Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samningar á lokametrum um kaup ríkisins á hótel Sögu Samningar eru á lokametrunum milli Bændasamtaka Íslands og Háskóla Íslands um kaup þeirra síðarnefndu á hótel Sögu. Formaður Bændasamtakanna segir söluna þó ekki í höfn fyrr en skrifað verði undir samninga. 9.12.2021 19:20
Ætla að stórefla Konukot: Heimilislausar konur fá glæný smáhýsi Stórefla á starfsemi Konukots og tvær heimilislausar konur flytja brátt í glæný smáhýsi á vegum borgarinnar. 9.12.2021 19:01
Þrettán þúsund börn í sóttkví á þremur mánuðum Þrettán þúsund börn hafa þurft að fara í sóttkví vegna kórónuveirufaraldursins á síðustu þremur mánuðum. Heilbrigðisráðherra segir sóttkví gríðarlega frelsisskerðingu fyrir börnin og er mögulega tilbúinn að skoða aðrar leiðir. 9.12.2021 18:57
Hafa selt mikinn meirihluta eigna HD verks eftir brunann Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar þess efnis að sýslumanni beri að gera kyrrsetningu hjá HD verki ehf, í tengslum við skaðabótakröfur vegna brunans sem varð þegar Bræðraborgarstígur 1 brann síðasta sumar. Félagið hefur selt stóran hluta eignasafns síns. 9.12.2021 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þrettán þúsund börn hafa þurft að fara í sóttkví vegna kórónuveirufaraldursins á síðustu þremur mánuðum. Heilbrigðisráðherra segir sóttkvína gríðarlega frelsisskerðingu fyrir börnin og er tilbúinn að skoða aðrar leiðir. 9.12.2021 18:01
Í gæsluvarðhald grunaður um fjölmörg brot gegn börnum Karlmaður á sjötugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald til 6. janúar, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 9.12.2021 17:14
Þolendur kynferðisbrota geta fylgst með stöðu rannsóknar á nýju vefsvæði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu opnaði í dag vefsvæði þar sem þolendur kynferðisbrota geta nálgast upplýsingar um stöðu mála og úrræði sem standa til boða. Hátt í fjögur hundruð kynferðisbrotamál eru nú á borði lögreglu og segir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákall hafa verið um bætta þjónustu. 9.12.2021 15:09
Maður grunaður um að nauðga unglingsstúlku í gæsluvarðhaldi þar til á morgun Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina vegna gruns um að hafa nauðgað stúlku á unglingsaldri. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á morgun. 9.12.2021 14:54
Skipar starfshóp til að fjalla um blóðmerahald Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. 9.12.2021 14:45
Hafa lækkað hámarkshraða á þessum götum borgarinnar Fyrsti áfangi hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkurborgar er að koma til framkvæmda um þessar mundir. Hafa starfsmenn borgarinnar verið að endurmerkja og skipta út skiltum vegna lækkunar hraða á nokkrum götum í borginni og taka merkingarnar gildi jafnóðum og þær koma upp. 9.12.2021 14:22
Eldur í Sigtúni reyndist vera í sjónvarpinu Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag eftir að tilkynnt var um eld í íbúð í Sigtúni í Reykjavík. 9.12.2021 13:58
Kostnaður vegna heimilislausra tvöfaldast frá 2019 Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna heimilislausra hefur tvöfaldast frá árinu 2019. Ákveðið hefur verið að bæta við styrkjum til Konukots þannig að heimilið þurfi ekki að reiða sig á sjálfboðaliða. 9.12.2021 13:33
Skólar í Fjarðabyggð áfram lokaðir vegna fjölgunar smita Þeim sem smitaðir eru af COVID-19 á Austurlandi hefur fjölgað síðustu daga. Síðustu tvo sólarhringa hafa tæp þrjátíu ný smit greinst, flest þeirra í Fjarðabyggð. Leikskólinn Lyngholt og grunnskólinn á Reyðarfirði og grunnskólinn á Eskifirði verða lokaðir út vikuna vegna þessa. 9.12.2021 13:19
Foringi Stulla í bann á Korpu og Grafarholtsvelli Steingrímur Gautur Pétursson kylfingur hefur verið dæmdur í skráningarbann af aganefnd Golfklúbbs Reykjavíkur. Bannið varir í mánuð og tekur gildi þegar tímabilið hefst. 9.12.2021 12:53
Gagnrýni á friðlýsingu Dranga „stormur í vatnsglasi“ Fyrrverandi umhverfisráðherra segir ekkert óeðlilegt við að hans síðasta embættisverk hafi verið að skrifa undir friðlýsingu jarðarinnar Dranga á Ströndum. Málið hafi komið inn á borð umhverfisráðuneytisins í upphafi kjörtímabils og hann hafi viljað klára það fyrir lok þess. 9.12.2021 12:47
Vongóð um samtal við stjórnvöld um eingreiðslu í desember „Það skiptir gríðarlega miklu fyrir fólk að fá þessa eingreiðslu sem hefur komið frá ríkinu undanfarin tvö jól. Þörfin hefur ekki minnkað,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. 9.12.2021 12:29
Spurning hvort þróunin sé að snúast við og við séum að fara upp á við Í gær greindust 149 með kórónuveiruna innanlands en fleiri hafa ekki greinst með veiruna í hálfan mánuð. Sóttvarnalæknir segir spurningu hvort að þróunin sé að snúast við og faraldurinn að fara upp á við aftur. 9.12.2021 11:46
Alvarlegur grunur um geislavirkni reyndist sem betur fer rangur Umsjónarmaður fasteigna við Háskólann á Akureyri segist hafa verið verulega létt þegar í ljós kom að hann hafði ekki komist í snertingu við geislavirkt efni. Torkennilegur hlutur mun þó reynast Geislavörnum ríkisins vel. 9.12.2021 11:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um heimilislausa í Reykjavík en kostnaður borgarinnar vegna þessa málaflokks hefur tvöfaldast frá árinu 2019. 9.12.2021 11:33
149 greindust innanlands 149 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 69 af þeim 149 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 46 prósent. 80 voru utan sóttkvíar, eða 54 prósent. 9.12.2021 10:43
Vilja láta rannsaka möguleg tengsl krabbameina og mengunar á Suðurnesjum Sjö þingmenn Suðurkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela heilbrigðisráðherra að gera saming við Krabbameinsfélag Íslands um rannsókn á nýgengi krabbameina á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta. 9.12.2021 10:08
Kolbrún stefnir á bæjarstjórann í Mosó Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi, varaformaður bæjarráðs og formaður fræðslunefndar, hefur tilkynnt að hún sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor. Prófkjör fer fram þann 5. febrúar næstkomandi. 9.12.2021 09:54
Fyrirlestri seðlabankastjóra um landnámsöldina frestað Til stóð að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi halda fyrirlestur um efnahagsmál á landnámsöld. Honum hefur nú verið slegið á frest. 9.12.2021 09:11
Bilun í aflvél í Búrfelli 1 eykur áhættu í rekstri raforkukerfisins Síðastliðinn laugardag varð bilun í sátri rafala aflvélar 2 í Búrfelli 1. Ekki er búið að staðfesta hversu umfangsmikil bilunin er en í ljósi reynslunnar er lágmarksviðgerðartími í kringum sex vikur. 9.12.2021 08:39
Frumvörp um velferð dýra og stjórn fiskveiða afgreidd til nefndar Fyrstu umræðu lauk á þingi í gær í tveimur frumvörpum frá stjórnarandstöðunni. 9.12.2021 08:26
Bólusett í Laugardalshöll fram að áramótum Bólusett verður í Laugardalshöll fram að áramótum, alla virka daga nema 17. desember, á Þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag. Um er að ræða breytingu á fyrirhuguðu fyrirkomulagi en til stóð að flytja bólusetningarnar að Suðurlandsbraut um miðjan mánuð. 9.12.2021 07:33
Kosið verði um sameiningu Akrahrepps og Skagafjarðar í febrúar Samstarfsnefnd sem sveitarstjórnir Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar skipuðu til að kanna kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna hefur skilað áliti sínu, þar sem hvatt er til sameiningar. 9.12.2021 07:27
Snjóþekja á Hellisheiði og hálka á Reykjanesbraut Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og hálkublettir á flestum stofnleiðum á höfuðborgarsvæðinu. 9.12.2021 07:21
Öll verstu mistök ársins Mistök geta verið allskonar; alvarleg, kaldhæðnisleg, grátleg og jafnvel fyndin! En það góða við mistök er að allir lenda í þeim einhvern tíma á lífsleiðinni. 9.12.2021 07:09
Guðmundur kaupir þrjú þúsund bækur Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið. 9.12.2021 07:01
„Þetta er bara vægast sagt hræðilegt fyrir orðspor okkar“ Eftir miklar umræður um fjárlagafrumvarp og tekjufrumvörp ríkisstjórnarinnar undanfarna daga áttu stjórnarandstöðuþingmenn sviðið á Alþingi í dag. 8.12.2021 23:06
Elliðaárstöð stendur ónotuð á tíma raforkuskorts í landinu Á sama tíma og kvartað er undan raforkuskorti í landinu vekur athygli að heil virkjun skuli standa ónotuð og það innan borgarmarka Reykjavíkur. Þetta er Elliðaárstöðin en forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sagði fyrir ári að engin þörf væri á meiri orku. 8.12.2021 22:16
Tölvupóstfangið gríðarlanga skorið rækilega niður Búið er að stytta tölvupóstfang Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmanns Pírata, þannig að nú inniheldur það aðeins fornafn og millinafn hennar í stað fulls nafns. 8.12.2021 21:12
Bjarni Ben og Björn Leví stigakóngar í nýrri Fantasy-deild Alþingis Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata eru eins og stendur verðmætustu þingmenn Alþingis, samkvæmt svokölluðum Fantasy-leik sem er nýkominn í loftið. 8.12.2021 21:00
Þjóðin beri aldrei aftur skaða af falli viðskiptabanka Seðlabankinn hefur sett reglur sem eiga að tryggja enn frekar að þjóðin beri aldrei aftur kostnað af falli viðskiptabanka. Þeir eigi að fjármagna sig með innlánum og forðast áhættusækni í eigin lántökum. 8.12.2021 20:00
Óttast um afdrif sautján ára stúlku sem lögreglan leitar að Leit lögreglu og björgunarsveita stendur nú yfir að sautján ára stúlku sem síðast sást til á Smiðjuvegi í Kópavogi um hálfsexleytið í dag. Óttast er um stúlkuna, að sögn lögreglu, og því mjög mikilvægt að hún finnst sem allra fyrst. 8.12.2021 19:33
Ný brú yfir Fossvog tilbúin eftir um tvö ár Borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs líst vel á vinningstillögu að brú milli Reykjavíkurflugvallar og Kársness sem kynnt var í dag. Brúin verður eitt fyrsta mannvirkið sem tengist Borgarlínu. 8.12.2021 19:20
121 þúsund manns hafa mætt í örvunarbólusetningu Örvunarskammtur af bóluefni Pfizer þykir veita góða vernd gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar. Þetta sýna nýjar rannsóknir fyrirtækisins. Sóttvarnalæknir segir ávinning af örvunarskammti ótvíræðan en skiptar skoðanir eru meðal almennings um hvort sérreglur eigi að gilda fyrir bólusetta. 8.12.2021 19:19
Hildur stefnir á oddvitasætið: Ætlar sér að verða borgarstjóri Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Hún stefnir á að vera borgarstjóri og ætlar sér að setja samgöngumál og leikskólamál á oddinn. 8.12.2021 19:00
Fluttur á slysadeild eftir fjögurra bíla árekstur Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar í dag og var einn fluttur á slysadeild til nánari skoðunar. Sá var ekki alvarlega slasaður. 8.12.2021 18:33
Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. 8.12.2021 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Örvunarskammtur af bóluefni Pfizer þykir veita góða vernd gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar. 8.12.2021 18:00
Gera úttekt á Hugarafli í kjölfar ásakana Félagsmálaráðuneytið hefur óskað eftir því að Vinnumálastofnun geri úttekt á starfsemi Hugarafls í kjölfar ábendinga og kvartana frá fyrrverandi félagsmönnum samtakanna. 8.12.2021 17:54
Listamaður lagði Reykjavíkurborg í deilu um myndband sem ekki var greitt fyrir Listamaðurinn Hulda Rós Guðnadóttir lagði Reykjavíkurborg í Héraðsdómi Reykjavíkur í deilu um myndefni í eigu Huldu sem notað hafði verið af borginni á sýningu á Sjóminjasfaninu. Borgin hafði ekki greitt fyrir afnot af myndefninu. 8.12.2021 16:44
Lögreglan leitar konu sem ók á tvær unglingsstelpur á rafhlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir konu sem ók BMW-bíl á tvær unglingsstúlkur á rafhlaupahjóli á Dalvegi í Kópavogi í nóvember. 8.12.2021 15:56