Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr sendiherra Bandaríkjanna afhenti forseta trúnaðarbréf Carrin Patman, nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, afhenti Guðna Th. Jóhannessyni forseta trúnaðarbréf í gær. Sendiherralaust hefur verið frá því að umdeildur forveri Patman lét af embættinu í janúar í fyrra. 7.10.2022 10:37
Gulur verður að appelsínugulum um helgina Gulum viðvörunum sem gefnar voru út í gær á Norðurlandi vestra og eystra og Austurlandi hefur verið breytt í appelsínugular. Vindhraði gæti náð allt að 25 metrum á sekúndu á Norðurlandi eystra. Viðvaranirnar taka gildi á sunnudagsmorgun og vara yfir nóttina. 7.10.2022 09:22
Krefjast þess að sveitarfélagið hætti rekstri ljósabekkja Bæjarfulltrúar Bæjarlistans í Suðurnesjabæ hafa krafist þess að sveitarfélagið hætti rekstri ljósabekkja í íþróttamiðstöðinni í Garði. Gjaldskrárliðurinn „Ljósabekkir“ skuli þannig verða tekinn út úr gjaldskrá sveitarfélagsins. 7.10.2022 08:31
Borgaryfirvöld mega ekki útmá nöfn þeirra sem taka ákvarðanir Úrskurðarnefnd um upplýsingamál segir Reykjavíkurborg ekki heimilt að hylja nöfn þeirra sem taka ákvarðanir hjá borginni og hefur skikkað borgaryfirvöld til að afhenda Fréttablaðinu gögn án útstrikana. 7.10.2022 07:06
Saka hvor aðra um njósnir og innbrot Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sakar Agnieszku Ewu Ziólkowsku, fyrrverandi formann Eflingar um að stunda njósnir með aðgangi hennar að tölvupóstfangi Sólveigar hjá Eflingu. Agnieszka segir að hún hafi gefið Sólveigu frest, samkvæmt starfslokasamningi, til að fjarlægja persónuleg gögn úr tölvupósthólfi. Hún segir að sér hafi borið að nálgast gögn Sólveigar og Viðars til að halda starfsemi Eflingar áfram. 7.10.2022 07:00
Vill fá afsökunarbeiðni frá Ingu, Guðmundi og konunum þremur Frambjóðandi Flokks fólksins á Akureyri vill fá afsökunarbeiðni frá forystu flokksins og konunum þremur sem hafa sakað hann og tvo aðra menn um óásættanlega framkomu. Hann segist ekki efast um niðurstöður óháðrar rannsóknar. 7.10.2022 06:58
Tilkynntu tölvuleikjaspilara til lögreglu Í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um öskur og læti frá íbúð í Kópavogi. Lögregla mætti á vettvang en í ljós kom að öskrin komu frá manni sem var að spila tölvuleiki. Hann lofaði lögreglu að róa sig niður. 7.10.2022 06:24
Þáði ofgreidd laun upp á 10 milljónir frá Úrvinnslusjóði Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs er sagður hafa þegið laun upp á rúmlega 10 milljónir króna undanfarin sjö ár, fyrir starf sem framkvæmdastjóri sjóðsins, starf sem sem lagt var niður árið 2015. 6.10.2022 23:36
33 prósenta hækkun en aðrir í verri stöðu Augljóst er að einhverjir munu ekki ráða við þá auknu greiðslubyrði sem fylgir sífellt hækkandi vöxtum að sögn varaformanns Hagsmunasamtaka heimilanna. Þess eru dæmi að mánaðarleg greiðsla fólks sé að hækka um meira en hundrað þúsund krónur. 6.10.2022 23:31
„Það er kominn tími til að hlustað sé á þolendur" Um þúsund manns söfnuðust saman við Menntaskólann í Hamrahlíð í dag til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og krefjast þess að tekið sé af slíkum málum sem upp koma innan skóla af festu. Mótmælendur söfnuðust saman víðar um landið. 6.10.2022 21:01
Fyrrverandi þingmenn á Bandaríkjaþingi segja rödd Íslands mikilvæga Fyrrverandi þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings segja rödd Íslands skipta miklu máli á alþjóðavettvangi. Bandaríkjamenn geti margt lært af Íslendingum. Heimir Már hitti nokkra fyrrverandi fulltrúadeildarþingmenn í dag. 6.10.2022 20:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um þúsund manns söfnuðust saman við Menntaskólann í Hamrahlíð í dag til að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og krefjast þess að tekið sé á slíkum málum innan skóla af festu. Mótmælendur söfnuðust saman víðar um land. Við sýnum frá þessari gríðarfjölmennu byltingu í fréttatímanum, ræðum við nemendur og hittum framkvæmdastjóra Sambands íslenskra framhaldsskólanema um viðbrögð stjórnvalda í beinni útsendingu. 6.10.2022 18:01
Tafir á Miklubraut vegna blikkandi umferðarljósa Ólag á umferðarljósum á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar hefur valdið töfum á umferð þar nú síðdegis. Gul ljós blikkuðu og engri annarri umferðarstýringu til að dreifa. 6.10.2022 17:49
Vill gefa Reykjavík risaeðlu Nýr og tiltölulega óvenjulegur eldri borgari mun mögulega bætast við íbúahóp Reykjavíkur á næstunni. Þar er um að ræða um 65 milljóna ára gamla risaeðlu, nánar tiltekið þríhyrnu, sem fimm ára stúlka fann. 6.10.2022 16:51
Húsráðandi á vettvangi manndrápsins látinn laus Kona, ein þeirra þriggja sem handtekin voru grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt sunnudags, er laus úr haldi. Konan var húsráðandi á heimilinu þar sem karlmaður fannst látinn af völdum stungusára. Réttarkrufning hefur farið fram á hinum látna. Nokkurra vikna bið gæti verið eftir niðurstöðum. 6.10.2022 16:47
Fallist á kröfu um einangrun yfir hinum manninum líka Héraðsdómur Reykjavíkur féllst nú síðdegis á kröfu héraðssaksóknara um tveggja vikna áframhaldandi einangrun í tilfelli karlmanns á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um skipulagningu hryðjuverkaárásar. Héraðssaksóknari segir rannsókn miða ágætlega. 6.10.2022 15:55
Rússum ekki boðið í nýtt bandalag sem á að stilla saman strengi Evrópuríkja Leiðtogar ríkja Evrópska stjórnmálabandalagsins, sem á ensku nefnist European Political Community, funda í fyrsta skipti í sögu hins nýja bandalags í dag. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í fundinum fyrir hönd Íslands. 6.10.2022 15:13
Telja Ragnar Þór ekki geta valdið hlutverki forseta verkafólks Formenn ellefu verkalýðsfélaga undir hatti Alþýðusambands Íslands segja Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, ekki færan um að gegna hlutverki forseta ASÍ. Þau segja hann sækjast í völd og ætla að sitja með tvo hatta í komandi kjaraviðræðum. Þar sé skýr hagsmunaárekstur á ferðinni. 6.10.2022 14:39
Vill losna við „íslenskar sérreglur“ í útlendingalögum Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar-og menntamálanefndar, segir nauðsynlegt að fjarlægja „íslenskar sérreglur“ í útlendingalögum til að lögin verði áþekkari lögum Norðurlandanna. 6.10.2022 14:35
Gríðarlegur fjöldi mótmælti um allt land og ráðherra baðst afsökunar Framhaldsskólanemendur víðs vegar um landið yfirgáfu skólastofur sínar klukkan ellefu í dag. Fleiri hundruð ef ekki þúsund söfnuðust saman á skólalóð Menntaskólans við Hamrahlíð og mótmæltu viðbragðsleysi skólastjórnenda í kynferðisbrotamálum innan veggja framhaldsskólanna. Menntamálaráðherra biðst afsökunar á að ekki hafi verið hlustað á nemendur. 6.10.2022 14:01
Flutti kókaín í fjórtán pakkningum innvortis til landsins Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann um fimmtugt í fimm mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa reynt að smygla rúmlega 260 grömmum af kókaíni með flugi til landsins í ágúst síðastliðinn. 6.10.2022 12:43
Fyrsti rafknúni útkallsbíll lögreglunnar Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum og Blue Car Rental ehf. hafa skrifað undir langtímaleigusamning á fyrsta rafknúna lögreglubílnum sem notaður er í útköll. 6.10.2022 12:39
Dapurlega lítill stuðningur við breiða ríkisstjórn Einungis fjórðungur landsmanna er ánægður með störf ríkisstjórnarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Prófessor í stjórnmálafræði segir stöðuna nokkuð dapurlega og telur erfiðan þingvetur fram undan. Brestir í stjórnarsamstarfinu hafi komið fram eftir faraldurinn. 6.10.2022 12:30
Árekstur bíls og mótorhjóls við Hafnartorg Hvít Tesla og mótorhjól lentu í árekstri við gatnamót Geirsgötu og Lækjartorgs upp úr klukkan tólf í dag. Bæði sjúkrabíll og lögreglubílar eru á svæðinu. 6.10.2022 12:20
Gular viðvaranir á norðanverðu landinu Gular viðvaranir fara í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi á sunnudaginn þann 9. október. Búast má við snjókomu á norðanverðu landinu. 6.10.2022 12:07
Fallist á kröfu um áframhaldandi einangrun Karlmaður á þrítugsaldri sem lögreglu grunar um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi var á tólfta tímanum úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald og einangrun til tveggja vikna. 6.10.2022 12:04
„Mér hlýtur að finnast það alveg skelfilegt“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir það skelfilegt að seðlabankastjóri skuli beina þeim skilaboðum til aðila vinnumarkaðarins að leggja sitt af mörkum til að hemja verðbólguna. Eina tækifæri launafólks í vaxtaumhverfinu nú til að rétta sín kjör sé þegar kjarasamningar eru lausir. 6.10.2022 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Starfsgreinasambandsins segir það skelfilegt að seðlabankastjóri skuli beina þeim skilaboðum til aðila vinnumarkaðarins að leggja sitt af mörkum til að hemja verðbólguna. Eina tækifæri launafólks í vaxtaumhverfinu nú til að rétta sín kjör sé þegar kjarasamningar eru lausir. Við fjöllum um stýrivaxtahækkunina sem tilkynnt var í gær í hádegisfréttum Bygjunnar klukkan 12. 6.10.2022 11:49
Nokkur hundruð nemenda mótmæla við MH Nemendur við Menntaskólann við Hamrahlíð og öðrum framhaldsskólum krefjast þess að tekið verði af sömu alvöru, ef ekki meiri, á kynferðisbrotum og öðrum ofbeldisbrotum í skólum hér á landi. Allir nemendur eigi rétt á því að vera í öruggu umhverfi. 6.10.2022 11:01
Óska eftir vitnum að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á í gærmorgun. Ökumönnum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa er slysið varð. 6.10.2022 10:31
Hafa áhyggjur af skerðingu lyfjaafgreiðslu í Laugarási Sveitarstjórnir Bláskógabyggðar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa báðar lýst yfir áhyggjum af áformum um að loka lyfjaafgreiðslu Lyfju í Laugarási og að afgreiðslan færist inn á heilsugæsluna og starfsfólks þar. 6.10.2022 10:23
Snjókoma á Siglufirði Er íbúar Siglufjarðar vöknuðu í morgun voru götur bæjarins orðnar hvítar og fjöll bæjarins orðin full af snjó. Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir að snjórinn sé kominn heldur snemma í ár. 6.10.2022 09:48
Stal fartölvum og veski á skrifstofum sýslumanns á Akureyri Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í sextíu daga fangelsi fyrir að hafa stolið fartölvum og peningaveski á skrifstofum sýslumannembættis á Akureyri. 6.10.2022 09:35
Stakk reiðufé sem greitt var með beint í eigin vasa Karlmaður á fertugsaldri var á þriðjudaginn dæmdur 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað úr verslun sem hann starfaði í. Maðurinn stakk reiðufé sem viðskiptavinir greiddu með beint í sinn eigin vasa. 6.10.2022 08:10
„Þetta gæti orðið eitthvað högg“ Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis og efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins, segir hætt við að seðlabankastjóri geri sig líklegan til að hækka áfram vexti ef stjórnvöld og vinnumarkaður leggi ekki sitt af mörkum til að knýja niður verðbólguna. Þar á hann við að lítið svigrúm sé til launahækkana eins og venjulega. 6.10.2022 07:33
Nýjar kynslóðir Range Rover Sport og Range Rover Jaguar Land Rover við Hestháls frumsýnir á laugardag, 8. október, nýjar kynslóðir tveggja bíla frá Land Rover í Bretlandi. Um er að ræða Range Rover Sport (L461) og Ranger Rover (L460), en framleiðandinn frumsýndi þann fyrr nefnda á heimsvísu með eftirminnilegu myndbandi við Kárahnjúka fyrr á árinu, sem streymt var á netinu. 6.10.2022 07:00
Sendiráðið við Laufásveg hýsi flóttafólk Stærsta vandamálið þegar kemur að móttöku flóttafólks hér á landi er húsnæðisskortur og segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, að verið sé að kaupa tíma með því að setja upp fyrstu fjöldahjálparstöðina en hún var opnuð í Borgartúni í Reykjavík fyrr í vikunni. 6.10.2022 06:54
Vildi fá greitt fyrir óumbeðna heimsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna manns sem var að sparka í rúður og hurðir í miðborg Reykjavíkur. Í dagbók lögreglu, þar sem fjallað er um verkefni lögreglu í gærkvöldi og í nótt, segir að hann hafi verið handtekinn fyrir eignarspjöll og vistaður í fangageymslu lögreglu. 6.10.2022 06:14
Íslendingar aldrei óhamingjusamari: „Verðum að finna gæðastundir án snjallsíma“ Íslendingar mælast sífellt óhamingjusamari og síðustu tvö ár hafa komið illa út í mælingum Landlæknis. Eftir hrun jókst hamingja þar sem foreldrar eyddu meiri tíma á heimilinu með börnum. Í heimsfaraldri kórónaveiru gerðist það sama en þá virðast heimavinna og snjallsímar hafa komið í veg fyrir gæðastundir á heimilum fólks. 5.10.2022 22:54
Ákærður vegna skotárásarinnar við Miðvang Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna skotárásar við Miðvang í Hafnarfirði í lok júní. Tveir brotaþolar í málinu krefjast átta milljóna króna í miskabætur. 5.10.2022 21:25
Vill reisa leikvöll til minningar um Alexöndru Eldey „Ég er bara móðir í sorg að reyna að gera eitthvað fallegt,“ skrifar Birgitta Sigursteinsdóttir um tillögu sína um að reisa leikvöll til minningar um dóttur hennar Alexöndru Eldey Finnbogadóttur (15.10.20-18.6.22) sem lést úr bráðri heilahimnubólgu í sumar. 5.10.2022 21:05
Þrá að komast í skóla á Íslandi Tugir barna á flótta fylla leikherbergi Hjálpræðishersins flesta daga. Þar njóta þau þess að hitta jafnaldrana meðan þau bíða eftir því að komast í skóla en sumum finnst biðin frekar löng. 5.10.2022 21:00
Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að tryggja mannsæmandi kjör Hagfræðingur BSRB segir það hlutverk Seðlabankans og ríkisstjórnar að bera ábyrgð á efnahagsstjórn landsins en verkalýðshreyfingarinnar að tryggja mannsæmandi kjör fyrir launafólk. Seðlabankastjóri skoraði á aðila vinnumarkaðarins að taka þátt í að halda verðbólgu í skefjum í dag. 5.10.2022 20:07
Fleiri en tvö hundruð í lyfjameðferð við ópíóðafíkn á Vogi Fleiri en tvö hundruð eru í gagnreyndri lyfjameðferð vegna ópíóðafíknar á Vogi þó að það sé bara með samning fyrir níutíu sjúklinga. Aldrei hafa fleiri látist hér á landi vegna ofneyslu ópíóða en í fyrra. 5.10.2022 20:00
„Maður heyrir nánast peningastefnunefndina andvarpa af létti“ Greiðslubyrði margra fasteignalána hefur næstum tvöfaldast síðan Seðlabankinn hóf að hækka stýrivexti í maí í fyrra. Bankinn hækkaði stýrivexti í níunda skipti á tímabilinu í morgun. Seðlabankastjóri vonar að þetta sé síðasta hækkunin, nú þurfi aðrir að taka við boltanum 5.10.2022 19:00