Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nokkur fjöldi í haldi lögreglu á flugvellinum grunaður um tengsl við glæpasamtök Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar meðlimir vélahjólaklúbba komu til landsins. Nokkur fjöldi sem talinn er tengjast slíkum klúbbum er í haldi lögreglu á flugstöðinni á meðan er til skoðunar hvort eigi að hleypa þeim inn í landið eða vísa þeim á brott. 11.11.2022 22:57
Bóndinn í borginni minnir á hvar stór hluti landbúnaðarvara er framleiddur Bóndi sem stundar landbúnað á lögbýli í einu af nýjustu hverfum Kópavogs segir fólk almennt ekki átta sig á því hversu stór hluti af landbúnaðarvörum Íslendinga sé framleiddur á Reykjavíkursvæðinu. 11.11.2022 22:44
Draga þurfi lærdóm af brottflutningi fatlaðs manns Forsætisráðherra segir að draga þurfi lærdóm af því hvernig brottflutningur hælisleitenda, sem sendir voru til Grikklands í síðustu viku, fór fram. Fatlaður maður sem var í þeim hópi hefur ekki fengið húsaskjól og hefur hópur Íslendinga tekið íbúð á leigu fyrir hann og fjölskyldu hans. 11.11.2022 21:00
Fylgt út eftir mótmæli í Laugardalshöll Áhorfandi sem sagður er hafa stundað mótmæli í Laugardalshöll á landsleik Íslands og Georgíu í kvöld var vísað af vettvangi af öryggisgæslu hallarinnar. 11.11.2022 20:45
„Hún velur svolítið hvaða lögum hún er að fylgja“ Þingmaður Pírata segir lögreglu forgangsraða tíma sínum rangt með því að eltast við fólk vegna neysluskammta. Húsleit sé íþyngjandi aðgerð sem lögregla beiti langt fram úr meðalhófi í slíkum málum. Aðgerðir lögreglu, sem gagnrýndar voru í vikunni, sýni brýna þörf á afglæpavæðingu. 11.11.2022 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra segir að draga þurfi lærdóm af því hvernig brottflutningur hælisleitenda, sem voru sendir til Grikklands í síðustu viku, fór fram. Vegna úrræðaleysis í Grikklandi hefur hópur Íslendinga tekið á leigu íbúð fyrir fatlaðan mann og fjölskyldu hans sem var vísað úr landi. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 11.11.2022 18:00
Hundruð hyggjast bjarga dýrunum á Nýjabæ Rúmlega hundrað manns hafa sagst hafa áhuga á því að fara að Nýjabæ í Borgarfirði á morgun til að bjarga þeim búfénaði sem er þar. MAST og lögreglan á Vesturlandi biðlar til fólks að mæta ekki. 11.11.2022 16:56
Óska eftir endurskoðun á Hvalárvirkjun og Eldvörpum á Reykjanesi Stjórn Landverndar hefur sent verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar ósk um að taka aftur til skoðunar tvö landsvæði í orkunýtingarflokki. Annars vegar Hvalárvirkjun á Vestfjörðum og hins vegar Eldvörp á Reykjanesi. 11.11.2022 16:18
Tveir ernir drepist úr fuglaflensu Tveir ungir ernir hafa drepist úr fuglaflensu hér á landi. Annar þeirra drapst síðasta haust en hinn á þessu ári. 11.11.2022 15:34
Gunnlaugur lagði Borgarbyggð í seinni glímunni fyrir Landsrétti Sveitarfélagið Borgarbyggð var í Landsrétti í dag dæmt til þess að greiða fyrrverandi sveitarstjóra sínum tæpar 3,7 milljónir króna. Sveitarfélagið hafði áður verið sýknað fyrir héraðsdómi. 11.11.2022 15:25
Kennarar leigja íbúð fyrir fjölskylduna og halda námi systranna gangandi Hópur kennara við Fjölbrautarskólann við Ármúla hefur tekið á leigu Airbnb íbúð í Aþenu fyrir Hussein fjölskylduna sem var vísað til Grikklands í síðustu viku. Kennararnir vona að systur í fjölskyldunni sem stunduðu nám við skólann mæti aftur á vorönn og leita því leiða til þess að aðstoða þær við að klára önnina í fjarnámi. 11.11.2022 14:41
Dómurinn yfir Elínborgu Hörpu stendur Tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdómur yfir Elínborgu Hörpu- og Önundarbur aðgerðarsinna og baráttukvár fyrir réttindum flóttafólks skal standa. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Elínborg var ákært fyrir brot gegn valdstjórninni og fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. 11.11.2022 14:22
Sunnlendingar einoka keppni um sveitarfélag ársins Fjögur sveitarfélög voru útnefnd sveitarfélag ársins 2022. Öll fjögur eru staðsett á Suðurlandi en þetta er í fyrsta sinn sem sveitarfélag ársins er valið. 11.11.2022 12:11
Borgarfulltrúar spyrja: Hefur lögregla heimild til að fara á svig við lög? Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar í umhverfis- og skipulagsráði segja óheppilegt að lögregla lýsi því yfir hvað eftir annað að ekki verði sektað fyrir notkun nagladekkja áður en nagladekkjatímbilið hefst. 11.11.2022 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þjóðhagsspá, nagladekk og kaupæði Íslendinga á netinu verður til umfjöllunar í hádegisfréttum Bylgjunnar þennan föstudaginn. 11.11.2022 11:36
Vatnsþétting olli brotlendingu á Keflavíkurflugvelli Vatn sem hafði safnast saman í eldsneytiskerfi flugvélar C-GWRJ olli því að hún brotlenti stuttu eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli. Vatn fannst í eldsneytissíu vélarinnar þegar hún var skoðuð eftir brotlendingu. 11.11.2022 11:29
Tekur stéttaskiptingunni svolítið persónulega Stéttaskipting er að aukast í tónlistarnámi að sögn Önnu Hugadóttur tónlistarkennara, þar sem eina leið margra fram hjá miklum biðlistum í tónlistarskólum er að kaupa einkatíma úti í bæ. Það er í mörgum tilfellum rándýrt og ekki á allra færi. 11.11.2022 08:51
Gul viðvörun enn í gildi á Vestfjörðum Veðurstofan segir að það verði áfram hvöss norðaustanátt norðvestantil á landinu og fer ekki að lægja fyrr en seinnipartinn, en annars staðar er mun hægari vindur í dag. 11.11.2022 07:23
Fékk sársaukafyllsta sjúkdóm í heimi eftir efnabruna Lífið tók U-beygju hjá ungri konu fyrr á þessu ári þegar hún greindist með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem kallaður hefur verið sársaukafyllsti sjúkdómur í heimi. Þrátt fyrir gríðarlega mikil veikindi og miklar breytingar í lífinu lætur hún ekki deigan síga. Framtíðarplönin eru fleiri en áður eða líf með sjúkdómi og líf án hans. Allt geti gerst. 11.11.2022 07:00
Óþolandi að stór hrunmál eyðileggist vegna klúðurs Vararíkissaksóknari segir það óþolandi að stór hrunmál sem sakfellt var í skuli nú eyðileggjast vegna klúðurs í kringum ólíka túlkun Hæstaréttar og endurupptökudóms á lögum. Embættið hafi þó ekki um að annað að velja en að fylgja fordæmi Hæstaréttar sem hefur nú vísað frá tveimur slíkum málum. 11.11.2022 07:00
Flestir bíða lengur en þrjá mánuði eftir völdum skurðaðgerðum Enn bíða of margir eftir völdum skurðaðgerðum í flestum aðgerðarflokkkum, umfram viðmið embættisins um ásættanlegan biðtíma. Þá hefur þeim fjölgað hlutfallslega sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði. 11.11.2022 06:37
Notar mest kollótta hrúta á fengitímanum Mikil spenna er í fjárhúsum landsins þessa dagana en ástæðan fyrir því er einföld, fengitíminn er að hefjast. 10.11.2022 23:04
Bíllinn valt þrjár veltur á Reykjanesbraut Bíllinn sem valt á Reykjanesbraut við Sprengisand á níunda tímanum í kvöld valt minnst þrjár veltur. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en ekki er talið að þeir hafi slasast alvarlega. 10.11.2022 23:00
Þeysa um Þorlákshöfn á þríhjóli með gamla fólkið Eldri borgarar í Þorlákshöfn sjást þessa dagana þeysa um götur bæjarins á þríhjóli. Þannig rúnta þeir um bæinn, hitta annað fólk og hafa gaman af. 10.11.2022 22:11
Vill bjóða Jóni í skoðunarferð til Grikklands Haraldur Þorleifsson hefur boðist til þess að borga flugmiða og gistingu fyrir dómsmálaráðherra ef hann fylgir honum til Grikklands að skoða aðstöðu flóttafólks þar í landi. 10.11.2022 21:41
Bíll valt við Sprengisand Tilkynnt var um bílveltu við Sprengisand í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld. Þegar sjúkraliðar komu á vettvang voru allir komnir út úr bílnum og voru á fótum. 10.11.2022 21:03
„Þurfum að fylgja vísindunum í notkun hugvíkkandi efna“ Formaður læknaráðs Landspítalans er ánægður yfir auknum áhuga á geðheilbrigðismálum sem lýsi sér m.a. í nýrri þingsályktunartillögu um sílósíbín sem finnst í ofskynjunarsveppum. Það sé hins vegar mikilvægt að bíða eftir frekari rannsóknum um efnið. Íslendingar hafi þegar fengið tilboð um að taka þátt í síðasta fasa stórrar rannsóknar á gagnsemi efnisins. 10.11.2022 21:01
Áminning læknis skal standa Heilbrigðisráðuneytið hefur úrskurðað að ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna tveggja mála sem tengjast vanrækslu í starfi skuli standa. 10.11.2022 20:03
Héraðsdómur hafi ekki tekið mið af mati geðlæknis Tveir karlmenn sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögmaður annars þeirra segir úrskurðinn óskiljanlegan, þar sem geðlæknir hafi metið þá hvorki hættulega sjálfum sér né öðrum. 10.11.2022 19:33
Býður fundarlaun þeim sem getur bent á brennuvarg við Elliðavatn Guðmundur Unnsteinsson, sem varð fyrir því um síðustu áramót að kveikt var í bústaðnum hans á Þingnesi við Elliðavatn, býður hverjum þeim fundarlaun sem veitt getur upplýsingar um brennuvarginn. Tveir bústaðir við vatnið brunnu til grunna í kringum síðustu áramót og virðist sem um vel skipulagðan ásetning hafi verið að ræða en ekki óviljaverk óreglufólks. 10.11.2022 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tveir karlmenn sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögmaður annars þeirra segir úrskurðinn óskiljanlegan þar sem geðlæknir hafi metið þá hvorki hættulega sjálfum sér né öðrum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 10.11.2022 18:01
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Karlmaður á þrítugsaldri sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi mannsins, í samtali við fréttastofu. 10.11.2022 17:02
Hussein ber vitni frá Grikklandi Hussein Hussein, hælisleitandi frá Írak, verður ekki fluttur til Íslands til þess að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli hans gegn íslenska ríkinu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi dóminn ekki hafa heimild til að gefa út sérstaka vitnakvaðningu í málinu. 10.11.2022 15:57
Garðabær og Samtökin´78 í samstarf Garðabær og Samtökin ´78 hafa gert með sér samstarfssamning um þjónustu samtakanna við Garðabæ. Markmiðið með samningnum er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. 10.11.2022 15:46
Málskostnaður og vextir sem falla á ríkið metið á um 70 milljónir króna Gestur Jónasson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis, hefur ritað grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann segist vona að aldrei muni það gerast aftur að einstaklingur þurfi að standa í svo langvinnum málarekstri. Orð hans má túlka sem harða gagnrýni á ákæru- og dómsvaldið. 10.11.2022 14:58
Umræðan verði að fara fram á grundvelli staðreynda – ekki tilfinningu Helga Vala Helgadóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í allsherjar-og menntamálanefnd Alþingis, er undrandi að loknum nefndarfundi með ráðherra og Útlendingastofnun um hælisleitendur. Hún segir fjölmörgum spurningum ekki svarað þrátt fyrir að gestir nefndarinnar hafi fengið þær fyrir fram. Skortur á upplýsingum og heildarsýn sé ekki góð því umræðan verði að fara fram á grundvelli staðreynda - ekki tilfinningu. 10.11.2022 14:37
Borgar sig síður að fara í skóla vegna krónutöluhækkana Krónutöluhækkanir síðustu ára hafa leitt til þess að það borgar sig síður hér á landi en annars staðar að fara í skóla, segir hagfræðingur BHM. Um fjórðungur Íslendinga er einungis með grunnskólapróf og hlutfallið er það hæsta á Norðurlöndum. 10.11.2022 14:30
25 íbúðir á besta stað á Flúðum Skrifað var undir verksamning milli Hrunamannahrepps og fyrirtækisins Gröfutækni ehf. í dag. Þar með er hafin uppbygging á fyrsta áfanga íbúðahverfisins Byggða á Bríkum á Flúðum. Alls verða byggðar 25 íbúðir. 10.11.2022 14:14
Fyrsta staðfesta smit BPIV3 Veiran BPIV3 (Bovine Parainfluenza Virus 3) greindist nýlega í nautgripum í fyrsta skiptið hér á landi. Um er að ræða veiru sem veldur vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum. Ekki er ástæða til að grípa til sérstakra aðgerða. Veiran veldur ekki sýkingum í fólki. 10.11.2022 13:09
Sýkna í öðru hrunmáli endurreist en nú með stuðningi saksóknara Ríkissaksóknari tók undir kröfur þriggja sakborninga í Milestone-málinu svonefnda um að vísa máli þeirra frá Hæstarétti þegar það var tekið upp aftur þar. Frávísunin þýðir að sýknudómur héraðsdóms yfir fólkinu var endurreistur. 10.11.2022 12:24
Bjarni segir stjórnvöld ekki eiga að tryggja öllum sömu niðurstöðu í lífinu Matvælaráðherra segir að málaferli gegn Samherja vegna meintrar spillingar hafi skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs og fjármálaráðherra telur að stjórnvöld eigi að tryggja að allir hafi sömu tækifæri en eigi ekki einu sinni að reyna að tryggja öllum sömu útkomu í lífinu. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. 10.11.2022 12:18
Bein útsending: Kolefnihlutleysi 2030, en hvernig? Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar er haldinn í sjöunda sinn í dag klukkan 13:00 til 16:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Fundurinn ber yfirskriftina „Kolefnishlutleysi 2030. Hvernig?“ 10.11.2022 12:16
Hádegisfréttir Bylgjunnar Málefni flóttamanna, stríðið í Úkraínu og kröfur BHM fyrir komandi kjaraviðræður eru á meðal þess sem fjallað verður um í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 10.11.2022 11:38
Óviðunandi ástand fyrir Norðlendinga Bæjarstjórn Fjallabyggðar segir ástand vegarins milli Siglufjarðar og Fljóta í Skagafirði vera óviðunandi fyrir íbúa svæðisins. Byggja þurfi Fljótagöng sem fyrst. Þá þurfi innviðaráðherra að setja fjármuni í rannsóknir á æskilegri legu nýrra ganga milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. 10.11.2022 10:33
Flestar brottfarir í október voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 159 þúsund í nýliðnum október samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða fjölmennasta októbermánuðinn frá því mælingar hófust. Brottfarir í ár voru 80% af því sem þær voru í októbermánuði 2018 eða þegar mest var. 10.11.2022 09:52