Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tímapressa tilboðsdaganna til þess fallin að skapa gerviþörf „Þarf ég þetta virkilega?“ er spurning sem landsmenn ættu að velta vandlega fyrir sér áður en þeir taka ákvarðanir um kaup að mati forsvarsmanna Sorpu. Í dag er einn af stóru tilboðsdögum ársins sem hefur fest sig í sessi á síðustu árum og er annar slíkur á dagskrá eftir helgi. Meðalfjölskylda hendir að meðaltali rúmlega fimm hundruð kílóum af sorpi í óflokkuðu tunnuna á ári hverju. 25.11.2022 15:22
Engar skaðabætur vegna uppsagnar eftir hótanir barnsföður Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað skaðabótakröfu konu sem sagt var upp störfum vegna þess að barnsfaðir hennar hótaði samstarfsmanni hennar ítrekað og á alvarlegan hátt. Fyrirtækið mat það svo að konan hafi rofið trúnað um samskiptasamning sem gerður var á milli hennar og samstarfsmanns hennar. 25.11.2022 15:16
Dómur mildaður fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin fyrir að hafa af gáleysi banað Daníel Eiríkssyni fyrir utan heimili Daníels í Vindakór árið 2021. Dumitru var dæmdur í tveggja ára fangelsi en hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði. 25.11.2022 14:50
Telja lokun Sogns hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fanga, aðstandendur og samfélagið Fyrirhuguð lokun Sognar er ekki í takt við nýjustu rannsóknir og væri stórt skref aftur á bak í fangelsismálum á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun fagráðs Aðstoðar eftir afplánun vegna nýlegra frétta af hugsanlegri lokun fangelsisins að Sogni. 25.11.2022 14:42
Ferðum í Hrísey verður ekki fækkað Ferðum Hríseyjarferjunnar Sævars verður ekki fækkað í nýju útboði Vegagerðarinnar. Engin slík breyting er fyrirhuguð en Vegagerðin vill auka svigrúm til að ekki þurfi að sigla að óþörfu með tóma ferju. 25.11.2022 14:28
Slasaðist á ökkla eftir að bíl var ekið á rafhlaupahjól Ekið var á unglingsstúlku á rafhlaupahjóli á Suðurlandsbraut við Glæsibæ rétt fyrir klukkan eitt í dag. Viðkomandi var fluttur á bráðamóttöku Landspítala. 25.11.2022 13:05
Sanngjarnt að segja að vinnumarkaðurinn sé vandamálið Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir sanngjarnt að tala um að vinnumarkaðurinn sé vandamálið þegar kemur að kjaraviðræðum hér á landi. Skortur sé á samhljómi á milli kröfugerða stéttarfélaga, kröfur þeirra séu ólíkar. Hann segist þó vera ágætlega bjartsýnn á að hægt verði að landa kjarasamningum á almennum vinnumarkaði þrátt fyrir viðræðuslit VR. 25.11.2022 13:01
346 manns sektaðir vegna nagladekkjanotkunar á síðustu fimm árum Á undanförnum fimm árum hafa rúmlega 350 ökumenn verið sektaðir vegna nagladekkjanotkunar hér á landi. 25.11.2022 12:51
Harmar viðræðuslit Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, harmar að VR hafi ákveðið að slíta kjaraviðræðum, en vonar að hægt verði að setjast aftur að samningaborðinu. Hún segir enga óeiningu innan ríkisstjórnarinnar hver aðkoma hennar eigi að vera að samningaviðræðunum. 25.11.2022 12:21
Aukinn viðbúnaður en ekki ástæða til að forðast miðbæinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með aukinn viðbúnað í miðbæ Reykjavíkur um helgina en aðalvarðstjóri segir þó ekki ástæðu til þess að fólk forðist miðbæinn sérstaklega vegna meintrar yfirvofandi hættu. Ekki séu taldar auknar líkur á uppþoti eins og gefið er í skyn í skilaboðum sem gangi manna á milli. 25.11.2022 12:00
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að greiða fasteignagjöld í Hveragerði Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Hveragerðis eru undrandi á þeirri ákvörðun meirihlutans að hætta að fella niður fasteignagjöld vegna fasteigna í bænum sem eru í eigu stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem á fasteign í bænum. 25.11.2022 11:48
Frú Ragnheiður, Heiðar og Þórdís Kolbrún hlutu Frelsisverðlaun SUS Frú Ragnheiður, Heiðar Guðjónsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hlutu í gærkvöldi hin árlegu Frelsisverðlaun Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS). 25.11.2022 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramálin verða í eldlínunni í hádegisfréttum Bylgjunnar. 25.11.2022 11:36
Fyrirhugað að setja heildarlög um sanngirnisbætur Áform um lagasetningu varðandi svokallaðar sanngirnisbætur hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða lagaumgjörð sem skapa myndi farveg fyrir þá einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur. 25.11.2022 11:25
Mat hugmyndir SA bæði óaðgengilegar og óásættanlegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hugmyndir samninganefndar Samtaka atvinnulífsins hvernig ná mætti skammtímasamningi í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði hafi verið algjörlega óásættanlegar. Þá hafi orð fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær ekki hjálpað til. 25.11.2022 11:04
Salka lendir í ritskoðunarkrumlum Facebook Ritskoðunardeild Facebook hefur sett Sölku útgáfu í mánaðarbann á samfélagsmiðlinum en útgefanda varð það á að nefna Hitler á nafn en hinn illræmdi fyrrverandi þýski kanslari er nú kallaður H-orðið meðal Sölku-fólks. 25.11.2022 09:21
Stóraukið fylgi hjá Samfylkingunni Fylgi Samfylkingarinnar stóreykst á milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú nítján prósent samanborið við fjórtán prósent í síðasta mánuði. 25.11.2022 09:01
VR sleit viðræðum við SA í gærkvöldi VR sleit samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins seint í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu lögðust ummæli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær mjög illa í samninganefnd VR. 25.11.2022 08:47
Bankastræti Club hafi gert allt rétt í krísustjórnun Í umfjöllun um hnífaárásina í síðustu viku hefur ítrekað verið rætt um Bankastræti Club í því samhengi, og réttilega, þar sem árásin fór jú fram á staðnum. Sérfræðingur í vörumerkjastjórnun telur ekki að málið komi til með að hafa áhrif á skemmtistaðinn til lengri tíma og eigendur hafi gert allt rétt í krísustjórnun. Hann hefur hins vegar meiri áhuga á að skoða málið út frá vörumerkinu Ísland. 25.11.2022 07:48
Lífslíkur langskólagenginna kvenna mun meiri en kvenna með litla menntun Ný rannsókn sem náði til 6.000 þátttakenda sýnir að lífslíkur langskólagenginna kvenna eru töluvert meiri en kvenna sem hafa litla menntun. Að sögn Thors Aspelund, prófessors í líftölfræði við Háskóla Íslands, fer munurinn vaxandi. 25.11.2022 06:47
Fangaverðir fá högg- og hnífavesti og mögulega rafbyssur Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hyggst svara kalli fangavarða um aukna þjálfun og varnarbúnað. Grafalvarleg þróun eigi sér stað innan veggja fangelsanna, með auknum vopnaburði og ofbeldi. 25.11.2022 06:21
Tvær líkamsárásir í höfuðborginni Gærkvöldið og nóttin voru með rólegasta móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má yfirlit yfir verkefni næturinnar. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir þar sem gerendur voru handteknir í báðum tilvikum og annað fórnarlambið mögulega nefbrotið. 25.11.2022 06:02
Yngri fangar tilbúnari að beita vopnum og fangelsin geta ekki tryggt öryggi vegna fjárskorts Fangavörður á Litla-Hrauni segir starfsumhverfið hafa stórbreyst á undanförnum árum og að ný kynslóð brotamanna sé grimmari og tilbúnari að beita vopnum. Starfsfólk fangelsa óttist um öryggi sitt og á sama tíma kemur sífellt meiri fjárskortur sífellt verr niður á allri starfseminni. 24.11.2022 22:01
Úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Héraðssaksóknari hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka. Lögmaður annars þeirra ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar. 24.11.2022 21:55
Starfaði ekki með börnum fyrir Samtökin '78 Fyrrverandi formaður félagaráðs Samtakanna '78, sem nú hefur vikið frá störfum vegna ásakana um kynferðisofbeldi í garð barna, starfaði ekki með börnum á vegum samtakanna. 24.11.2022 21:41
Vilji til þess að leysa hlutina í sameiningu Talsverður styr hefur staðið um næturlíf Reykjavíkur að undanförnu en til viðbótar við ofbeldismálin sem hafa verið í fréttum hefur skapast talsverð umræða um hávaða frá skemmtistöðum eins og við sögðum frá í kvöldfréttatíma okkar í gær. 24.11.2022 20:33
Ljóstíra eftir krísufund forystumanna með forsætisráðherra Fundur forystu aðila vinnumarkaðarins með forsætisráðherra í morgun virðist hafa styrkt þá í að halda kjaraviðræðum sem voru við það að slitna í gær, áfram í dag. Ef samningar nást eru allar líkur á að samið verði til skamms tíma og þá með einhverri aðkomu stjórnvalda. 24.11.2022 19:21
Hættir hjá Samtökunum 78 eftir ásakanir um misnotkun Rúmlega þrítug kona, fyrrverandi starfsmaður í grunnskóla og fyrrverandi formaður félagaráðs Samtakanna 78, hefur verið sökuð um kynferðislega misnotkun og áreiti gegn börnum. Hún hætti störfum fyrir samtökin í vikunni en félagið var nýlega upplýst um ásakanirnar. 24.11.2022 19:06
Meirihluti treystir ríkisstjórninni illa til frekari bankasölu Um tveir þriðju hlutar landsmanna treysta ríkisstjórninni illa til þess að selja restina af eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Einungis sextán prósent treysta ríkisstjórninni vel til þess. 24.11.2022 18:49
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fundur forystu aðila vinnumarkaðarins með forsætisráðherra í morgun virðist hafa styrkt þá í að halda kjaraviðræðum sem voru við það að slitna í gær, áfram í dag. Ef samningar nást eru allar líkur á að samið verði til skamms tíma og þá með einhverri aðkomu stjórnvalda. 24.11.2022 18:00
Fresta jólaglögg vegna áhyggna af öryggi í miðbænum Starfsmannafélag Símans hefur ákveðið að fresta jólaglögg starfsmanna sem átti að fara fram í miðbænum annað kvöld vegna óvissu í kring um átök í undirheimum. Hótanir um árásir í miðbænum um helgina hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum. 24.11.2022 17:50
Langflestar sektir vegna nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sektað ökumenn fyrir nagladekkjanotkun 227 sinnum frá árinu 2018. Á landinu öllu hefur verið sektað 346 sinnum fyrir nagladekkjanotkun á tímabilinu. 24.11.2022 17:42
Samtök reykvískra skemmtistaða fordæma allt ofbeldi og vopnaburð Samtök reykvískra skemmtistaða hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna atburða síðustu viku. Vísað er til árásarinnar á Bankastræti Club þegar hópur manna réðst inn á staðinn og beittu eggvopnum. 24.11.2022 16:30
Þórólfur leiðir starfshóp um sýklalyfjaónæmi Þórólfur Guðnason, fyrrverandi sóttvarnalæknir, hefur verið skipaður formaður starfshóps sem móta á framtíðarsýn um áætlun við að sporna gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Hann hefur verið ráðinn tímabundið til heilbrigðisráðuneytisins til að leiða verkefni en það er unnið með matvælaráðuneyti og ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála. 24.11.2022 15:30
Framhald kjaraviðræðna ræðst í Karphúsinu í dag Forysta aðila almenna vinnumarkaðarins situr nú á fundi hjá ríkissáttasemjara til að meta möguleika á áframhaldandi viðræðum eftir fund með forsætisráðherra í morgun. Ríkisstjórnin er reiðubúin að liðka fyrir samningum og forsætisráðherra hefur skilning á að horft sé til skammtímasamninga við núverandi aðstæður. 24.11.2022 14:18
Fjórtán spor í andlitið eftir byltu við Sundhöllina Þröstur Ólafsson, reglulegur gestur Sundhallar Reykjavíkur, varð fyrir því óláni að falla um listaverk sem stendur fyrir framan inngang laugarinnar. 24.11.2022 14:02
Fimmtán ára piltur í Grafarvogi stakk jafnaldra sinn Fimmtán ára piltur stakk jafnaldra sinn með hníf seint í gærkvöldi. Árásin átti sér stað í Rimahverfi í Grafarvogi. Gunnar Smári Sigurgeirsson, íbúi í hverfinu, birti færslu á Instagram í gærkvöldi þar sem hann lýsti aðstæðum og birti jafnframt ljósmynd af vettvangi. 24.11.2022 12:57
Lokuðu Ægisgötu vegna grjóts sem hlóðst upp á veginn Lögregla á Suðurnesjum ákvað að loka umferð á Ægisgötu í Reykjanesbæ af öryggisástæðum í gærkvöldi. Þetta var gert vegna mikils ágangs sjávar, hárri sjávarstöðu og áhlaðanda. 24.11.2022 12:48
Flutti inn kókaín frá Mallorca í skósólum Litháenskur karlmaður hefur verið dæmdur til sjö mánaðar fangelsisvistar fyrir innflutning á kókaíni. Efnin voru falin í skósólum skópars í ferðatösku, en maðurinn kom til landsins frá Mallorca á Spáni í september síðastliðnum. 24.11.2022 11:52
„Mér finnst bara einhver þurfa að bera ábyrgð“ Kona sem var ættleidd frá Sri Lanka með fölsuðum pappírum segir sárt að hafa ekki aðgang að gögnum um sig og telur að einhver þurfi að bera ábyrgð. Dómsmálaráðuneytið hefur óskað eftir upplýsingum frá yfirvöldum í Sri Lanka en ekki fengið svör. Ráðuneytið ætlar að hefja sérstaka skoðun á málinu. 24.11.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði, ofbeldisalda á Íslandi og mannréttindabrot í Íran verða fyrirferðamikil í hádegisfréttum Bylgjunnar. 24.11.2022 11:33
Allir sjái að mikið sé undir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur ljóst að allir sjái að mikið sé undir í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. Hann segir aðila vinnumarkaðarins ágætlega nestaða fyrir kjaraviðræður dagsins eftir óvæntan fund með forsætisráðherra í morgum. 24.11.2022 11:32
Bein útsending: Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum – Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar Ísland tók við forystu í Evrópuráðinu fyrr í mánuðinum og af því tilefni stendur Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fyrir opnum fundi í samstarfi við utanríkisráðuneytið um framtíðarhlutverk Evrópuráðsins. 24.11.2022 11:30
35 prósent Reykvíkinga nota rafhlaupahjól Rúm 35 prósent Reykvíkinga, 18 ára og eldri, nota rafhlaupahjól. Sambærilegt hlutfall fyrir tveimur árum var 19 prósent. Notkun á rafhlaupahjólum er mest meðal fólks á aldrinum 18-34 ára. Þá nota karlar rafhlaupahjól í meira mæli en konur. Ríflega einn af hverjum 10 notar rafhlaupahjól vikulega eða oftar og er notkunin mest á meðal íbúa í Miðborg/Vesturbæ og Hlíðum og Laugardal. 24.11.2022 11:24
Ítrekaði að stjórnvöld væru reiðubúin að greiða fyrir gerð kjarasamninga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hún hafi með fundi sínum með fulltrúm verkalýðshreyfingarinnar og atvinnulífsins viljað ítreka það sem áður hafði komið fram. Að stjórnvöld séu reiðubúin til að leggja sitt að mörkum til greiða fyrir gerð kjarasamninga, ef þess er einhver kostur að þeir náist. 24.11.2022 11:02