Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Níu létust í árásum skæruliða Níu írakskir lögreglumenn létust þegar skæruliða réðust á bíl þeirra fyrr í dag. Lögregumennirnir voru að koma af æfingu suðvestur af Baghdad, þegar skæruliðarnir létu til skarar skríða og drápu alla lögreglumennina sem í bílnum voru. 17.10.2004 00:01
Kerry saxar á fylgi Bush John Kerry saxar á fylgi George Bush samkvæmt nýrri skoðanakönnun Reuters/Zogby. Einungis rúmar tvær vikur eru þar til bandarískir kjósendur velja sér forseta annan nóvember. Bandaríska stórblaðið The New York Times lýsti í dag yfir stuðningi við Kerry í leiðara. 17.10.2004 00:01
Hvítrússar kjósa í dag Í dag kjósa Hvítrússar um það hvort Alexander Lukashenko, forseti landsins, skuli hefja sitt þriðja kjörtímabil í embætti. Strangt til tekið er Lukashenko fallinn á tíma, því að hann má aðeins sitja tvö kjörtímabil, en honum leyfist þó að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald sitt, beri þannig undir og það hefur hann gert nú. 17.10.2004 00:01
Indland sigrar klæðskiptingakeppni Litrík og íburðarmikil fegurðarsamkeppni klæðskiptinga var haldin í höfuðborg Perús í gær. Fulltrúi Indlands sigraði með yfirburðum. 21 maður tók þátt í keppninni, sem haldin var í höfuðborg Perú, Líma í gær. Keppendur komu fram í baðfötum, sumarkjólum og kvöldkjólum, á vel sóttri sýningu og það var indverski keppandinn, Lidia Zaray, bar sigur úr bítum. 17.10.2004 00:01
Færri látast í stríðsátökum Enda þótt styrjaldir séu stöðugt í heimsfréttunum þá er það staðreynd að stríðsátökum fer fækkandi og dregið hefur úr mannfalli af þeirra völdum 17.10.2004 00:01
Íraksstríðinu mótmælt Tuttugu þúsund manns streymdu um götur Lundúnaborgar í dag til að mótmæla Íraksstríðinu. Mannfjöldinn krafðist þess að hernaði í Írak yrði hætt og hersveitir bandamanna kallaðar heim. 17.10.2004 00:01
Hryðjuverkamennirnir fíklar Rannsóknir hafa sýnt að sumir hryðjuverkamannanna sem tóku yfir þúsund gísla í skóla í Beslan voru eiturlyfjaneytendur. 17.10.2004 00:01
Ættu að draga úr áhyggjum Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sagði að Íran ætti að gera ráðstafanir til þess að draga úr alþjóðlegum áhyggjum af kjarnorkuáætlunum þeirra. 17.10.2004 00:01
Sex létust í 11 bíla árekstri Sex manns létust og 15 slösuðust alvarlega þegar trukkur fullur af ólöglegum innflytjendum olli 11 bíla árekstri við flótta frá lögreglu í Phoenix, Arizona. 17.10.2004 00:01
Stefnir í stórsigur Karzai Hamid Karzai, bráðabirgðaforseti Afganistan, hefur fengið tæplega 64 prósent þeirra atkvæða sem talin hafa verið síðan þingkosningar fóru fram 9. október. 17.10.2004 00:01
New York Times styður Kerry Dagblaðið New York Times styður John Kerry sem forseta Bandaríkjanna. Blaðið greindi frá þessu í sunnudagsútgáfu sinni og kemur stuðningsyfirlýsingin ekki á óvart. 17.10.2004 00:01
Bandaríkjaher umkringir Falluja Bandarískir hersveitir eru búnar að umkringja borgina Falluja og bandarískar herflugvélar gerðu loftárásir á svæði uppreisnarmanna um helgina. Staðfest hefur verið að þrír borgarar hafi látist í átökunum í gær en óttast er að þeir hafi verið mun fleiri. 17.10.2004 00:01
Lögsóknum anstöðunnar vísað frá Hæstiréttur Myanmar hefur vísað frá lögsóknum stjórnarandstöðuflokks Aun San Suu Kyi þar sem þess er krafist að henni verði gefið frelsi á ný. Þá vildi flokkurinn fá umfjöllun dómstóla um lokun yfirvalda á skrifstofum þeirra. Dómarar við Hæstaréttinn tóku sér einungis nokkrar klukkustundir til að fjalla um lögsóknirnar áður en þeim var vísað frá. 16.10.2004 00:01
Al-Qaeda maður handtekinn Lögregluyfirvöld í Þýskalandi hafa handtekið mann sem grunaður er um að hafa fjármagnað hluta af starfsemi Osama Bin Laden og al-Qaeda. Maðurinn, sem er Þjóðverji af sýrískum uppruna, er sagður hafa lagt al-Qaeda lið með fjárstuðningi, síðan 1997 og hafa átt náin tengsl með mönnunum sem frömdu hryðjuverkin í New York þann 11. september árið 2001 16.10.2004 00:01
Höfuðpaurinn sprengdi sig Höfuðpaur hryðjuverkanna í Madrid þann 11. mars er einn mannanna 7 sem sprengdu sig í loft upp þegar lögregla gerði rassíu í höfuðstöðvum þeirra fyrir skömmu. Morðdeild lögreglunnar í Madrid segist hafa borið kennsl á lík mannsins, sem varð lögreglumanni að bana og særði 15, þegar hann sprengdi sig upp ásamt 6 félögum sínum. 16.10.2004 00:01
Fjöldi deyr vegna reykeitrunnar Á aðra milljón manna lætur lífið á ári hverju vegna reykeitrunar af völdum innanhúskyndinga og frumstæðra eldavéla. Alþjóða Heilbrigðismálastofnunum ætlar að fara af stað með átak, sem ætlað er að draga úr dauðsföllum af þessu tagi í fátækum löndum, þar sem slík eitrun er ein algengasta orsök dauða og sjúkdóma. 16.10.2004 00:01
20% eru óákveðnir Einn af hverjum fimm kjósendum í Bandaríkjunum er óákveðinn um það hvern skuli kjósa í forsetakosningunum. Aðeins 17 dagar eru í kosningarnar og fylgi þeirra Bush og Kerrys er hnífjafnt sem stendur. Það stefnir því í æsispennandi kosningar og veltur allt á óákveðnum kjósendum. 16.10.2004 00:01
Persaflóaheilkennið staðfest Vísindamenn í Bandaríkjunum segjast hafa sýnt fram á tivist svokallaðs Persaflóa-heilkennis sem er hugtak, sem notað hefur verið yfir kerfisbundin veikindi bandarískra hermanna sem börðust í fyrra Íraksstríðinu. Þúsundir hermanna þjást af veikindum sem ekki hefur tekist að útskýra. Meðal einkenna eru minnistap, síþreyta og stöðugur svimi. 16.10.2004 00:01
Ramadan byrjar með blóðbaði Þrír bandarískir hermenn létu lífið í sjálfsmorðsárás í Írak, nálægt landamærum Sýrlands, sem átti sér stað í morgun. Þá létust 4 Írakar og 30 slösuðust í árás skæruliða í Baghdad í morgunsárið. Að auki hafa borist fregnir af mannsláti í borgunum Kirkuk og Mosul í dag. 16.10.2004 00:01
Ísraelar yfirgefa Gasa Ísraelsher yfirgaf norðanverða Gazaströnd í nótt eftir 17 daga hernað. Að minnsta kosti 110 Palestínumenn hafa látist, og hundruðir særst í árásunum, sem komu í kjölfar þess að tvö ísraelsk börn létust í eldflaugaárás herskárra Palestínumanna. Bandaríkjastjórn hefur gagnrýnt framgöngu Ísraelsmanna, og sagt hana of harkalega. 16.10.2004 00:01
Geimskutla í vandræðum Rússnesk Soyus geimskutla með þrjá geimfara innanborðs lenti í vandræðum við alþjóðageimstöðina í morgun. Geimfararnir komu til að leysa tvo menn af, sem hafa verið í stöðinni í hálft ár. Þegar skutlan nálgaðist fór hún skyndilega of hratt, án þess að neinn viti hvers vegna. Geimfararnir tóku sjálfstýringuna af og stýrðu skutlunni sjálfir. 16.10.2004 00:01
Boðið upp á skordýr Það er ekki víst að súkkulaðihúðaðir termítar eða hvítlauksristaðir ormar freisti allra, en slíkar kræsingar voru á borðum í Jóhannesarborg á dögunum, og vonast menn til að hinir gómsætu Mopane-ormar verði vinsæl útflutninsvara. Ákveðnar skordýrategundir innihalda nokkuð magn af næringarefnum, og eru alls ekki slæmar á bragðið. 16.10.2004 00:01
Tvær árásir í Afghanistan Þrjú börn og lögreglumaður létust í sprengjuárás í Afghanistan í gær. Þá létu tveir bandarískir hermenn lífið í sambærilegri sprengjuárás í landinu í dag. Árásirnar eru gríðarlegt áfall, þar sem vonast hafði verið til að óöldin í Afghanistan væri loks að lokum komin. 16.10.2004 00:01
Stýrir tækjum með hugarorku Maður á þrítugsaldri, sem er lamaður á báðum fótum og höndum, getur stýrt tölvu og sjónvarpi og spilað tölvuleiki fyrir tilstilli hugarorkunnar. Örsmár tölvukubbur ígræddur í heila mannsins áframsendir boð heila hans og gerir honum þar með kleift að stjórna fyrrgreindum tækjum heima hjá sér. 16.10.2004 00:01
Var ný sloppinn úr fangelsi Leiðtogi hryðjuverkahópsins sem sprengdi lestarnar í Madríd 11. mars var dæmdur í fjórtán ára fangelsi á Spáni árið 1997 vegna tengsla sinna við alsírskan hryðjuverkahóp en látinn laus úr haldi fyrir tveimur árum þegar dómurinn var styttur. 16.10.2004 00:01
Kirkjur eyðilagðar í Bagdad Kristnir íbúar Íraks eru skelfingu lostnir eftir að sprengjur sprungu við fimm kirkjur í Bagdad í gær. Fjöldi árása hefur verið gerður síðan Ramadan, heilagur mánuður múslíma, hófst á föstudaginn. 16.10.2004 00:01
Barist um hvert atkvæði Lokaspretturinn er hafinn í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Þriðju og síðustu kappræður þeirra George Bush og Johns Kerrys fóru fram í gær og þar var tekist á um innanríkismálin. Fylgi frambjóðendanna er hnífjafnt og því barist um hvert atkvæði. 15.10.2004 00:01
Enn jafnir Fylgi bandarísku forsetaframbjóðendanna er hnífjafnt samkvæmt nýjustu könnunum. Þeir George Bush og John Kerry háðu þriðju og síðustu kappræður í fyrradag og var þar hart tekist á um innanríkis- og velferðarmál. 15.10.2004 00:01
Harðar árásir í Fallujah Bandaríkjamenn hafa haldið úti hörðum loftárásum og á borgina Fallujah í morgun. Árásirnar vour gerðar í kjölfar sprenginga í Bagdad í gær. Írösk stjórnvöld krefjast þess að fá jórdanska uppreisnarmanninn Abu Mussab al-Zarqawi framseldan. Átta manns féllu og minnst fjórir særðust þegar tvær öflugar sprengingar urðu í miðborg Bagdad í Írak í gærmorgun. 15.10.2004 00:01
Skjálfti upp á 7 í Taiwan Jarðskjálfti upp á sjö á richter skók Norður-Tævan í morgun og skulfu þar hús og mannvirki í hátt í mínútu. Háhýsi sveifluðust til og reyndi fólk að forða sér, enda eru ekki nema tæp fimm ár síaðn að þúsundir fórust í hörðum jarðskjálfta á Tævan. Upptök skjálftans voru undir hafsbotni, í um það bil 110 kílómetra fjarlægð frá eyjunni. 15.10.2004 00:01
Norðmenn vilja enn konung Norðmenn láta sér í léttu rúmi liggja í hvaða rekkju Ólafur Noregskonungur var getinn og hver var faðir hans, samkvæmt skoðanakönnun í kjölfar fréttar þess efnis í gær, að konungurinn hafi verið rangfeðraður. Ólafur var dáður og virtur alla sína konungstíð. 15.10.2004 00:01
Sýknaður af ákæru um landráð Morgan Tsvangiræ leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe var í morgun sýknaður af ákæru um landráð. Hann var fyrir rétti sakaður um að brugga Robert Mugabe forseta launráð og taka völdin í landinu fyrir kosningarnar árið 2002. 15.10.2004 00:01
Andreotti sýknaður Guilíó Andreotti fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu hefur verið formlega hreinsaður af öllum ásökunum um tengsl við mafíuna. Andreotti sem sjö sinnum var forsætisráðherra Ítalíu hefur í mörg árið barist gegn ásökunum um spillingu fyrir dómstólum en í morgun staðfesti æðsti dómstóll landsins tvo sýknudóma undirréttar og er málinu því endanlega lokið. 15.10.2004 00:01
Grömm milli lífs og dauða Nokkur grömm geta skilið á milli lífs og dauða hjá tveimur karlmönnum og einni konu sem eru í haldi lögreglunnar í Singapúr í kjölfar aðgerða gegn kókaínsölu og neyslu í efri stigum þjóðfélagsins. Rannsóknarmenn lögreglunnar hefur nú til skoðunar það kókaín sem var gert upptækt í fórum fólksins. 15.10.2004 00:01
Jafntefli mögulegt? Ef jafn lítill munur verður á milli frambjóðenda til forsetakosninganna í Bandaríkjunum í kosningunum og skoðanakannanir sýna gætu sjónir manna beinst að Colorado fylki. Þar fara samhliða fram aðrar kosningar sem gætu breytt stöðunni til muna, og jafnvel leitt til þess að hvorugur þeirra Bush eða Kerry vinni kosningarnar. 15.10.2004 00:01
Kúgun kvenna hindrar þróunina Kúgun kvenna í Afríku er meiriháttar hindrun á framþróun í álfunni segir James Wolfensohn forseti Alþjóðabankans. Hann gagnrýndi karlmenn í Afríku harðlega á ráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna í Eþóípíu í dag. Wolfensohn sagði menn ekki átta sig á því leynivopni sem Afríkuríki byggju yfir, en það væru konur sem vinna mörg mikilvæg verk. 15.10.2004 00:01
Bólusetning við malaríusmiti Vísindamenn telja sig í fyrsta sinn geta bjargað börnum frá malaríusmiti eða dauða með bólusetningu. Þótt enn sé langt í að menn telji baráttunni gegn þessum skæða sjúkdómi lokið, segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skrefið stórt. 15.10.2004 00:01
Shröder hittir Gaddafi Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands fundar nú með Gaddafi lýbíuleiðtoga í Tripoli. Fundurinn er sögulegur, því að þetta er í fyrsta sinn sem kanslari Þýskalands hittir leiðtoga Lýbíu. Fundurinn er líka táknrænn fyrir batnandi samskipti Evrópuríkja og Lýbíu, en eins og fram hefur komið aflétti Evrópusambandið í síðustu viku viðskiptahömlum á Lýbíu 15.10.2004 00:01
Aukin samvinna Rússa og Kínverja Gömlu Sósíalistastórveldin Rússland og Kína ætla að bindast tryggari böndum á nýjan leik. Vladimir Pútín, forseti Rússlands heimsækir Kína þessa dagana og leggur á ráðin með starfsbróður sínum í austri, Hu Jintao, um það hvernig auka megi samskipti og viðskipti á milli stórveldanna tveggja. 15.10.2004 00:01
Bannað að skilja útundan Kjarnaríki Evrópusambandsins mega ekki skilja ný aðildarríki útundan að neinu leyti segja Tony Blair og Ferenc Gyurcsany, leiðtogi Ungverja. Talið er að í yfirlýsingu leiðtoganna tveggja felist skilaboð til Frakka og Þjóðverja, sem ásamt Ítalíu hafa verið í fararbroddi sambandsins frá stofnun þess. 15.10.2004 00:01
Cheney ævareiður Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna og konan hans eru ævareið út í John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrata, fyrir að hafa gert samkynhneigð dóttur þeirra að umræðuefni í síðustu kappræðum forsetaframbjóðendanna í Arizona á miðvikudaginn. Kerry tók dóttur Cheneys sem dæmi þegar hann var spurður út í afstöðu sína til samkynhneigðra. 15.10.2004 00:01
Google með nýjan leitarbúnað Fyrirtækið Google hefur komið á fót nýjum leitarbúnaði, sem gefur notendum kost á því að leita að efni á harða drifi tölvunnar jafnauðveldlega og leitað er á Netinu. Nýi búnaðurinn leitar í skjölum, skrám, tölvupósti og skyndiskilaboðum sem vistuð er á harða drifinu. 15.10.2004 00:01
Samtímis þjóðaratkvæðagreiðsla Evrópuþingið hefur lagt til að öll 25 ríki Evrópusambandsins haldi samtímis þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá sambandsins í byrjun maí á næsta ári. Þó er gert ráð fyrir því að Spánn þjófstarti og haldi þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 20. febrúar næstkomandi. 15.10.2004 00:01
Ósammála um inngöngu Tyrkja Forseti Frakklands og forsætisráðherra landsins eru ósammála um ágæti þess að Tyrkir gangi í Evrópusambandið. Innganga Tyrkja í Evrópusambandið var til umræðu á franska þinginu í gær að frumkvæði Jaques Chirac, forseta Frakklands, sem styður inngöngu Tyrkja heilshugar. Umræðurnar voru gríðarlega heitar og hefur annað eins ekki sést á þinginu franska í háa herrans tíð. 15.10.2004 00:01
Vildi frægð og frama Morðingi bítilsins Johns Lennon segist hafa ráðið honum bana til þess að stela frægð hans. Mark Chapman segist hafa orðið merkilegri meðaljón eftir morðið heldur en fyrir það og það hafi verið hans eina hvatning fyrir aðgerðinni. 15.10.2004 00:01