Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmenni við útför Arafats Leiðtogar hvaðanæva að úr heiminum streyma nú til Egyptalands til að vera við útför Jassirs Arafats, sem fer fram fyrir hádegi. Hann verður síðar jarðsettur í Ramallah. Ísraelsmenn hafa lokað af Vesturbakkann og Gasa-ströndina til að koma í veg fyrir ofbeldisverk, en hryðjuverkahópur Hamas-samtakanna hefur heitið áframhaldandi árásum. 12.11.2004 00:01
4 teknir vegna nauðgunar í Noregi Norska lögreglan hefur handtekið fjóra unga innflytjendur frá fyrrum Júgóslavíu og Kósóvo, grunaða um að hafa nauðgað fimmtán ára stúlku í Fredrikstad. Þeir numu hana á brott með sér í bíl, þar sem hún beið eftir strætisvagni, óku með hana til annars bæjar og nauðguðu henni. Að því búnu óku þeir aftur til Fredrikstad og skildu hana eftir. 12.11.2004 00:01
Bandaríkjamanni rænt í Írak Bandaríkjamanni hefur verið rænt í Írak, og sendi írakskur hryðjuverkahópur frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann hefði manninn í haldi. Arabísk sjónvarpsstöð sýndi myndbandsupptöku af manninum, sem starfar sem óbreyttur stjórnandi á flugvellinum í Bagdad. 12.11.2004 00:01
6 látast í jarðskjálfta Öflugur jarðskjálfti kostaði sex manns lífið í Indónesíu í morgun. Fjörutíu og sex hið minnsta slösuðust, en skjálftinn mældist sex á richter. Fjöldi bygginga varð fyrir skemmdum og nokkur fjöldi eftirskjálfta hefur mælst. Jarðskjálftans var mest vart á eynni Alor, þar sem um hundrað og sjötíu þúsund manns búa í talsverðri fátækt. Sökum frumstæðra samgöngumannvirkja eiga björgunarmenn erfitt um vik með að koma fólki til bjargar. 12.11.2004 00:01
Rússar banna reykingar Rússar hyggjast banna reykingar á opinberum vettvangi. Frumvarp liggur nú fyrir rússneska þinginu, þar sem lagt er til að reykingar verði bannaðar á vinnustöðum og sjúkrahúsum, einungis verði leyft að reykja á tilgreindum reykingasvæðum í opinberum byggingum og sala tóbaks verði bönnum í íþróttahúsum og líkamsræktarstöðvum. 12.11.2004 00:01
Blair í Hvíta húsinu George Bush, Bandaríkjaforseti, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræða í dag saman í Washington og verða málefni Miðausturlanda efst á baugi. Búist er við því að Bush geri við það tækifæri grein fyrir hugmyndum sínum um framtíð friðarferlisins þar eftir fráfall Jassirs Arafats. 12.11.2004 00:01
Útför í skugga óvissu Útför Jassirs Arafats fór fram í Egyptalandi í morgun í skugga óvissu um banamein hans, sögusagna um himinháar lífeyrisgreiðslur til ekkju hans og ringulreiðar um eftirmenn. Leiðtogar frá yfir fimmtíu ríkjum voru viðstaddir útförina í Kairó í morgun, en almenningur fékk ekki að taka þátt í athöfninni. 12.11.2004 00:01
Hart barist í Fallujah Loftárásir standa nú yfir á borgina Mósúl í Írak, og harðir bardagar standa í Fallujah. Í Bagdad berjast þjóðvarðliðar við skæruliða. Mikið mannfall hefur verið undanfarinn sólarhring. Átökin í Írak eru í raun og veru stríð. Bandaríkjamenn segjast hafa meirihluta borgarinnar Fallujah í Írak á valdi sínu, en átök við skæruliða og hryðjuverkamenn halda þó áfram í suðurhluta borgarinnar. 12.11.2004 00:01
Lax og sjóbirtingur saman í sæng Fundist hafa seiði í norsku laxveiðiánni Drivu í Swunndal, sem eru blendingar af laxi og sjóbirtingi. Samkvæmt upplýsingum norsku náttúrurannsóknastofunnar er talið sennilegt að bæði villtur lax og eldislax hafi tekið þátt í hrygningunni með sjóbirtingnum. 12.11.2004 00:01
Leikarnir langt fram úr áætlun Kostnaður Grikkja vegna ólympíuleikanna í sumar var helmingi meiri en áætlanir sögðu til um. Aðeins ári fyrir leikana hljóðaði kostnaðaráætlun upp á tæpa fimm milljarða evra, eða nærri fjögurhundruð og fjörutíu milljarða króna. Nú, þegar uppgjör liggur fyrir, er ljóst að leikarnir kostuðu Grikki um níu milljarða evra, um sjöhundruð og níutíu milljarða króna. 12.11.2004 00:01
29 handteknir í Hollandi Lögregla í Hollandi réðst á meintar æfingabúðir verkamannaflokks Kúrdistans í morgun og handtók þar tuttugu og níu. Talið er að skæruliðar á vegum flokksins hafi æft í búðunum. Lögregluyfirvöld í Hollandi vilja ekki tjá sig um málið, en fyrr í vikunni bannaði hollenskur dómstóll framsal eins leiðtoga flokksins til Tyrklands. 12.11.2004 00:01
Netviðskipti í gríðarlegri sókn Reiknað er með að minnsta kosti 50% aukningu á netviðskiptum í Danmörku fyrir jólin. Netviðskipti aukast sífellt og það eru ekki lengur bókaverslanir, plötubúðir og ferðaskrifstofur sem sitja einar að Netviðskiptum. Gæði og öryggi Netviðskipta hafa aukist mikið á undanförnum árum og endurspeglast það í aukinni sölu. 12.11.2004 00:01
Byssumaður gefur sig fram Belgískur byssumaður, sem drap fjóra og slasaði tvo, þegar hann gekk berseksgang með byssu sína í gær, hefur gefið sig fram og játað á sig verknaðinn að sögn lögregluyfirvalda í Belgíu. Atvikið átti sér stað í borginni Ghent í Vesturhluta Belgíu í gærkvöld og er talið að fjölskylduerjur hafi orðið þess valdandi að maðurinn sleppti sér með fyrrgreindum afleiðingum. 12.11.2004 00:01
Hröklast úr starfi fréttastjóra Einn þekktasti fréttamaður Ítalíu, sem er fréttastjóri á stærstu sjónvarpsstöðinni í eigu Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu, var í gær rekinn. Fréttastofan hefur haft orð á sér fyrir að vera sú sjálfstæðasta af fjölmörgum fréttastofum í eigu Berlusconis og hefur brottreksturinn vakið mikla reiði 12.11.2004 00:01
Vill skaðabætur fyrir heitt kaffi Rússnesk kona hefur höfðað mál á hendur Hamborgararisanum McDonalds í kjölfar þess að hún brenndi sig á kaffi sem hún keypti í einu af fjölmörgum hamborgaraútibúum fyrirtækisins í Moskvuborg. 12.11.2004 00:01
Ætla að hefna Arafats Skæruliðar í Palestínu, sem eru sannfærðir um að Jasser Arafat hafi verið byrlað eitur, segjast ætla að hefna sín á Ísraelsmönnum, sem þeir segja bera ábyrgð á dauða hans. Samtök skæruliðanna, sem skýrt hafa sig: „Sveit Yassers Arafat," segjast munu ráðast á kjarnann á ísraelsku samfélagi og engar málamiðlanir komi til greina. 12.11.2004 00:01
Zarqawi hvetur skæruliða til dáða Skæruliðinn Abu-Musab al-Zarqawi hefur sent frá sér upptöku, þar sem hann hvetur bardagamenn í borginni Fallujah til að láta ekki deigann síga og halda áfram að láta Bandaríkjamenn finna fyrir sér. Á upptökunni segir að vilji guðs muni á endanum koma fram og vindar hins heilaga stríðs muni blása hinum illu öflum um koll. 12.11.2004 00:01
Rykið dustað af friðarferlinu Vonir eru bundnar við það að friðarviðræður fari aftur af stað nú þegar Jasser Arafat er fallinn frá. Palestínumenn hafa 59 daga til að kjósa sér arftaka. 12.11.2004 00:01
Jarðsettur í skugga óvissu Leiðtogi Palestínumanna var jarðsettur í skugga sorgar og átaka í dag. Enginn veit hvað varð Jassir Arafat að aldurtila, og þó að hann hafi verið grafinn hefur hann ekki enn verið lagður til hinstu hvílu. 12.11.2004 00:01
Sautján létust í jarðskjálftum Sautján létust og á annað hundrað slösuðust þegar hrina öflugra jarðskjálfta reið yfir Aloreyju, austarlega í Indónesíu, og höfðu sjúkrahús vart undan við að gera að sárum fólks. Hundruð heimila eyðilögðust þegar skjálftarnir riðu yfir, en styrkleiki öflugasta skjálftans mældist 7,3 á Richterkvarða. 12.11.2004 00:01
Tyrkir vilja miðla málum "Tyrkland er reiðubúið, hvenær sem er, að miðla málum í friðarferlinu og mun halda áfram að vinna að þessum málum," sagði Recep Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, þegar hann bauð fram hjálp sína og lands síns við að koma á friði milli Ísraela og Palestínumanna. 12.11.2004 00:01
Handtóku 29 í áhlaupi Hollenskir lögreglumenn handtóku 29 manns þegar þeir gerðu áhlaup á þjálfunarbúðir Kúrdíska verkamannaflokksins sem er útlægur í Tyrklandi vegna vopnaðrar baráttu hans gegn stjórnvöldum. 12.11.2004 00:01
200 milljarða framúrkeyrsla Kostnaður við Ólympíuleikana í Aþenu fer minnst 200 milljarða króna fram úr kostnaðaráætlun og verður að lágmarki um 800 milljarðar króna, þriðjungi meira en stefnt var að. Í þessum tölum er þó ekki talinn með kostnaður vegna umfangsmikilla samgönguframkvæmda þar sem voru meðal annars byggð ný lestakerfi. 12.11.2004 00:01
Stærstur hluti Falluja hertekinn Bandarískar og íraskar hersveitir hafa náð 80 prósentum Falluja á sitt vald, að sögn yfirmanna Bandaríkjahers. Enn er þó barist hús úr húsi á þeim svæðum sem hermenn hafa náð á sitt vald. Þar er verið að leita uppi og fella þá vígamenn sem hafa falið sig þegar fremstu hersveitirnar hafa sótt fram. 12.11.2004 00:01
Haldið föngnum vegna brota annarra "Við viljum ekki vera gíslar," stóð á borða sem skipverjar á víetnömsku skipi breiddu yfir borðstokkinn. Þeim hefur verið haldið nauðugum í höfn í Tansaníu í fjóra mánuði vegna deilna sem þeir og fyrirtækið sem þeir vinna hjá eiga engan þátt í. 12.11.2004 00:01
Vill sjá Berlusconi í fangelsi Ítalskur saksóknari krafðist átta ára fangelsisdóms yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, og vildi að honum yrði bannað ævilangt að sækjast eftir opinberu embætti. Kröfuna setti Ilda Boccassini fram þegar réttað var í máli þar sem Berlusconi er ásakaður um að hafa mútað dómurum. 12.11.2004 00:01
Fleiri farsímanúmer en fólk Farsímanotkun í Tékklandi er svo útbreidd að í þarlendum símaskrám er að finna fleiri farsímanúmer en landsmenn í þjóðskránni. Fyrirtækin þrjú sem bjóða farsímaþjónustu eru nú með 10,24 milljónir farsímanúmer á skrá en landsmenn eru 10,21 milljón eða 30 þúsund færri en farsímanúmerin sem eru í notkun. 12.11.2004 00:01
Þúsundir fylgdu Arafat til grafar Mikið öngþveiti myndaðist í Ramallah þegar Jasser Arafat var borinn til grafar. Einungis ættingjar og framámenn áttu að vera viðstaddir greftrun hans við höfuðstöðvar sínar en meira en tíu þúsund manns brutu sér leið þangað inn til að votta fyrrum forseta sínum virðingu og kveðja hann í hinsta sinn. 12.11.2004 00:01
Einstakt tækifæri "Ég held að það sé sanngjarnt að segja að við eigum góða möguleika á að stofna palestínskt ríki og ég ætla að nota næstu fjögur árin til að eyða pólitískri inneign Bandaríkjanna í slíkt ríki. Ég tel það í þágu heimsins að sannarlega frjálst ríki þróist í Palestínu," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti. 12.11.2004 00:01
Vilja ekki aðra ólympíuleika Norsk stjórnvöld neituðu í gær að styðja umsókn borgaryfirvalda í Tromsö um að fá að halda ólympíuleikana í vetraríþróttum árið 2014. Ráðherrar sögðu of dýrt að halda ólympíuleikana og að of stutt væri frá því að vetrarólympíuleikarnir voru haldnir í Lillehammer 1994 til að verjandi væri að ráðast í slíkt stórvirki. 12.11.2004 00:01
Arafat allur Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, er allur, sjötíu og fimm ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í París skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma en frá þessu var greint snemma í morgun. Flogið verður með lík Arafats til Kaíró síðar í dag þar sem opinber útför hans fer fram, og síðar verður hann jarðsettur í Ramallah. 11.11.2004 00:01
Að mestu á valdi hersetuliðsins Sprengjuregnið í borginni Fallujah í Írak hófst á ný snemma í morgun eftir nokkur hlé þar í nótt. Talsmenn Bandaríkjahers segja borgina að mestu á valdi hersetuliðsins en andspyrna er þó enn töluverð á nokkrum stöðum í borginni þar sem skæruliðar og hryðjuverkamenn halda sig. 11.11.2004 00:01
Bush tilnefnir nýjan ráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Alberto Gonzales, lögfræðiráðunaut í Hvíta húsinu, sem dómsmálaráðherraefni sitt í kjölfar þess að John Ashcroft tilkynnti um afsögn sína í gær. Gonzales er sonur fátækra innflytjenda og yrði fyrsti spænskumælandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. 11.11.2004 00:01
Stjórnarskrá ESB staðfest Stjórnarskrá Evrópusambandsins var staðfest á þjóðþinginu í Litháen í morgun. Litháar eru þar með fyrsta Evrópusambandsþjóðin til að samþykkja stjórnarskrána en hún þarfnast samþykkis annað hvort þjóðþinga allra aðildaþjóða eða staðfestingu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 11.11.2004 00:01
Cat Stevens fær friðarverðlaun Söngvarinn Yusuf Islam, öðru nafni Cat Stevens, sem Bandaríkjastjórn telur að tengist hryðjuverkamönnum, fékk í dag afhent sérstök verðlaun á Ítalíu fyrir að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir friði í heiminum. 11.11.2004 00:01
Vanunu handtekinn á ný Lögreglan í Ísrael hefur enn og aftur handtekið kjarnorkusérfræðinginn Mordechai Vanunu sem nýlega var látinn laus eftir átján ára fangelsisdóm fyrir landráð. Hann lak á sínum tíma upplýsingum um kjarnorkuvopnaeign Ísraela sem varð til þess að umheimurinn varð þess áskynja að Ísrael væri orðið kjarnorkuríki. 11.11.2004 00:01
Nýr kafli í friðarferlinu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vonast til þess að með fráfalli Arafats hefjist nýr kafli í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Andlát Arafats feli í sér ný tækifæri. 11.11.2004 00:01
Árásir á landnemabyggðirnar Andlát Arafats virðist hafa hleypt nýju blóði í herskáa Palestínumenn sem gerðu í morgun árás á landnemabyggðir gyðinga. Ríkisstjórn Ísraels hefur lokað bæði Vesturbakkanum og Gasa til að reyna að koma í veg fyrir uppþot og óeirðir. 11.11.2004 00:01
Margir ráðamenn við útför Arafats Listinn yfir þá þjóðarleiðtoga og ráðamenn sem áætlað er að verði við útför Jassers Arafats á morgun er langur. Sextíu nöfn eru á honum eins og hann lítur út núna en enginn Íslendingur er þar á meðal. Danir, Svíar, Norðmenn og Finnar eiga hins vegar allir sinn fulltrúa, utanríkisráðherrar þjóðanna í öllum tilvikum nema að fyrir Svía mætir Göran Persson forsætisráðherra. 11.11.2004 00:01
Flestir Bretar vilja reykingabann Nær fjórir af hverjum fimm Bretum vilja banna reykingar á veitingastöðum og kaffihúsum samkvæmt nýrri skoðanakönnun breska dagblaðsins Daily Mirror og nær þrír af hverjum fimm vilja banna reykingar í öllum opinberum byggingum. 11.11.2004 00:01
Þrír létust í rútuslysi Þrír létust og 20 slösuðust þegar rúta með 36 ólöglega innflytjendur innanborðs fór út af brú og steyptist niður í á í norðvesturhluta Tyrklands. Sjö farþegar sem sluppu ómeiddir úr slysinu flýðu af vettvangi áður en lögregla kom en þeir slösuðu og sex til viðbótar sem ekki slösuðust voru handteknir þegar lögregla kom á vettvang. 11.11.2004 00:01
Fagna dauða Arafats "Dauði Jassers Arafat markar brotthvarf morðingja gyðinga, sem bar ábyrgð á því að valda sorg á þúsundum ísraelskra heimila," sögðu forystumenn Yesha, samtaka ísraelskra landtökumanna á landsvæðum Palestínumanna. Arafat var þeim enginn harmdauði heldur vakti andlát hans vonir landtökumanna um betri hag sinn. 11.11.2004 00:01
Arafat jarðsunginn í dag Arafat lést í fyrrinótt eftir erfið veikindi. Útför hans verður gerð í tvennu lagi í dag, í Kaíró og Ramallah. Þjóðarleiðtogar minntust hans og lögðu áherslu á að koma á friði í Mið-Austurlöndum. Velja þarf eftirmann hans innan 60 daga. </font /></b /> 11.11.2004 00:01
Litháar fyrstir til að staðfesta Litháar urðu fyrstir aðildarþjóða Evrópusambandsins til að staðfesta stjórnarskrá sambandsins sem forystumenn aðildarríkjanna 25 undirrituðu í Róm undir lok síðasta mánaðar. 11.11.2004 00:01
Tapaði stórfé á að glæða eldinn Seinheppinn Norðmaður varð 160 þúsund íslenskum krónum fátækari þegar hann kom þreyttur og drukkinn heim úr gleðskap og glæddi eld í arni sínum. 11.11.2004 00:01