Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekki er von á afléttingum sóttvarnaaðgerða á næstunni en heilbrigðisráðherra segir viðbúið að snúið verði að halda skólum opnum. Sóttvarnalæknir biðlar til óbólusettra að endurskoða ákvörðun sína. 4.1.2022 18:00
„Ég horfi í augun á honum og segi að ég vil þetta ekki“ Ung kona segist vera að leita réttar síns eftir að brotið hafi verið á henni af þremur eldri karlmönnum. Hún segir brotin hafa átt sér stað þegar hún var í ástarsambandi með vini þeirra. Hún hafi viljað þóknast honum og frosið þegar brotið hafi verið á henni. 4.1.2022 17:30
Seðlabankastjóri segir fréttaflutning Fréttablaðsins óboðlegan Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri segir sjálfhætt ef ekki skuli að segja af ásökunum virts sagnfræðings á hendur seðlabankastjóra um ritstuld. 4.1.2022 14:54
Send heim eftir tvo tíma á fyrsta skóladeginum Tíundu bekkingar í Sunnulækjarskóla á Selfossi voru sendir heim rétt fyrir klukkan tíu í morgun þegar grunur kom upp að einn bekkjarfélaganna hafi mætt smitaður af kórónuveirunni í skólann. 4.1.2022 14:34
Óbreyttar reglur á landamærunum Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að sóttvarnaráðstafanir á landamærunum ættu að vera óbreyttar til 28. febrúar. Tillaga um fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum fyrir vorið verður kynnt fyrir þann 20. febrúar. 4.1.2022 14:05
Boða til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar á morgun klukkan 11 vegna faraldurs kórónuveirunnar. 4.1.2022 13:44
Bráðalæknir spyr hvort starfsfólk sé að brjóta hegningarlög á bráðamóttökunni Alls sóttu 2.697 einstaklingar bráðamóttökuna á Landspítala í nóvember og jókst fjöldinn um 6,3% frá sama tíma árið 2020. 4.1.2022 13:43
Hagskælingar fluttir í Ármúla Miklar skerðingar eru á skólastarfi Hagaskóla vegna myglu sem fannst í einni álmu skólans í vetur. Það mun vera áfram það sem eftir er skólaárs og munu níundu bekkingar skólans sækja námið í Ármúla. 4.1.2022 13:07
Hvetur þingmenn sem eru á móti sóttvarnaaðgerðum til að koma með tillögur Átta liggja nú á gjörgæslu Landspítalans með deltaafbrigði kórónuveirunnar og eru sex þeirra í öndunarvél. Sjö liggja inni vegna ómíkron. Sóttvarnalæknir segir aðallega óbólusett fólk vera á gjörgæslu. Hann hvetur enn á ný þá sem eiga eftir að láta bólusetja sig að gera það. 4.1.2022 12:14
Bein útsending: Vindmyllan í Þykkvabæ sprengd Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar stefnir á að sprengja upp úr hádegi vindmylluna í Þykkvabæ sem eyðilagðist í bruna í miklu roki á nýársdag. Sprengingin verður í beinni útsendingu á Vísi. 4.1.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni og heilbrigðisráðherra um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum. 4.1.2022 11:33
„Viðbúið að einhverjir skólar þurfi að loka“ Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að skóla og frístundastarf barna haldi áfram með sem eðlilegustum hætti. Þó sé viðbúið að einhverjir skólar muni þurfa að loka vegna fjölda starfsmanna og barna í einangrun og sóttkví. 4.1.2022 11:33
Högg að fá fréttir um sig byggðar á misskilningi lögreglu Framkvæmdastjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar segir fréttaflutning um að starfsmenn gistiskýlis hafi látið heimilislausan mann sofa úti í kuldanum mikið högg fyrir starfsfólkið. Það hafi enda verið að gera allt rétt, ólíkt því sem lögregla gaf í skyn í dagbók sinni í morgun. Þetta sé misskilningur af hálfu lögreglunnar. 4.1.2022 11:08
Býður sig fram til formanns Eflingar Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og fyrrverandi hlaðmaður hjá Icelandair, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Eflingu. 4.1.2022 11:01
Grunar að kveikt hafi verið í tveimur bústöðum við Elliðavatn á einni viku Grunur er um að kveikt hafi verið í sumarbústað við Elliðavatn í nótt. Um er að ræða annan húsbrunann á þessum slóðum á einni viku og grunur um að einnig hafi verið kveikt í hinu húsinu. 4.1.2022 10:56
1.289 greindust innanlands 1.289 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 485 af þeim 1.289 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 38 prósent. 804 voru utan sóttkvíar, eða 62 prósent. 4.1.2022 10:29
Sýknaður af mismunun gegn transkonu á Hverfisbarnum Fyrrverandi dyravörður á Hverfisbarnum var sýknaður af mismunun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa vísað Sæborgu Ninju Urðardóttur, transkonu, af skemmtistaðnum vegna kynvitundar hennar. 4.1.2022 10:28
Erla Bolla vann orrustu: „Ég fer ekki að hætta núna“ Héraðsdómur Reykjavíkur felldi rétt í þessu úr gildi úrskurð endurupptökunefndar sem hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku máls hennar árið 2017. Erla Bolladóttir kallaði „yes!“ þegar niðurstaðan var kunngjörð í dómsal í morgun. Svo streymdu tárin. 4.1.2022 10:22
Sjúklingum á Covid-göngudeild fjölgar um 1.356 milli daga 28 sjúklingar liggja nú á Landspítala með COVID-19 og fjölgar þeim um þrjá milli daga. Sjúklingum á Covid-göngudeildinni fjölgar um 1.356 milli daga, fer úr 7.198 í gær og í 8.554 í dag. 4.1.2022 09:31
Iðunn og Kári aðstoða Svandísi Kári Gautason og Iðunn Garðarsdóttir hafa verið ráðinn sem aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 4.1.2022 09:19
Ásgeir vill fyrsta sætið á lista Sjálfstæðismanna í Mosó Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 4.1.2022 09:08
Björn Ingi segir óbólusetta útlendinga „bleika fílinn í stofunni“ „Bleiki fíllinn í stofunni“, sem ekki má tala um, er að flestir þeir sem nú veikjast alvarlega af kórónuveirunni hér á landi „eru útlendingar sem vinna hér og hafa íslenska kennitölu en gera annars lítt eða ekkert með sóttvarnaráðstafanir okkar samfélags“. 4.1.2022 08:05
Ákveðið að láta bústað við Elliðavatn brenna til grunna Tekin var sú ákvörðun að láta sumarhús við Elliðavatn brenna til grunna þegar eldur kom upp í því síðla nætur en freista þess að vernda gróður, þar sem bústaðurinn stendur á vatnsverndarsvæði. 4.1.2022 06:58
Lögregla segir borgina láta mann sofa úti í sjö stiga frosti Maður sem venjulega gistir í aðstöðu á vegum Reykjavíkurborgar er nú í straffi og gistir á götunni í sjö gráðu frosti. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni, þar sem segir að hún hafi verið kölluð til að hóteli í miðborginni þar sem starfsmenn voru í vandræðum með manninn, sem var ölvaður. 4.1.2022 06:37
Sögulega djúp lægð í kortunum Lægðin sem nú stefnir á landið úr vestri stefnir í að verða fádæma djúp. Ef frá eru taldir fellibyljir er ekki vitað um margar lægðir hér á landi sem eru dýpri. 3.1.2022 22:13
Segir nýtt íbúðahverfi skerða rekstraröryggi flugvallarins Óvíst er hvort Isavia muni afhenda Reykjavíkurborg svæði í Skerjafirði í vor til byggingar nýs íbúðahverfis án frekari rannsókna. Framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia segir húsbyggingar þar hafa umtalsverð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. 3.1.2022 21:53
Með um 40 hljóðfæri inn í herbergi hjá sér í Keflavík Einn efnilegasti tónlistarmaður á Suðurnesjum er ekki nema 17 ára gamall en þrátt fyrir það spilar hann á fjölda hljóðfæra. Saxófóninn er í mestu uppáhaldi hjá honum. 3.1.2022 21:41
Ekki komið á hreint hvort bólusett verði í skólum Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist skilja þau sjónarmið sem búi að baki gagnrýni á fyrirætlanir um að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára í skólum sínum. Umboðsmaður barna hefur kallað eftir breyttu fyrirkomulagi. 3.1.2022 21:38
Verulegur hluti sjálfstæðismanna efast um réttmæti aðgerða Sjaldan ef nokkurn tíma hefur ríkt eins mikil óeining á þingi um réttmæti harðra samkomutakmarkana. Flestir þingmenn sem eru á móti þeim tilheyra flokki Sjálfstæðismanna og Viðreisnarmenn hallast í sömu átt. 3.1.2022 21:01
Gripinn með gríðarlegt magn barnakláms sem uppgötvaðist fyrir tilviljun Karlmaður búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa 132 þúsund ljósmyndir og rúmlega fimm þúsund kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfengin hátt í vörslum sínum. 3.1.2022 20:50
Yfir 400 starfsmenn skóla og frístundar í borginni í sóttkví eða einangrun Ríflega fjögur hundruð starfsmenn grunn- og leikskóla og frístundastarfs í Reykjavík eru með kórónuveiruna eða í sóttkví. Skólastarf kemur því til með að raskast næstu daga en áhersla er lögð á að yngstu börnin komist í skólann. 3.1.2022 20:09
Stór flutningabíll lokaði þjóðveginum Stór flutningabíll þveraði þjóðveg 1 við Stöðvarfjörð á Austurlandi í kvöld. Búið er að losa bílinn og hleypa umferð af stað. 3.1.2022 19:04
„Vinnubrögð borgarinnar vonandi einsdæmi“ Lögmaður fjölfatlaðs manns sem hefur síðan í vor verið neitað um heimaþjónustu vonar að vinnubrögð Reykjavíkurborgar í málinu séu einsdæmi. Maðurinn missti pláss á hjúkrunarheimili aldraðra í gær og var vísað á spítala. Hann segir skrítið að liggja án veikinda á stofnun sem sé á neyðarstigi. 3.1.2022 19:00
„Það væri ábyrgðarleysi að reyna ekki að halda skólastarfi gangandi“ Mennta- og barnamálaráðherra segir afar mikilvægt að hægt sé að halda skólastarfi sem eðlilegustu þrátt fyrir mikla útbreiðslu kórónuveirunnar í samfélaginu. Hann mun funda daglega með nýjum samráðsvettvangi um stöðu skólamála í landinu og viðurkennir að margar áskoranir séu fram undan í málaflokknum. 3.1.2022 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Á fimmta hundruð starfsmenn eru frá vinnu á leik- og grunnskólum í Reykjavík vegna faraldursins. Skólahald næstu daga raskast. Við tökum hús á áhyggjufullum skólastjórnendum og heyrum í barnamálaráðherra um stöðuna. 3.1.2022 18:00
Foreldrar beðnir um að hætta að senda börn með kvef á leikskóla Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins beinir þeim tilmælum til foreldra að senda ekki börn í leik- og grunnskóla með kvefeinkenni nema þau hafi farið í PCR-sýnatöku. Skipulagsdagur var í dag hjá starfsfólki grunn-, leik- og tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, auk frístundaheimila þar sem gripið var til ráðstafana í ljósi stöðu kórónuveirufaraldursins. 3.1.2022 17:16
Sérsveitin handtók mann sem grunaður er um að hafa skotið á hús í Kórahverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa skotið á glugga nokkurra íbúðarhúsa í Kórahverfi í Kópavogi og eitt hús í Hafnarfirði. 3.1.2022 16:04
Ónefndur hjólahrellir sér ljósið og snýr við blaðinu Bjartmar Leósson, sem hefur gengið undir nafninu hjólahvíslarinn vegna ötuls sjálfboðaliðsstarfs við að endurheimta hjól úr krumlum þjófa, segir að einn þeirra sem hefur reynst honum erfiður hafi snúið við blaðinu. 3.1.2022 15:28
Búin að skipa starfshóp til að skoða blóðmerahald Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Mun hópurinn hefja störf á næstu dögum en honum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kringum hana. 3.1.2022 15:27
„Með Covid-19“ en ekki lengur „vegna Covid-19“ Landspítalinn uppfærði í dag orðalag sitt í daglegum tilkynningum um stöðuna á spítalanum. Áður kom þar fram hve margir sjúklingar lægju inni „vegna“ Covid-19 en í dag var orðalaginu breytt í „með“ Covid-19. Tvö börn liggja inni á barnadeild Landspítalans með Covid-19. 3.1.2022 15:15
101 dagur í næsta frí: „Tökum febrúarlægðirnar beint á kassann og ekkert breik“ Landsmenn þurfa að bíða talsvert eftir næsta almenna frídegi, eða í um þrjá og hálfan mánuð. Næsti frídagur er ekki fyrr en á skírdag, sem verður í ár þann 14. apríl – eftir samtals 101 dag. 3.1.2022 15:00
Einar Þorsteins hættur á RÚV Einar Þorsteinsson fréttamaður á RÚV, og einn helsti stjórnandi Kastljóss undanfarin ár, hefur sagt upp störfum á Ríkisútvarpinu. 3.1.2022 14:37
Læknirinn snúinn aftur til starfa eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Læknir á Landspítalanum sem sendur var í leyfi í nóvember vegna ásakana um kynferðislega áreitni á er kominn aftur til starfa á spítalanum. Þetta staðfestir lögmaður hans, Jón Steinar Gunnlaugsson, í samtali við fréttastofu. 3.1.2022 14:09
Starfsemi Vesturbæjarlaugar lömuð vegna faraldursins Vesturbæjarlaug lokar klukkan tvö í dag vegna mönnunarvanda. 3.1.2022 13:56
Sannfærður um að smitaðir finnist í kennslustofunum Skólastjóri Melaskóla segir starfsfólk skólanna mjög útsett fyrir því að smitast af kórónuveirunni og geta lítið varið sig. Þrátt fyrir að stefnt sé að óbreyttu skólastarfi á morgun þá geti staðan breyst hratt. 3.1.2022 13:36