Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar handtaka fleiri Bretar handtóku í dag þrettánda manninn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkasamtökunum AL-Kaída. Maðurinn er grunaður um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverk í Bandaríkjunum. 6.8.2004 00:01
Ísraelar opnuðu landamærin Ísraelski herinn hefur opnað landamærin á milli Egyptalands og Gaza-svæðisins og leyfði fimmtán hundruð Palestínumönnum sem voru strandaðir í Egyptalandi að snúa heim. Landamærunum var lokað fyrir þremur vikum vegna gruns um að palestínskir uppreisnarmenn væru að smygla vopnum frá Egyptalandi. 6.8.2004 00:01
Bush mismælir sig George Bush Bandaríkjaforseta varð heldur betur á í messunni í gær í ræðu sem hann flutti í Pentagon við undirskrift á fjárveitingu til varnarmála. Bush mætti til leiks í Pentagonið, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, í toppformi - ef svo má að orði komast. 6.8.2004 00:01
Skaut sig í rassinn Bandarískur maður sem var uggandi eftir að hafa heyrt fréttir af hættulegum glæpamanni sem gengi laus nærri heimili sínu endaði á því að skjóta sig í rassinn. 6.8.2004 00:01
31 lést í þyrluslysum Allir fimmtán, sem voru um borð í rússneskri þyrlu, fórust þegar þyrlan hrapaði í Síberíu í morgun. Ekkert er vitað um tildrög slyssins en sjónarvottar segja að hún hafi skyndilega skollið í jörðina og sprungið á jörðu niðri. 5.8.2004 00:01
Hnífsstungumaðurinn handtekinn Lögreglan í Osló handtók í gærkvöldi fertugan karlmann af sómölskum uppruna fyrir hnífsstunguárás í sporvagni í borginni í fyrradag, að því er kemur fram í norska dagblaðinu <em>Aftenposten</em>. Einn lést af sárum sínum og að minnsta kosti tveir særðust lífshættulega. 5.8.2004 00:01
Sprenging fyrir utan lögreglustöð Að minnsta kosti fimm létust og tuttugu og einn særðist þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð suður af Bagdad í Írak í morgun. Uppreisnarmenn skutu einnig eldflaugasprengju að brú í Bagdad. Þá börðust bandarískir hermenn og írakskar öryggissveitir við skæruliða úr röðum írakska klerksins Moqtada al-Sadr í borginni Najaf í nótt. 5.8.2004 00:01
Dauðarefsing tekin upp í Indónesíu Dauðarefsing hefur verið framkvæmd í fyrsta sinn í Indónesíu eftir þriggja ára hlé. Indverskur maður, sem var dæmdur til dauða árið 1995 fyrir eiturlyfjasmygl, var tekinn af lífi í gærkvöldi. Sveit lögreglumanna skaut manninn til bana. 5.8.2004 00:01
Gosdrykkur gegn Sharon Gosdrykkurinn Mecca-Cola er kominn í verslanir í Palestínu. Hagnaður af sölu drykkjarins, sem er nefndur eftir borginni Mecca, helgasta stað múslima, rennur til velferðarmála Palestínumanna og er þannig beint gegn ísraelsku ríkisstjórninni. Mecca-Cola kom reyndar fyrst á markað í Frakklandi fyrir tveimur árum. 5.8.2004 00:01
7 unglingar látast í bruna Sjö unglingar á aldrinum þrettán til fimmtán ára létust í miklum bruna í hesthúsi í Savoie-héraði í Austur-Frakklandi í nótt. Ekki er vitað um afdrif tveggja fullorðinna sem talið er að hafi verið í húsinu og einn er alvarlega slasaður en hann mun hafa komist undan. Fjöldi slökkviliðsmanna barðist við eldinn fram undir morgun en eldsupptök eru óljós. 5.8.2004 00:01
Bandarísk þyrla skotin niður Bandarísk þyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum í borginni Najaf í Írak í morgun. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir í burtu. 5.8.2004 00:01
Hryðjuverkárás á Heathrow í bígerð Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída ætli að gera árásir á flutningaskip. 5.8.2004 00:01
Mótmæli við argentíska þingið Mikill viðbúnaður var í höfuðborg Argentínu, Búenos Aíres, þegar fimm þúsund atvinnulausir Argentínumenn söfnuðust saman fyrir utan þing landsins í morgun og kröfðust umbóta á velferðakerfinu. Hópurinn mótmælti einnig nýjum öryggisreglum sem forseti landsins, Nestor Kirchner, reynir nú að koma í gegnum þingið. 5.8.2004 00:01
Enn barist í Najaf Enn er barist að hluta til á götum borgarinnar Najaf í Írak en að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur þeim tekist að einangra uppreisnarmennina og halda þeim í skefjum. Vígamenn gerðu árás á lögreglustöð í borginni í gærkvöldi og í kjölfarið brutust út átök milli lögreglunnar og uppreisnarmanna. 5.8.2004 00:01
Chicciolina borgarstjóri Mílanó? Ítalska klámmyndadrottningin Chicciolina, sem reyndar er ungversk að uppruna, vill verða borgarstjóri í Mílanó þegar kosið verður til þess embættis eftir tæp tvö ár. Chicciolina varð heimsfræg þegar hún sat á ítalska þinginu í nokkur ár fyrir Róttæka flokkinn. 5.8.2004 00:01
Áfengisþorsti Finna hjálpar Eistum Þyrstir Finnar ferðast í það miklum mæli yfir til nágranna sinna í Eistlandi til áfengiskaupa að efnahagur Sovétríkisins fyrrverandi hefur batnað umtalsvert að sögn eistneska fjármálaráðuneytisins. Finnar hafa gert þetta í fjölda ára þar sem áfengið er miklu ódýrara í Eistlandi en takmörk hafa verið fyrir því mikið áfengi frændur vorir mega kaupa. 5.8.2004 00:01
Lögreglumenn fá byssur að nýju Ísraelska varnarmálaráðuneytið hefur samþykkt að leyfa palestínskum lögreglumönnum að bera byssur að nýju til að stuðla að auknum friði fyrir botni Miðjarðarhafs. 5.8.2004 00:01
Kerry ekki stríðshetja? Hópur hermanna úr Víetnam-stríðinu hefur keypt auglýsingapláss í fjölmiðlum til að koma höggi á John Kerry, forsetaframbjóðanda úr flokki Demókrata. Hermennirnir segja Kerry ljúga um hetjudáð sína í Víetnam-stríðinu. 5.8.2004 00:01
Námuslys í Rússlandi Þremur námuverkamönnum var bjargað úr kolanámu í borginni Vorkuta í Norður-Rússlandi eftir sólarhringsveru í námunni. Náman féll skyndilega saman í gær og var lengi vel talið að allir mennirnir hefðu farist. Einn maður lést og þriggja er enn saknað. 5.8.2004 00:01
Síamstvíburar aðskildir Tveggja ára gamlir síamstvíburar frá Indónesíu voru aðskildir á sjúkrahúsi á Filippseyjum í dag. Að sögn lækna heilsast tvíburunum vel en þeir voru undir skurðarhnífnum í ríflega sautján klukkustundir. 5.8.2004 00:01
Cartier-Bresson látinn Franski ljósmyndarinn Henri Cartier-Bresson er látinn, 95 ára að aldri. Bresson er þekktur fyrir götuljósmyndir sínar en hann var einn af fyrstu ljósmyndurum í heiminum sem gerðu daglegt líf að viðfangsefni sínu og var frumkvöðull á sviði fréttaljósmynda. 5.8.2004 00:01
Árás á Heathrow undirbúin Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída hafi uppi áform um að gera árásir á flutningaskip. 5.8.2004 00:01
Arafat hylltur í Ramallah Hundruð stuðningsmanna Yassers Arafats, forseta Palestínu, voru samankomin á götum Ramallah borgar á Vesturbakkanum í dag til að hylla forsetann. Stuðningur við Arafat hefur minnkað síðustu misseri en samkoman í dag sýnir að hann nýtur enn mikils stuðnings meðal þegna sinna. 5.8.2004 00:01
Drap einn og særði 5 í Noregi Víðtæk leit stendur enn yfir að manni sem stakk einn mann til bana og særði fimm í sporvagni í Osló í Noregi síðdegis í gær. Maðurinn sem lést var tuttugu og þriggja ára en meðal hinna særðu er tveir lífshættulega slasaðir, kona á fertugsaldri og rúmlega fimmtugur karlmaður. 4.8.2004 00:01
Öryggisviðbúnaður aukinn Öryggisviðbúnaður hefur verið aukinn á ellefu flugvöllum og í tveimur höfnum til viðbótar í Bandaríkjunum. Tom Ridge, yfirmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, segir þetta gert í kjölfar rannsóknar á gögnum Al-Kaída. 4.8.2004 00:01
Fellibylur í Norður-Karólínu Fellibylurinn Alex olli flóði í Norður-Karólínu ríki Bandaríkjanna í gær. Hundruð heimila og bíla urðu vatninu að bráð og rafmagn fór af hjá þúsundum íbúa. Íbúar á svæðinu segja þetta versta veður sem hafi gengið yfir svæðið í þrjátíu ár. Vindhraði náði 160 kílómetra hraða á klukkustund. 4.8.2004 00:01
Ný stjórn í Tékklandi Forseti Tékklands, Vaclav Klaus, skipaði í morgun hina nýju ríkisstjórn landsins formlega í embætti undir forystu forsætisráðherrans, Stanislavs Gross, sem er aðeins 34 ára gamall og yngsti forsætisráðherra í Evrópu. Þrjátíu og níu dagar eru liðnir síðan fráfarandi forsætisráðherra Tékklands, Vladimir Spidla, sagði af sér. 4.8.2004 00:01
Átök í Mósúl í morgun Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. 4.8.2004 00:01
Gíslar látnir lausir Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir. 4.8.2004 00:01
Starfsmenn Sþ heim frá Gaza Sameinuðu þjóðirnar ætla að draga næstum alla erlenda starfsmenn sína frá Gaza-svæðunum í Palestínu í kjölfar þess að Ísraelsher hefur fjölgað árásum sínum á svæðið. Tuttugu starfsmenn voru sendir heim í síðasta mánuði og enn fleiri verða sendir heim á næstu dögum. 4.8.2004 00:01
70 slasaðir í lestarslysi Sjötíu slösuðust, þar af nokkrir mjög alvarlega, í lestarslysi í Zimbabwe í morgun. Tvær farþegalestir skullu saman við aðallestarstöðina í höfuðborginni Harare. Talið er að um mannleg mistök hafi verið að ræða. 4.8.2004 00:01
Bakkus hrjáir 9% Bandaríkjamanna Um níu prósent Bandaríkjamanna glíma við áfengisvandamál og fimmtán prósent þeirra þjást af persónuleikatruflunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn sem birtist í blaðinu <em>Journal of Clinical Psychiatry</em>. 4.8.2004 00:01
Dæmd fyrir að nauðga nemanda sínum Mary Kay Letounreau, kennari sem átti í ástarsambandi við tólf ára nemanda sinn, var látin laus úr fangelsi í Washington í Bandaríkjunum í morgun. Mary var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir nauðgun en hefur nú afplánað dóminn. 4.8.2004 00:01
Flugskeyti með kjarnavopnum Í nýlegri skýrslu frá Bandaríkjunum er sagt líklegt að Norður-Kóreumenn hafi komist yfir flugskeytabúnað sem getur sent flugskeyti með kjarnavopnum alla leið til Bandaríkjanna. Tæknin virðist vera sambærileg þeirri sem finnst á rússneskum kafbátum sem bendir til þess að norðurkóresk stjórnvöld hafi fengið utanaðkomandi hjálp við þróun búnaðarins. 4.8.2004 00:01
Réðst á leikskólabörn með hnífi Starfsmaður í leikskóla í Pekíng í Kína gekk af göflunum í vinnunni og réðst á fimmtán nemendur og þrjá kennara með eldhúshnífi í morgun. Eitt barn lést og tvö særðust illa. Starfsmaðurinn er í haldi lögreglu en hann er fimmtíu og eins árs gamall og var vörður við skólann. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn framdi verknaðinn. 4.8.2004 00:01
Fuglaflensa í Suður-Afríku Landbúnaðaryfirvöld í Suður-Afríku gruna að fuglaflensufaraldur eigi sér nú stað í þremur fuglabúum þar sem strútar eru aldir í austurhluta landsins. Landbúnaðarráðherra héraðsins segir að sýni úr fuglabúunum þremur hafi a.m.k. til bráðabirgða verið greind sem afbrigði fuglaflensunnar sem herjað hefur í Asíu undanfarin misseri. 4.8.2004 00:01
Skuldsetja sig út áratuginn Útlit er fyrir að ólympíuleikarnir verði mun dýrari en grísk stjórnvöld stefndu að. Nú er svo komið að sérfræðingar eru farnir að lýsa áhyggjum af því að leikarnir íþyngi gríska ríkinu svo mjög að það kunni að taka gríska skattborgara tíu ár, hið minnsta, að borga reikninginn. 4.8.2004 00:01
Réðist á börn vopnaður hnífi Eitt barn lést og fimmtán slösuðust, þar af tvö alvarlega, þegar starfsmaður leikskóla réðst með hnífi að leikskólabörnum og kennurum þeirra. Þrír kennarar særðust í árásinni. 4.8.2004 00:01
Flugvél flaug á hús Sex létu lífið, þeirra á meðal tvö börn, þegar lítil flugvél flaug á hús við golfvöll í Austin í Texas. Vélin breyttist í eldhnött þegar hún lenti á húsinu og fórust allir sem voru um borð í henni. Þrennt var í húsinu þegar atvikið átti sér stað en þau sluppu öll við meiðsl. 4.8.2004 00:01
Grunaðir um aðild að Al-Kaída Þrettán menn sem grunaðir eru um að eiga aðild að Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum eru nú í haldi lögreglu í Bretlandi. Mennirnir, sem eru á aldrinum nítján til þrjátíu og tveggja ára, voru handteknir í borgunum Luton, Blackburn og Bushey, skammt norður af London. 4.8.2004 00:01
Bandaríska sendiráðinu lokað Nokkrum deildum bandaríska sendiráðsins í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, verður lokað á morgun, fimmtudag, vegna öryggisráðstafana að því er segir í tilkynningu frá sendiráðinu í dag. 4.8.2004 00:01
Harðir bardagar í Mósúl Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum. 4.8.2004 00:01
Gyðingar flytjast til Ísraels Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili. 4.8.2004 00:01
ESB brýtur alþjóðalög Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar. 4.8.2004 00:01
Auglýst eftir hirðfífli Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár. 4.8.2004 00:01