Fleiri fréttir

Brosandi bílar

Uppfinningamenn hjá bílaframleiðandanum Toyota hafa fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum fyrir hugmynd að bíl sem sýnir tilfinningar.

Dráp og mannrán halda áfram

Vígamenn í Írak drápu átta manns í dag, þar á meðal háttsettan embættismann úr innanríkisráðuneytinu. Ekkert lát er á mannránum en tveimur Jórdönum og tveimur Pakistönum var rænt í dag til viðbótar við þá sjö gísla sem hafa setið í haldi í rúma viku. 

Efnahagsmál ráða líklega úrslitum

Efnahagsmál koma líklega til með að ráða úrslitum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Flokksþing demókrata hefst í kvöld en þar verður John Kerry formlega tilnefndur sem forsetaframbjóðandi þeirra.

Aðgerðir ESB gegn Súdan

Evrópusambandið samþykkti í dag að grípa til aðgerða gegn Súdan, beiti súdönsk stjórnvöld sér ekki fyrir friði í Darfúr-héraði. 

Norðmenn orðnir latir

Norðmenn leita nú leiða til að endurvekja vinnugleði hjá fólki í landinu. Ósérhlífnin og harkan sem einkenndu norska alþýðu áður en landið varð ríkt af olíu virðast vera á undanhaldi og eftir þrjá áratugi af velsæld virðist letin vera að ná tökum á norku vinnufólki.

Áströlum og Ítölum hótað

Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum sem talin eru tengjast Al-Kaída. Í tilkynningu frá samtökunum er farið fram á að löndin dragi heri sína til baka frá Írak og verði það ekki gert muni holskefla bílasprenginga ganga yfir borgir landanna. Blóðbað muni eiga sér stað og lífi borgara landanna verði breytt í hreinasta helvíti.

Norðmenn afhendi ekki Nóbelinn

Ungliðahreyfing norska miðflokksins, Senterpartiet, hefur látið þá skoðun í ljós að Norðmenn eigi ekki lengur skilið þá virðingu og þann heiður sem fylgir því að veita friðarverðlaun Nóbels. Ástæðan sé fylgispektin við ofbeldisfulla utatnríkisstefnu Bandaríkjastjórnar.

Gefur 150 milljóna lottóvinning

Óþekktur lottóvinningshafi í Japan hefur ákveðið að láta þær rúmu 150 milljónir króna sem hann vann á föstudaginn renna óskiptar til fórnarlamba nýlegra flóða í Japan. Vinningshafinn, sem virðist búa yfir einstakri gjafmildi, segist vonast til þess að fórnarlömb flóðanna verði aðnjótandi sömu heppni og fylgdi miðanum.

Réttarhöldunum sífellt frestað

Réttarhöldum yfir morðingja hálfíslenskrar konu í Pensacola í Bandaríkjunum hefur verið frestað í áttunda sinn. Lögfræðingar, sem sérhæfa sig í að verja hagsmuni brotaþola, fylgjast grannt með málarekstrinum.

100 dagar til kosninga

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, segist staðráðinn í að sannfæra kjósendur um það á næstu þremur mánuðum að hann sé betur til þess fallinn að verja landið gegn hryðjuverkum heldur en George Bush.

13 skæruliðar drepnir

Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba.

2 létust og 14 særðust á Máritíus

Tveir létust og fjórtán særðust í sprengingu á fjölförnum ferðamannastað í Grand Baie á Máritíus í morgun. Hinir látnu eru maður og kona á þrítugsaldri, bæði heimamenn. Að sögn lögreglu er talið að allir hinna særðu séu íbúar Máritius. Forsætisráðherra landsins var á staðnum en hann sakaði ekki.

Knattspyrnudómari skaut þjálfara

Knattspyrnudómari skaut þjálfara í knattspyrnuleik í Suður-Afríku í gær eftir að þjálfarinn og leikmenn hans mótmæltu gulu spjaldi að sögn lögreglunnar þar í landi. Þjálfarinn lést þar sem hann lá í blóði sínu á vellinum en dómaranum tóks hins vegar að flýja af vettvangi.

13 skæruliðar létust í Írak

Þrettán írakskir skæruliðar létust í bardögum við varnarliðsmenn og bandaríska hermenn rétt utan við borgina Bakúba í morgun. Hópur skæruliða réðst til atlögu að írökskum þjóðvarnarliðsmönnum með sprengjuvörpum og handsprengjum, þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við leit í búðum skæruliða, í Buhriz sem er um 5 km suður af Bakúba.

Flokksþing demókrata að hefjast

Flokksþing Demókrataflokksins hefst með pompi og prakt í Boston á morgun. Á þinginu koma saman, auk demókrata, fimmtán þúsund fréttamenn hvaðanæva úr heiminum, m.a. frá Stöð 2.

14 dóu í lestarslysi í Tyrklandi

Lest og lítil rúta skullu saman á lestarteinum í vesturhluta Tyrklands í dag með þeim afleiðingum að fjórtán manns létu lífið og sex slösuðust, að sögn Anatolia-fréttastofunnar. Tildrög slyssins eru ekki ljós en rútan var að aka yfir teinana.

Áströlum og Írökum hótað

Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum, sem talin eru tengjast Al-Kaída, flytji löndin ekki heri sína heim frá Írak. Utanríkisráðherra Ástralíu segist taka hótunina alvarlega en ekki komi til greina að láta undan kröfum hryðjuverkamanna. 

Pyntingatól í Írak

Pyntingartól sem Údei Hussein notaði til að refsa íþróttamönnum í stjórnartíð Saddams, föður hans, voru höfð til sýnis á þjóðarleikvangi Íraka í Bagdad í gær. Þetta var gert í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í næsta mánuði til að minna á að ógnarstjórnin sé liðin undir lok. 

Fjórtán manns látast í lestarslysi

Fjórtán manns, þar af fimm börn, létust þegar lítil rúta og lest skullu saman á lestarteinum í vesturhluta Tyrklands í gær. Rútan var að aka yfir teinana og létust allir þeir sem voru í henni en sex manns í lestinni slösuðust.

Miklir skógareldar í Frakklandi

Um þrjú þúsund hektarar af skóglendi brunnu og um tvö þúsund manns þurftu að flýja heimili sín vegna mikilla skógarelda norður af Marseille í Frakklandi um helgina. Þrír slökkviliðsmenn slösuðust við vinnu sína þar af tveir þegar þeir fengu á sig vatn sem sleppt var úr flugvél.

Sjötíu þúsund mynduðu mótmælakeðju

Um sjötíu þúsund Ísraela tókust í hendur og mynduðu keðju fólks allt frá Gaza til Jerúsalem í gær. Með þessu var fólkið að mótmæla áformum Ariels Sharon forsætisráðherra um að eyðileggja nokkrar landtökubyggðir gyðinga og draga herliðið frá Gaza-svæðinu.

Láta ekki undan hótunum al-Kaída

Alexander Downer, utanríkisráðherra Ástralíu, segir að hótanir evrópudeildar al-Kaída hryðjuverkasamtakanna um hryðjuverk í landinu verði teknar alvarlega þó stjórnvöld þar í landi ætli sér ekki að láta undan þeim.

Hjálparsveitir snúa aftur

Eftir nokkura daga hlé á hjálparstarfi hafa hjálparstofnanir aftur komið upp matarbirgðum í tveimur búðum fyrir súdanska flóttamenn í nágrannaríkinu Tsjad. Á svæðinu hafast fjörutíu þúsund súdanskir flóttamenn við eftir að leiðtogar búðanna hétu því að tryggja öryggi þeirra en hjálparstarfi þar var hætt í nokkra daga vegna ofbeldis.

Bólusett gegn fíkniefnum?

Breska ríkisstjórnin er að hugleiða róttæk áform um að bólusetja börn gegn því að ánetjast fíkniefnum þegar þau eldast, að því er breska dagblaðið The Independent on Sunday segir frá.

Blair ver umbreytingu flokksins

Tony Blair sætir vaxandi gagnrýni frá vinstri armi Verkamannaflokksins. Hann varði umbreytingu flokksins í ræðu um helgina og hét flokksmönnum sigri í þriðju þingkosningunum í röð. </font /></b />

Embættismanni rænt í Írak

Háttsettur embættismaður frá Egyptalandi er nú í haldi írakskra skæruliða ásamt sjö öðrum gíslum. Egyptinn, Momdoh Kotb að nafni, er einn af aðalerindrekum Egypta í Írak og segjast skæruliðarnir hafa tekið hann í gíslingu vegna tilboðs Egypta um að hjálpa til við öryggismál í landinu.

Bretar telja Blair óheiðarlegan

Meirihluti breskra kjósenda telur Tony Blair, forsætisráðherra Breta, óheiðarlegan samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Í könnuninni, sem gerð var fyrir dagblaðið Daily Mail, segjast 59% aðspurðra telja að Blair hafi logið til um gereyðingarvopn í Írak.

Brúin endurreist eftir stríðið

Mostar-brúin í Bosníu og Hersegóvínu var opnuð á nýjan leik í gær við hátíðlega athöfn. Brúin, sem byggð var á 16.öld, var sprengd upp í stríðinu á Balkanskaga árið 1993 og þykir enduruppbygging hennar táknræn fyrir bætt samband múslima og Króata.

Boð Bandaríkjamanna falskt

Norður-Kóreumenn hafa hafnað beiðni Bandaríkjamanna um að þeir eyði öllum kjarnorkuvopnum sínum og láti af kjarnorkuáætlunum í skiptum fyrir aðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. Haft er eftir talsmanni norðurkóreska utanríkisráðuneytisins að boð Bandaríkjamanna sé falskt og ekki vert umhugsunar.

Fingralöng langamma

80 ára gömul langamma á Ítalíu hefur verið handtekin, grunuð um að hafa árum saman byrlað fólki lyf svo það líður út af og rænt fólkið í kjölfarið. Ítölsku lögreglunni tókst að hafa hendur í gráu hári þeirrar gömlu, Vittoriu Benetti að nafni, eftir að síðasta fórnarlamb hennar bar kennsl á hana á myndum lögreglunnar.

Morðákæra á fyrrverandi forseta

Luis Echeverria, fyrrverandi forseti Mexíkó, hefur verið ákærður fyrir sinn þátt í morðum á stúdentum sem áttu sér stað fyrir 33 árum. Að minnsta kosti 25 stúdentar voru drepnir í friðsamlegri mótmælagöngu um Mexíkóborg árið 1971.

Þrír menn ákærðir vegna slyssins

Tyrknesk yfirvöld hafa ákært þrjá menn vegna lestarslyssins sem varð 37 manns að bana á fimmtudaginn. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa valdið dauða fleiri en eins manns með því að sýna vítavert kæruleysi.

Stjórnmálaleiðtogi út úr skápnum

Leiðtogi Frjálslynda demókrataflokksins í Þýskalandi, Guido Westerwelle, kom út úr skápnum í viðtali við tímaritið Der Spiegel í dag. Westerwelle hefur tekið þátt í fjölda samkoma undanfarnar vikur þar sem hann hefur lagt áherslu á aukin réttindi samkynhneigðra para í þjóðfélaginu. 

Embættismanni rænt í Írak

Skæruliðar í Írak tóku í dag háttsettan egypskan embættismann í gíslingu. Þetta er í fyrsta skipti sem erlendum embættismanni er rænt í Írak. 

Egyptar hvattir til staðfestu

Forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, hvatti Egypta til þess að standa fast á sínu og virða að vettugi hótanir íraskra vígamanna sem halda egypskum sendimanni í gíslingu.

Engar framfarir án öryggis

Efnahagslíf Íraka hefur ekki enn tekið við sér, fimmtán mánuðum eftir fall Saddams Hussein. Áhugi erlendra fjárfesta er til staðar en þeir halda að sér höndum vegna óaldar sem ríkir í landinu.

Bush ánægður með skýrsluna

George Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsir ánægju sinni með skýrslu nefndar um hryðjuverkin 11. september 2001, þótt ríkisstjórn hans sé harðlega gagnrýnd í henni. Skýrslan varpar meðal annars skýrara ljósi en áður á þau hörðu átök sem urðu milli flugræningja og farþega í flugvélinni sem hrapaði í Pennsylvaníu. 

Japanar óvissir um framsal

Japanar segjast þurfa meiri tíma áður en ákvörðun verður tekin um hvort Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, verði framseldur til Bandaríkjanna. Þar á Fishcer yfir höfði sér fangelsisvist og fjársektir vegna brots á viðskiptabanni við Júgóslavíu en árið 1992 tefldi Fischer einvígi við Boris Spasský þar í landi.

Mannskætt lestarslys í Tyrklandi

Að minnsta kosti fjörutíu manns fórust og sextíu slösuðust í lestarslysi í Tyrklandi í morgun. Hraðlest fór þá út af brautarteinum á milli borganna Istanbul og Ankara. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Tyrklands en gagnrýnendur höfðu varað við því að gamlir brautarteinar á þessari leið myndu ekki ráða við nýrri og hraðskreiðari gerðir lesta.

Bretar óttast Bakkus

Bretar hafa töluverðar áhyggjur af því að óhófleg áfengisneysla og vondir drykkjusiðir séu að færast í vöxt í Bretlandi. Tony Blair, forsætisráðherra landsins, segir breskt samfélag þurfa að koma í veg fyrir að fyllerí verði nýtt þjóðareinkenni Breta.

Kerry lofar auknu öryggi

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur heitið því að bæta verulega úr öryggismálum í Bandaríkjunum, verði hann kjörinn forseti í haust.

Jólasveinaþing í Kaupmannahöfn

Hundrað og sextíu jólaveinar alls staðar að úr heiminum eru samankomnir á jólasveinaþingi í Kaupmannahöfn. Þingið er það 41. í röðinni og fer fram í skemmtigarðinum á Bakkanum svonefnda. Sveinkarnir koma m.a. frá Bandaríkjunum, Venesúela, Japan og Grænlandi.

Sjálfsvíg í Japan aldrei fleiri

Sjálfsvíg í Japan hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári en þá tóku tæplega 35 þúsund manns líf sitt. Tæpur helmingur, eða 45%, tóku hina örlagaríku ákvörðun vegna slæms heilsufars og ríflega fjórðungur vegna fjárhagsvandræða. Síðarnefnda ástæðan er ört vaxandi orsök sjálfsmorða í landinu. </font />

8 hæða bygging hrundi

Átta hæða bygging hrundi til grunna í verslunarhverfi í miðborg Maníla, höfuðborgar Filippseyja, í morgun. Með snarræði tókst að rýma bygginguna eftir að hún fór að hallast. Húsið er einugis fimm ára gamalt og mesta mildi þykir að ekki fór verr.

Arabískir málaliðar gera árásir

Uppreisnarmenn í Vestur-Súdan segja að arabískir málaliðar hafi gert árásir í Darfúr-héraði með stuðningi súdönsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja að ríkisstjórnin í Súdan hafi veitt yfir sex þúsund málaliðum stöðu í lögreglunni og gefið þeim einkennisbúninga og vopn.

Sjá næstu 50 fréttir