7.2005 00:01
Tvær kenningar um árásina Margar kenningar eru á lofti varðandi árásirnar á Lundúni og ein er sú að hvítir málaliðar kunni að hafa framið hryðjuverkin fyrir al-Qaeda og að sami hópur sé að verki og í Madríd. Í gær bárust fregnir af því að Bretar hefðu beðið um að leitað yrði eftir Mohamed Guerbouzi, íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt, um alla Evrópu. Nú virðist sem hann hafi verið útilokaður sem leiðtogi hryðjuverkahópsins. 10.7.2005 00:01
Ummæli múslímaprests olía á eld Í viðtali við danska blaðið Politiken í gærkvöldi segir Troels Lund Poulsen, talsmaður utanríkismála annars stjórnarflokkanna í Danmörku, að með ummælum sínum hafi trúarleiðtoginn verið að réttlæta hryðjuverk. Að mati Poulsens er það ekki lögmætt viðhorf, eins og hann orðar það, að kenna Bandaríkjamönnum um, þannig bæti leiðtoginn olíu á eld öfgafullra múslima. 10.7.2005 00:01
Viðbúnaðarstig í London hækkað Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram, en fyrrverandi lögreglustjóri Lundúna telur hryðjuverkamennina innlenda. Enn er reynt að bjarga líkum úr lestargöngum við King's Cross, við erfiðar aðstæður. 10.7.2005 00:01
Fækkun í herliðum á næsta ári Bandaríkjamenn og Bretar ætla að fækka um helming í herliði sínu fyrir mitt næsta ár, samkvæmt leyniskýrslu breska varnarmálaráðuneytisins, sem lekið hefur verið í fjölmiðla. 10.7.2005 00:01
Styrjaldarloka minnst í Lundúnum Tugþúsundir manna tóku þátt í hátíðahöldum í Lundúnum í dag þar sem fórna þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni var minnst. Elísabet Englandsdrottning og Tony Blair forsætisráðherra mættu til messu í Westminster Abbey í dag, ásamt hundruðum uppgjafa hermanna. Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman við kirkjuna 10.7.2005 00:01
Fjölamorðanna í Srebrenica minnst Þúsundir múslíma í Bosníu röktu í dag slóð þeirra átta þúsund karla og drengja sem voru drepnir í bænum Srebrenica. Tíu árum eftir voðaverkin er biturð og reiði enn áberandi í Bosníu og íbúar þar segjast óttast að átök geti brotist út hvenær sem er. 10.7.2005 00:01
Tugir farast í sprengjuárásum Að minnsta kosti fjörutíu manns létust í fimm sjálfsmorðsárásum í Írak í gær. Mannskæðasta árásin átti sér stað þegar maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan skráningarstöð hersins við flugvöllinn Muthana í Bagdad. Þar létust 25 og 47 eru særðir.</font /> 10.7.2005 00:01
London í dag Hryðjuverk og viðvaranir komu ekki í veg fyrir að um tvöhundruð þúsund Lundúnabúar þyrptust út á götur borgarinnar til að minnast endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Á sama tíma bárust fregnir af handtöku meintra hryðjuverkamanna. 10.7.2005 00:01
Múslimar í Danmörku Trúarleiðtogi múslima í Kaupmannahöfn sagði í ræðu á föstudaginn að hann fordæmdi hryðjuverkin í London. Hann kenndi jafnframt Bandaríkjamönnum um slíkar árásir, þar sem þeir træðu hugmyndafræði sinni uppá aðra menningarheima. 10.7.2005 00:01
Hættið í nafni almættisins "Við skulum biðja fyrir þeim sem létust, þeim sem særðust og þeim sem standa þeim nærri. En við skulum líka biðja fyrir árásarmönnunum: Látum Guð snerta hjörtu þeirra," sagði Benedikt XVI páfi þegar hann ávarpaði fólk af svölum sínum við Péturstorg. 10.7.2005 00:01
Óvissa um uppruna tilræðismanna Þrír menn voru handteknir á Heathrow flugvelli í gær á grundvelli heimilda laga um hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld neituðu því þó að handtakan stæði í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á fimmtudag. "Þessar handtökur eru ekki á grundvelli upplýsinga um sprengingarnar í Lundúnum," sagði Brian Paddick hjá lögreglunni. 10.7.2005 00:01
Telja öll líkin fundin Lundúnalögreglan telur að tekist hafi að finna öll líkin sem grafin voru undir braki á stöðunum fjórum í London þar sem hryðjuverkin voru gerð á fimmtudag. Talið er að endanleg tala látinna verði 49 eða litlu fleiri. 10.7.2005 00:01
Tvær milljónir flýðu heimili sín Hátt í tvær milljónir einstaklinga þurftu að yfirgefa heimili sín í strandbyggðum Flórída og Alabama þegar fellibylurinn Dennis gekk yfir og olli miklum skemmdum. Fellibylurinn fór yfir á sama stað og fellibylurinn Ivan olli miklum skemmdum fyrir innan við ári síðan. Skaðinn þá var svo mikill að enn er ekki búið að byggja upp allt sem eyddist þá. 10.7.2005 00:01
Minningin er aldrei langt undan Eftir því sem dagarnir líða frá hryðjuverkunum á fimmtudaginn er lífið í höfuðborg Bretlands smátt og smátt að komast í sitt fyrra horf. Margir borgarbúar minntust þeirra sem létust með því að leggja blóm við King's Cross stöðina.</font /></b /> 10.7.2005 00:01
Mikið forskot hægrimanna Kristilegir demókratar og systurflokkur hans í Bæjaralandi fengju 43 prósent atkvæða ef kosið yrði nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í Berliner Morgenpost í gær. Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröder kanslara fengi 28 prósent atkvæða og Græningjar, sem mynda stjórn með honum, átta prósent. 10.7.2005 00:01
Aftur að samningaborðinu Norður-kóresk stjórnvöld snúa aftur að samningaviðræðum um lausn kjarnorkudeilunnar á Kóreuskaga, ári eftir að þau hættu að mæta á samningafundi. Þessu lýstu þau yfir eftir leynilegan fund sem fulltrúar Norður-Kóreu og Bandaríkjanna áttu í Peking, höfuðborg Kína, um helgina. 10.7.2005 00:01
Björgunaraðgerðir í London Björgunarmenn reyna nú sitt ítrasta til að bjarga líkum þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á London, en fjöldi þeirra liggur í löskuðum lestargöngum langt undir yfirborði jarðar. Staðfest hefur verið að fjörutíu og níu voru myrtir í árásinni en vitað er að rauntalan er hærri þar sem líkin í göngunum eru ekki talin með. 9.7.2005 00:01
Árásir á uppreisnarmenn í Írak Bandarískir landgönguliðar hófu í morgun nýja hrynu árása á uppreisnarmenn, en til stendur að reyna að útrýma búðum uppreisnarmanna í Efrat-dalnum. Fimm hundruð bandarískir og hundrað írakskir hermenn taka þátt í aðgerðinni. 9.7.2005 00:01
Spænskir stjórnmálamenn skotmörk Spænskir stjórnmálamenn eru enn á skotmarkalista ETA, aðskilnaðarsamtaka herskárra Baska, þrátt fyrir að samtökin hafi lýst yfir vopnahléi í byrjun júní. Þar var sagt að ekki yrði reynt að ráða stjórnmálamenn af dögum, en nú segja spænsk dagblöð frá því að stjórnmálamenn sem séu í héraðsstjórnum eða ríkisstjórninni séu enn í sigtinu. 9.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis Þrjátíu og tveir hafa týnt lífi eftir yfirreið fellibylsins Dennis um Karabíska hafið. Dennis skall á Havana á Kúbu snemma í morgun og reif þar upp tré með rótum og rafmagnslaust varð í borginni. Á ferði sinni yfir Kúbu dró úr krafti Dennis sem er langstærsti fellibylurinn sem sést hefur á svæðinu í ár og raunar er hann talinn öflugasti fellibylur sem mælst hefur svo snemma á árinu. 9.7.2005 00:01
Leit hafin að grunuðum Breska lögreglan Scotland Yard og leyniþjónustan MI 5 hafa beðið kollega sína um alla Evrópu að hafa uppi á Mohamed Guerbouzi, fjörutíu og fjögurra ára gömlum íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt. Talið er að hann geti verið leiðtogi hópsins sem skipulagði hryðjuverkin á fimmtudaginn. 9.7.2005 00:01
Árásirnar afar vel skipulagðar Óttast er að allt að 75 hafi týnt lífi í hryðjuverkunum London. Enn hefur ekki tekist að ná öllum líkum úr lestarvögnunum og á meðan leita grátandi ættingjar að þeim sem saknað er. Flest bendir til að árásirnar hafi verið vel skipulagðar en þær voru gerðar nánast samtímis á þremur stöðum. Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 var í London og hún segir rannsóknina á hryðjuverkunum eina þá viðamestu sem lögreglan í Lundúnum hefur staðið frammi fyrir. 9.7.2005 00:01
Miðborg Birmingham rýmd Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana. 9.7.2005 00:01
Kennsl ekki borin á líkin Sprengjurnar sem sprungu í þremur neðanjarðarlestum á fimmtudag voru svo öflugar að ekki hafa enn verið borin kennsl á lík þeirra sem létust í árásunum. Þessu greindu breskir lögreglumenn. Staðfest hefur verið að 49 hafi látist og segir lögreglan að tala látinna eigi eftir að hækka eitthvað en draga í efa að hún eigi eftir að hækka mjög mikið. 9.7.2005 00:01
Björgunarfólkið hinar nýju hetjur Bretar tala þessa dagana um nýjar hetjur, fólkið sem fór niður í lestargöngin til að hjálpa þeim sem særðust í sprengjuárásunum á fimmtudag og gátu ekki bjargað sér út sjálfir. 9.7.2005 00:01
Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir. 9.7.2005 00:01
142 handteknir Ítalskir lögreglumenn handtóku 142 einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í og við Mílanó á föstudag og laugardag. Handtökurnar eru hluti af stórauknum viðbúnaði á Ítalíu í kjölfar hryðjuverkanna í Lundúnum og hótana um hryðjuverk á Ítalíu. 9.7.2005 00:01
Tugir drukkna í Kaspíahafi Rúmlega 32 einstaklingar drukknuðu í Kaspíahafi þegar þeir voru á sundi undan norðurströnd Írans. Lík 32 einstaklinga fundust á sjö stöðum á ströndinni við Kaspíahaf á föstudag að sögn þeirra sem skipulögðu hjálparstarf. 9.7.2005 00:01
Ráðast verður að rótum hryðjuverka Ráðast verður að félagslegum orsökum hryðjuverka ef takast á að vinna bug á þeim sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Orsakirnar sagði hann vera fátækt, skort á lýðræði og áframhaldandi átök í Mið-Austurlöndum. 9.7.2005 00:01
Fjórir fengu að kenna á hornunum Naut stungu fjóra hlaupara með hornum sínum í nautahlaupinu í Pamplona í gær. Fjöldi annarra hlaupara slasaðist lítillega í hlaupinu sem dregið hefur að sér mikinn mannfjölda líkt og undanfarin ár. 9.7.2005 00:01
Hvert dauðsfall er harmleikur Eftir því sem meira kemur í ljós um illvirkin sem unnin voru í Lundúnaborg á fimmtudagskvöldið á maður erfiðara með að skilja þau. Hvers vegna kýs nokkur maður að grípa til þess ráðs að skilja eftir tifandi tímasprengju í rútu eða lest fullri af saklausu fólki? Við þeirri spurningu er að líkindum ekki til neitt rökrétt svar. 9.7.2005 00:01
Fólk er bæði skelkað og hissa Sendiráðspresturinn í Lundúnum segir að mestu samstöðuna sýni fólk með því að halda sínu striki. 9.7.2005 00:01
London í morgun Lundúnarlögreglan fann grunsamlegan böggul nærri Liverpool lestarstöðinni í London upp úr klukkan átta í morgun og var vegfarendum beint frá, en hættuástandi hefur verið aflýst. Á áttunda tímanum í morgun var Euston brautarstöðin í miðborginni líka rýmd í öryggisskyni, en rétt fyrir klukkan átta var hættuástandi þar aflýst. 8.7.2005 00:01
Öryggisgæsla í Evrópu aukin Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega. 8.7.2005 00:01
Talibanar fagna hvorki né syrgja Talsmaður uppreisnarmanna í Afghanistan sagði í morgun bresku þjóðina vera að gjalda fyrir voðaverk stjórnvalda sinna. Hann segir Talibana hvorki fagna árásinni né syrgja hana, en hins vegar hefðu þeir fagnað ef ráðist hefði verið á breska hermenn eða stjórnmálamenn. Hann segir Talibana ekkert hafa komið nálægt árásunum í gær. 8.7.2005 00:01
Íslendingar í London Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja, og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá. 8.7.2005 00:01
Íslendingar í London Tekist hefur að hafa upp á öllum þeim Íslendingum sem óttast var um í gær í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London. Að sögn Illuga Gunnarssonar aðstoðarmanns utanríkisráðherra hafði Utanríkisráðuneytið lista með tvö til þrjú hundruð nöfnum og hefur tekist að hafa upp á öllum sem voru á listanum. 8.7.2005 00:01
Tvöfalda þróunaraðstoð Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims lofuðu í gær að styrkja ríki Afríku um fimmtíu milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar 3.300 milljörðum íslenskra króna. Einnig var ákveðið að styrkja stjórnvöld í Palestínu um þrjá milljarða dala, eða um 200 milljarða íslenskra króna. 8.7.2005 00:01
Ótti á Ítalíu Mikill viðbúnaður hefur verið hjá ítölsku lögreglunni í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London í fyrradag en leynileg samtök Al-Kaída í Evrópu, sem lýstu ábyrgð árásanna á hendur sér, tiltóku Ítalíu og Danmörku sérstaklega sem skotmörk fyrir stuðninginn við innrásir í Írak og Afganistan. 8.7.2005 00:01
Mikið bloggað eftir árásirnar Fjöldamargir virðast hafa leitað á náðir bloggsins eftir árásirnar í Lundúnum. Þeir sem voru í nánd við árásirnar hafa skrifað um reynslu sína og birt myndir teknar með GSM-símum á vettvangi. 8.7.2005 00:01