Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Seyðfirðingar beðnir um að halda sig innandyra Lögreglan á Austurlandi biður íbúa á Seyðisfirði um að vera ekki á ferðinni í dag vegna óveðurs í landshlutanun. Lausamunir hafi verið að fjúka sem geti valdið slysahættu. 3.1.2022 12:11
„Við getum ekki tekið fólk með valdi og bólusett það“ Sóttvarnalæknir segir ekkert við ástandið í faraldrinum gefa ástæðu til að ráðast í afléttingar. Hlutfall óbólusettra á meðal alvarlega veikra er mjög hátt. 3.1.2022 12:02
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kórónuveirufaraldurinn verður áberandi í hádegisfréttum dagsins eins og oft áður síðustu misserin. 3.1.2022 11:24
795 greindust innanlands í gær 795 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 374 af þeim 795 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 47 prósent. 421 voru utan sóttkvíar, eða 53 prósent. 3.1.2022 10:51
Forstjóri Landspítalans fékk Covid: „Veiran er alveg á fullri ferð“ Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans, greindist með Covid-19 fyrir jól. Hún segir að í kringum 200 starfsmenn spítalans séu nú fjarri vinnu vegna kórónuveirunnar og að stöðugt bætist í fjöldann enda sé veiran „á fullri ferð“ í samfélaginu. Heilbrigðisstarfsfólk fari ekki varhluta af því. 3.1.2022 10:36
Covid-19-sjúklingum á Landspítala fjölgar milli daga 25 sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19 og fjölgar um þrjá milli daga. Fjórtán þeirra eru bólusettir og ellefu óbólusettir. 3.1.2022 09:54
Sækist ekki eftir endurkjöri og styður Hildi Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hyggst ekki gefa kost á sér til endurkjörs í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara í maí. Hún hefur ráðið sig til starfa hjá Dohop og hefur þar störf í vor. 3.1.2022 08:16
Eftirlýstur handtekinn í verslunarmiðstöð og ungar konur vegna slagsmála Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í gær kölluð til vegna manns í verslunarmiðstöð sem grunaður var um þjófnað. Í ljós kom að maðurinn var eftirlýstur af lögreglu. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. 3.1.2022 06:13
Aflýsa sýnatökum vegna veðurs Vegna slæmrar veðurspár hefur Covid-sýnatöku sem áður hafði verið auglýst á Vopnafirði, Egilsstöðum og Reyðarfirði á morgun, mánudaginn 3. janúar, verið aflýst. 2.1.2022 23:59
Margir foreldrar uggandi vegna fyrirhugaðs skólahalds Ljóst er að uggur er í foreldrum margra grunnskólabarna vegna skólahalds sem hefst nú í vikunni. Bólusetning barna á aldrinum fimm til ellefu ára hefst 10. janúar, viku eftir að skólahald hefst. 2.1.2022 22:30
Hefði viljað fresta skólahaldi: „Þetta er staðan sem við vinnum með“ Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að betra hefði verið að fresta skólabyrjun líkt og sóttvarnalæknir lagði til. Þess í stað taka leik- og grunnskólar skipulagsdag á morgun til að undirbúa skólastarfið í ómíkrón-bylgju. 2.1.2022 20:31
Herbergjum farsóttarhúsa fjölgar um hundrað á morgun „Það má segja að við förum á fullri ferð inn í nýja árið,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins, í samtali við fréttastofu. Um hundrað manns eru nú á biðlista eftir því að komast í einangrun á farsóttarhúsi, en á morgun bætast við hundrað herbergi. 2.1.2022 20:14
Syngjandi 85 ára flakari í Hafnarfirði Magnús Þorsteinsson í Hafnarfirði er ekkert á því að slaka á eða taka því rólega á sínum eldri árum því hann er 85 ára gamall og vinnur við flökun alla daga í frystihúsi í bæjarfélaginu. Hann sér líka um að kenna erlendu starfsfólki að flaka. Þegar þannig liggur á Magnúsi þá brestur hann í söng í vinnslusalnum. 2.1.2022 20:07
Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu við Suðurlandsveg Suðurlandsvegi var lokað undir Ingólfsfjalli tímabundið nú í kvöld eftir að bíll með fjóra innanborðs valt út af veginum. Enginn er talinn alvarlega slasaður eftir veltuna. 2.1.2022 20:06
Heilsugæslan bregst við ábendingum umboðsmanns um sýnatöku á börnum Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur brugðist við ábendingum sem bárust frá umboðsmanni barna vegna framkvæmdar PCR-sýnatöku á börnum. 2.1.2022 19:12
Bundu niður fjúkandi þak og aðstoðuðu við sjúkraflutninga Björgunarsveitir víða um land hafa verið kallaðar út nokkuð oft í dag og sinnt ýmsum verkefnum. Gærdagurinn var einnig nokkuð erilsamur hjá björgunarsveitum, vegna veðurs. 2.1.2022 18:59
Fólk eigi ekki að leggja á gangstéttum þótt bíllinn passi ekki í innkeyrsluna Breiðhyltingurinn Dagur Bollason segir það óþarflega algengt að ökumenn í hverfinu leggi uppi á gangstéttum, þá sérstaklega þannig að bílar standi hálfir út úr innkeyrslum og séu þannig fyrir vegfarendum. 2.1.2022 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að það hafi verið mistök að fresta ekki skólabyrjun líkt og sóttvarnalæknir lagði til. Hann á von á háum smittölum næstu daga. Af þeim átta sem eru á gjörgæslu er aðeins einn bólusettur. 2.1.2022 18:00
Umboðsmaður vill að börn fái forgang í sýnatöku Umboðsmaður barna hefur óskað eftir því við forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að sérstakt rými verði útbúið fyrir sýnatöku barna í tengslum við Covid. Börn hafi upplifað mikinn kvíða, bæði í sýnatökum og vegna óvissu um niðurstöðu sem henni fylgi. 2.1.2022 16:02
Svifryk ekki yfir mörkum á nýársdag Svifryk á höfuðborgarsvæðinu fór ekki yfir heilusverndarmörk á nýársdag. Mest svifryk mældist í Vesturbænum og við Bústaðaveg. 2.1.2022 15:04
Sjö af átta með Covid-19 á gjörgæslu óbólusettir Tuttugu og tveir eru nú inniliggjandi á Landspítala með Covid-19. Átta eru á gjörgæslu en sex þeirra eru í öndunarvél. 2.1.2022 14:05
Tekist á um hvort Katrín gæti verið formaður Sjálfstæðisflokksins Í niðurstöðum könnunar Stöðvar 2 og Maskínu sem kynnt var í Kryddsíld á gamlársdag var meðal annars farið yfir frammistöðu leiðtoga stjórnmálaflokkanna í kosningabaráttunni í haust. Sigurður Ingi Jóhannsson var talinn hafa staðið sig best allra en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verst. 2.1.2022 13:54
Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu Sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu hafa óskað eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um að það verði byggt hjúkrunarheimili á svæðinu. Fimmtán prósent íbúa sveitarfélaganna eru 65 ára eða eldri. 2.1.2022 13:31
Vindmyllan í Þykkvabæ brann á nýársdag Önnur vindmyllanna sem stendur við Þykkvabæ brann í gær. Þær hafa nú báðar eyðilagst í eldi en hin brann sumarið 2017. 2.1.2022 13:05
Bardagaþreyttir kennarar hafa morgundaginn til að skipuleggja skólastarf í krefjandi aðstæðum Kennarar hafa morgundaginn til þess að skipuleggja komandi skólastarf í krefjandi aðstæðum. Skólastjóri segir kennara orðna bardagaþreytta og hefði viljað sjá ríkisstjórnina fylgja tilmælum sóttvarnalæknir um seinkun á skólabyrjun. 2.1.2022 12:16
Hádegisfréttir Bylgjunnar Lögregla rannsakar skotárás á íbúð í Kórahverfi í gær en sjö skotárásir hafa verið gerðar á heimili í hverfinu á síðastliðnum mánuði. 2.1.2022 11:30
Íbúar hvattir til að spara heita vatnið vegna bilunar í dælu hjá Rangárveitum Bilun kom upp í dælu í Rangárveitum, sem sér Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni. Vegna þessa er lægri þrýstingur á kerfinu á veitusvæðinu öllu og íbúar hvattir til að spara heita vatnið. 2.1.2022 11:28
Skotið á íbúð í Kórahverfi á nýársmorgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar skotárás sem gerð var á íbúð í Kórahverfi í gærmorgun. Um er að ræða sjöundu skotárásina á heimili í hverfinu frá því í byrjun desember. 2.1.2022 10:54
548 innanlandssmit 548 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 2.1.2022 09:31
Steingrímur J. og Ólafur Þ. rifja upp liðna tíð í Sprengisandi Sprengisandur snýr aftur eftir hátíðarnar á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst klukkan 10:00 og verður aðeins öðruvísi en fyrri þættir. 2.1.2022 09:25
Gróðureldar og flugeldastúss á borði lögreglu í nótt Mikið var um útköll hjá lögreglu í gærkvöld og í nótt vegna flugelda. Þá voru viðbragðsaðilar kallaðir til nokkrum sinnum vegna elda á höfuðborgarsvæðinu. 2.1.2022 07:25
Ekki til skoðunar að stytta einangrun meira í bili Íslensk sóttvarnayfirvöld ráðgera að svo stöddu ekki að stytta einangrunartíma Covid-smitaðra meira en gert var skömmu fyrir áramót. Þá var einangrunartími styttur úr tíu dögum í sjö. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kallaði eftir enn styttri einangrunartíma á dögunum. 1.1.2022 21:20
„Þurfum að vera mjög á varðbergi næstu dagana“ Metfjöldi greindist með kórónuveiruna á landamærunum í gær. Gera má ráð fyrir að fleiri greinist smitaðir innanlands á næstu dögum eftir hátíðirnar að sögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns. Landsmenn þurfi að vera á varðbergi svo að spítalinn ráði við álagið. 1.1.2022 19:23
Forystufólk flokkanna sagðist allt gera mistök Forystufólk allra flokka viðurkenndi í Kryddsíldinni á Stöð 2 í gær að stjórnmálamenn gerðu mistök eins og annað fólk og ættu að gangast við þeim. Maður ársins að mati fréttastofunnar sagðist deila heiðrinum með fjölda samstarfsfólks. 1.1.2022 19:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en metfjöldi greindist smitaður á landamærunum í gær og kona á níræðisaldri lést vegna covid veikinda. 1.1.2022 18:17
Aðstoðuðu fasta ökumenn á lokaðri heiðinni Björgunarsveitir víða um land hafa verið kallaðar út í dag vegna veðurs. Meðal annars hefur þurft að tryggja lausa muni og þakplötur og aðstoða ökumenn bíla sem sátu fastir á Öxnadalsheiði. 1.1.2022 17:48
Þessi tólf hlutu fálkaorðuna á Bessastöðum í dag Forseti Íslands sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega en óhefðbundna athöfn á Bessastöðum í dag, nýársdag. 1.1.2022 16:41
Fyrsta barn ársins fæddist á miðri leið til Akureyrar: „Þetta er svona hálfgert öskubuskuævintýri“ Fyrsta barn ársins fæddist í sjúkrabíl á miðri leið til Akureyrar. Foreldrar barnsins voru í sjötugsafmæli á Siglufirði þegar móðirin, Elfa Sif Kristjánsdóttir, missti vatnið. Hringt var á sjúkrabíl og barnið fæddist í bílnum, við Kálfsskinn. 1.1.2022 16:12
Rafmagnslína Landsnets féll óveðrinu Rafmagnslínan Brennimelslína 1, sem er milli Geitháls og Brennimels, fór á hliðina í óveðrinu fyrr í dag. Enginn notandi varð án rafmagns en álagið færðist yfir á aðrar nærliggjandi línur. 1.1.2022 15:34
„Reynum að láta ekki gremju eða reiði ná tökum á okkur“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir ræddi óttann og áhrif hans í samfélagi í nýársávarpi sínu sem hann flutti fyrr í dag. Forsetinn fór þar meðal annars yfir stöðuna í íslensku samfélagi á tímum kórónuveirunnar og sagði að það væri án efa affarasælast að við öll, almenningur, sérfræðingar og stjórnvöld, myndum reyna að viðhalda þeirri einingu sem hafi gefist vel. 1.1.2022 15:00
Karlmenn langflestir gerenda: Mikil fjölgun ofbeldisbrota á árinu Tilkynningar um ofbeldisbrot voru um níu prósentum fleiri árið 2021 en síðustu þrjú ár á undan því sem nú er að líða. Langflest ofbeldisbrota áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu eða um 73 prósent. Fjöldi tilfella ofbeldis af hendi maka eða fyrrum maka síðustu tvö árin hafa aldrei verið fleiri. 1.1.2022 14:58
Ítrekað kallaðir út vegna sinuelda í Árnessýslu sem raktir voru til óleyfisbrenna Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu þurftu að sinna alls 54 útköllum, meðal annars vegna gróðurelda sem blossuðu upp víða í umdæminu, í gærkvöldi og í nótt. 1.1.2022 13:54
Flugeldaslys: „Fyrst og fremst fullorðnir karlmenn sem voru að brjóta öryggisreglur“ Nokkrir slösuðust við notkun flugelda í gærvöldi og í nótt. Meðal slasaðra voru börn og unglingar en fullorðnir karlmenn voru þó stærstur hluti þeirra sem slösuðust af völdum flugelda. Þá vakti furðu yfirlæknis á bráðamóttöku að margir hafi hlotið brunasár á höndum þessi áramótin. 1.1.2022 13:34
Steig í ógáti á bremsu svo flugvélin hafnaði á hvolfi við Blönduósflugvöll Flugmaður í aftursæti heimasmíðaðrar flugvélar steig í ógáti og of harkalega á bremsu sem varð til þess að vélin steyptist yfir sig og hafnaði á hvolfi við æfingar á grasi utan flugbrautar á Blönduósflugvelli 4. maí síðastliðinn. 1.1.2022 13:01
Sjáðu Kryddsíld í heild sinni Óhætt er að segja að umræðurnar hafi verið hressilegar í hinni árlegu Kryddsíld sem sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 í gær. 1.1.2022 12:33