Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hryðjuverkamaður látinn laus? Marokkómaður, sem grunaður er um að hafa aðstoðað hryðjuverkamennina 11. september 2001, verður ef til vill látinn laus í Þýskalandi vegna þess að Bandaríkjamenn vilja ekki leyfa lykilvitnum, sem eru í haldi þeirra, að bera vitni. 10.8.2004 00:01
90% féllu „eftir“ stríð Níu af hverjum tíu föllnum hermönnum í Írak féllu eftir að George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að meiriháttar átökum í Írak væri lokið. Ekkert lát er á árásum uppreisnarmanna í borgunum Najaf og Bagdad. 10.8.2004 00:01
2 milljónir í flóttamannabúðum Fimmtíu þúsund manns hafa látið lífið í átökum í Súdan og hátt í tvær milljónir manna hafast við í flóttamannabúðum. Íslensk kona sér um daglegan rekstur heilsugæslu í flóttamannabúðum í Darfúr fyrir Alþjóða Rauðakrossinn. 10.8.2004 00:01
Aurskriða í Japan Ótrúlegar myndir náðust af aurskriðu í Nara-héraði í Japan í dag en það var hópur opinberra embættismanna sem náði myndunum. Miklar rigningar hafa verið á svæðinu undanfarnar vikur og voru embættismennirnir komnir til að rannsaka jarðveginn. 10.8.2004 00:01
Kvennaathvarf á eyðieyju Öryggi ofsóttra kvenna er ekki nægilega tryggt segja forsvarsmenn danskra kvennaathvarfa við Berlingske Tidende. Tillögur um opnun kvennaathvarfs á hinni afskekktu eyju Anholt, þar sem aðeins 160 manns búa, hefur vakið háværar þjóðfélagsumræður í Danmörku. 9.8.2004 00:01
Athyglin beinist nú að Bush Meðan sjónir Bandaríkjamanna beindust einkum að John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrata, tókst honum að bæta ímynd sína nokkuð en náði samt ekki að hrista svo neinu nam upp í kosningabaráttunni. 9.8.2004 00:01
Til liðs við Afríska þjóðarráðið Nú hyggst Nýi Þjóðarflokkurinn í Suður-Afríku, arftaki Þjóðarflokksins gamla sem tók upp aðskilnað kynþáttanna þar í landi, ganga til liðs við sinn forna fjanda, Afríska þjóðarráðið, sem áratugum saman barðist gegn aðskilnaðarstefnunni og náði síðan völdum í fyrstu frjálsu kosningunum í landinu árið 1994. 9.8.2004 00:01
Prestur gerði grín að Bush eldri George Bush Bandaríkjaforseti brosti breitt þegar séra Martin Luther Agnew predikaði yfir forsetafjölskyldunni í messu í gærmorgun, þrátt fyrir að presturinn hafi hvatt söfnuðinn til þess að losa sig við eigur sínar og gert létt grín að George H.W. Bush eldri, föður forsetans. 9.8.2004 00:01
Sex lík í blóði drifinni íbúð Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við hrottaleg morð í Flórída í Bandaríkjunum. Lík fjögurra manna og tveggja kvenna fundust í heimahúsi í bænum Deltona, 40 kílómetrum norður af Orlando. Aðkoman var hroðaleg, líkin illa útleikin og blóðslettur um allt. 9.8.2004 00:01
Flóttafangarnir fundnir Tveir fangar sem struku úr öryggisfangelsi í Svíþjóð voru handteknir í gær í bænum Grenna, norður af Jonköping. Fyrr um daginn hafði sá þriðji verið handtekinn en fangarnir struku í síðustu viku. <em>Dagens Nyheder</em> segir fimmtíu lögreglumenn hafa tekið þátt í leitinni. 9.8.2004 00:01
6 látnir og 17 særðir Bílsprengja varð sex manns að bana og særði sautján í borginni Baquba, norður af Bagdad, í Írak í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan hús ríkisstjóra á svæðinu sem var fluttur á spítala en ekki er vitað um afdrif hans. 9.8.2004 00:01
Ástralska barnið fundið Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í fyrrakvöld, er komin í leitirnar. 9.8.2004 00:01
Bjargað úr jarðgöngum á Indlandi Tuttugu byggingaverkamönnum, sem höfðu setið fastir í jarðgöngum eftir miklar rigningar í afskekktu þorpi á Himalayja-svæðinu á Indlandi, var bjargað í nótt. Göngin eru hluti byggingaframkvæmda við orkuver og höfðu mennirnir verið innilokaðir í sólarhring. 9.8.2004 00:01
Sprenging í kjarnorkuveri Fimm af tíu starfsmönnum kjarnorkuvers í Japan, sem voru fluttir í skyndingu á sjúkrahús eftir gufusprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Mihama í nótt, eru látnir. Gufusprenging varð við einn kjarnakljúfinn en stjórnvöld staðhæfa að engin geislavirk efni hafi lekið út. Ekki er nánar tilgreint í hverju bilunin liggur. 9.8.2004 00:01
Fáar konur á breska þinginu Bretar hafa áhyggjur af því að hlutfall kvenna á breska þinginu sé ekki nógu hátt. Einungis 94 konur sitja á þingi fyrir hönd Verkamannaflokksins en heildarfjöldi þingmanna flokksins er 408. Fjórtán af 163 þingmönnum Íhaldsflokksins eru konur. 9.8.2004 00:01
Eldsneytisgjald flugfélaga hækkar Flugfélagið British Airways er enn að hækka svonefnt eldsneytisgjald vegna hækkandi olíuverðs á heimsmarkaði. Gjaldið hefur haldist óbreytt hjá Flugleiðum frá því 1. júní. 9.8.2004 00:01
Lofa að fara varlegar en áður Bandarískir hermenn í Afganistan munu fara sér varlegar í framtíðinni og taka aðeins meira tillit til heimamanna en hingað til. Þessu lofaði David Barno, hershöfðingi og æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í Afganistan, á fundi með Hamid Karzai, forseta Afganistans. 9.8.2004 00:01
Ósáttir við Bandaríkjamenn Bandarískir embættismenn kunna að hafa eyðilagt fyrir baráttunni gegn hryðjuverkamönnum með því að ljóstra því upp við blaðamenn að al-Kaídaliðinn Muhammad Naeem Noor Khan hafi verið handtekinn. Þetta hafa fréttamenn CNN eftir pakistönskum leyniþjónustumönnum. 9.8.2004 00:01
Kosningaeftirlit í Bandaríkjunum Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur ákveðið að vera með kosningaeftirlit í bandarísku forsetakosningunum. Íslensk kona er talsmaður kosningaeftirlitsins. 9.8.2004 00:01
Sakaðir um morð og fjársvik Handtökutilskipun eftir verið gefin út á hendur frændunum Ahmed og Salem Chalabi. Ahmed átti sæti í framkvæmdaráði Íraks sem var leyst upp þegar bráðabirgðastjórnin tók við í lok júní. Salem er í forsvari fyrir dómstólinn sem kemur til með að rétta yfir Saddam Hussein. 9.8.2004 00:01
Eurocorps tekur við í Afganistan Herdeildir Eurocorps tóku við yfirstjórn Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Afganistan af kanadíska hernum í morgun en hann hefur stjórnað herdeildum NATO þar í landi frá því í janúar. Eurocorps var sett á laggirnar árið 1992 og er viðbragðsher sem NATO eða Evrópusambandið getur sent til átakasvæða með skömmum fyrirvara. 9.8.2004 00:01
Al-Kaída hagnast á upplýsingaleka Tilraunir Bandaríkjastjórnar til að réttlæta viðvaranir við hryðjverkaógn í síðustu viku kom að öllum líkindum í veg fyrir frekari handtökur á meðlimum Al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Bandaríkjunum, Evrópu og Pakistan. 9.8.2004 00:01
Heilsuvænir nammisjálfsalar Nammisjálfsalar standa vart undir nafni sem slíkir öllu lengur í Bandaríkjunum. Nú er svo komið að hlutur heilsusamlegra matvæla eykst stöðugt í slíkum sjálfssölum. 9.8.2004 00:01
Deila um fjárlögin Lítið virðist ganga í viðræðum tveggja stærstu stjórnmálaflokka Ísraels um myndun þjóðstjórnar. 9.8.2004 00:01
Ekki merki um þjóðarmorð Fulltrúar Evrópusambandsins segjast ekki hafa fundið merki um þjóðarmorð í Darfúr-héraði í Súdan líkt og haldið hefur verið fram að hafi átt sér þar stað undanfarið. Pieter Feith, ráðgjafi Javier Solana sem er yfirmaður utanríkismála ESB, sagði fyrr í dag að augljóst væri að „hljóðlát og hæg" manndráp, sem og þorpsbrennur, færu þar fram í stórum stíl. 9.8.2004 00:01
Kransar úr 3000 ára gömlum trjám Sigurvegarar í maraþonhlaupi karla og kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast á föstudaginn munu fá kransa sem búnir eru til úr greinum elstu olívutrjáa Grikklands. Um er að ræða tvö tré, hvort í sínu þorpinu á grísku eyjunni Krít, sem sögð eru meira en 3000 ára gömul. 9.8.2004 00:01
Kenna tóma vitleysu Ríki Bandaríkjanna eru 53 talsins en fáninn "hefur ekki verið uppfærður til að taka tillit til þriggja síðustu ríkjanna - Hawai, Alaska og Púerto Ríkó". Seinni heimsstyrjöld hófst 1938 og henni lauk fjórum árum síðar. Þingið skiptist í tvennt, öldungadeildina og fulltrúadeildina, önnur er fyrir demókrata en hin fyrir repúblikana. 9.8.2004 00:01
Fjórir létust í kjarnorkuveri Fjórir létust og og sjö slösuðust vegna gufuleka í kjarnorkuveri í borginni Mihama í Japan í gær. Tvísýnt er um líf eins hinna slösuðu. 9.8.2004 00:01
Kornabarn kom í leitirnar Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í Melborne í Ástralíu í fyrrakvöld, kom í leitirnar. Karl og kona á þrítugsaldri rændu barninu. 9.8.2004 00:01
Sprenging í kjarnorkuveri í Japan Fjórir létust og sjö særðust í gufusprengingu í kjarnorkuveri í Mihama í Vestur-Japan í morgun. Mennirnir hlutu alvarleg brunasár undan hita gufunnar sem var yfir 250 stig á selsíus. 9.8.2004 00:01
Bardagar í hverfum sjíta-múslima Harðir bardagar geisa í hverfum sjíta-múslima í nokkrum borgum Íraks, þar á meðal í Najaf þar sem átök hafa staðið yfir nær linnulaust í fimm daga. Klerkur sjíta, Moqtada al-Sadir, segir fylgismenn sína ekki ætla að leggja niður vopn. 9.8.2004 00:01
Danir styðja Bandaríkjamenn Forsætisráðherra Danmerkur segir að Danir standi þétt við bakið á Bandaríkjamönnum í Íraksstríðinu, þrátt fyrir neikvæðar skýrslur og harða gagnrýni á gang mála. Hann tekur undir áhyggjur danskra fjölmiðla sem óttast hefndaraðgerðir vegna fregna af pyntingum danskra hermanna á írökskum föngum. 9.8.2004 00:01
Kosningaeftirlit í Bandaríkjunum Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu ætlar að vera með kosningaeftirlit í bandarísku forsetakosningunum. Íslensk kona verður í forsvari fyrir eftirlitið. Fjölmargir þingmenn kröfðust þess að alþjoðlegt eftirlit yrði með kosningunum efttr reysluna í síðustu kosningunum en þá tók nokkrar vikur úrskurða hver væri sigurvegari kosninganna. 9.8.2004 00:01
Sex létust í sprengingu Sex létu lífið og fjórtán særðust, þar af þrír alvarlega, þegar sprengjur sprungu við skóla í borginni Karachi í Pakistan. 8.8.2004 00:01
Hryðjuverkastarfsemi trufluð Bandaríkjastjórn telur að komið hafi verið í veg fyrir áform al Kaída um árásir á Bandaríkin, bæði með nýlegum handtökum grunaðra hryðjuverkamanna í Pakistan og Bretlandi og með því að leggja hald á tölvugögn um fimm fjármálastofnanir í Bandaríkjunum. 8.8.2004 00:01
10 þúsund útlendingum vísað frá Norska lögreglan áætlar að tíu þúsund útlendingum verði vísað frá Noregi á þessu ári. Aftenposten greinir frá því að þetta sé mesti fjöldi hingað til og að á nærri hverjum degi séu útlendingar sendir með flugi frá Gardermoen flugvellinum. 8.8.2004 00:01
Fastir í göngum á Himalayja Að minnsta kosti tuttugu byggingaverkamenn eru fastir í göngum eftir miklar rigningar í afskekktu þorpi á Himalayja svæðinu á Indlandi í morgun. Mennirnir vinna við smíði ganga vegna orkuvers, í um 500 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Nýju Dehli. 8.8.2004 00:01
Sprengja við tyrkneskan flugvöll Einn maður lést og annar særðist illa þegar sprengja, sem þeir voru að koma fyrir utan við eftirlitsstöð við flugvöll í Tyrklandi í gærkvöldi, sprakk. Sá sem slasaðist faldi sig í átta klukkutíma áður en hann gaf sig fram. 8.8.2004 00:01
150 skelfiskveiðimönnum bjargað Tæplega 150 skelfiskveiðimönnum var bjargað síðdegis í gær, eftir að hafa verið í sjálfheldu í Morecambe flóa skammt frá Liverpool frá því fyrr um morguninn. Fólkið var af skosku og kínversku þjóðerni og hafði setið fast í blautum sandi eftir að tveir traktorar skullu saman á grynningum, rúmlega sex kílómetra frá landi. 8.8.2004 00:01
Dauðarefsing sett á að nýju Írakska bráðabyrgðastjórnin hefur ákveðið að setja aftur á dauðarefsingu. Hún mun koma til greina í málum morðingja, nauðgara og fíkniefnaafbrotamanna. Dauðarefsing var afnumin þegar Saddam Hussein var hrakinn frá völdum í apríl á síðasta ári. 8.8.2004 00:01
Allawi heimsótti Najaf Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, hvatti skæruliða til að hætta bardögum í borginni Najaf, í heimsókn sinni þangað í morgun. Hann segist ekki ætla að handtaka leiðtoga uppreisnarmannanna, en að engar samningaviðræður geti farið fram fyrr en vopn verði lögð niður. 8.8.2004 00:01
Miðasala á Ólympíuleika tekur kipp Miðasala á Ólympíuleikana hefur tekið kipp eftir rólega byrjun og standa nú þúsundir Grikkja í nokkurra klukkutíma biðröðum í Aþenu. Búist hafði verið við að miðasala myndi ganga betur í Grikklandi en í Sidney í Ástralíu árið 2000, meðal annars vegna sögulegra tengsla Grikklands við Ólympíuleikana, en fyrstu nútíma leikarnir voru haldnir í Aþenu árið 1896. 8.8.2004 00:01
Google leitar að framtíð Reiptog hinna bjartsýnu og svartsýnu fyrir frumútboð Google er hafið. Enn er ekki útséð um hvor hafi betur. Google þarf að móta sér framtíð og vaxa hratt ef það á að standa undir útboðsgenginu. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Írönskum diplómata rænt Írönskum ríkiserindreka var í dag rænt af írökskum ófriðarseggjum. Myndband frá hópnum sem kallar sig hinn íslamska her í Írak var birt á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Arabiya. Á myndbandinu var sýnt vegabréf og nafnspjald mannsins sem heitir Fereidoun Jahani, en hann er starfsmaður sendiráðs í borginni Kerbala 8.8.2004 00:01
Prósak í drykkjarvatni Leifar af þunglyndislyfinu Prósak hefur fundist í drykkjarvatni í Bretlandi. Breska dagblaðið the Observer greinir frá því í dag að skýrsla sem umhverfissérfræðingar unnu fyrir ríkisstjórnina leiði í ljós að Prósak safnist saman í ám og grunnvatni sem notað sé til veitu drykkjarvatns. 8.8.2004 00:01