Fleiri fréttir

Ein Janssen-sprauta bráðum ekki nóg til ferðalaga í Evrópu
Næstu mánaðamót verður útgáfu bólusetningarvottorða til þeirra sem aðeins hafa fengið einn skammt af bóluefni Janssen hætt á Íslandi. Ástæðan er sú að ein sprauta af bóluefninu er talin ófullnægjandi til að draga verulega úr smithættu eða alvarlegum veikindum vegna delta- og ómíkronafbrigða kórónuveirunnar.

Algjörlega óraunhæft að komast niður í 500 smit
Tveir læknar Landspítalans eru sammála um að það sé heldur óraunhæft markmið að ná daglegum fjölda smitaðra niður í 500 manns eins og sóttvarnalæknir sagði að markmiðið væri á fundi velferðarnefndar Alþingis síðasta þriðjudag.

Veitingamenn geta fengið allt að 600 þúsund krónur á starfsmann
Veitingastaðir sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda geta fengið allt að sex hundruð þúsund krónur upp í laun starfsmanns samkvæmt aðgerðum sem stjórnvöld kynntu í morgun. Hámarks styrkur getur orðið allt að tólf milljónir króna.

Hefur mestar áhyggjur af tíundu bekkingum
Um helmingur þeirra sem greinist með Covid-19 eru börn á grunn- og leikskólaaldri og ríflega fimm þúsund börn í Reykjavík voru fjarverandi úr skóla í gær. Skólastjóri hefur áhyggjur af tíundu bekkingum og hvaða áhrif skert skólahald mun hafa á þá.

Kristján Þór hættir sem sveitarstjóri
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, ætlar ekki að sækjast eftir stöðunni eftir næstu kosningar eða bjóða sig fram til setu í sveitarstjórn.

Segir ekkert hæft í ásökunum nafna síns Ragnarssonar
„Ég bara næ ekki um hvað hann er að tala og hvaða ásakanir þetta eru,“ segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM), um það sem fram kemur í framboðstilkynningu nafna hans Ragnarssonar.

Telur ekki rétt að hlusta á 25 prósentin og hunsa hina
Formaður samgöngu- og skipulagsráðs telur oddvita Sjálfstæðisflokksins oftúlka andstöðu íbúa við þéttingu byggðar við Miklubraut og Háaleitisbraut. Tillaga flokksins um að hætta formlega við uppbyggingu í hverfinu sé til marks um málefnaþurrð. Henni var vísað frá á fundi borgarstjórnar seinnipartinn.

Þriðji þorrinn sem fer í súginn vegna samkomutakmarkanna og ástandið súrt
Á föstudaginn hefst þriðji þorrinn sem fer í súginn vegna samkomutakmarkanna. Þetta segir veitingamaður í Múlakaffi. Hann vinnur nú að því að koma fimmtán tonnum af súrmat út, en flest öll íþróttafélög hafa ýmist aflýst eða frestað þorrablótum.

Katrín og Sigurður sátt við fjarveru Bjarna
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er væntanlegur heim úr fríi í útlöndum eftir tvo daga. Formenn hinna stjórnarflokkanna telja það ekki koma niður á störfum ríkisstjórnarinnar þótt Bjarni bregði sér af bæ í nokkra daga.

Vatnaskil orðið í faraldrinum og því tímabært að endurskoða viðbrögð og takmarkanir
Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum.

Tvö sóttu um embætti ríkislögmanns
Forsætisráðuneytinu bárust tvær umsóknir um embætti ríkislögmanns en umsóknarfrestur rann út 15. janúar. Umsækjendur voru Fanney Rós Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns, og Þórhallur Haukur Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður.

Segir Sjúkratryggingar stilla talmeinafræðingum upp við vegg
Sjúkratryggingar Íslands munu fella tveggja ára starfsreynsluákvæði úr samningi við talmeinafræðinga og verður núgildandi samningur framlengdur um sex mánuði, án ákvæðisins, og sá tími nýttur til að fara mál á borð við forgangsröðun. Formaður Félags talmeinafræðinga segist upplifa það að þeim sé stillt upp við vegg en forstjóri Sjúkratrygginga segir mikilvægt að ræða og tryggja gæði þjónustunnar.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern Covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum.

Líf gefur áfram kost á sér í oddvitasætið
Líf Magneudóttir gefur aftur kost á sér í oddvitasæti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Líf hefur verið borgarfulltrúi flokksins og áður varaborgarfulltrúi frá árinu 2014.

Örmagna göngumanni bjargað við Keili
Björgunarsveitarfólk kom göngumanni til bjargar norðvestur af Keili eftir hádegið í dag eftir neyðarkall hans vegna þreytu. Viðkomandi hringdi í Neyðarlínuna klukkan 13 og var hann kominn upp í björgunarsveitarbíl þremur og hálfri klukkustund síðar.

Starfsfólk SÁÁ telur illa að sér vegið
Starfsfólk SÁÁ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að það telur með málsmeðferð Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna sem og allri starfsemi SÁÁ.

Segir ekki standa til að stækka starfsemi Ísteka þrátt fyrir leyfi Umhverfisstofnunar
Framkvæmdastjóri Ísteka segir að þau hafi engin áform um stækkun starfseminnar þrátt fyrir að nýútgefið starfsleyfi Umhverfisstofnunar geri ráð fyrir því. Hann hafnar því að Ísteka stefni á að allt að fjórfalda starfsemi sína og segir það ekki raunhæft á þessum tíma.

Stytta biðtímann eftir örvunarsprautu niður í fjóra mánuði
Ákveðið hefur verið að stytta tímann á milli annars bólusetningarskammts og örvunarskammts úr fimm til sex mánuðum og niður í fjóra mánuði.

Gripið til aðgerða fyrir veitingahús og tónlistarfólk
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um aðgerðir til að bæta veitingastöðum tekjutap vegna sóttvarnaaðgerða. Styrkirnir miðaðst við stöðugildi og geta hæstir orðið tólf milljónir króna. Þá eru aðgerðir í undirbúningi vegna tekjutaps fólks í sviðslistum.

Læknar með gjörólíka sýn á faraldurinn takast á í Pallborðinu
Gamlir vinir og samstarfsmenn á Landspítala mætast í Pallborðinu klukkan 14:30 í beinni hér á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag til að ræða heimsfaraldurinn og leiðir út úr honum. Fylgst er með gangi mála í textalýsingu í vaktinni hér að neðan.

Börn upp undir helmingur smitaðra
Börn sextán ára og yngri voru upp undir helmingur þeirra sem greindust með kórónuveiruna í gær, en aðeins einu sinni frá upphafi faraldursins hafa fleiri greinst smitaðir. Sóttvarnalæknir segir að nýtt spálíkan um fjölda innlagna á Landspítala sé öllu svartsýnna en það fyrra, þó ekki megi lesa of mikið í líkindaspár.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjar aðgerðir sem kynntar voru að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og eiga að bæta veitingastöðum sem gert hefur verið að loka upp tjónið með styrkjum.

Gerir ekki athugasemd við fríið hans Bjarna
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og staðgengill Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, gerir engar athugasemdir við að hann hafi verið í fríi í útlöndum síðustu daga.

Inniliggjandi með Covid-19 fækkar á milli daga
Þeim sem liggja inn á Landspítala með Covid-19 fækkaði um sex á milli daga, þar af fækkaði inniliggjandi með Covid-19 á gjörgæslu um þrjá.

1.383 greindust innanlands
1.383 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 66 á landamærum.

Vinstri græn efna til forvals um þrjú efstu sætin
Vinstri græn hafa ákveðið að efna til forvals um þrjú efstu sætin á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkostningarnar í vor. Þetta var ákveðið á félagsfundi VG í gærkvöldi.

Bjarni Haraldsson á Sauðárkróki er látinn
Bjarni Haraldsson, verslunarmaður á Sauðárkróki, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki aðfaranótt gærdagsins.

Almar vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ
Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fram fer 5. mars næstkomandi.

Vill verða formaður á ný og segir fjármál félagsins mögulega lögreglumál
Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns en hann segir að unnið sé að því án vitundar félagsmanna að leggja félagið niður með samruna við annað félag.

Skjálfti 3,3 að stærð í grennd við Húsafell
Enn skelfur jörð í grennd við Húsafell en í nótt, tíu mínútur fyrir tvö, reið skjálfti yfir sem mældist 3,3 stig

Framkvæmdastjórn SÁÁ segist slegin
Framkvæmdastjórn SÁÁ segist sleginn yfir yfir því að Sjúkratryggingar Íslands hafi sent kæru til embættis héraðssaksóknara vegna starfshátta SÁÁ.

Biðla til landsmanna um að láta skrá erlendar bólusetningar
Landlæknisembættir biður einstaklinga sem búsettir eru hér á landi en hafa þegið bólusetningu gegn Covid-19 erlendis að láta skrá bólusetningarnar formlega í innlend kerfi, ef það hefur ekki gert það nú þegar.

Segir mál meðhöndlarans hafa skemmt mikið fyrir systur sinni
Systir brotaþola í fimmta nauðgunarmáli ákæruvaldsins á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni kom fram sem vitni við aðalmeðferð málsins í síðustu viku. Þar bar hún meðal annars um hrakandi líðan systur sinnar eftir að meint ofbeldi átti sér stað og sagðist sem læknir ekki vita til þess að það sem Jóhannesi er gefið að sök geti talist vera meðferð við þeim verkjum sem brotaþoli ætlaði að fá Jóhannes til að meðhöndla.

Opið þinghald í kynferðisbrotum sé almannahagsmunamál
„Það skiptir máli fyrir samfélagið að almenningur hafi eftirlit með dómstólum, þar á meðal fjölmiðlar. Þegar málsmeðferð er lokað algjörlega í heilum málaflokki þá erum við búin að fjarlægja allt eftirlit almennings með þeim málaflokki.“

Vilja einnig falla frá þéttingu við Háaleitis- og Miklubraut
Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja að fallið verði frá þéttingu byggðar við Bústaðaveg, Miklubraut og Háaleitisbraut með formlegum hætti. Borgarfulltrúar flokksins munu leggja fram tillögu þess efnis á borgarstjórnarfundi í dag.

Æddi niður að brú þar sem hans beið geysilegt sjónarspil
Byggingartæknifræðingurinn Orri Jónsson var í eftirlitsferð vegna vegaframkvæmda í Þverárhlíð í Borgarfirði í dag þegar hann varð vitni að miklu ísstífluflóði.

„Hann hefur meiri áhuga á að vera í fríi“
Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar eru afar gagnrýnir á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, sem var staddur erlendis í fríi þegar Alþingi kom saman í dag. Fyrsta mál á dagskrá þingsins á árinu er fumvarp hans til stuðnings fyrirtækjum í veitingarekstri, vegna áframhaldandi óvissu vegna kórónuveirufaraldursins. Þingmennirnir segja að ráðherrann mætti sýna verkefninu meiri áhuga.

Um einn af hverjum hundrað fær óljósa niðurstöðu
Um tíu prósent þeirra sem fá jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi hjá heilsugæslunni fá annað svar úr PCR-prófi strax í kjölfarið. Þetta hlutfall hefur farið lækkandi en í upphafi voru um það bil helmingur PCR-prófa neikvæður eftir jákvætt hraðpróf.

Sexhyrndur athyglissjúkur hrútur
Hrúturinn Sexi er engin venjulegur hrútur því hann er sexhyrndur og þrílitur. Sexi elskar athygli enda stendur hann alltaf upp í stíunni sinni með framfæturna upp í garðanum þegar gestir koma í fjárhúsið á Ósabakka í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Kerfið hafi ekki bolmagn til þess að sinna heimilislausum sem þurfa í sóttkví
Velferðarkerfið hefur ekki bolmagn til þess að halda utan um hóp þeirra sem þurfa í sóttkví en eru heimilislausir eða eiga við vímuefnavanda að stríða. Þetta segir verkefnastýra Frú Ragnheiðar sem segir jafnframt að mikið álag sé á athvörfum fyrir heimilislausa.

Magnús Guðmundsson er látinn
Magnús Guðmundsson er látinn, 88 ára að aldri. Hann var einn þekktasti íþróttamaður Akureyringa. Hann lést á heimili sínu í Montana í Bandaríkjunum í gær.

Um þriðjungur Covid-smitaðra á Landspítala ekki inni vegna Covid
Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala í einangrun með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Nýtt spálíkan er væntanlegt frá spítalanum sem gæti orðið til þess að sóttvarnalæknir endurskoði samkomutakmarkanir.

Meintir tilhæfulausir reikningar SÁÁ metnir saknæmir
Svo virðist sem SÁÁ hafi reynt að beita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) stórfelldum blekkingum og undanbrögðum vegna tilhæfulausa reikninga sem samtökin sendu SÍ.

Þingmanna að tilkynna forföll til skrifstofu Alþingis
Nafn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra var ekki á skrá yfir fjarvistir þingmanna þegar Alþingi var sett í dag, og sætti það gagnrýni stjórnarandstöðuþingmanna. Forseti Alþingis segir skýringuna einfalda: Skráin byggi alfarið á tilkynningum hvers og eins þingmanns um fjarvistir sínar.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Innlagnarhlutfall á spítala og gjörgæslu er á niðurleið og sóttvarnalæknir segir að fylgst verði með þróuninni sem gefi mögulega tilefni til tilslakana. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.