Innlent

Sýkna í öðru hrun­máli endur­reist en nú með stuðningi sak­sóknara

Kjartan Kjartansson skrifar
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, tók undir kröfu sakborninga í Milestone-málinu um að Hæstiréttur vísaði máli þeirra frá.
Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, tók undir kröfu sakborninga í Milestone-málinu um að Hæstiréttur vísaði máli þeirra frá. Vísir/Vilhelm

Ríkissaksóknari tók undir kröfur þriggja sakborninga í Milestone-málinu svonefnda um að vísa máli þeirra frá Hæstarétti þegar það var tekið upp aftur þar. Frávísunin þýðir að sýknudómur héraðsdóms yfir fólkinu var endurreistur.

Ólík túlkun Hæstaréttar og endurupptökudóms á lögum um meðferð sakamála leiddi til þess að um áratugsgömul sýkna yfir Styrmi Þór Bragasyni, fyrrverandi forstjóra MP-banka, var endurreist í síðasta mánuði. Hæstiréttur hafði dæmt hann í tveggja ára fangelsi. Hæstiréttur taldi að endurupptökudómur hefði átt að vísa málinu til Landsréttar þar sem hann gæti ekki sjálfur bætt úr ágalla á upphaflegri meðferð málsins eftir að dómstigunum var fjölgað.

Þrátt fyrir að Hæstiréttur hefði vísað því máli frá vegna tæknilegra atriða vísaði endurupptökudómur öðru hrunmáli til hans innan við mánuði síðar. Í þeim úrskurði kom fram að endurupptökudómur túlkar lögin þannig að hann geti ekki vísað málum sem voru upphaflega dæmd við Hæstarétt til Landsréttar. Lögspekingar hafa lýst efasemdum um þá túlkun endurupptökudóms.

Í gær kvað Hæstiréttur upp niðurstöðu í öðru hrunmáli, Milestone-málinu svonefnda, og komst að sömu niðurstöðu. Rétturinn hefði ekki um annað að velja en að vísa málinu frá.

Ólíkt máli fyrrverandi forstjóra MP-banka þar sem ríkissaksóknari krafðist sakfellingar yfir ákærða tók embættið nú undir kröfu sakborninganna um að vísa málinu frá Hæstarétti. Saksóknari vísaði til niðurstöðunnar í máli Styrmis Þórs og sagði ekki hjá því komist að krefjast frávísunar málsins.

Karl Wernersson

Sýknuð í héraði en sakfelld í Hæstarétti

Karl Wernersson, stjórnarformaður Askar Capital, var ákærður ásamt tveimur öðrum fyrir umboðssvik vegna greiðslna félagsins Milestone til Ingunnar, systur hans árið 2006 og 2007. Þá voru endurskoðendurnir Margrét Guðjónsdóttir og Sigurþór Guðmundsson ákærð fyrir brot á lögum um ársreikninga og endurskoðendur. Héraðsdómur sýknaði alla sakborningana í desember 2014.

Hæstiréttur sneri sýknudómunum hins svegar við í apríl 2016. Karl var dæmdur í þriggja og hálfs árs og þau Margrét og Sgiurþór voru dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipt löggildingu til endurskoðunarstarfa í sex mánuði.

Síðar komst Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið á réttindum samborninga í öðrum hrunmálum til sanngjarnrar málsmeðferðar þar sem ekki hafði farið fram milliliðalaus sönnunarfærsla fyrir Hæstarétti.

Þau Karl, Margrét og Sigurþór leituðu einnig til MDE en mál þeirra var fellt niður eftir að þau náðu sáttum við íslenska ríkið þar sem viðurkennt var að þau hefðu verið sama órétti beitt.

Sömu forsendur og í máli Styrmis Þórs

Endurupptökudómur úrskurðaði að mál þremenninganna skyldi tekið upp aftur í desember. Kröfðust þau þess að málinu gegn þeim væri vísað frá. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær og vísaði málinu frá. Sýknudómar yfir þeim í héraði voru þar með endurreistir.

Forsendurnar voru þær sömu og þegar Hæstiréttur vísaði máli Styrmis Þórs frá í síðasta mánuði. Hæstiréttur sagði að eftir að lögum var breytt og Landsréttur kom til sögunnar hafi hann ekki lengur lagaheimild til þess að taka skýrslur af ákærður og vitnum. Því gæti hann ekki bætt úr þeim ágalla á málinu sem leiddi til endurupptökunnar. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki snúið við úrskurðum endurupptökudóms eða vísað málum sjálfur til Landsréttar yrði ekki hjá því komist að vísa málinu frá.

Ríkissjóður þarf að greiða allan sakarkostnað vegna málsins frá upphafi til enda, rúmlega fjörutíu milljónir króna.

Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari sem fór með málið, sagði við Vísi í síðasta mánuði að óhjákvæmilegt væri að krefjast frávísunar mála sem væru tekin upp aftur vegna þess að milliliðalaus sönnunarfærsla hefði ekki farið fram.


Tengdar fréttir

Telja túlkun endurupptökudóms vafa undirorpna

Tveir dósentar í lögfræði telja að sú túlkun endurupptökudóms að hann geti ekki vísað málum sem voru dæmd í Hæstarétti til Landsréttar sé vafa undirorpin. Dómskerfið sé komið í pattstöðu hvað varðar endurupptöku sakamála vegna ólíkrar túlkunar dómstólanna tveggja á lögum.

Boðar frum­varp til að skera endur­upp­töku­dóm úr snörunni

Dómsmálaráðherra segir að unnið sé að frumvarpi til þess að skýra lög um endurupptökudóm og leysa ágreining milli hans og Hæstaréttar. Ólík túlkun dómstiganna á lögunum leiddi nýlega til viðsnúnings í hrunmáli og fleiri gætu fylgt í kjölfarið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×