Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björn drap veiðimann Björn banaði veiðimanni nyrst í Svíþjóð. Maðurinn hafði farið ásamt fimm félögum sínum til að veiða elgi en var einn þegar björninn réðist á hann. 19.10.2004 00:01
Bretar inn á svæði Bandaríkjahers Bretar hafa skilning á vanda Bandaríkjahers í Írak og líta vinsamlegum augum á beiðni þeirra um að breskir hermenn taki sér stöðu á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers svo Bandaríkjamenn geti ráðist af meiri krafti gegn vígamönnum. Þetta sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. 19.10.2004 00:01
Sikhar kæra stjórnvöld Þrír sikhar hafa stefnt frönskum stjórnvöldum vegna banns við trúartáknum í skólum landsins. Sikharnir eru ósáttir við að fá ekki að bera túrbana sína og vonast til að dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum hafi verið óheimilt að setja lögin. 19.10.2004 00:01
Breytti nafninu í Keikóborgara Ungur Norðmaður hefur látið breyta nafni sínu í Keikoburger, eða Keikóborgara upp á íslensku. Hann segir þetta frábært því nú geti hann fengið útgefið vegabréf og ökuskírteini með einstæðu nafni. 19.10.2004 00:01
Sögufrægur glæpamaður skotinn Indverskur glæpamaður sem sakaður er um að hafa myrt meira en 130 manns á nokkurra áratuga glæpaferli sínum var skotinn til bana í skotbardaga við lögreglu í fyrri nótt. Þar með lauk nærri fjörutíu ára glæpaferli hans sem varð kveikjan að gerð kvikmyndar og tilefni margra samsæriskenninga. 19.10.2004 00:01
Stakk konu og barn til bana Ungur maður myrti átta ára dreng og tæplega sextuga konu þegar hann réðist á þau, vopnaður hníf, í Linköping í Svíþjóð snemma í gærmorgun. 19.10.2004 00:01
Coke semur sig frá sektum Margra ára langri deilu Evrópusambandsins og Coca Cola fyrirtækisins lauk með samkomulagi sem kynnt var í gær. Samkvæmt því þarf fyrirtækið ekki að greiða sektir en verður þess í stað að draga úr þeirri starfsemi sem er talin hamla samkeppni. 19.10.2004 00:01
Hersetuliðið í 5 ár til viðbótar Engin leið er að kalla hersetuliðið í Írak heim innan fimm ára að mati virtustu sérfræðinga Bretlands í hermálum. Fyrst þá er nokkur von til þess að írakskar öryggissveitir geti tryggt lágmarksöryggi borgara landsins. 19.10.2004 00:01
Milljarðahagnaður Motorola Bandaríksa fjarskiptafyrirtækið Motorola hagnaðist um tæplega þrjá og hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi. Það er tæpum tveimur milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. 19.10.2004 00:01
Bush með 8% forskot George Bush Bandaríkjaforseti er með átta prósentu forskot á John Kerry samkvæmt nýjustu könnun Gallups í Bandaríkjunum. Á meðal líklegra, skráðra kjósenda var munurinn þó nokkuð minni. Bush var með 52 prósent en Kerry með 46 prósent. Þetta eru svipaðar niðurstöður og Gallup fékk áður en kappræðuhrina þeirra Bush og Kerrys hófst. 18.10.2004 00:01
Olíuverðið yfir 55 dollara Olíuverð er komið yfir fimmtíu og fimm dollara eftir að það hækkað töluvert í Singapúr í morgun. Sama verð verður í gildi þegar olíumarkaðir í New York verða opnaðir eftir nokkrar klukkustundir. 18.10.2004 00:01
Tengjast bin Laden Skæruliðahópur Abu Musabs al-Zarqawis í Írak, sem Bandaríkjamenn segja jafngilda útibúi al-Kaída í landinu, hefur í fyrsta sinn lýst yfir hollustu sinni við Ósama bin Laden. 18.10.2004 00:01
Lukashenko getur setið áfram Alexander Lukashenko getur setið áfram sem forseti Hvíta Rússlands. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda, 77 prósent, voru hlynnt því að Lukashenko ætti að sitja þriðja kjörtímabilið þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins bannaði það. 18.10.2004 00:01
Fimm Palestínumenn drepnir Ísraelskar hersveitir skutu fimm palestínska hryðjuverkamenn til bana í morgun. Tveir þeirra voru Hamas-liðar sem tekist hafði að komast yfir mörk Gasa-strandarinnar og yfir til Ísraels. 18.10.2004 00:01
Pútín styður Bush Vladímír Pútín, forseti Rússlands, styður George Bush í baráttunni um forsetaembættið í Bandaríkjunum. Pútín sagði í viðtali við þarlenda fjölmiðla í morgun að árásir hryðjuverkamanna í Írak væru verk alþjóðlegra samtaka sem vonuðu að árásirnar kæmu í veg fyrir að Bush yrði endurkjörinn. 18.10.2004 00:01
Hryðjuverkamenn voru á eiturlyfjum Hryðjuverkamennirnir í Beslan voru á eiturlyfjum og í umsátrinu um skólann þar voru margir þeirra í fráhvarfi, eftir því sem rússnesk yfirvöld fullyrða. 18.10.2004 00:01
Viðvaranir á bjórumbúðum Stærsti bjórframleiðandi á Bretlandseyjum, Scottish og Newcastle sem meðal annars framleiðir Fosters-bjórinn, ætlar framvegis að setja viðvaranir á bjórflöskur sínar og -dósir líkt og þær sem nú eru settar á sígarettupakka. 18.10.2004 00:01
Bilið fer vaxandi Bilið á milli forsetaframbjóðendanna í Bandaríkjunum fer vaxandi og Bush forseti virðist í sókn samkvæmt könnunum. Bandarísk dagblöð stilla sér nú á bak við þann frambjóðanda sem þeim líkar best við. 18.10.2004 00:01
Viðloðnir gjöreyðingavopn Íraka? Bandaríska leyniþjónustan CIA segir að danskt fyrirtæki hafi selt vélbúnað til fyrirtækis í Írak sem gat framleitt gjöreyðingarvopn í valdatíð Saddams Hússeins. Með því að breyta danska vélbúnaðinum og tengja hann við annan búnað hafi verið hægt að framleiða vopnin. 18.10.2004 00:01
Mikið magn vopna fannst hjá ETA Hrúga af vopnum í eigu aðskilnaðarsamtakanna ETA fundust í suðvesturhluta Frakklands í morgun. Lögregla fann sprengjuvörpur, vélbyssur, riffla, skammbyssur og yfir 70 þúsund skotfæri við leit í hýbýlum ETA í morgun. 18.10.2004 00:01
Annan hrósar Norður-Írum Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir umleitanir til friðar í Norður-Írlandi undanfarin ár vera frábærar og þær hvetji heimsbyggðina til dáða í viðleitni sinni til friðar. 18.10.2004 00:01
Veikindin aldrei útskýrð Orsakir persaflóaheilkennisins svokallaða, sem eru óútskýrð veikindi hermanna sem börðust í fyrra Íraksstríðinu, verður líklega aldrei hægt að staðfesta. Yfir sex þúsund hermenn sem börðust við Persaflóa í upphafi tíunda áratugarins þjást nú af óútskýrðum einkennum af ýmsu tagi. 18.10.2004 00:01
Klónun manna verði leyfð Hópur vísindamanna í Bretlandi vill að Sameinuðu þjóðirnar skelli skollaeyrum við yfirlýsingum George Bush Bandaríkjaforseta um að banna eigi allar tegundir klónunar á mönnum í framtíðinni. Í Bretandi er klónun stofnfrumna í lækningaskyni leyfð og vilja vísindamennirnir að svo verði áfram. 18.10.2004 00:01
Fleiri breskir hermenn til Íraks? Bandaríkjamenn hafa farið þess á leit við bresk stjórnvöld að þau sendi aukinn herafla til Íraks. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá því á breska þinginu í dag að beiðni þessa efnis hafi borist ráðuneytinu í síðustu viku en ákvörðun um hvort farið verði að óskum Bandaríkjamanna liggi ekki fyrir. 18.10.2004 00:01
Jeb ekki á leið í forsetaframboð Jeb Bush, ríkisstjóri í Flórída, lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali að hann ætlaði sér ekki að feta í fótspor föður síns og bróður, sem báðir hafa náð kjöri sem forseti Bandaríkjanna, í það minnsta ekki eftir fjögur ár. 18.10.2004 00:01
Meingallaðar þingkosningar Mikið vantaði upp á að framkvæmd þingkosninga í Hvíta-Rússlandi um helgina uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til kosninga í lýðræðisríkjum. Þetta er niðurstaða kosningaeftirlitsmanna frá Öryggissamvinnustofnun Evrópu, ÖSE. 18.10.2004 00:01
Vopnaðar löggur umkringja leikara Lögreglan í Osló var fljót á vettvang þegar vegfarandi sagðist hafa séð vopnaða menn ráðast inn á bar. Lögreglumennirnir voru vel vopnaðir þegar þeir mættu á staðinn og réðust gegn ræningjunum. Það kom þeim hins vegar í opna skjöldu þegar einn ræninginn henti frá sér vopnunum og kallaði: "Það er allt í lagi. Við erum að taka upp mynd." 18.10.2004 00:01
Semja ekki um auðgun úrans Írönsk stjórnvöld heimila embættismönnum sínum ekki að semja við Evrópuþjóðir um framtíð kjarnorkuáætlunar landsins ef markmið Evrópumanna er að svipta Írana réttinum til að auðga úraníum. Þetta sagði Hasan Rowhani, aðalsamningamaður Írana, í gær. 18.10.2004 00:01
Vilja bæta stöðu samkynhneigðra Írar íhuga að veita samkynhneigðum pörum réttindi sambærileg við gagnkynhneigð hjón. Þingmenn úr öllum flokkum koma saman til fundar í viku þar sem þeir ræða réttindi samkynhneigðra. Óvíst er þó hversu langt verður gengið í réttarbót samkynhneigðra. 18.10.2004 00:01
Herinn rukkaði særðan hermann Tyson Johnson III lá enn þá á sjúkrahúsi þar sem hann var að jafna sig af sárum sem hann hlaut í Írak þegar honum barst bréf frá hernum þar sem hann var rukkaður um andvirði tæpra 200 þúsund króna. Upphæðin var sú sama og skráningarbónus sem hann fékk fyrir að skuldbinda sig til þriggja ára herþjónustu. 18.10.2004 00:01
Þýsku lausninni hafnað Innanríkisráðherrar Frakklands og Spánar höfnuðu í gær þýskri tillögu um að koma upp búðum fyrir ólöglega innflytjendur í Norður-Afríku. Samkvæmt tillögunni átti að vista ólöglegu innflytjendurna þar meðan ákvörðun væri tekin um mál þeirra í löndunum sem þeir reyndu að komast til. 18.10.2004 00:01
Vandamál strax á fyrsta degi Vandamál komu upp á nokkrum kjörstöðum í Flórída í gær þegar utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir forsetakosningarnar hófst. Því virðist sem áhyggjur sem ýmsir hafa lýst um að ekki væri búið að komast fyrir öll vandamál sem gerðu vart við sig fyrir fjórum árum eigi við einhver rök að styðjast. 18.10.2004 00:01
Bóluefni í vinning Vegna mikils skorts á bóluefni gegn inflúensu hafa bæjaryfirvöld í Bloomfield í New Jersey ákveðið að efna til happdrættis til að ákvarða hvaða íbúar fá bóluefni. 18.10.2004 00:01
Allt logar í málaferlum Það virðist ekki fjarri lagi að kalla megi komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum kosningar hinna miklu málaferla. Aldrei áður í sögunni hafa jafn mörg mál verið höfðuð í tengslum við kosningar og aldrei hafa jafn margir lögmenn verið fengnir til að fylgjast með framgangi kosninganna að því er fram kemur í The New York Times. 18.10.2004 00:01
Staðan betri í Darfur en í Írak Súdönsk stjórnvöld hafa tekið betur á ástandinu í Darfur en Bandaríkjamenn á ástandinu í Írak, sagði Mustafa Osman Ismael, utanríkisráðherra Súdans, í viðtali við BBC. Hann sakaði bandaríska stjórnmálamenn um að notfæra sér ástandið í Darfur til að bæta ímynd sína í aðdraganda komandi þing- og forsetakosninga í Bandaríkjunum. 18.10.2004 00:01
Pyntingar rannsakaðar í Georgíu Yfirvöld í fyrrum Sovétlýðveldinu Georgíu kanna nú mál fjórtán lögreglumanna sem grunaðir eru um að hafa pyntað fjölda fanga á síðastliðnum árum. Ríkissaksóknari landsins sagði að fleiri lögreglumenn væru grunaðir um pyntingar. 18.10.2004 00:01
Óákveðnir og nýir ráða úrslitum Þeir kjósendur sem ennþá eru óákveðnir og þeir sem aldrei hafa kosið áður koma til með að ráða úrslitum forsetakosninganna vestan hafs. Þetta er mat Davids Rohdes sem er einhver þekktasti sérfræðingur í kosningahegðun í Bandaríkjunum. 18.10.2004 00:01
Stjórnarskrá breytt í kosningum Umdeildur forseti Hvíta-Rússlands verður að líkindum um hríð í embætti því stjórnarskrá landsins var breytt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftirlitsmenn gera athugasemdir við framkvæmdina, en hann blæs á gagnrýni. 18.10.2004 00:01
Samræmd próf burt Umfangsmestu breytingar á bresku skólakerfi í sextíu ár voru kynntar í gær. Samkvæmt þeim verður dregið mjög úr notkun samræmdra prófa til að mæla árangur nemenda á menntaskólaaldri. 18.10.2004 00:01
Kóreumenn verða áfram í ár Suður Kóreskar hersveitir verða áfram í Írak í að minnsta kosti ár. 2800 Suður Kóreskir hermenn hafa verið sendir til Írak í mánuðinum og 800 í viðbót koma í nóvember. Þeir munu aðallega vinna við hjálparstörf og endurreisn. 17.10.2004 00:01
7 handteknir Sjö hafa verið handteknir í Kína fyrir að pakka og selja gervi-mjólkurduft fyrir kornabörn. Þrettán börn hafa látist eftir neyslu duftsins, og á annað hundrað hafa veikst. Fólkið hafði selt duftið mánuðum saman í norðurhluta landsins áður en athæfið komst upp. Sumt af duftinu var raunverulegt mjólkurduft, en í það vantaði mörg lífsnauðsynleg næringarefni. 17.10.2004 00:01
Karzai byrjar vel Nú hafa 5% atkvæða í forsetakosningunum í Afganistan verið talin, og hefur Hamid Karzai, bráðabirgðaforseti landsins, fengið 67% þeirra. Búist er við að það taki nokkra daga að ljúka talningunni. Góð kjörsókn var í þessum fyrstu frjálsu þingkosningum í landinu. 17.10.2004 00:01
70 þúsund látnir í Súdan? Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að sjötíu þúsund flóttamenn hafi látist í Darfur héraði í Súdan á síðustu mánuðum. Yfirvöld í Súdan segja töluna ekki nærri svona háa. Starfsmenn alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segja hinsvegar engan vafa, farsóttir hafi breiðst út og malaríutilfellum fjölgað mjög. Þá hafi margir látist af vannæringu. 17.10.2004 00:01
Taugaskaði eftir offituaðgerð Ný rannsókn sýnir að þeir sem hafa gengist undir aðgerð á maga og þörmum í þeim tilgangi að léttast eiga á hættu að verða fyrir taugaskaða í kjölfar aðgerðarinnar. Fréttastofa BBC greinir frá rannsókninni, sem gerð var við sjúkrahús í Minnesota, og mun birtast á næstunni í tímaritinu Neurology. 17.10.2004 00:01
Heimurinn er ekki öruggari Innrásin í Írak hefur ekki leitt til öruggari heims. Þetta segir Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Þessi orð lét Kofi Annan falla í viðtali á breskri sjónvarpsstöð í morgun, og koma þau sér ekki vel fyrir Bush bandaríkjaforseta og Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, sem hafa hamrað á því undanfarna mánuði, til að réttlæta innrásina í Írak, að heimurinn væri mun öruggari staður nú en áður. 17.10.2004 00:01