Hryðjuverkamenn voru á eiturlyfjum 18. október 2004 00:01
Hryðjuverkamennirnir í Beslan voru á eiturlyfjum og í umsátrinu um skólann þar voru margir þeirra í fráhvarfi, eftir því sem rússnesk yfirvöld fullyrða. Hryðjuverkamennirnir, sem héldu mörg hundruð skólabörnum í gíslingu í borginni Beslan í Rússlandi fyrir nokkrum vikum, voru á eiturlyfjum. Rússnesk yfirvöld segja krufningu á líkum þeirra hryðjuverkamanna sem féllu hafa leitt þetta í ljós. Þrjátíu og einn mannræningi féll í átökum við rússneskar sérsveitir og segir saksóknari í Suður-Rússlandi að allir beri einkenni langvarandi eiturlyfjanotkunar. Mikið af heróíni og morfíni fannst í blóði hryðjuverkamannanna. Sumir þeirra hafi verið með svo mikið af lyfjunum í blóðinu að það hefði átt að reynast þeim banvænt. Það bendi til þess að þeir hafi verið háðir eiturlyfjum um hríð. Sumir hafi verið í fráhvarfi á meðan umsátrinu stóð þar sem þeir hafi orðið uppiskroppa með eiturlyf. Það kunni að hafa haft áhrif á hegðan þeirra og hugsanlega ástæða þess hvernig fór í Beslan að mati saksóknarans. Að lokinni gíslatökunni í skólanum og átökum í kjölfarið lágu yfir þrjú hundruð í valnum. Yfirlýsingum saksóknarans er tekið með nokkrum efa. Rússnesk yfirvöld hafa margoft áður sagt hryðjuverkamenn undir áhrifum eiturlyfja. Ástæðan sé sú að skipuleggjendur hryðjuverka fylli saklaust fólk af eitri til að lokka það til illra verka. Þessi útskýring hefur einkum verið notuð til að útskýra sjálfsmorðsárásir ungra kvenna og aðrar árásir þar sem ekki er þörf á miklu skipulagi og ekki notast við flókinn búnað. Hryðjuverkamennirnir í Beslan voru hins vegar þaulskipulagðir. Þeir höfðu gert áætlanir um hvernig verjast ætti árás, þeir höfðu komið fyrir sprengjum og njósnað um skotmörk sín í langan tíma. Það þykir ekki samræmast hegðun dópista í fráhvarfi. Fjöldamörgum spurningum varðandi atburðina í Beslan er enn ósvarað. Rannsóknarnefnd skilaði frumskýrslu í síðustu viku þar sem fram kemur að þungavopnum var beitt gegn hryðjuverkamönnunum og þeirri spurningu varpað fram hvort að lífi fórnarlambanna hafi þannig verið stefnt í óþarfa hættu. Að auki er ennþá óljóst hversu margir hryðjuverkamennirnir voru og hvort einhver þeirra komst undan.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira