Fleiri fréttir Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sögulegar verðhækkanir hafa orðið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu síðasta árið. Íslandsbanki býst við að verð haldi áfram að hækka næstu mánuði og gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun á morgun. 21.6.2022 18:00 Banaslys á Djúpavogi Erlendur ferðamaður á sjötugsaldri lést á Djúpavogi í dag. 21.6.2022 17:21
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sögulegar verðhækkanir hafa orðið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu síðasta árið. Íslandsbanki býst við að verð haldi áfram að hækka næstu mánuði og gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun á morgun. 21.6.2022 18:00
Stal tæplega 20 þúsund lítrum af bensíni Karlmaður var í gær dæmdur í 90 daga skiloðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa fyrir stolið tæplega 20 þúsund lítrum lítrum af eldsneyti, að andvirði 3,6 milljónum króna. 21.6.2022 17:05
Fær ekki líftryggingu eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna þunglyndis Stefán Árnason hefur fengið synjun á umsókn um líftryggingu frá tveimur vátryggingafélögum. Þau hafa synjað umsóknum hans af þeim ástæðum einum að hann sé þunglyndur og hafi leitað sér hjálpar vegna þess. 21.6.2022 16:46
Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“ Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi. 21.6.2022 16:14
Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala. 21.6.2022 14:46
Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014. 21.6.2022 14:27
Mikil aðsókn í opna húsið Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við. 21.6.2022 14:04
Ekki auðvelt að feta í fótspor Þórólfs Það verður ekki auðvelt að fylla í það skarð sem Þórólfur Guðnason skilur eftir. Þetta segir Guðrún Aspelund nýráðinn sóttvarnalæknir. Starfið sé krefjandi en hún kveðst treysta sér í verkefnið. Það sem sé mest aðkallandi nú sé að hvetja aldraða og fólk í áhættuhópum til að fara í bólusetningu gegn COVID-19. 21.6.2022 13:10
Lítur ætluð brot Eimskips alvarlegum augum Rannsókn héraðssaksóknara á meintum brotum Eimskips á lögum um meðhöndlun úrgangs er umfangsmikil og kallað hefur verið eftir gögnum erlendis frá. Forstjóri Umhverfisstofnunar lítur málið alvarlegum augum og framkvæmdastjóri hjá Eimskip er með réttarstöðu sakbornings. 21.6.2022 11:52
Góður gangur í rannsókn manndrápsins í Barðavogi Rannsókn manndrápsins í Barðavogi miðar vel að sögn fulltrúa hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.6.2022 11:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um meint brot Eimskips um meðhöndlun úrgangs en rannsóknin, sem varðar förgun á tveimur skipum félagsins er sögð umfangsmikil. 21.6.2022 11:34
Engum verið fylgt úr landi enn sem komið er Í lok síðasta mánaðar stóð til að vísa alls 197 hælisleitendum úr landi, þar af 44 til Grikklands. Stoðdeild Ríkislögreglustjóra ákvað að byrja á hópnum sem senda átti til Grikklands en enn sem komið er hefur engum verið fylgt þangað. 21.6.2022 11:05
400 millilítrar: Breytingar á stærð bjórglasa ekki samsæri Efnahagsmálin voru til umræðu í Íslandi í dag, þar sem Jón Mýrdal veitingamaður sat fyrir svörum. Allt hefur hækkað – þar á meðal bjór, en bjórinn fæst nánast hvergi ódýrari en á um 1.300 krónur þessa dagana. 21.6.2022 09:26
Guðrún Aspelund tekur við af Þórólfi sem sóttvarnalæknir Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir frá og með 1. september. Guðrún starfar nú sem yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis. Hún var eini umsækjandinn um starfið. 21.6.2022 09:23
Unnið að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs Unnið verður að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs eftir að jörðin Heiði skipti um eigendur. 21.6.2022 09:08
Búið er að opna veginn milli Ísafjarðar og Hnífsdals eftir aurskriðu Vegurinn á milli Hnífsdals og Ísafjarðar hefur verið opnaður á ný eftir að hafa verið lokað í morgun eftir að aurskriða féll niður Eyrarhlið og niður á veginn. 21.6.2022 07:37
Stjórnvöld nýttu ekki forkaupsréttinn á Fjaðrárgljúfri Íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki forkaupsrétt sem þau höfðu á Fjaðrárgljúfri en frestur til að nýta slíkan rétt er nú runninn út. 21.6.2022 06:52
Lögregla kölluð út vegna elds í tveimur bifreiðum við Esjustofu Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt en hún var meðal annars kölluð á vettvang vegna elds í tveimur bifreiðum við Esjustofu rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. 21.6.2022 06:41
„Fallegt samfélagslegt verkefni sem að gerir borgina betri“ Reykvíkingar ársins 2022 segja það hafa komið á óvart að þau hafi orðið fyrir valinu en þau komu á fót fyrsta íslenska frískápnum. Formaður borgarráðs segir þau vel að nafnsbótinni komin þar sem þau hafa fengið aðra Reykvíkinga með sér í lið til að bæta samfélagið. 20.6.2022 21:00
Glæný nálgun í öldrunarþjónustu Ný öldrunarþjónusta sem á að gera fólki kleift að búa lengur heima og minnka svokallaðan fráflæðisvanda Landspítala var kynnt á Sólvangi í dag. Heilbrigðisráðherra segir um tímamót að ræða sem muni draga úr innlögnum á spítala. 20.6.2022 20:01
Loftslagsráð gagnrýnir aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda Á 55. fundi Loftslagsráðs þann 9. júní síðastliðinn samþykkti ráðið álit tileinkað íslenskum stjórnvöldum í ljósi skýrslu IPCC. Loftslagsráð segir markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 óljós og sé þörf á frekari útskýringum á markmiðum. 20.6.2022 18:41
„Samfélagið er að svíkja þessi börn í stað þess að breyta kerfinu“ Sífellt fleiri börn fá ADHD-lyf hér á landi. Í dag fær um einn af hverjum sjö strákum slík lyf og um ein af hverjum tíu stelpum. Prófessor í sálfræði segir þetta óeðlilega þróun og úr takti við nálganir annarra norrænna samfélaga. 20.6.2022 18:30
Björn lagði ríkið og fær milljónir í bætur Íslenska ríkið þarf að greiða Birni Þorlákssyni, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar tæpar sjö milljónir vegna uppsagnar hans á síðasta ári, þar af þrjár milljónir í miskabætur. 20.6.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sífellt fleiri börn fá ADHD-lyf hér á landi. Í dag fær um einn af hverjum sjö strákum slík lyf og um ein af hverjum tíu stelpum. Prófessor í sálfræði segir þetta óeðlilega þróun og úr takti við nálganir annarra norrænna samfélaga. 20.6.2022 18:01
Fjölgun á hegningarlagabrotum milli mánaða Í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að 716 hegningarlagabrot voru skráð í maí og fjölgaði þeim á milli mánaða. Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum um innbrot fækkaði. 20.6.2022 17:40
Burðardýr dæmt í fimmtán mánaða fangelsi Kvenmaður var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir innflutning á rúmu kílói af sterku kókaíni. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi. 20.6.2022 16:20
Aftanákeyrsla á Hellisheiði Bílslys varð á Hellisheiði fyrir skömmu er bifreið ók aftan á aðra bifreið. Einhver slys urðu á fólki en ekki er vitað um líðan þeirra. Ekki þurfti að notast við klippur til að koma farþegum úr bifreiðunum að sögn Halldórs Ásgeirssonar, aðalvarðstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu. 20.6.2022 15:38
Þrjár alvarlegar líkamsárásir um helgina Nokkur erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tuttugu og þrjár líkamsárásir voru tilkynntar, þar af þrjár alvarlegar. Þá fór lögregla í fjórtán útköll vegna heimilisofbeldis. 20.6.2022 15:19
Opið hús í fjórða skammtinn næstu tvær vikurnar Vegna mikillar aðsóknar í fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19 verður opið hús í bólusetningar fyrir áttatíu ára og eldri, og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma næstu tvær vikurnar. Bólusetningin fer fram í Álfabakka 14a á 2. hæð. 20.6.2022 14:57
Fjársvikamál Zuism-bróður tekið upp aftur Endurupptökudómur hefur fallist á beiðni Einars Ágústssonar, annars tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, um endurupptöku á máli þar sem hann var sakfelldur fyrir stórfelld fjársvik. Réttaráhrif upphaflega dómsins haldast á meðan beðið er nýs dóms. 20.6.2022 14:47
Sakamálarannsókn á skrifum Arnars sé árás á tjáningarfrelsið Eva Hauksdóttir, verjandi Arnars Sverrissonar, segir það vera árás á tjáningarfrelsið að ríkissaksóknari hafi falið lögreglu að rannsaka skrif Arnars sem sakamál. Grein Arnars hafi ekki innihaldið árás á trans fólk eða hvatningu til mismunar og ofsókna gegn trans fólki. 20.6.2022 14:08
Tveir létust vegna Covid-19 um helgina Tveir létust af völdum Covid-19 á Landspítalanum um helgina. Á fjórða tug einstaklinga liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19, en innlögnum sjúklinga með sjúkdóminn hefur farið fjölgandi síðustu vikur. 20.6.2022 12:56
Varasamt að kyssa og knúsa viðkvæma Sóttvarnalæknir fundar í dag með fulltrúum hjúkrunarheimila um mögulegar takmarkanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hann hvetur fólk til þess að fara varlega í kringum þá sem eru í áhættuhópum og segir skynsamlegt fyrir viðkvæma að taka upp grímunotkun á ný. 20.6.2022 12:20
Þykir „eðlilegt“ að hann bjóði sig aftur fram Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við fréttastofu það vera eðlilegt að hann bjóði sig aftur fram sem formaður flokksins á landsfundi sem fram fer í nóvember á þessu ári. 20.6.2022 12:01
Hrækti á lögreglumenn og hótaði að myrða vararíkissaksóknara Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir fjöldan allan af hegningarlagabrotum, þar á meðal fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hrækja ítrekað á lögreglumenn og að hóta að myrða vararíkissaksóknara. 20.6.2022 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verður til viðtals í hádegisfréttum Bylgjunnar en hann fundar í dag með fulltrúum hjúkrunarheimila um mögulegar takmarkanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 20.6.2022 11:37
Yngri en átján mega ekki lengur gifta sig Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum var nýlega samþykkt á Alþingi. Með frumvarpinu er undanþáguheimild dómsmálaráðuneytisins til að veita fólki yngra en átján ára leyfi til að ganga í hjúskap afnumin. 20.6.2022 11:31
Kamila og Marco valin Reykvíkingar ársins Vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato eru Reykvíkingar ársins 2022. Formaður borgarráðs tilkynnti valið við opnun Elliðaána í morgun áður en þeim Kamilu og Marco var boðið að renna fyrir laxi. 20.6.2022 09:59
Samfara gríðarlegri aukningu á ADHD-lyfjum hefur tilfellum geðrofs og örlyndis á geðdeildum fjölgað Sífellt fleiri leita á geðdeildir vegna geðrofseinkenna eða örlyndis eftir að hafa verið ávísað örvandi ADHD- lyfjum að sögn yfirlæknis bráðageðdeildar Landspítalans. Íslendingar eru margfaldir Norðurlandameistarar í notkun slíkra lyfja og hástökkvarar í ávísunum þeirra milli ára. 20.6.2022 09:00
Olli ónæði í Grafarvogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í mjög annarlegu ástandi í Grafarvogi síðdegis í gær. Í dagbók lögreglu segir að tilkynningin hafi borist klukkan 17:20, en ítrekað var búið að hafa afskipti af manninum þar sem hann var að valda ónæði. 20.6.2022 07:30
Segir Íslendinga hlutfallslega heimsmeistara í steypunotkun Magnús Rannver Rafnsson, verkfræðingur, segir að losun af hálfu mannvirkjagerðar sé gróflega vametin og þar sé efnisnotkun stærsti þátturinn. Hann segir Íslendinga hlutfallslega heimsmeistara í steypunotkun og telur þjóðina einhverja mestu umhverfissóða í Evrópu þegar kemur að mannvirkjagerð. 19.6.2022 22:20
Baráttunni fyrir ríkisborgararétti loksins lokið 22 ára maður frá Nígeríu, sem lenti í mansali og kynferðisofbeldi á flótta frá heimalandi sínu, er orðinn íslenskur ríkisborgari eftir margra ára baráttu. Hann er nú staðráðinn í að skapa sér líf á Íslandi en fyrst á dagskrá er að læra íslensku. 19.6.2022 21:20
Hvalfjarðargöngum lokað tvisvar með stuttu millibili vegna umferðaróhappa Hvalfjarðargöngum var lokað tvisvar síðdegis með stuttu millibili vegna umferðaróhappa. Í fyrra skiptið voru þau lokuð í yfir klukkustund en í það seinna í 40 mínútur. Ökumenn fóru út úr bílum sínum til að kaupa ís af ísbílnum sem sat einnig fastur. 19.6.2022 20:43
14 ára og elskar gamlar dráttarvélar Gamlar og uppgerðar dráttarvélar eru í miklu uppáhaldi hjá 14 ára strák á Reykhólum en hann hefur keyrt dráttarvélar frá því að hann var sex ára gamall. Á bænum er líka Læðan úr Dagvaktinni til sýnis, ásamt öllum dráttarvélunum. 19.6.2022 20:05